amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 22. maí 2013 - 15:21
 

Mánudagurinn 18. maí 2009

«
17. maí

18. maí 2009
»
19. maí
Fréttir

Ríkið á í raun 80% af hlutafé Icelandair Group

Ríkið á í raun liðlega 80% hlutafjár í Icelandair Group, eftir að Íslandsbanki leysti til sín 42% hlut og að teknu tilliti til þess að Landsbankinn mun að líkindum ganga á tæplega 24% hlut Langflugs, sem er undir forystu Finns Ingólfssonar. Þá á Spari­sjóðabankinn 9,4% hlut, en bankinn komst í þrot í mars.

Yfir sex milljarðar í ríkisvíxla­sjóði Kaupþings

Mikill áhugi hefur verið á Ríkisvíxla­sjóði sem er verðbréfa­sjóður rekinn af Rekstrar­félagi Kaupþings banka hf. Frá því sjóðurinn var stofnaður fyrir um þremur mánuðum hafa um tvö þúsund einstaklingar, lífeyris­sjóðir og fagfjárfestar fjárfest í sjóðnum, samtals fyrir á sjöunda milljarð króna.

Ríkisbankarnir ráða 66% hlutafjár í Icelandair innan skamms

Íslandsbanki hefur leyst til sín 42% hlutafjár í Icelandair Group og líklegt er að Landsbankinn muni taka yfir tæplega 24% hlut til viðbótar. Þar með munu ríkisbankarnir ráða yfir nær 66% hlutafjár innan tíðar. Þetta þýðir í raun að bankarnir ráða félaginu, störfum þess og stefnu nær algjörlega.

Saab leitar ásjár lánardrottna

Sænski bílaframleiðandinn Saab leitar nú ásjár um 700 lánardrottna sinna svo koma megi í veg fyrir gjaldþrot fyrirtækisins. Saab fer fram á að þeir fallist á niðurfærslu skulda sem þýðir að þeim verður tryggð 25% endur­greiðsla.

Íslandsbanki tekur yfir 42% hlutafjár í Icelandair Group

Íslandsbanki hf. hefur í dag leyst til sín hluta­bréf í Icelandair Group hf., samtals um 42%. Fyrir átti bankinn tæp 5% í félaginu og á því í dag samtals um 47%. Íslandsbanki hf. leysir bréfin til sín á genginu 4,5 fyrir hvern hlut sem er síðasta skráða viðskiptagengi með bréf í félaginu. Aðgerðin hefur engin áhrif á daglega starfsemi Icelandair Group samstæðunnar.

Jóhanna og Steingrímur J. komu aftan að þjóðinni

Björn Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðis­flokksins, segir að Jóhanna Sigurðar­dóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafi komið aftan að þjóðinni í Evrópu­málum. Sviksemi af þessu tagi sé ámælisverð en einnig forkastanleg.

Hótað að bera Magasin og Illum út

Dönsku stórverslanirnar Magasin og Illum hafa fengið vikufrest til að borga ógreidda húsaleigu sem nemur milljónum danskra króna, ella eiga þær á hættu að vera bornar út. Þessi hótun um útburð er nýjasti þátturinn í stríðinu um hinar þekktu dönsku stórverslanir sem verið hafa íslenskri eigu undanfarin ár.

Erfitt að koma í veg fyrir hærri heildarlaun en forsætis­ráðherrans

Steingrímur J. Sigfússon, fjármála­ráðherra segir að í ákveðnum tilfellum sé erfitt að koma í veg fyrir að heildarlaun stjórnenda ríkis­stofnana og hluta­félaga, verði ekki hærri en þau sem forsætis­ráðherra hefur.

Tónlistarhúsið verður dýrara

Tónlsutarhúsið verður um 650 milljóna króna dýrara en áætlað var þegar ríki og borg tóku byggingu þess yfir, ef gengi krónunnar helst jafn veikt og það hefur verið. Heildarkostnaður verður því um 25,2 milljarðar króna.

Fuglahvísl

Tóm hringavitleysa!!

Um allan heim eru ríkis­stjórnir að grípa til aðgerða til að örva efnahagslífið og verja til þess ótrúlegum fjármunum. Jafnvel þeir smáfuglar sem best eru að sér í stærðfræði og þar með skilja tölur með mörgum stöfum eiga erfitt með að skilja fjárhæðirnar. Þær minna á mann sem reynir að telja stjörnurnar.

Hvað eru 650 milljónir á milli vina?

Smáfuglarnir eru, líkt og margir aðrir, farnir að verða ónæmir fyrir stórum tölum. Þegar þeir lásu frétt Moggans um að kostnaður við Tónlistarhúsið yrði 650 milljónum krónum hærri, en áætlað var fyrir nokkrum mánuðum, fannst þeim fréttin ekki merkilegt. En svo fóru þeir að hugsa.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX