amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:09
 

Sunnudagurinn 22. mars 2009

«
21. mars

22. mars 2009
»
23. mars
Fréttir

Listi Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi samþykktur

Listi Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi fyrir alþingis­kosningarnar í vor var samþykktur á kjördæmisþingi í gær. Ragnheiður Elín Árna­dóttir alþingis­maður leiðir listann en hún varð efst í prófkjöri flokksins.

Theo Hoen tekur við for­stjórastarfi hjá Marel af Herði Arnarsyni

Stjórn Marel Food Systems hf. hefur komist að samkomulagi við Theo Hoen um að hann leiði sameinuð fyrirtæki Marel Food Systems og Stork Food Systems sem for­stjóri. Hörður Arnarson stígur til hliðar eftir að hafa gegnt stöðu for­stjóra fyrirtækisins síðastliðin 10 ár.

Ásbjörn sigraði Einar K. á lokasprettinum

Ásbjörn Óttarsson sigraði í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Norðvestur­kjördæmi. Einar K. Guðfinnsson, alþingis­maður og fyrrverandi ráðherra, varð í öðru sæti.

Ármann Kr. tekur ekki sæti á lista

Ármann Kr. Ólafsson alþingis­maður hefur ákveðið að taka ekki sæti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Suðvestur­kjördæmi fyrir Alþingis­kosningarnar í vor.

Kristján Þór fer í formannsframboð á landsfundi

Kristján Þór Júlíusson, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í Norðaustur­kjördæmi, hefur ákveðið að gefa bjóða sig fram til formennsku í flokknum á landsfundi sem hefst á fimmtudag. Kjör formanns og varaformanns verður á sunnudag.

Starfsemi annarra spari­sjóða en SPRON raskast ekki

Starfsemi Spari­sjóðanna á Íslandi annarra Spron verður með eðlilegum hætti strax við opnun spari­sjóðanna í fyrramálið mánudaginn 23. mars. Þjónustustaðir um land allt verða opnir og Heimabankinn aðgengilegur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá spari­sjóðunum.

Mikil spenna í NV-kjördæmi og mjótt á munum

Mikil spenna er í prófkjöri Sjálfstæðis­manna í Norðvestur­kjördæmi þegar aðeins eru ótalin 300 atkvæði af 2700 greiddum. Einar Kristinn Guðfinnsson er efstur en Ásbjörn Óttarsson kemur fast á hæla honum.

Framboðslisti Framsóknar í NA samþykktur

Framboðslisti Framsóknar­flokksins í Norðaustur­kjördæmi í komandi alþingis­kosningum hefur verið samþykktur. Birkir Jón Jónsson og Höskuldur Þórhallsson skipa efstu sætin.

Aukið námsframboð í Háskólanum í Reykjavík í sumar

Háskólinn í Reykjavík hefur ákveðið að bjóða nemendum sínum upp á mun fleiri námskeið í sumar en fyrri ár, í ljósi þess að erfitt getur reynst fyrir námsmenn að finna sumarstörf en undanfarin ár.

Framsókn á móti stórum eignar­hlut Samson í Landsbankanum

Framsóknar­flokkurinn var á móti því að Samson, eignar­halds­félag Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors, fengi að kaupa stærri hlut en þriðjung í Landsbankanum árið 2002. Þá var Magnús Þorsteinsson einnig hluthafi í Samson.

Kristján Þór kynnir áform í forystukjöri

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður mun tilkynna á blaðamannafundi í dag áform sín í forystukjöri Sjálfstæðis­flokksins, en landsfundur flokksins hefst næstkomandi fimmtudag. Kristján hefur boðað blaðamannafund kl. 16:15 í dag.

Bjarkey Gunnars­dóttir efst í stjórnar­kjöri VG

Bjarkey Gunnars­dóttir varð efst í kjöri til stjórnar Vinstri grænna á landsfundi flokksins. Svandís Svavars­dóttir varð í öðru sæti. Alls greiddu 251 atkvæði í kosningu í mið­stjórn. Steingrímur J. Sigfússon var endurkjörinn formaður án mótframboðs sem og Katrín Jakobs­dóttir varaformaður.

VG samþykkir framboðslista í Suður­kjördæmi

Framboðslisti Vinstri grænna í Suður­kjördæmi hefur verið samþykktur af kjördæmisþingi. Atli Gíslason alþingis­maður leiðir listann en Arndís Soffía Sigurðar­dóttir er í öðru sæti.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX