| « 28. apríl |
■ 29. apríl 2009 |
» 30. apríl |
Bildt segir íslenska ráðherra boða ESB-aðild
Utanríkisráðherrafundi Norðurskautsráðsins lauk í Tromsö í Noregi 29. apríl. Carl Bildt, utanríkisráðherra Svía, var meðal þátttakenda og segir frá því á vefsíðu sinni, að í kvöldverði 28. apríl hafi menn rætt um, hvaða ríki yrði næst til að sækja um aðíid að Evrópusambandinu (ESB).
Rúmlega 5.200 ráðnir í sumarstörf hjá Reykjavíkurborg
,,Það er sérstakt ánægjuefni að í sumar verða í boði hjá Reykjavíkurborg fleiri störf en nokkru sinni fyrr eða rúmlega 5.200 störf ” segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri en nú liggur fyrir fjöldi sumarstarfa hjá borginni.
Borgarstjóri tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu í Chicago
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra var boðið af Richard M. Daley, borgarstjóra Chicago borgar í Bandaríkjunum að taka þátt í ráðstefnu Chicago Global Cities Forum sem stendur yfir dagana 27. til 29. apríl 2009. Yfirskrift ráðstefnunnar er Economic Recovery – Cities Lead the Way og Joseph R. Biden, varaforseti Bandaríkjanna , var aðalræðumaður ráðstefnunnar.
Árni Johnsen segir aðra frambjóðendur hafa unnið gegn sér
Kjartan Ólafsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, neitar því að hann hafi unnið gegn Árna Johnsen, þingmanni flokksins, í aðdraganda kosninga. Árni hefur sakað meðframbjóðendur sína um að hafa unnið gegn sér.
Olíubirgðir aukast enn í Bandaríkjunum
Olíubirgðir í Bandaríkjunum jukust meira en búist var við í síðustu viku. Birgðaaukningin nam 4,05 milljónum tunna, að því er orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna upplýsir. Birgðir af bensíni minnkuðu hins vegar, öfugt við spár sérfræðinga.
Tap Royal Unibrew minna en óttast var
Tap dönsku bruggverksmiðjunnar Royal Unibrew nam 44,1 milljón danskra króna fyrir skatta sem er talsvert minna en á sama tíma í fyrra. Forráðamenn fyrirtækisins segja uppgjörið betra en vænst var. Stoðir, áður FL Group, eiga 20% hlut í félaginu.
Innistæður Straums í Danmörku að fullu tryggðar
Samkvæmt nýgerðu samkomulagi mun Straumur greiða allar kröfur viðskiptavina dansks útibús síns þannig að danskir ábyrgðaraðilar bera ekki skaða af yfirtöku íslenska ríkisins á Straumi.
Kópavogur ræður 750 manns í sumarstörf
Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að ráða allt að 750 manns í sumarstörf hjá Kópavogsbæ sem er ríflega tvöföldun frá sumrinu 2008. Í sumarstörfin er ráðið starfsfólk sem er 17 ára eða eldra.
Aukin bjartsýni evrópskra neytenda
Aukinnar bjartsýni gætir nú meðal evrópskra neytenda en væntingavísitala neytenda, sem birt var í morgun, hækkaði um 4% frá fyrri mánuði og mælist nú 67,2 stig. Þetta er í fyrsta skipti í 10 mánuði sem vísitalan hækkar.
Mikill verðmunur á húsnæði eftir landsvæðum
Fasteignaverð mælt sem meðal staðgreiðsluverð á fermetra er að meðaltali 70% lægra á Vestfjörðum en á höfuðborgarsvæðinu. Kaupendur greiddu að meðaltali 255 þúsund krónur fyrir fermetra á höfuðborgarsvæðinu en á sama tíma var greitt 71 þúsund krónur fyrir fermetrann á Vestfjörðum.
Mun verðhjöðnun fylgja efnahagshruni?
Niðurstöður könnunar á stöðu og framtíðarhorfum hjá 500 stærstu fyrirtækjum landsins bera með sér margvísleg einkenni banka- og gjaldmiðilskreppunnar. Verðbólguvæntingar fyrirtækja snarbreyst og gera þau ráð fyrir verðhjöðnun á næstu tólf mánuðum.
Forsetinn hefur sjálfdæmi um orðuveitingu
Örnólfur Thorsson forsetaritari hefur tekið á sig ábyrgð á orðuveitingarmáli gagnvart sendiherrra Bandaríkjanna. Þótt gengið sé út frá því að hann hafi ekki staðið formlega rétt að málum verður ekki annað séð en forseti Íslands hefði getað gripið í taumana og veitt sendiherranum orðuna. Til þess hefur hann heimild og getur, sem stórmeistari orðunnar, veitt hana án tillagna orðunefndar.
Kolbrún Halldórsdóttir með flestar útstrikanir
Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra og fyrrverandi þingmaður, fékk hlutfallslega flestar útstrikanir í kosningunum á laugardag. Liðlega 24,5% kjósenda VG í Reykjavík suður strikuðu yfir nafn hennar eða færðu hana niður á atkvæðaseðlinum.
Ögmundur hættir hjá BSRB í haust
Ögmundur Jónasson mun láta af formennsku BSRB á næsta þingi bandalagsins í haust. Hann hefur verið í leyfi frá því starfi frá því í febrúarbyrjun er hann tók við ráðherraembætti.
Egill Árnason í hendur nýrra eigenda
Egill Árnason er nú kominn í hendur nýrra eigenda. Samkomulag um sölu vörumerkisins, viðskiptavildar og reksturs Egils Árnasonar var gert við einkahlutafélag í eigu feðganna Einars Gottskálkssonar og Ásgeirs Einarssonar.
Meðferð embættis forseta Íslands á Carol van Voorst, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna, sætir furðu. Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra, segir uppákomuna, varðandi afturköllun orðuveitingar, einsdæmi í samskiptum ríkja. Forsetaritari hefur tekið ábyrgð á málinu en ekki verður annað séð en forsetinn hafi haft fulla heimild til að veita orðuna og með því hefði mátt koma í veg fyrir uppákomuna.
Guðlaugur Þór færist niður vegna útstrikana
Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í kosningunum, færist niður fyrir Ólöfu Nordal, sem tekur þar með sæti oddvita, vegna útstrikana kjósenda.
N1 tapaði 1,1 milljarði króna á síðasta ári
N1 tapaði 1,1 milljarði króna á síðasta ári og eru það veruleg umskipti frá fyrr ári þegar fyrirtækið hagnaðist um 861 milljón. Stjórn félagsins hefur vegna efnahagsástandsins ákveðið að auka upplýsingagjöf til fjárfesta og birta rekstraryfirlit á tveggja mánaða fresti.
Stýrivextir 11-sinnum hærri en verðbólga síðustu þrjá mánuði
Stýrivextir Seðlabankans er ellefu sinnum hærri en árshraði verðbólgunnar síðustu þrjá mánuði. Hækkun neysluverðsvísitölunnar síðustu þrjá mánuði jafngildir því að verðbólga sé um 1,4% á ári en stýrivexti Seðlabankans eru 15,5%.
Atvinnulífið í óvissu og fjötrum ofurvaxta
Á fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins var áhersla lögð á að stjórnmálalegri óvissu verði eytt sem fyrst og að stefna landsins verði mótuð til framtíðar. Verulegur árangur í niðurskurði ríkisútgjalda sé forsenda þess að landið komist hratt upp úr öldudalnum. Áhyggjur eru af atvinnulífi í fjötrum ofurvaxta.
Verðbólguhraðinn 1,4% síðustu þrjá mánuði
Vísitalan neysluverðs hækkaði um 0,45% milli apríl og mars samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Þetta jafngildir því að verðbólguhraðinn sé 5,5%. Síðustu þrjá mánuði er verðbólgan 1,4% umreiknað til árshækkunar.
Nei, nei, það sakar ekki að skoða - segir Atli Gíslason um ESB
Atli Gíslason, oddviti Vinstri grænna í Suðurkjördæmi segist bíða eftir niðurstöðu viðræðna milli stjórnarflokkana um lausn á Evrópusambandsmálinu, sem er erfiðasta samningamál flokkanna. Hann segir að það saki ekki að kanna hvað sé í boði hjá Evrópusambandinu.
Samningaviðræður við ESB verða erfiðar og Íslendinga eiga aðra möguleika
Hugsanlegar viðræður íslenskra stjórnvalda við Evrópusambandið um aðild Íslands verða erfiðar að mati Bronwen Maddox, sem er aðaldálkahöfundur erlendra frétta hjá The Times í London. Hún telur rétt af nýrri ríkisstjórn að huga að aðild en fara sér hægt og kanna aðra möguleika.
Um 40% lána nýju bankanna sögð slæm
Nær 40% af eignum nýju bankanna eru talin slæm lán í minnisblaði ráðgjafarfyrirtækisins Oliver Wyman sem gert var í janúar. Lán sem hafa verið 90 daga eða lengur í vanskilum eru talin slæm en síðan þá mun staðan hafa versnað.
Friðum Drekasvæðið vegna drekanna
Smáfuglarnir hafa alltaf lesið Baggalút - ekki bara vegna þess að það er skemmtilegt heldur einnig vegna þess að í háðinu tekst þeim félögum oft betur upp en öðrum að komast að kjarna málsins.
Hallærisleg forsetaframkoma og afstaða álitsgjafa
Egill Helgason ber blak af klúðri forsetaskrifstofunnar gagnvart sendiherra Bandaríkjanna.