Setningarræða Steingríms J. Sigfússonar á landsfundi VG
Ég vil byrja á því að bjóða ykkur öll velkomin til sjötta reglulega landsfundar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Það hefur mikið vatn til sjávar runnið síðan við hittumst á sambærilegum vettvangi í febrúar 2007 í aðdraganda Alþingiskosninga. Í þeim kosningum vann Vinstrihreyfingin grænt framboð góðan sigur
Símasamband á ný milli Norður- og Suður-Kóreu
Norður-kóreska ríkisstjórnin hefur tilkynnt yfirvöldum í Suður-Kóreu að símasambandi milli landanna tveggja verði komið á að nýju, en norður-kóresku yfirvöldin rufu það 9. mars síðastliðinn til þess að mótmæla sameiginlegri heræfingu Bandaríkjanna og Suður-Kóreu.
Endurreisnarnefndin: Of seint brugðist við heimatilbúnum vanda
Grunngildi Sjálfstæðisflokksins brugðust ekki heldur fólk. Svo segir meðal annars í skýrslu Endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins sem kom út í dag. Hún er gagnrýnin á hlut Seðlabankans, Fjármálaeftirlitsins og stjórnvalda í aðdraganda bankahrunsins.
Landsfundur VG: Formaður vill áfram rauðgræna ríkisstjórn
Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hófst síðdegis. Í setningarræðu Steingríms J. Sigfússonar, formanns flokksins, kom fram vilji hans til að hér sitji áfram við völd rauðgræn ríkisstjórn, Samfylkingar og Vinstri grænna.
Nýi Kaupþing banki lækkar vexti um 1%
Nýi Kaupþing banki hefur ákveðið að lækka óverðtryggða vexti inn- og útlána um 1% til samræmis við stýrisvaxtalækkun Seðlabankans.
Aðvörun frá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra
Upp á síðkastið hefur borið á því að íslenskum aðilum hafi borist tölvupóstar frá erlendum aðilum sem óska eftir að ráða fólk til vinnu. Atvinnutilboð þessi eru gjarnan um að viðkomandi taki að sér að leggja til bankareikninga í sínu nafni sem hinn erlendi aðili geti millifært inn á peninga. Tilboð þessi tengjast oftast fjársvikastarfsemi.
Hlutabréf féllu í Barclays vegna meintra skattsvika
Hlutabréf í stórbankanum Barclays féllu um nær 10% í kauphöllinni í London í dag í framhaldi af fréttum blaðsins The Guardian um að bankinn hefði skotið stórum upphæðum undan skatti.
Tryggingafræðileg staða lífeyrissjóðanna versnar
Tryggingafræðileg staða lífeyrissjóðanna hefur versnað verulega á árinu 2008 og eru aðeins 3 sjóðir með jákvæða tryggingafræðilega stöðu samanborið við 20 sjóði við árslok 2007. Þetta kemur fram í yfirliti Fjármálaeftirlitsins.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk mest frá fyrirtækjum
Ríkisendurskoðun hefur birt yfirlit yfir fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálaflokkanna. Samanlagt fengu stjórnmálaflokkarnir rúmlega 136 milljónir króna með þeim hætti, Sjálfstæðisflokkurinn mest. Allir voru stjórnmálaflokkarnir hins vegar reknir með tapi.
Dráttavextir lækka frá 1. apríl 2009 um 1% verða 24,0% fyrir tímabilið 1. apríl - 30. apríl 2009, að því er Seðlabanki Íslands greinir frá.
Allir kaupréttir felldir úr gildi hjá Iceland Air
Stjórn Icelandair Group hf. samþykkti á fundi sínum í dag, 20. mars 2009, tillögu forstjóra og stjórnarformanns um að fella úr gildi alla kauprétti forstjóra í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Listi Frjálslynda flokksins í NA-kjördæmi frágenginn
1.sæti lista Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi skipar Ásta Hafberg Sigmundsdóttir, verkefnastjóri á Fáskrúðsfirði, Axel Yngvason verkamaður Kópaskeri skipar 2.sætið og í 3. og 4. sæti eru Kári Þór Sigríðarson, búfræðingur á Akureyri og Eiríkur Guðmundsson, nemi Djúpavogi.
Í framhaldi af lækkun stýrivaxta úr 18% í 17% hefur Landsbankinn ákveðið að lækka vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum til samræmis. Ennfremur hefur bankinn ákveðið að lækka vexti á verðtryggðum inn- og útlánum.
Ögmundur gagnrýnir Seðlabankann harðlega
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra segir að vaxtastefna Seðlabankans sé óskiljanleg. Hann segir að hátt vaxtastig verði ekki þolað öllu lengur. Þjóðinni blæði út á meðan eigendur jöklabréfa og aðrir fja´rmagnseigendur hagnist á hávaxtastefnunni.
