amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Mánudagurinn 20. maí 2013 - 15:16
 

Föstudagurinn 12. júní 2009

«
11. júní

12. júní 2009
»
13. júní
Fréttir

Jónmundur Guðmarsson ráðinn framkvæmda­stjóri Sjálfstæðis­flokksins

Á fundi mið­stjórnar Sjálfstæðis­flokksins í dag var Jónmundur Guðmarsson, bæjar­stjóri á Seltjarnarnesi, ráðinn framkvæmda­stjóri flokksins. Hann mun hefja störf fljótlega.

Fasteignamat íbúðar­húsnæðis hækkar

Fasteignamat íbúðar­húsnæðis hækkar um 2,5% í nýju mati, en fasteignamat atvinnuhúsnæðis lækkar um 6% og jarða um 2,2%. Þá lækkar fasteignamat sumarbústaða um 5%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fasteignaskrá Íslands.

Vaxta­rþáttur úr Grænni smiðju ORF í Grindavík notaður í húðvörur

Fyrstu húðvörurnar með vaxta­rþætti sem framleiddur er í Grænni smiðju ORF Líftækni í Grindavík verða brátt settar á markað í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjum samningi ORF Líftækni og bandaríska húðvöru­fyrirtækisins Ronald L. Moy, MD. Inc.

Greiðslubyrðin getur orðið margföld það sem sagt hefur verið

Standist ekki forgangsatriði neyðarlaganna, svokölluðu, um að innistæður í hinum föllnu bönkum, njóti forgangs gagnvart öðrum kröfum, verður greiðslubyrði íslenska ríkisins margfalt meiri en ætla má af því hvernig Icesave-samningurinn við bresk og hollensk stjórnvöld hefur verið kynntur. Ekki er hægt að ganga út frá því að ákvæði neyðarlaganna um forgang innistæðna standist.

Stjórnar­mönnum í lífeyris­sjóðum settar siða­reglur

ASÍ kynnti í gær siða­reglur þar sem fram kemur að starfs- og stjórnar­mönnum lífeyris­sjóða er óheimilt að þiggja eða sækjast eftir gjöfum eða fjármunum frá viðskiptavinum. Þá er þeim óheimilt að þiggja boðsferðir af viðskiptavinum, innanlands sem utan.

Eitt af hverjum sex heimilum með mjög þunga greiðslubyrði

Skuldsetning íslenskra heimila er mikil í alþjóðlegum samanburði þegar hún er mæld í hlutfalli við ráðstöfunartekjur en greiðslubyrði lána virðist engu að síður vera viðráðanleg fyrir flesta. Eitt af hverjum sex heimilum er með mjög þunga greiðslubyrði, að því er fram kom á málstofu Seðlabankans.

Jón og VG vilja ekki sækja um aðild að Evrópu­sambandinu

Jón Bjarnason, sjávar­útvegs­ráðherra, sagði Arthur Cook, stjórnar­formanni breska sjávar­útvegs­fyrirtækisins Fishgate, að hann og Vinstri grænir vildu ekki sækja um aðild að Evrópu­sambandinu.

Kröfur Glitnis og nýju bankanna á FL Group nema 129 milljörðum

Kröfur Glitnis á FL Group nema samtals 71,8 milljörðum króna samkvæmt fundargerð til kröfuhafa. Kröfur Nýja Kaupþings á FL nema 41,3 milljörðum króna og Nýi Landsbankinn á 16,3 milljarða kröfu á félagið. Samtals nema kröfur Glitnis og nýju ríkisbankanna á FL Group því rúmlega 129 milljörðum króna.

Gunnar bauðst til að víkja úr stóli bæjar­stjóra

Eftir fund framsóknar­manna og sjálfstæðis­manna í gærkvöld lá fyrir samkomulag um að Gunnar Birgisson myndi víkja sem bæjarstóri en samstarfið halda áfram á þeim forsendum. Hins vegar var ekki samstaða um það meðal sjálfstæðis­manna en Gunnar bauðst til að víkja, að því er Morgunblaðið hefur heimildir fyrir.

Fuglahvísl

Einar Karl gerir athugasemd við smáfuglana

Einar Karl Haraldsson gerir athugasemd við skrif smáfuglanna. Þeim er ljúft og skylt að birta athugasemdina, án athugasemda. Einar Karl segir að ekki sé flugufótur fyrir staðhæfingum um að hann hafi verið milliliður milli Össurar Skarphéðinssonar, Ögmundar Jónassonar og Ólafs Ragnars Grímssonar.

Árni Páll krefst sparnaðar af Össuri – fjárlagagerð í uppnámi

Fyrir nokkrum dögum hét Steingrímur J. Sigfússon, fjármála­ráðherra, því, að fyrir vikulok yrði séð, hvernig tekið yrði á 20 milljarða króna niðurskurði á fjárlögum þessa árs, síðan yrði stigið hið einstaka skref að boða fjárlög til þriggja ára.

Einar Karl ætlar að „þvælast“ á biðlaunum um Land­spítalann

„Einar þvertekur hins vegar fyrir að þiggja nokkrar greiðslur sem verktaki Lands­spítalans. Aðspurður hvað felist þá í því að vera verktaki svarar Einar: „Ég verð þarna að þvælast,“ og áréttar að hann hafi ekki skrifað undir samning við Lands­spítalann og um þessar greiðslur hafi ekki verið samið.“

Snjall biðlaunaleikur Einars Karls og Land­spítalans

Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvernig fréttastofa ríkisins hefði tekið á þessu máli Einars Karls Haraldssonar ef hann hefði verið í Sjálfstæðis­flokknum, til dæmis tengdur Davíð Oddssyni eða Gunnari I. Birgissyni.

Toppeinkunn, krónan og norski seðlabanka­stjórinn

Nú þegar líður að því, að hinn norski toppmaður kveðji embætti sitt í Seðlabankanum, ættu fjölmiðlar að leita til Þórólfs Matthíassonar, prófessors við Háskóla Íslands, og spyrja hann, hvaða einkunn hann gæfi Øygard fyrir frammsitöðu hans í embætti seðlabanka­stjóra.

Auglýsingar um ESB og trúverðugleiki

Smáfuglarnir leyfa sér að álykta, að Þorsteinn Ingimarsson, bloggari, sé í hópi ESB-aðildarsinna. Af hverju er þessi ályktun dregin?

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX