Marel lýkur vel heppnuðu hlutafjárútboði
Hlutafjárútboði Marel Food Systems hf. til fagfjárfesta lauk í dag og var góð þátttaka í útboðinu og bárust tilboð um kaup á alls 26.567.963 hlutum. Stjórn félagsins ákvað að taka öllum tilboðum, sem voru að stærstum hluta frá lífeyrissjóðum, á verðinu 54 krónur á hlut.
Hundruð milljarða gufuðu upp í óefnislegum eignum
Óefnislegar eignir íslenskra banka sem sigldu í þrot, námu alls 245 milljörðum króna í lok fyrsta ársfjórðungs síðasta árs. Bókfært virði óefnislegra eigna FL Group nam tæpum 34 milljörðum króna. Alls má því segja að nær 279 milljarðar króna hafi „gufað“ upp við þrot íslensku bankanna og nauðasamninga FL Group.
Sigmundur Davíð: Greiðslur af Icesave-láni gætu fellt gengið
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar, bendir á að fyrirhugað lán vegna Icesave-skuldbindinga yrði í pundum og evrum. Greiðslur af slíku láni gætu fellt gengið.
Áfram rætt um stöðugleikasáttmála
Samtök atvinnulífsins funduðu í morgun með ASÍ hjá ríkissáttasemjara ásamt samtökum atvinnurekenda og launafólks á opinberum vinnumarkaði. Þar var ákveðið að halda áfram að ræða gerð stöðugleikasáttmála.
Utanríkismálanefnd fundar um Icesave
Utanríkismálanefnd Alþingis fundar nú vegna Icesave-samninganna, en fundurinn hófst klukkan 17. Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðst þess að nefndin þingaði um málið.
GM á lokastigi sölusamnings Saturn
Samningar um sölu General Motors á Saturn bílaframleiðslu sinni eru á lokastigi. Kaupandinn er sagður viðskiptamaðurinn Richard Penske, fyrrum kappakstursmaður, en hann stýrir fyrirtækinu Penske Automotive Group.
Seðlabankinn endurnýjar ekki innstæðubréf
Minni ástæða er fyrir Seðlabankann að gefa út skammtímaverðbréf en áður. Bankinn mun því ekki endurnýja innistæðubréfaflokk sem er á gjalddaga síðar í þessu mánuði
Starfshópur um endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar
Sjávarútvegsráðherra mun skipa starfshóp um endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar. Hann á að skilgreina álitaefni sem fyrir hendi eru í fiskveiðistjórnuninni og setja fram valkosti um leiðir til úrbóta þannig að greininni séu sköpuð góð rekstrarskilyrði en jafnframt að sátt náist um stjórn fiskveiða.
Atorka hefur fengið greiðslustöðvun meðan unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Félagið stefnir að því að því að kynna mat PwC á virði eignarsafns þess fyrir lánardrottnum innan tveggja vikna í tengslum við hugmyndir um fyrirkomulag fjárhagslegrar endurskipulagningar.
Laun hækkuðu lítillega á 1. ársfjórðungi eða um 0,8% frá fyrri fjórðungi. Það eru launahækkanir opinbera starfsmanna sem skýra hækkunina að mestu leyti en laun þeirra hækkuðu um 1,8% á tímabilinu en á sama tíma hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 0,3%.
Viðkiptaráð bendir enn á ljósu punktana
Viðskiptaráð benti í síðustu viku á það sem vel gengur í þjóðfélaginu, þrátt fyrir allt enda margt á réttri leið sem ekki má gleyma. Nú í vikulokin nefir ráðið það sem til betri vegar horfir, sé litið til dagsins í dag og undangenginna daga.
650 milljarða lán fyrir Icesave til 7 ára á 5,5% vöxtum
Íslenska ríkið þarf ekki að byrja að greiða af höfuðstól láns sem Bretar veita því vegna Icesave deilurnar fyrr en eftir sjö ár. Á þeim tíma þarf þó að greiða vexti af skuldabréfi sem verður gefið út með ríkisábyrgð. Heildarskuldbindingar Íslands vegna Icesave verða upp á 650 milljarða króna samkvæmt samkomulaginu og vextirnir 5,5 prósent á ári, að því er mbl.is greinir frá.
Segir ekkert innihald í ítrekuðum Icesave-yfirlýsingum
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er ekkert innihald fyrir ítrekuðum yfirlýsingum um gríðarmikinn árangur af samningaviðræðunum. Það mat byggir á samanburði við ímyndaðan samning sem aldrei stóð til að gera. Þvert á móti virðist í burðarliðnum samningur um ríkisábyrgð á gríðarlegum fjárhæðum, segir m.a. í athugasemd þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
Verði fylgt aflareglu verður þorskveiðin 150.000 tonn á næsta fiskveiðiári samkvæmt mælingum Hafrannsóknastofnunar. Er þetta aukning um 26 þúsund tonn frá ráðgjöf stofnunarinnar í fyrra en aflamarkið á yfirstandandi fiskveiðiári er 160 þúsund tonn.
Nýr skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík
Menntamálaráðherra hefur skipað Laufeyju Petreu Magnúsdóttur í embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík. Fjórir sóttu um embættið.
Segir lausn á Icesave-deilu í sjónmáli
Forsætisráðherra segir lausn á Icesave deilunni í sjónmáli og þar með gríðarlega mikilvægt skref í deilunni sem báðir aðilar geti fallist á. Hugsanlegt er að eignir Landsbankans gangi að fullu upp í skuldina sem er um 630 milljarðar króna.
Lánardrottnar Kaupþings í Lúxemborg samþykktu endurskipulagningaráætlun
Lánardrottnar Kaupthing Bank í Lúxemborg samþykktu í dag áætlun um endurskipulagningu bankans Samþykktu lánardrottnar sem eiga 98% af útistandandi kröfum samkomulagið og hins vegar 23 af þeim 25 bönkum um ræðir.
Raungengi krónu nálægt sögulegu lágmarki
Raungengi krónu í maí lækkaði um tæplega 2% frá fyrri mánuði og hefur nú ekki verið lægra síðan það náði sögulegu lágmarki í nóvember síðastliðnum. Þá var vísitala raungengis 64 stig en er nú 68,2 stig. Raungengi krónunnar er nú 30% undir langtímameðaltali.
Gunnar Páll Pálsson, fyrrverandi formaður VR, segir fréttir af launakjörum sínum hafa verið ónákvæmar og leiðréttir þær. Nóg hafi gengið á innan félagsins og því óheppilegt ef ónákvæmar upplýsingar verða til að magna elda innan þess.
Fimm ósanngjörnustu stöðusektirnar
Flestir bíleigendur þekkja þá leiðindatilfinningu að koma að bíl sínum og sjá sektarmiða á framrúðunni, fyrir of langa dvöl á stöðumæli eða stöðu bílsins. Það er þó smámál eitt miðað við ósanngjörnustu stöðusektirnar. Stöðumælaverðir geta verið óþægilega samviskusamir.
Olíuverð hefur tvöfaldast frá mars og gæti farið yfir 70 dollara í dag
Olíuverð hefur hækkað mjög á heimsmarkaði að undanförnu. Það hefur nær tvöfaldast frá því í mars. Í morgun var verð á tunnu af Norðursjávarolíu komið í 69,20 dollara og gæti jafnvel farið yfir 70 dollara í dag. Aukin áhættusækni ræður þessu fremur en meiri eftirspurn á markaði.
Varaformaður LÍÚ: Pólitískur stöðugleiki er sjávarútvegi nauðsynlegur
Það er alger nauðsyn að sjávarútvegur fái að búa við stöðugleika í pólitísku umhverfi, nógu mikill er óstöðugleikinn sem búa verður við, segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ.
Danskur auðmaður segir fasteignamarkaðinn rísa að nýju
Mikael Goldschmidt, hinn þekkti milljarðamæringur í Danmörku, er reiðubúinn að byggja upp nýtt fasteignaveldi þar í landi en hann seldi íslenska fasteignafélaginu Stoðum fasteignafélag sitt, Atlas Ejendomme A/S, fyrir þremur árum. Goldschmidt keppti einnig við Íslendinga um lúxushótelið D'Angleterre en vék fyrir ofurboði þeirra.
Nær fjórðungsaukning á innfluttu hráefni til fiskvinnslu
Innflutt hráefni til fiskvinnslu var 130.649 tonn árið 2008 og jókst í magni um 25.447 tonn frá fyrra ári eða um 24,2%, að því kemur fram í nýjum Hagtíðindum Hagstofunnar . Verðmæti þessa innflutnings var 8,1 milljarður króna.
Lögreglan á Suðurnesjum lagði í gærkvöld hald á litla bruggverksmiðju í Reykjanesbæ. Margir hafa óttast að aukið brugg og landaframleiðsla fylgi í kjölfar hækkunar áfengis.
„Pólitískt sjálfsmorð“ að kollvarpa sjávarútveginum
Atli Gíslason, þingmaður VG og formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, sagði í ræðu á málþingi um auðlindastýringu og fyrningarleið í Vestmannaeyjum í gær, að innköllunarleið aflaheimilda yrði ekki farin ef sýnt yrði að hún myndi skaða atvinnulíf og byggð í landinu.
Flugfélagið Astreus einnig fært undan Fons
Breska flugfélagið Astraeus, sem meðal annars leigir Iceland Express flugvélar, var fært undan Fons til félaga tengdra Pálma Haraldssyni áður en Fons var sett í gjaldþrot, að því er Morgunblaðið greinir frá. Heimildir þess herma að lágmarksgjald hafi verið greitt fyrir.
Smáfuglarnir sjá, að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, er kominn heim frá Möltu og sat ríkisstjórnarfund 5. júní en á visir.is er haft eftir Steringrími J., sem ekki gerir athugasemd við Möltuferðina, að Össur hafi verið í „mjög góðu skapi“ við heimkomuna.
ESB-Moggi á móti breska Íhaldsflokknum
Smáfuglarnir undruðust mat Morgunblaðsins á stöðunni í breskum stjórnmálum 4. júní, þegar gengið er til kosninga í Bretlandi til sveitarstjórna og Evrópusambandsþingsins (ESB-þingsins). Allir áhugamenn um bresk stjórnmál bíða þess með eftirvæntingu, hver verða örlög Gordons Browns, forsætisráðherra og leiðtoga Verkamannaflokksins.