amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:30
 

Mánudagurinn 23. mars 2009

«
22. mars

23. mars 2009
»
24. mars
Fréttir

Færeyjalánið klárt

Lánssamningur milli lands­stjórnar Færeyja og íslenska ríkisins var undirritaður í Þórshöfn í Færeyjum í dag. Samkvæmt samningnum lánar lands­stjórn Færeyja íslenska ríkinu 300 milljónir danskra króna en lánið frá Færeyjum er veitt til langs tíma og á hagstæðum kjörum.

Bryndís fer fram á flutning í 7. sætið

Bryndís Haralds­dóttir hefur farið fram á það við kjör­nefnd Sjálfstæðis­flokksins í Suðvestur­kjördæmi að hún verði flutt upp í sjöunda sæti á lista flokksins fyrir alþingis­kosningarnar í vor þar sem Ármann Kr. Ólafsson hefur ákveðið að taka ekki sæti á listanum. Að öðrum kosti hyggst hún ekki taka sæti á honum.

Sjálfstæðis­flokkurinn hefur endurgreitt Neyðarlínunni

Sjálfstæðis­flokkurinn hefur endurgreitt framlag frá Neyðarlínunni en flokknum urðu á nokkur mistök árið 2007 og veitti hann viðtöku framlögum sem hefði með réttu átt að hafna þar sem um var að ræða félög í meirihluta­eigu hins opinbera, segir í tilkynningu framkvæmda­stjóra flokksins.

Spari­sjóður Keflavíkur selur Íbúðalána­sjóði skulda­bréfasafn

Samningur milli Spari­sjóðsins í Keflavík og Íbúðalána­sjóðs var undirritaður í dag um að spari­sjóðurinn selji Íbúðalána­sjóði safn skulda­bréfa, að fjárhæð um 10 milljarðar króna, tryggt með veði í íbúðar­húsnæði.

Mikil hækkun hluta­bréfa í Bandaríkjunum - og olíu líka

Hluta­bréf hafa hækkað verulega í verði í Bandaríkjunum, líkt og í Asíu og Evrópu. Hækkunin kemur í kjölfar frétta um áætlanir ríkis­stjórnar Obama um auknar efnahagsaðgerðir. Dow Jones iðnaðarvísitalan hefur hækkað um 4,3%. Hækkunin á Wall Street varð til þess að olíuverðið hækkaði svipað.

Fjölgað í nefnd sem fer með samninga­viðræður við nágrannaríki

Fjölgað hefur verið í stjórnskipaðri nefnd sem fer með samninga­viðræður við nágrannaríki en nefnd sem sér um samninga vegna Icesave-skuldbindinga er óbreytt.

VBS fjárfestingarbanki semur við ríkis­sjóð

VBS fjárfestingarbanki hefur gengið frá samkomulagi við ríkis­sjóð um lán til 7 ára vegna skuldbindinga bankans við Seðlabanka Íslands. Með samningnum er tryggt að ríkis­sjóður og þar með skattgreiðendur, fái að fullu greitt skuldbindingar þær sem VBS fjárfestingarbanki tókst á hendur vegna endurhverfra viðskipta við Seðlabankann.

Kreppan bitnar á Suez-skurðinum

Suez-skurðurinn, sem tengir Miðjarðarhaf og Rauðahaf, hefur orðið fyrir verulegum tekjumissi í kreppunni. Frá febrúar í fyrra til febrúar í ár hafa umsvifin við Suez dregist saman um 26%. Suez-skurðurinn er meðal mikilvægustu tekjulinda Egyptalands.

Íslenskt fjármálalíf í mikilli hættu vegna ábyrgðarlausrar framgöngu

Með misskýrum hætti gerðu erlendir bankamenn starfsmönnum Seðlabankans grein fyrir því að íslenska bankakerfið væri í mikilli hættu, ekki síst vegna þess hvernig það hefði þanist úr, skipulagslítið og ógætilega.