Starfsfólk HB Granda fær áður umsamdar launahækkanir
HB Grandi hefur ákveðið að greiða starfsfólki fyrirtækisins þær launahækkanir sem samið hafði verið um að tækju gildi 1. mars áður en aðilar vinnumarkaðarins komu sér saman um að fresta þeim.
Penninn endurskipulagður og Nýja Kaupþing tekur yfir
Undanfarna mánuði hefur Nýi Kaupþing banki átt í viðræðum við eigendur Pennans ehf. um endurskipulag á fyrirtækinu. Markmiðið hefur verið að treysta undirstöður rekstrarins. Viðræðunum er nú lokið og varð niðurstaðan sú að Nýi Kaupþing banki mun taka yfir rekstur Pennans ehf.
Tap af rekstri Landsvirkjunar 344,5 milljónir dollara
Tap af rekstri samstæðu Landsvirkjunar á árinu 2008 var 344,5 milljónir Bandaríkjadala en rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) var 246 milljónir Bandaríkjadala
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði á Kjalarnesi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um eitt þúsund kannabisplöntur. Önnur kannabisverksmiðja fannst á svipuðum slóðum í fyrradag.
LÍU hvetur banka og sparisjóði til að taka frumkvæði að vaxtalækkun
Stýrivaxtalækkun Seðlabanka Íslands í gær bendir ekki til þess að peningstefnunefnd sé í nægilegum tengslum við þann raunveruleika sem við þjóðinni blasir, segir LÍÚ og hvetur banka og sparisjóði til að lækka vexti umtalsvert.
Hugsmiðjan gegn svikum og spillingu
Hugbúnaðarfyrirtækið Hugsmiðjan hefur gert samning við evrópsk samtök á heilbrigðissviði gegn svikum og spillingu í Evrópu. Hugsmiðjan mun sjá um ráðgjöf, hönnun og forritun á nýjum vef samtakanna sem byggður verður á íslenska vefumsjónarkerfinu Eplica.
Segir umræðu um óseldar og tómar íbúðir villandi
Formaður Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði segir umræðu um óseldar og tómar íbúðir villandi, að ekki sé gerður greinarmunur á óbyggðum lóðum annars vegar og hins vegar íbúðum sem eru tilbúnar eða í byggingu.
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra hefur afnumið svokölluð dagdeildargjöld sem lögð voru á 1. janúar síðastliðinn.
Það verður enskur slagur átta liða úrslitum í meistaradeildinni í knattspyrnu en þar drógust saman Liverpool og Chelsea. Sigurvegarinn í þeirri rimmu mætir annað hvort Barcelona eða Bayern München í undanúrslitum.
Spáir stýrivaxtalækkun um 1 prósentu 8. apríl
Greining Íslandsbanka spáir því að vaxtaákvörðunarnefnd Seðlabankans muni ákveða að lækka vexti um eina prósentu 8. apríl. Stýrivextir verði þá 16%. Nokkuð líklegt sé að nefndin muni stíga þriðja skrefið í þeim efnum á vaxtaákvörðunarfundi sínum 7. maí.
Snör viðbrögð starfsmanna Vallaskóla á Selfossi
Starfsmaður Vallaskóla á Selfossi brást snaggaralega við, eftir hádegi í gær, er hann veitti því athygli er 17 ára piltur kom í skólann og gaf sig á tal við 16 ára gamlan nemanda skólans. Sá eldri fékk hinn til að koma með sér útaf skólalóðinni og allt í einu birtust þar nokkrir piltar og skipti engum togum að þeir réðust á nemandann.
Auður Capital býður séreignasparnað
Einstaklingum býðst nú að láta Auði Capital sjá um umsýslu og ávöxtun séreignasparnaðar eða viðbótarlífeyrissparnaðar eins og hann er stundum nefndur. Þessi nýja þjónusta nefnist FramtíðarAuður-séreign.
Hlutabréf Össurar hf. hafa hækkað um 12,7% í dag í liðlega 28 milljóna króna viðskiptum. AMX greindi frá því í gær að breskur einkaframtakssjóður væri í samstarfi við stærsta hluthafann að undirbúa yfirtökutilboð.
Sláturleyfishafar vara við hugmyndum um inngöngu í ESB
Landssamtök sláturleyfishafa vara eindregið við hugmyndum um inngöngu Íslendinga í Evrópusambandið. Þau telja að það myndi á fáum árum leiða til endaloka íslensks landbúnaðar.
Nýr ávöxtunarkostur fyrir eigendur séreignarsparnaðar
MP banki fékk leyfi til að taka á móti greiðslum í séreignasparnað undir lok síðasta árs og bankinn starfrækir nú Séreignasparnað MP Banka, sem allir launþegar geta greitt í allt að 4% af launum og jafnframt fengið 2% mótframlag frá launagreiðanda.
Íbúðalánasjóður tapaði 6,9 milljörðum - vegna bankahruns
Tap af rekstri Íbúðalánasjóðs nam 6,9 milljörðum króna árið 2008. Sjóðurinn varð fyrir verulegum skakkaföllum vegna falls þriggja stærstu banka landsins. Eiginfjárhlutfall sjóðsins er 4,6% en langtímamarkmið er að það sé yfir 5,0%.
Bandaríkjadollar hefur ekki átt verri viku í 24 ár en þá síðustu. Hann féll um 5,1% gagnvart öðrum helstu gjaldmiðlum heims. Fallið er hið versta frá árinu 1985. Alan Ruskin yfirhagfræðingur telur að þetta geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir Bandaríkin sem þjóð, ekki bara dollarann sem gjaldmiðil. Heiti nýrrar skýrslu Standard Chartered Bank er: „The day the dollar died“.
Um 40 þúsund manns taka þátt í vali frambjóðenda
Um eða yfir 40 þúsund manns hafa tekið beinan þátt í að velja frambjóðendur á framboðslista stjórnmálaflokkanna vegna komandi kosninga. Öll prófkjör eða forval eru nú að baki fyrir utan prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Þegar gjaldeyrishöftin eyða störfum
Gjaldeyrishöftin sem við settum í vetur í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn voru réttlætanleg á þeim tíma. Nú eru hins vegar breyttir tímar. Alltaf var um það rætt að þetta væri skammtímaráðstöfun, segir Einar K. Guðfinnsson og rekur dæmi um skaðsemi gjaldeyrishaftanna.
Bandaríkjaþing samþykkir 90% skatt á bónusgreiðslur
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær leggja 90% skatt á bónusgreiðslur til yfirmanna fyrirtækja sem eru með yfir 250 þúsund dollarar í laun á ári [um 28,4 milljónir króna]. Skatturinn leggst á yfirmenn fyrirtækja sem hafa fengið fimm milljarða dollara eða meira í ríkisaðstoð
Innflutningur sjúklinga getur skapað 300 störf
Róbert Wessmann telur að allt að 300 störf gætu skapast við þjónustu erlendra sjúklinga. Salt Investment, fjárfestingarfélag Róberts, hefur hug á því í samstarfi við Mayo Clinic, heilbrigðisstofnun í Bandaríkjunum, að byggja upp þjónustu hér á landi.
Ungir framsóknarmenn fagna endurskoðun áfengislöggjafar
Félag ungra framsóknarmanna í Skagafirði fagna því að fjármálaráðherra hafi stofnað nefnd til að fara yfir áfengislöggjöfina, sem þeir telja fyrir löngu úrelta. Þeir óttast hins vegar að höft og bönn Vinstri grænn verði í fyrirrúmi.
Obama hljóp á sig hjá Leno, en Ólafur Ragnar fékk ekki símtal
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fór í spjallþáttinn hjá Jay Leno fimmtudaginn 19. mars. Hann varð fyrstur Bandaríkjaforseta til að fara í slíkan þátt og kannski hinn síðasti. Obama missti nefnilega að sjálfsögðu út úr sér orð, sem draga dilk á eftir sér.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir kynnir sig þannig á vefsíðu sinni, að hún hafi lokið námi til cand. mag. gráðu, í stjórnsýslufræði með áherslu á lýðheilsu- og félagshagfræði frá háskólanum í Gautaborg en stundi núna doktorsnám við HÍ.
Smugan á kostnað skattgreiðenda
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, gjaldkeri flokksins, kynnti ársreikninga Vinstri grænna. Þar kom fram, að Smugan, fékk 800.000 króna framlag frá flokknum á síðasta ári. Með Smugunni rættist gamall draumur án þess að skattgreiðendur vissu af.
Kolbrún skammtar sínum úr ríkissjóði
Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra, hefur skipað nefnd sem ætlað er að komast að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé að styrkja félagasamtök á sviði umhverfismála. Borðleggjandi er að sjá um hvaða samtök ræðir.
Kalt á milli Jóhönnu og Sigmundar Davíðs
Smáfuglarnir taka fylgst náið með hvernig samskipti framsóknarmanna og Jóhönnu Sigurðardóttur hefur þróast, frá því að þeir komu henni til valda. Greinilegt er að margir framsóknarmenn eru vonsviknir og formaðurinn ekki síst.