Yfirlýsing fjármálaráðherra vegna ríkisframlags til sparisjóða
Nú þegar stefnir í að starfsemi SPRON og Sparisjóðabankans flytjist til annarra fjármálastofnana má gera ráð fyrir því að erfiðleikum á íslenskum fjármálamarkaði sé að ljúka, segir m.a. í yfirlýsingu fjármálaráðherra.
Ríkið yfirtekur starfsemi SPRON og Sparisjóðabankans
Ríkið hefur yfirtekið starfsemi SPRON og Sparisjóðabankans og staða annarra sparisjóða hefur verið treyst með auknu fé. Viðskiptavinir SPRON fá aðgang að innstæðum sínum og njóta annarrar bankaþjónustu hjá Nýja Kaupþingi. Greiðslumiðlun Sparisjóðabankans færist yfir til Seðlabanka Íslands.
Helstu þungavigtarríkin styðja Anders Fogh til NATO forystu
Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt bandamönnum sínum í NATO að þau styðji Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, sem næsta aðalritara varnarbandalagsins. Fogh nýtur einnig stuðnings evrópskra þungavigtarríkja innan NATO.
Aldís Westergren fannst látin í Langavatni sunnan við Reynisvatn í morgun. Um 200 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni í dag. Aldís hvarf frá heimili sínu í Grafarholti 24. febrúar. Barn hennar fannst síðar þann dag eitt á heimilinu.
VG vilja einnig afnema verðtrygginguna
Fyrir landsfundi vinstri grænna sem nú stendur liggur meðal annars tillaga um hámark á verðtryggingu húsnæðislána og þak á hækkun höfuðstóls. Verðtrygging verði aflögð þegar stöðugleiki næst og boðið upp á óverðtryggð húsnæðislán sem valkost.
Enginn mótmælafundur verður á Austurvelli í dag. Þar með virðist lokið þeirri mótmælastöðu sem verið hefur á laugardögum frá 11. október, eftir efnahagshrunið hér á landi.
Steingrímur og Katrín endurkjörin til forystu VG
Steingrímur J. Sigfússon var endurkjörinn formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á landsfundi flokksins. Katrín Jakobsdóttir var einnig endurkjörin sem varaformaður. Bæði voru kosin með lófataki.
Dagur keppir við Árna Pál um varaformennskuna
Dagur B. Eggertsson borgrfulltrúi gefur kost á sér til embættis varaformanns Samfylkingarinnar og keppir þar við Árna Pál Árnason alþingismann. Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn um næstu helgi en víst má telja að Jóhanna Sigurðardóttir verði þar kosin formaður.
Klukkan 10 fer fram kosning formanns, varaformanns, ritara, gjaldkera og annarra stjórnarmanna Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs, en annar dagur landsfundar hófst í morgun. Framboði til flokksráðs lýkur svo á hádegi.
Bjarni Benediktsson vill afnema verðtrygginguna
Bjarni Benediktsson, þingmaður og formannsefni Sjálfstæðisflokksins, vill afnema verðtryggingu og hyggst beita sér fyrir því. Þetta kemur fram í viðtali við Bjarna í Fréttablaðinu í dag.Bjarni leggur til að þessi vinna hefjist í vor í samráði og samstarfi við helstu hagsmunaaðila, auk þess sem ríkið komi að málinu.
Smáfuglunum hefur gefist vel, að lesa pistla Össurar Skarphéðinssonar um stjórnmál og innanflokksátök hjá öðrum en Samfylkingunni sem lýsingu á hans eigin stöðu innan eigin flokks. Og nú er blessaður Össur í öngum sínum.
Steingrímur J. Sigfússon var að sjálfsögðu endurklappaður upp sem formaður vinstri-grænna, hann hefur setið á þeim stóli í tíu ár og gaf það fyrirheit eitt, að hann mundi hætta, áður en breyta þyrfti flokkslögum til að losna við sig.
Systur bjarga heiðri vinstri-grænna í kvenfrelsismálum
Sóley Tómasdóttir var endurkjörin ritari vinstri-grænna með lófataki 21. mars. Hún kynnir sig á vefsíðu sinni sem feminista „sem ætlar að bjarga heiminum,“ hvorki meira né minna.
Eva mótmælir mannúðarhræsni vinstri-grænna
Eva Hauksdóttir hefur lokað Nornabúðinni og boðar, að hún sé að fara úr landi og ætli að freista gæfunnar þar. Henni líst ekki á ástandið hér, eftir að rauðgræna ríkisstjórnin er tekin við völdum.