Guðfríður Lilja og Ögmundur leiða í SV-kjördæmi
Framboðslisti Vinstri grænna var samþykktur í kvöld, samkvæmt tilkynningu. Í samræmi við forval leiða Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson listann.
Kannabisræktun á Kjalarnesi - lausir úr haldi
Tveir karlar á þrítugsaldri, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld í tengslum við rannsókn á kannabisræktun á Kjalarnesi, eru nú lausir úr haldi lögreglu. Í umræddu máli fann lögreglan 621 kannabisplöntu í iðnaðarhúsnæði.
Framboðslisti VG í Reykjavík frágenginn
Kjördæmisfundur Vinstri grænna í Reykjavík, sem haldin var í kvöld samþykkti framboðslista fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra leiðir í norðurkjördæmi en Svandís Svavarsdóttir er oddviti í suðurkjördæmi.
Bændasamtökin áfrýja úrskurði Samkeppniseftirlitsins
Stjórn Bændasamtaka Íslands hefur ákveðið að áfrýja úrskurði Samkeppniseftirlitsins sem birtur var í mars síðastliðinn til úrskurðarnefndar samkeppnismála. Þar komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Bændasamtök Íslands hefðu brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem hafi miðað að því að hækka verð á búvörum.
Eyrir hafnaði tilboði enska einkaframtakssjóðsins í Össur
Eyrir Invest staðfestir að hafa móttekið tilboð í hlutafjáreign sína í Össuri eftir viðræður við tiltekna einkaframtakssjóði. Viðræður þessar voru ekki að frumkvæði Eyris Invest. Eyrir Invest hafnaði tilboðum sem komu í hlut félagsins enda endurspegluðu tilboðin að mati Eyris Invest ekki þá virðisaukningu sem framundan er í rekstri Össurar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Eyri.
Samfylkingin mælist stærst - stjórnarflokkarnir með 38 þingsæti
Ríkisstjórnarflokkarnir fengju 38 þingsæti af 63 samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent-Gallup. Þá segjast 64.3% styðja stjórnina, en 35.7% vera henni andvíg. Samfylkingin mælist með mest fylgi, 31,2% en Sjálfstæðisflokkurinn með 26,5%.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í lok mánaðarins. Landsfundur flokksins verður haldinn um aðra helgi.
Tyrkneski seðlabankinn lækkaði stýrivexti í dag um 1 prósentustig, frá 11,5 í 10,5%. Bankinn er því á sama róli og Seðlabanki Íslands en vextir hafa verið afar háir í þessum löndum.
Tvær nýjar efnahagsspár gera ráð fyrir 3,5-4% samdrætti í þjóðarframleiðslu Finna. Þær reikna einnig með mjög auknu atvinnuleysi í ár og á næsta ári, 8,1-9,6%.
Fjölmennasti landsfundur VG frá upphafi hefst á morgun
Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefst á morgun og verður fundurinn sá fjölmennasti frá upphafi. Í frétt frá Vinstri grænum segir að mikil fjölgun hafi verið í flokknum að undanförnu og eru félagar nú yfir fimm þúsund.
Húsasmíðameistarar: Hækkun hámarkslána flýtir fyrir endurreisn
Hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs myndi virka sem blóðgjöf fyrir bygginga- og mannvirkjagerð í landinu og stuðla að því að koma hjólum atvinnulífsins af stað á ný, segir í tilkynningu Meistarafélags húsasmiða.
Össur staðfestir viðræður en segir engar ásættanlegar tillögur borist
Össur hf. hefur gefið út tilkynningu vegna fréttar AMX fyrr í dag um að breskur einkaframtakssjóður undirbúi tilboð í 36% hlut í félaginu. Staðfest er að tilteknir hluthafar hafi átt í viðræðum, en sagt að engar ásættanlegar tillögur hafi borist.
Norðmenn ekki í aðstöðu til að gagnrýna makrílveiðar Íslendinga
Samtök framleiðenda uppsjávarfisks í Danmörku líta svo á að Norðmenn séu ekki í neinni aðstöðu til að kvarta undan makrílveiðum Íslendinga. Christian Olsen, talsmaður samtakanna, segir í samtali við Fishing News International, að bæði Norðmenn og Færeyingar hafi úthlutað sér viðbótarkvótum í makríl.
Aðalheiður í Kaffitári formaður stjórnar ÁTVR
Aðalheiður Héðinsdóttir í Kaffitári hefur verið skipuð formaður stjórnar Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Þá hefur fjármálaráðherra ákveðið að skipa starfshóp sem hefur það hlutverk að gera heildstæða úttekt á áfengislöggjöfinni.
Viðskipti með hlutabréf Össurar stöðvuð
Kauphöllin hefur stöðvað viðskipti með hlutabréf Össurar hf. í kjölfar fréttar hér á AMX um væntanlegt yfirtökutilboð frá erlendum einkaframtakssjóði. Sagt er að frétt sé væntanleg vegna málsins. Áður en viðskipti voru stöðvuð hafði gengi bréfa fyrirtækisins hækkað um 8%.
Olíuverð hefur hækkað mikið undanfarinn sólarhring, frá því að vera rétt yfir 46 dollarar á tunnu af Norðursjávarolíu í nær 50 dollara og yfir 50 dollara á tunnu af bandarískri olíu. Hækkun olíuverðs frá því síðdegis í gær varð á sama tíma og gengi dollars byrjaði að veikjast.
Straumi veitt heimild til greiðslustöðvunar
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur veitt Straumi-Burðarási fjárfestingabanka hf. heimild til greiðslustöðvunar. Heimildin gildir til 11. júní 2009. Hörður Felix Harðarson hrl. hefur tekið að sér starf aðstoðarmanns félagsins í greiðslustöðvun.
Einkaframtakssjóður undirbýr yfirtökutilboð í Össur langt yfir markaðsverði
Samkvæmt heimildum AMX undirbýr breskur einkaframtakssjóður tilboð í 36% hlutafjár í Össuri hf. Tilboðið verður gert í samráði við William Demant Invest, sem er stærsti hluthafinn í Össuri. Tilboðið, sem ekki hefur verið lagt fram formlega, er yfir 50% hærra en síðasta markaðsvirði Össurar.
L-listinn vill að ríkið yfirtaki eigur verst settu skuldara
L-listinn vill að ríkið stofni sérstakan sjóð sem yfirtekur fasteignir þeirra fjölskyldna sem hafa skuldsett sig umfram fjárhagslega getu. Fyrri eigendur fái síðan forleigurétt og forkaupsrétt að eignunum. Listinn bendir á að aðfgerðin hafi verið notuð með góðum árangri í kreppunni miklu.
Metfjöldi atvinnulausra í Bandaríkjunum
Sjöunda mánuðinn í röð bættust yfir 600 þúsund í hóp atvinnulausra í Bandaríkjunum. Fjöldi atvinnulausra þar í landi er nú 5,47 milljónir sem er met. Ástandinu á vinnumarkaði í landinu er lýst sem ömurlegu.
SI: Fyrirtækin að kikna undan ofurvöxtunum
Stjórn Samtaka iðnaðarins lýsir miklum vonbrigðum með að Seðlabanki Íslands skuli ekki ganga miklu lengra í lækkun stýrivaxta en ákveðið var í dag. Fyrirtækin eru að kikna undir ofurvöxtunum og vaxtamunur milli Íslands og samkeppnislanda fáránlegur, segir stjórnin.
Skuldir sjávarútvegs innan við 2% af heildarskuldum fyrirtækja 2007
Við höfum alltaf gert okkur grein fyrir því að skýringanna á skuldasöfnun íslenskra fyrirtækja væri ekki að leita innan sjávarútvegsins, segir Adolf Guðmundsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna.
Nýtt tilboð til lánardrottna Kaupþings í Lúxemborg
Yfirvöld í Lúxemborg og fjárfestingarsjóður frá Líbýu hafa lagt fram nýtt og betrumbætt tilboð til lánardrottna Kaupþings í Lúxemborg um endurskipulagningu bankans.
Stórum hluta starfsmanna Straums sagt upp störfum
Um 90 manns af um 145 manna starfsliði Straums -Burðaráss verður sagt upp störfum. Launamál eru í uppnámi. Sumir fengu allt að sjö milljónum króna í bónusgreiðslur rúmri viku áður en skilanefnd var sett yfir bankann, segir Vísir.
Íbúðaverð hefur lækkað að raunvirði um 20% undanfarið ár
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,6% á milli janúar og febrúar samkvæmt upplýsingum sem Fasteignaskrá Íslands birti í gær. Undanfarna 12 mánuði hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 5,3% að nafnvirði og rúmlega 20% að raunvirði,segir Greining Íslandsbanka.
Markaðurinn vænti meiri vaxtalækkunar
Markaðurinn virðist hafa búist við því að peningastefnunefnd Seðlabankans myndi ákveða að taka öllu stærra skref nú a.m.k. ef marka má viðbrögð á skuldabréfamarkaði í morgun en ávöxtunarkrafa óverðtryggðra skuldabréfa hefur hækkað nokkuð, segir Greining Íslandsbanka um stýrivaxtalækkunina.
Peningastefnunefnd: Gætilega dregið úr peningalegu aðhaldi
Við upphaf vaxtalækkunarferlisins telur peningastefnunefnd Seðlabnaknans rétt að fara varlega og haga vaxtabreytingum með hliðsjón af tíðu endurmati á stöðunni eftir því sem efnahagslegur stöðugleiki eykst. Í því ljósi hefur nefndin ákveðið að bæta við vaxtaákvörðunarfundi 8. apríl næstkomandi.
Bush skrifar um stærstu ákvarðanir sínar á forsetaferlinum
George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, vinnur að bók um stærstu ákvarðanir sínar á átta ára valdaferli í Hvíta húsinu. Hún kemur út á næsta ári. Forsetafrúin fyrrverandi skráir einnig minningar sínar og mun keppa við bóndann um hylli lesenda.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, hafnar því að taka þriðja sætið á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi en hann lenti í því í prófkjöri flokksins um helgina eftir að hafa sóst eftir fyrsta sætinu. Þess í stað vill bæjarstjórinn í 5. sæti listans.
Bandarískt fjárfestingafélag minnkar hlut sinn í Royal Unibrew
Bandaríska fjárfestingafélagið Artio Global Management hefur minnkað hlut sinn í dönsku ölgerðinni Royal Unibrew. Félagið átti 11,18% hlut í þessari næststærstu ölgerð Danmerkur en á eftir söluna 9,84%. Stoðir fara með fimmtung hlutafjár í Royal Unibrew, hlut sem FL Group keypti í félaginu á sínum tíma.
Straumur óskar eftir heimild til greiðslustöðvunar
Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. hefur óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að bankanum verði veitt heimild til greiðslustöðvunar. Greiðslustöðvunina á að nýta til að koma bankanum í rekstrarhæft form á ný.
Vísitala byggingarkostnaðar lækkar
Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð um miðjan mars 2009, er 490,7 stig. Það er lækkun um 0,4% frá fyrri mánuði, að því er Hagstofan greinir frá.
Versta kreppa í Danmörku frá stríðslokum
Danski seðlabankinn gerir ráð fyrir 1,1% samdrætti í þjóðarframleiðslu í ár. Það telja sérfræðingar Danske Bank og Sydbank vera bjartsýni og reikna með 2,5% samdrætti. Seðlabankastjórinn segir kreppuna þá verstu frá stríðslokum.
Stýrivextir lækkaðir um 1 prósentu í 17%
Peningastefnunefnd hefur ákveðið að lækka stýrivexti Seðlabanka Íslands um 1,0 prósentu í 17,0%. Aðrir vextir Seðlabankans verða einnig lækkaðir í sama mæli.
Samfylkingin er loftbóluflokkur, segir Sigmundur Davíð
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, líkir Samfylkingunni við loftbóluflokk, sem sé afsprengi þess loftbóluhagkerfisins þar sem allt gekk út á ímynd og að hanna atburðarás og umræðu.
Íslenskt merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga vekur athygli erlendis
Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað nokkuð um íslenskt merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga, sem kynnt var fyrir fullum sal gesta á sjávarútvegssýningunni í Boston fyrr í vikunni. Almenna merkið var fyrst kynnt á Íslensku sjávarútvegssýningunni í byrjun október.
Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði gríðarlega umfangsmikla kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust hundruð kannabisplantna á ýmsum stigum ræktunar.
Smáfuglarnir undrast, hve lengi Guðmundur Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður, hefur velt fyrir sér, hvort hann ætti að sækja mál á hendur ríkissjóði, vegna þess að hann var ekki skipaður héraðsdómari skömmu fyrir jól 2007.
Smáfuglarnir dirfðust að vekja máls á því, hvernig Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, í Fréttablaðið. Guðmundur Andri taldi freklega að sér vegið, eins og fram hefur komið. Nú hefur Bjarni Harðarson, fyrrverandi alþingismaður og frambjóðandi L-listans, höggvið í sama knérunn og smáfuglarnir.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, leitaði, svo sem kunnugt er, nýrra vinaþjóða eftir hrunið í haust, ekki síst Rússa. Nú kann hann að hafa fundið vini í raun eftir fund með Norður-Kóreumönnum á Bessastöðum. Kannski langt að komnir ferðalangar beri „hinum kæra leiðtoga“ Kim Jong-il friðarkveðju úr norðri.
Lektor um stýrivexti: „Bara vitleysa“
Guðmundur Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands, bregst illa við því, að peningastefnunefnd seðlabankans skuli aðeins ákveða 1% lækkun stýrivaxta, úr 18 í 17 prósent. Þetta sé engin breyting heldur „bara vitleysa.“
Smáfuglarnir velta því fyrir sér hvað Ögmundi Jónassyni heilbrigðisráðherra finnist um þá afstöðu BSRB til Evrópusambandsins, sem lesa má út úr vali ræðumanna á fundi samtakanna um ESB-aðild Íslands næstkomandi föstudag.
Eiður skilur ekki „kynjaða hagstjórn“
Eiður Guðnason, fyrrverandi ráðherra og sendirherra, á erfitt með að skilja hvað felst í „kynjaðri hagstjórn“. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar hefur gefið það út að nú skuli bjarga landinu með því að taka upp „kynjaða hagstjórn“.
Smáfuglarnir taka eftir því, að þrír þingmenn Samfylkingarinnar standa varla upp á þingi, án þess að ákalla Evrópusambandið sér og þjóðinni til hjálpar, þau eru: Björgvin G. Sigurðsson, Árni Páll Árnason og Katrín Júlíusdóttir.