amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 23. maí 2013 - 06:57
 

Föstudagurinn 18. september 2009

«
17. september

18. september 2009
»
19. september
Fréttir

Norskur fjárfestir verður hluthafi í MP Banka hf.

Norski fjárfestirinn Endre Røsjø og MP Banki hf. hafa náð samkomulagi um að Røsjø eignist hlut í bankanum að loknum fyrirhuguðum hluthafafundi í næsta mánuði og verði þar með virkur hluthafi við framtíðarþróun bankans.

Ekkert vafasamt fannst hjá Stoðum síðustu tvö árin í rekstri

Enginn vafasamur gjörningur fannst við skoðun á síðustu tveimur árum í rekstri Stoða, áður FL-Group, sem ástæða þótti til að rifta fyrir dómi. Frestur til að höfða riftunarmál rann út í fyrradag.

Sjálfstæðis­flokkurinn: Ósannar og ómerkilegar yfirlýsingar forsætis­ráðherra

Þegar Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra ber Sjálfstæðis­mönnum það á brýn að hafa rofið trúnað varðandi viðbrögð Breta og Hollendinga í Icesavemálinu, þá er hún trú gamla máltækinu, að betra sé að veifa röngu tré en öngvu. Ekkert getur verið fjær sanni en að Sjálfstæðis­flokkurinn hafi rofið trúnað, segir í tilkynningu frá þing­flokki Sjálfstæðis­flokksins.

InDefence: Enn leyna stjórnvöld gögnum um Icesave málið

Enn á ný leyna stjórnvöld gögnum um Icesave málið, segir í yfirlýsingu InDefence hópsins sem krefst þess að öll gögn um viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis við ríkisábyrgð á Icesave samningunum verði birt tafarlaust. Rök fjármála­ráðherra fyrir leynd eru fjarstæðukennd, segir í yfirlýsingu hópsins.

Bil milli verðtryggðra og óverðtryggðra vaxta á skuldabréfa­markaði styttist

Bil milli verðtryggðra og óverðtryggðra vaxta á skuldabréfa­markaði hélt áfram að styttast í dag þegar ávöxtunarkrafa íbúða­bréfa hækkaði um 0 til 6 punkta á sama tíma og krafa ríkis­bréfa lækkaði um 1 til 5 punkta. Velta var meiri en verið hefur í vikunni, 15,7 milljarðar króna.

Hert eftirlit með gjaldeyris­reglum

Gjaldeyris­eftirliti Seðlabankans hefur verið fundinn nýr staður í skipuriti bankans með því markmiði að efla það. Hér eftir verður það sjálfstæð eining sem heyrir beint undir Seðlabanka­stjóra. Gjaldeyris­höft eru þó afar erfið í framkvæmd og dregur úr virkni þeirra eftir því sem þau vara lengur.

Hvert er svigrúm til afskrifta?

Endur­skipulagning skulda einkaaðila er mikilvægur þáttur í endurreisn efnahagslífsins í kjölfar kerfislægrar fjármálakreppu líkt og hér hefur riðið yfir. Tímasetning, mótun og framkvæmd er þó mjög vandasöm og tekur jafnan nokkur ár í framkvæmd, segir hag­fræðingur á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands.

Forseti ASÍ: Hvorki komið fram með ósiðlegum né ótrúverðugum hætti

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir varðandi tengsl sín við félag í Lúxemborg sem stofnað var í gegnum tvö skúffufélög á Tortola og áskorunar um afsögn, að hann hafi hvorki komið fram með ósiðlegum eða ótrúverðugum hætti.

Framsókn: Ríkisábyrgðin fellur úr gildi sætti Bretar og Hollendingar sig ekki við fyrirvarana

Þing­flokkur framsóknar­manna áréttar að ef fulltrúar Breta og Hollendinga sætta sig ekki að hluta eða í heild við lög um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna, fellur ábyrgðin úr gildi og þeir fyrirvarar sem við hana eru, að því er fram kemur í ályktun þing­flokksins.

Borgin býður út innheimtu viðskiptakrafna

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að bjóða út innheimtu viðskiptakrafna og tengda þjónustu fjármálafyrirtækja fyrir Reykjavíkurborg enda er það almenn stefna borgarinnar að bjóða út þjónustu fremur en að semja beint við einstök fyrirtæki.

Íslensk frumkvöðlaráð­stefna í heilu lagi á Youtube

Fyrirlestrar Jeff Taylors, Salem Samhoud og Hermanns Guðmundssonar, sem fluttir voru á Start09 ráð­stefnunni í Borgarleikhúsinu í sumar, hafa nú verið settir á vefinn. Hægt er að horfa á fyrirlestrana í 10 mínútna löngum myndbrotum á myndbandavefnum Youtube.

Milestone úrskurðað gjaldþrota

Stjórn Milestone ehf. hefur óskað eftir eftir því að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur í dag fallist á ósk félagsins og kveðið upp úrskurð um að félagið skuli tekið til gjaldþrotaskipta.

Sjálfstæðis­flokkurinn bætir verulega við sig frá kosningum

Sjálfstæðis­flokkurinn bætir við sig tæpum 8% frá síðustu kosningum og mælist nú stærsti stjórnmála­flokkurinn á þingi, en 31,6% segjast myndu kjósa flokkinn væri gengið til kosninga í dag, að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnum MMR. Fylgi ríkis­stjórnar­flokkanna dalar. Minna en helmingur segist styðja ríkis­stjórnina.

Þingmennirnir hætta í Borgarahreyfingunni og stofna Hreyfinguna

Þrír þingmenn Borgarahreyfingarinnar og tveir varaþingmenn hafa komið sér saman um stofnun nýrrar hreyfingar undir heitinu Hreyfingin. Eftir þetta er enginn eftir í þingmannahópi Borgarahreyfingarinnar þar sem Þráinn Bertelsson sagði sig frá Borgarahreyfingunni í sumar vegna ágreinings við aðra þingmenn

„Heilbrigð æska“ – pönkið og Kópavogurinn 1978 – 1983

Á morgun, laugardag, verður opnuð sýningin „Heilbrigð æska“, pönkið og Kópavogurinn 1978 – 1983. Tilgangur sýningarinnar er að varpa ljósi á pönkmenninguna sem myndaðist í Kópavogi á árunum 1978– 1983. Pönk og Kópavogur eru tengd sterkum böndum en bærinn var eins konar vagga pönksins.

Talsmaður neytenda óttast málasúpu vegna ágreinings um neytendalán

Talsmaður neytenda hefur haft samband við dómsmálayfirvöld vegna þess málafjölda sem búast má við að óbreyttu vegna ágreinings um lögmæti neytendalána og réttmæti í kjölfar forsendubrests. Tekið er undir áhyggjur annarra af málafjölda í kjölfar efnahagshrunsins.

Innlend velta minnkar að raunvirði

Mikil breyting hefur orðið á umsvifum í hinum ýmsu atvinnugeirum hér á landi frá því kreppan skall á fyrir ári síðan. Útflutningsgreinar hafa staðið allvel af sér storminn en þær greinar sem byggja á innlendri eftirspurn eiga hins vegar við ramman reip að draga nú um stundir.

Inngrip Seðlabankans styrkti krónuna í morgun

Krónan hefur sótt í sig veðrið í morgun eftir veikingu gærdagsins og skrifast styrkingin á inngrip Seðlabankans. Nam styrking dagsins 0,6% fyrir hádegi. Bankinn, sem látið hefur gjaldeyris­markaðinn óáreittan það sem af er september, virðist leitast við að halda gengi evru gagnvart krónu í grennd við 180 kr. þessa dagana.

Metfjöldi erlendra ferðamanna í einum mánuði

Met var slegið í fjölda erlendra ferðamanna í ágústmánuði en alls fóru um 92 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð. Er það fjölgun upp á 9,6% frá sama mánuði fyrir ári sem þá var met. Ferðaþjónustan virðist því njóta góðs af lágu gengi krónunnar. Íslendingar snardraga hins vegar úr utanlandsferðum.

Árni Þór segir Breta og Hollendinga ekki krefjast lengri ríkisábyrgðar

Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkis­mála­nefndar Alþingis, segist ekki skilja viðbrögð Breta og Hollendinga við Icesave fyrirvörum Alþingis þannig að þjóðirnar vilji að ríkisábyrgðin verði lengd til ársins 2030 - eða jafnvel til 2040.

SI: Vinnubrögð stjórnvalda valda töfum og tjóni

Samtök iðnðarins gagnrýna harðlega vinnubrögð stjórnvalda í samskiptum við erlenda fjárfesta og uppbyggingu iðnaðar sem reiðir sig á nýtingu orkuauðlinda. Stjórnvöld eru ekki samstiga og senda frá sér misvísandi skilaboð, segir stjórn samtakanna.

Krafa um almennar leiðréttingar lána vegna forsendubrests

Hagsmuna­samtök heimilanna gera kröfur um almennar leiðréttingar lána vegna forsendubrests af völdum kreppunnar. Þessar kröfur fá vaxandi hljómgrunn meðal almennings og æ fleirum verður ljóst að slíkar leiðréttingar eru bæði réttlátar, sanngjarnar og hagkvæmar fyrir sam­félagið í heild, segir í ályktun fundar Hagsmuna­samtaka heimilanna.

Þing­nefndir fjalla um viðbrögð Breta og Hollendinga

Utanríkis­mála­nefnd Alþingis kom saman til fundar klukkan átta í morgun og er eina dagskrárefni fundarins viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis við ríkisábyrgð á Icesave samkomulaginu. Efnahags- og skatta­nefnd Alþingis mun funda um málið klukkan tíu.

Vilja að ríkisábyrgðin gildi til 2030 og jafnvel allt til 2040

Bretar og Hollendingar hafna fyrirvara um að ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna gildi ekki nema til ársins 2024 óháð því hvað þá stendur eftir af skuldinni. Þjóðirnar gera kröfu um að ákvæðinu verði breytt þannig að ríkisábyrgðin gildi til ársins 2030, og jafnvel sé þá mögulegt að framlengja hana um allt að tíu ár, að því er Fréttablaðið hefur eftir heimildum sínum.

Guðbjartur: Ný tillaga fer fyrir þingið breyti stjórnin Icesave-fyrirvörum

Ef ríkis­stjórnin ákveður að gera þurfi breytingar á Icesave samþykktinni þarf málið að fara aftur fyrir þing. Sjálfstæðis­menn og Framsóknar­menn segja að það komi ekki til greina. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaga­nefndar, segir að ef ríkis­stjórnin breyti fyrirvörunum sem Alþingi hefur samþykkt vegna ríkisábyrgðar á Icesave samningnum þurfi að semja nýja tillögu og leggja hana aftur fyrir þingið.

Sindri leggur út af hruninu

Hrun íslenska efnahagskerfisins hratt af stað atburðarás sem ekki sér endann fyrir, en það á sér líka örlagaríka forsögu. Hrunið er kveikjan að nýrri bók Sindra Freyssonar, Ljóðveldið Ísland, sem Svarta forlag hefur nú gefið út og þjófstartar þar með ársafmæli hrunsins.

Utanríkis­ráðherra Spánar fundaði með Jóhönnu

Miguel Angel Moratinos, utanríkis­ráðherra Spánar, átti fund með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra, í Stjórnar­ráðshúsinu í gærkvöld. Spánn tekur við formennsku í ráðherrarráði Evrópu­sambandsins um næstu áramót er formennskutímabili Svía lýkur.

Þing­flokkur Sjálfstæðis­flokks hafnar breytingum á lögum vegna Icesavesamninganna

Höfnun Breta og Hollendinga á þeim fyrirvörum sem Alþingi samþykkti í lok ágúst við Icesavesamningana, felur í sér að ríkisábyrgð vegna skuldbindinganna tekur ekki gildi. Þing­flokkur Sjálfstæðis­flokksins telur að ekki komi til greina að hverfa frá þeim fyrirvörum sem Alþingi samþykkti vegna ríkisábyrgðarinnar, segir m.a. í ályktun þing­flokksins.

Fuglahvísl

ESB-aðildarsinni segir Íslendinga láta eins og fávitar

Jón Frímann er ákafasti bloggari í þágu ESB-aðildar í netheimi. Hann fer hamförum, ef færð eru rök gegn aðild, eins og Sturla Böðvarsson, fyrrv. ráðherra, gerir á pressan.is 18. september.

AGS-lepp­stjórn í ICESAVE vanda

„Hversu vitlausir þurfa menn að vera til þess að sjá ekki að hér ræður AGS öllu og ríkis­stjórnin er í raun lepp­stjórn hans? Öll endurreisn er gaddfrosin og enginn kemur mörlöndum til hjálpar fyrr en samningum um Icesave verður endanlega lokið.“

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX