| « 26. september |
■ 27. september 2009 |
» 28. september |
Kona grunuð um að hafa stungið 5 ára stúlku með eggvopni
Um miðjan dag var 22 ára gömul kona handtekin í Keflavík grunuð um að hafa þá skömmu áður veitt 5 ára gamalli stúlku áverka með eggvopni.
Samtök iðnaðarins gagnrýna stjórnvöld harðlega
Samtök iðnaðarins [SI] gagnrýna ríkisstjórnina harðlega, vegna vinnubragða í samskiptum við erlenda fjárfesta og uppbyggingu atvinnustarfsemi í landinu. Togstreita innan ríkisstjórnarinnar er sögð valda þjóðinni miklum búsifjum.
Ólafur Örn Nielsen kjörinn formaður SUS
Ólafur Örn Nielsen var kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) á þingi sambandsins sem haldið var um helgina á Ísafirði. Hann halut um 52% atkvæða en Fanney Birna Jónsdóttir fékk 48%.
Skrikvagnar notaðir til að auka skilning á akstri við erfiðar aðstæður
Á morgun, mánudaginn 28. september kl 11:00 afhendir Sjóvá Forvarnarhúsinu tvo skrikvagna að gjöf og verða þeir notaðir við ökukennslu á vegum Ökukennarafélags Íslands.
Höskuldur: Enn einn liðurinn í að blekkja þjóðina
Höskuldi Þór Þórhallsson, þingmanni Framsóknarflokksins, líst illa á þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að endurnýja ekki viljayfirlýsinguna við Norðurþing og Alcoa um að reisa álver á Bakka. Álheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, fagnar ákvörðuninni hins vegar.
Breytingar á peningastefnu Seðlabankans eru til skoðunar
Breytingar á peningastefnu Seðlabankans eru til skoðunar að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Hún segir að ákvörðun Seðlabankans síðasta fimmtudag, um að stýrirvextir yrðu óbreyttir í 12%, hafi valdið sér miklum vonbrigðum.
Ísland fyrsta fórnarlamb græðgi og óhófs fjármálajöfra
Ísland var fyrsta landið sem varð fórnarlamb græðgi og óhófs fjármálajöfra sem misnotuðu reglur, fylgdu vafasömum vinnureglum, földu peninga í skattaparadísum og komu á ábyrgðarlausu kerfi bónusgreiðslna sem ýttu undir fífldirfsku umfram það sem heimurinn hefði áður séð, sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í ræðu á allsherjarþingi SÞ í gærkvöld.
Áskrifendur veita aðhald en annars er hægt að misbeita fjölmiðlum
Þegar eigandi fjölmiðils getur beint auglýsingum úr eigin fyrirtækjum í viðkomandi fjölmiðil og þarf ekki að höfða til lesenda, er hægt að misbeita fjölmiðlinum. Áskrifendur veita mest aðhald. Þetta eru skilaboðin úr fyrsta Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins eftir að Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen tóku við ritstjórn blaðsins.
Ræður Ólafs Ragnars ekki birtar
Á vefsíðu embættis forseta Íslands, forseti.is, má lesa um fína fólkið í Washington og New York, sem Ólafur Ragnar hefur hitt undanfarna daga. Þar er einnig getið um ummæli nokkurra viðmælenda Ólafs Ragnars.
Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvort utanríkisráðuneyti Íslands hafi ekki einu sinni efni á að þýða ræðu Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, á þingi Sameinuðu þjóðanna á íslensku. Hún er aðeins á ensku á vefsíðu ráðuneytisins, líklega ESB-ensku.
Agnes gefur Reyni Traustasyni viðurnefni: Litli ritsóðinn
Smáfuglarnir bíða spenntir eftir því hvernig Reynir Traustason, ritstjóri DV ætlar að svara Agnesi Bragadóttur, sem tekur hann föstum tökum í pistli í sunnudagsblaði Moggans. Þar segir Agnes að ritstjórinn, sem hún kallar raunar „Litla ritsóðann“, hafi engan skilning á því hvað felist í heiðarleika og enn minni skilning á því hvað sé að segja satt.
Skotið fast á Herdísi Þorgeirsdóttur
Tónninn hefur verið gefinn í fyrsta Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins undir ritstjórn Davíðs Oddssonar og Haraldar Johannessen. Greinilegt það verður lítil lognmolla á ritstjórn blaðsins, enda einn af beittustu pennum landsins sestur niður við skriftir.