Kosning formanns SA er hafin

Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins er hafin meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnar­menn aðildarfyrirtækja og aðildar­félaga samtakanna.

Það versta afstaðið hjá evrópskum bílaframleiðendum

Fjárfestingabankinn Goldman Sachs hækkar mat sitt á bílaframleiðendum og segir það versta að baki hjá evrópskum bílaverksmiðjum. Bankinn telur bestu kaupin vera í bréfum ítölsku Fiat verksmiðjanna.

Stjórnar­maður í Royal Unibrew kaupir ódýrt

Allan Meier Jensen, stjórnar­maður í dönsku ölgerðinni Royal Unibrew, hefur nýtt sér mikið verðfall hluta­bréfa í fyrirtækinu og keypt. Verð bréfanna hefur fallið um 67% frá áramótum. Stoðir eiga fimmtungshlut í Royal Unibrew.

Dræm þátttaka í ríkis­bréfaútboði

Tak­markaður áhugi fjárfesta í útboði Seðlabankans á ríkis­bréfum síðastliðinn föstudag hlýtur að vera stjórnvöldum nokkurt áhyggjuefni, sér í lagi í ljósi þess að útboðinu var m.a. ætlað að koma til móts við hluta af stórum gjalddaga innstæðu­bréfa í þessari viku, segir Greining Íslandsbanka.

Skartgripaþjófurinn handtekinn

Lög­reglan á höfðuðborgar­svæðinu handtók í morgun mann, sem grunaður hefur verið um þjófnaði úr skartgripa­verslunum undanfarna daga. Ábendingar bárust frá fólki strax eftir að fjölmiðlar birtu myndir af viðkomandi fyrir helgina.

Erlendir bankar treystu ekki Kaupþingi og Glitni í byrjun árs 2008

Erlendir bankar vantreystu Kaupþingi og Glitni og mats­fyrirtæki höfðu miklar áhyggjur af Icesave-reikningum Landsbankans. Þetta kom fram á fundum sem starfsmenn Seðlabanka Íslands áttu snemma árs 2008 með fulltrúum erlendra banka og matsfyrirtækja.

Hinn nýi varaformaður Frjálslynda flokksins hættir

Ásgerður Flosa­dóttir, nýkjörinn varaformaður Frjálslynda flokksins, hefur sagt sig úr flokknum og um leið öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Þar af leiðandi tekur hún ekki sæti á lista flokksins í komandi kosningum. Hún átti að leiða lista flokksins í Reykjavíkur­kjördæmi suður.

Spáir 16,2% verðbólgu

Greining Íslandsbanka spáir því að 12 mánaða verðbólga lækki úr 17,6% í 16,2% en Hagstofa Íslands birtir vísitölu neysluverðs fyrir marsmánuð á morgun. Mesti verðbólgukúfurinn er liðinn hjá.

Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgar

Gera má ráð fyrir að gjaldþrotum fyrirtækja haldi áfram að fjölga á þessu ári samhliða því sem mikill samdráttur er framundan í hagkerfinu og eftirspurn og fjárfestingar dragast saman hröðum skrefum, segir Greining Íslandsbanka. Hagstofan birtir nýjar tölur um gjaldþrot á fimmtudaginn.

AGS: Efnahagsástand heimsins er hræðilegt

Ástandið í efnahagsmálum heimsins er hreint og beint hræðilegt og það krefst alheimsátaks að koma í veg fyrir „eyðimörk atvinnuleysisins“, segir Dominique Strauss-Kahn, for­stjóri Alþjóða­gjaleyris­sjóðsins, AGS. Hann óttast fátækt, óróa og jafnvel stríð.

Matvælalög óafgreidd í nefnd Atla – ótti vegna ESB-viðskipta með fisk

Verulegur ótti er innan utanríkis­ráðuneytisins um, að einstök ríki Evrópu­sambandsins (ESB) eða ESB sjálft kunni að grípa til aðgerða gegn íslenskum fiskútflytjendum eða kaupendum á íslenskum fiski vegna þess, hve dregist hefur, að Alþingi samþykkti breytingar á matvælalöggjöfinni til að laga hana að evrópskri löggjöf um matvæli.

Margrét Kristmanns­dóttir nýr formaður SVÞ

Margrét Kristmanns­dóttir, framkvæmda­stjóri Pfaff hf., var kjörin formaður Samtaka verslunar og þjónustu á aðalfundi samtakanna. Hún tekur við af Hrund Rudolfsdóttur.

Minni útflutningur ESB-landa en reiknað var með

Vöruskiptajöfnuður Evópu­sambandsríkjanna í janúar var neikvæðari en búist var við. Hann nam 10,5 milljörðum evra en reiknað hafði verið með 9 milljarða halla í þeim viðskiptum. Einkum hefur dregið úr útflutningi til Bandaríkjanna.

Debet- og kreditkort viðskiptavina SPRON í fullu gildi

Innlánsreikningar SPRON hafa færst yfir til Nýja Kaupþings. Allar innstæður eru tryggðar samkvæmt yfirlýsingu ríki­stjórnar­innar. Debet-og kreditkort viðskiptavina SPRON virka. Þetta kemur fram í frétta frá Nýja Kaupþingi.

Snekkja Baggers komin heim og boðin til sölu

Skemmtisnekkja danska fjársvikarans Stein Baggers er nú komin til Danmerkur frá Suður-Frakklandi en reyna á að selja hana til að grynnka örlítið á skuldum hins alræmda svindlara. Áhugasamir geta fengið hana fyrir um 350 milljónir, en fleyið er glæsilega búið.

IFS greining telur Össur hf. tvöfalt verðmætara en markaðsvirði

IFS greining telur að verðmæti Össurar hf. sé tvöfalt núverandi markaðsvirði. Samkvæmt sjóðstreymismati er virði eiginfjár um 79 milljarðar króna sem jafngildir að gengi hluta­bréfanna sé 1,66 dollarar á hlut en gengið er nú 0,84 dollarar.

Launavísitalan óbreytt en kaupmáttur minnkar

Launavísitala er óbreytt milli mánaða en vísitala kaupmáttar launa í febrúar lækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði.

Obama: Við getum ekki látið stórbankana fara á hausinn

Allt fjármálakerfi Bandaríkjanna gæti hrunið fari fleiri stór fjármála­fyrirtæki á hausinn. Það má ekki verða. Þess vegna gera bandarísk stjórnvöld allt sem þau geta til að draga úr þeirri hættu, sagði Barack Obama Bandaríkja­forseti sjónvarpsþættinum 60 mínútur í gær.

Utandagskrárumræða á þingi um arð­greiðslur fyrirtækja

Utandagskrárumræða verður á Alþingi í dag um arð­greiðslur í atvinnurekstri. Málshefjandi er Kristinn H. Gunnarsson en Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra verður til andsvara.

MP banki hefur áhuga á útibúum SPRON

MP banki hefur áhuga á að taka yfir hluta af útibúum SPRON og Netbankann, nb.is. Margeir Pétursson, stjórnar­formaður MP Banka staðfestir þetta í viðtali við Morgunblaðið í dag.

Fuglahvísl

Auglýst eftir sendiherrum – Össur beit á agnið

„Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknar­flokksins, sagði á Alþingi í dag gamla tímann enn vera í gildi í utanríkis­ráðuneytinu og það væri undir ráðherra komið og hans hugarflugi hverjir væru ráðnir sem sendiherrar.“

Handjárnaðir flokksforingjar VG

Landsfundur vinstri-grænna (VG) hafnaði samstarfi við Sjálfstæðis­flokkinn að loknum þingkosningum í vor. Smáfuglarnir tóku eftir því, að Steingrímur J. Sigfússon, uppklappaður formaður flokksins, tók fram, að unga fólkið í flokknum hefði flutt tillögu um þetta.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX