| « 19. október |
■ 20. október 2009 |
» 21. október |
Misheppnuð hlutabréfakaup skilja eftir sig 11 milljarða skuld
Þrjú félög athafnamannsins Sigurðar Bollasonar skilja eftir sig ellefu milljarða króna skuld eftir misheppnuð hlutabréfakaup í Landsbankanum, Glitni og Existu á árinu 2008. Allar eignirnar eru verðlausar og þurfa lánadrottnar Sigurðar því að öllum líkindum að afskrifa milljarðana ellefu.
Mansalsmálið orðið að rannsókn á stórfelldri skipulagðri glæpastarfsemi
Mansalsmálið í Reykjanesbæ hefur undið upp á sig og snýst nú um rannsókn á stórfelldri skipulagðri glæpastarfsemi með aðkomu Litháa og Íslendinga. Lögreglan hefur gert húsleit á nokkrum stöðum í dag og fjórir til viðbótar hafa verið handteknir - allt Íslendingar.
Seðlabankinn tvívegis inn á gjaldeyrismarkaðinn í dag
Óverulegar breytingar urðu á gengisvísitölu krónunnar í dag, en Seðlabankinn fór tvívegis inn á gjaldeyrismarkaðinn í dag, en hann hefur ekki farið inn á markaðinn í um það bil mánuð.
Viðskiptaráðuneytið segir erlendar skuldir Íslands viðráðanlegar
Fjölmörg lönd Vestur-Evrópu eru með þyngri verga skuldastöðu í hlutfalli við landsframleiðslu en Ísland, segir efnahags- og viðskiptaráðuneytið. Fullyrðingar um að erlendar skuldir þjóðarbúsins séu óviðráðanlegar eiga ekki við rök að styðjast, segir ráðuneytið enn fremur.
Alþingi skori á umhverfisráðherra að afturkalla ákvörðun
Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem Alþingi skorar á umhverfisráðherra að afturkalla ákvörðun um Suðvesturlínu. Ragnheiður Elín Árnadóttir er fyrsti flutningsmaður.
Siðareglur kjörinna fulltrúa staðfestar í borgarstjórn
Borgarstjórn Reykjavíkur staðfesti siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg rétt í þessu á fundi sínum. Borgarfulltrúar allra flokka að frátöldum Ólafi F. Magnússyni greiddu siðareglunum atkvæði sitt og skrifuðu undir þær á fundinum.
Skorar á ríkisstjórnina að endurskoða ákvörðun um Bakka
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi skorar á ríkisstjórnina að endurskoða ákvörðun um Bakka. Jafnframt skorar ráðið á ríkisstjórnina að hverfa frá villu síns vegar og hætta við skattahækkunaráform sín.
Hlutverk lífeyrissjóða í endurreisninni
Fimmtudaginn 22. október næstkomandi stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica um hlutverk lífeyrissjóðanna í því starfi sem framundan er við endurreisn hagkerfisins.
Meirihluti þingmanna felldi tillögu um að taka nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um Icesave-samningana á dagskrá í dag. Leita þurfti afbrigða, þar sem of skammur tími var liðinn frá því að frumvarpið var lagt fram.
Sírenan á fyrir þá sem nenna ekki heim í strætó
Bílstjórar víkja fyrir sjúkrabíl með bláum ljósum og sírenu, hvort heldur er hér á landi eða erlendis. Það er hins vegar ekki alveg víst að sjúkrabílarnir í Kaupmannahöfn séu í raunverulegum neyðarakstri, með sársjúka menn um borð eða á leið í slysaútkall. Latir læknar þar í borg eiga það nefnilega til að fá sjúkrabílstjórana til að skutla sér bæjarleið, jafnvel heim eftir vinnu, með forgangshraði.
Mannvit: Þróunarverkefni á sviði jarðhitanýtingar í Bandaríkjunum
Verkfræðistofan Mannvit og alþjóðlega verkfræðifyrirtækið Technip hafa undirritað samstarfssamning um þróunarverkefni á sviði jarðhitanýtingar í Bandaríkjunum. Hvergi hefur verið virkjað eins mikið af jarðhita í heiminum eins og í Bandaríkjunum. Samningurinn opnar leiðir fyrir íslensku verkfræðiskrifstofuna inn á bandaríska markaðinn.
Halda höftin aftur af krónunni?
Ekki verður hjá því komist að velta vöngum yfir því hvort þróun íslensku krónununnar hefði orðið í ætt við það sem orðið hefur með ungverslu forintuna, hefði gjaldeyrishöftum verið aflétt fljótlega eftir að áætlun stjórnvalda og AGS var ýtt af stokkunum. Ungverski gjaldmiðillinn hefur staðið af sér storminn.
Lækkar Seðlabankinn stýrivexti 5. nóvember?
Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er 5. nóvember næstkomandi. Greining Íslandsbanka telur að peningastefnunefnd bankans muni ákveða að lækka vexti bankans þá ef endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verður í höfn.
Apple eykur hagnað og hlutabréf rjúka upp
Hagnaður Apple á síðasta ársfjórðungi jókst um 47% miðað við sama tíma á liðnu ári. Í heild hagnaðist tölvurisinn um 1,67 milljarða dollara í fjórðunginum sem lauk 26. september. Sala jókst um 25%.
Lögreglan á Selfossi handtók um hádegi í gær þrjá Litháa í Grímsnesi. Ástæðan var grunur um aðild að þjófnaði úr ferðamannaversluninni á Geysi fyrir rúmri viku þegar stolið var vörum fyrir um 400 þúsund krónur.
Meirihluti ber mikið traust til Evu Joly og sérstaks saksóknara
Nær 67% landsmanna segjast bera mikið traust til Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á refsiverðri háttsemi í tengslum við bankahrunið. Þetta eru 7,7 sinnum fleiri en segjast bera lítið traust til frú Joly (8,7%).
AFL Starfsgreinafélag hefur aldrei gert samning um eignastýringu
AFL Starfsgreinafélag hefur aldrei gert samning um eignastýringu við Landsvaka, segir í tilkynningu. Félagið var hins vegar með samning um eignastýringu við Landsbanka Íslands hf. Sjóðstjórar Landsvaka önnuðust því ekki á neinum tímapunkti upplýsingagjöf til Afls eða fóru með fjármuni félagsins.
Heimsýn Vestmannaeyjum stofnað
Í kjölfar fundar um Evrópumál í Vestmannaeyjum þann 18. október 2009 þar sem Björn Bjarnason var frummælandi var haldinn stofnfundur Heimssýnar Vestmannaeyjum. Heimssýn er hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum.
Landic Property selur fasteignasafn í Danmörku fyrir tæpa 50 milljarða
Fasteignafélagið Landic Property hf. hefur skrifað undir samning um sölu á Atlas I fasteignasafninu (Landic Property Denmark A/S) til danska fasteignafélagsins Jeudan A/S. Fasteignasafnið samanstendur af 31 fasteign sem flestar eru staðsettar í miðborg Kaupmannahafnar.
Kaupþing tapar máli gegn breska fjármálaráðuneytinu
Dómstóll í Bretlandi (e. High Court of Justice) kvað í dag upp dóm í máli Kaupþings banka gegn breska fjármálaráðuneytinu, en málið hófst í janúar 2009 er Kaupþing banki óskaði eftir lagalegri endurskoðun á lögmæti ákvörðunar breska fjármálaráðuneytisins í október 2008 um að flytja innstæður á Kaupthing Edge reikningum hjá Kaupthing Singer & Friedlander (KSF) til þriðja aðila.
Guðmundur Magnússon gefur kost á sér í 1. sæti á Seltjarnarnesi
Guðmundur Magnússon, framkvæmdastjóri hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar næsta vor, og mun sækjast eftir 1. sætinu.
UVG: Mannréttindaráðuneyti standi undir nafni
Stjórn Ungra vinstri grænna (UVG) lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Útlendingastofnunar og Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra þess efnis að vísa fjórum flóttamönnum úr landi og senda þá til Grikklands.
Ríkislögreglustjóri: Standa verður vörð um uppbygginguna
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri segir að nú ríki óvissutímar og lögreglan standi á tímamótum. Hann kveður nauðsynlegt að farið verði varlega í breytingar á skipan lögreglumála hér á landi. Sú uppbyggingarvinna sem unnin hefur verið megi ekki fara forgörðum.
Olían nálgast 80 dollara – og gullið fylgir með
Verð á olíu hækkar og nálgast nú 80 dollara á tunnu í kjölfar falls dollarans en verðgildi hans hefur ekki verið lægra í 14 mánuði. Verðfall hans eykur sókn fjárfesta í olíuna. Lækkun dollarans veldur enn fremur hækkun á gulli og almennt hækka málmar í verði.
Hækkun vísitölu byggingarkostnaðar
Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan október 2009 er 497,0 stig sem er hækkun um 0,34% frá fyrri mánuði. Vísitalan hefur hækkað um 7,2% síðastliðna tólf mánuði.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, AGS, hefur sett þumalskrúfur á sænska banka. Reyni þeir að losna undan lánasamningum í Eystrasaltslöndunum mun AGS ekki vinna gegn gengisfalli gjaldmiðla þar. Swedbank og SEB hafa lánað mest á svæðinu.
Fjárfestar flýja bandarískan svikasjóð
Fjárfestar flýja nú bandaríska vogunarsjóðinn Galleon Group í kjölfar meintra innherjasvika Raj Rajaratnam, eins stofnenda sjóðsins. Þegar liggur fyrir að þeir sem lagt hafa fé sitt í sjóðinn vilja ná 1,3 milljörðum dollara út úr honum.
Snorri býður sig fram til formennsku í BSRB
Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram til formanns BSRB á 42. þingi bandalagsins, sem haldið verður á Grand Hótel í Reykjavík, dagana 21. – 23. október.
Stöðugleikasáttmálinn í algjörri óvissu
Stöðugleikasáttmáli ríkisins og aðila vinnumarkaðarins er í mikilli óvissu. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að mögulegt að samningurinn falli. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins tekur undir að sáttmálinn sé í uppnámi.
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ekki sent málefni Stíms til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra eða til sérstaks saksóknara. FME er enn með málið til skoðunar sem hefur reynst flóknara en í fyrstu var talið.
Bretar kátir með Icesave-samninginn
Ian Pearson yfirmaður hagdeildar breska fjármálaráðuneytisins segir að Icesave samkomulagið sem nú liggur fyrir sé góðar fréttir fyrir breska og hollenska skattgreiðendur. Vísir vitnar í orð Pearson á vefsíðunni Fresh Business Thinking.
Hefur Ögmundur geð í sér að samþykkja Icesave?
Smáfuglarnir velta því fyrir sér hvort Ögmundur Jónasson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, geti haft geð í sér að styðja Icesave-samninginn við Hollendinga og Breta. Varla, miðað við hvernig hann skrifar um þessar þjóðir.