amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:00
 

Miðvikudagurinn 18. mars 2009

«
17. mars

18. mars 2009
»
19. mars
Fréttir

Landsbankinn staðfestir orð Björgvins G. Sigurðssonar

Landsbankinn hefur staðfest orð Björgvins G. Sigurðssonar, fyrrverandi viðskipta­ráðherra, um að bankinn hafi ekki afskrifað lán til hans. Í grein í Morgunblaðinu í dag vísaði Björgvin á bug sögum um afskrift skulda og sagði rógburð vera í gangi gegn sér.

ÖSE fylgist með þingkosningunum hér

Öryggis- og samvinnu­stofnun Evrópu mun senda tug sér­fræðinga til að fylgjast með undirbúningi Alþingis­kosninganna í lok næsta mánaðar. Það verður í fyrsta skipti sem alþjóðlegir eftirlitsmenn fylgjast með kosningum hér á landi.

Upplýsinga­vefur fyrir alþingis­kosningarnar opnaður

Upplýsinga­vefur dóms- og kirkjumála­ráðuneytisins vegna alþingis­kosninganna 25. apríl næstkomandi hefur verið opnaður. Á vefnum sem hefur slóðina www.kosning.is er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar er lúta að næstu alþingis­kosningum.

Spari­sjóðabankinn slær frá sér

Spari­sjóðabankinn segist einn íslenskra banka hafa sjálfstæða greiðslumiðlun við útlönd og spyr hvers vegna JP Morgan banki sé ekki reiðubúinn að sinna greiðslumiðlun fyrir Landsbankann og hvernig Seðlabanki og ríkis­stjórn meti framtíðarstöðu Landsbankans í ljósi þess að enn hefur ekki tekist að fá nafn hans fjarlægt af lista um hryðjuverkaaðila.

Konurnar ákveða frí og ferðalög

Vorið er á næsta leiti og eflaust fara menn í sumarfrí, þrátt fyrir kreppu. Þá þarf að ákveða hvað á að gera og hvert á að fara. Ný rannsókn sem getið er um á danska ferðavefnum Take off sýnir að það eru konurnar sem hafa völdin þegar kemur að ferðalögunum.

Fjórtán sækjast eftir for­stjórastarfi heilsugæslunnar

Fimm konur og níu karlar sóttu um starf for­stjóra Heilsugæslu höfuðborgar­svæðisins. Heilbrigðis­ráðherra skipar í stöðuna til fimm ára. gert ráð fyrir að for­stjórinn taki til starfa 1. maí nk. Hér er listi umsækjenda.

Tveggja daga vinnuviku hjá Saab

Saab bílaverksmiðjurnar i Trollhättan í Svíþjóð draga enn úr framleiðslu sinni. Stjórnendur segja líklegt að aðeins verði unnið í tvo daga í viku í verksmiðjunum vegna lítillar bílasölu.

Gengi krónunnar lækkar á ný

Gengi krónunnar lækkaði í dag og var gengisvísitalan komin upp í 198,32 stig, samkvæmt yfirliti M5.is. Allir gjaldmiðlar hækkuðu gagnvart krónunni, fyrir utan sterlingspundið sem lækkaði lítillega.

HR-dagurinn á laugardag

Háskólinn í Reykjavík opnar dyr sínar upp á gátt fyrir þjóðinni laugardaginn 21. mars, en þá verður HR dagurinn haldinn hátíðlegur frá kl. 12 til 16. Hægt verður að kynna sér nám við allar deildir skólans og veita kennarar og nemendur upplýsingar og ráðgjöf.

Viðskiptalíf G20: Fyrirtækin þurfa aðgang að fjármagni

Fulltrúar atvinnulífsins í 20 helstu ríkjum heims (G20) hittust í dag í Downingstræti 10 í London til að ræða viðbrögð við alþjóðlegu fjármálakrísunni. Áhersla var lögð á ð fyrirtækjum verði tryggður eðlilegur aðgangur að fjármagni.

Greiðsluaðlögun vegna vöru- og aðflutningsgjalda samþykkt

Alþingi hefur samþykkt greiðsluaðlögun vegna greiðslu vörugjalda og aðflutningsgjalda í tolli. Breytingin er til mikilla bóta og mun létta mörgum fyrirtækjum lífið, segir á síðu Samtaka iðnaðarins.

Fyrsti opni stjórnmálafundurinn með Sigmundi Davíð

Fyrsti opni stjórnmálafundurinn í Reykjavík með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknar­flokksins, verður á Nordica Hilton hóteli klukkan átta í kvöld. Sigmundur mun meðal annars fara yfir tillögur flokksins um aðgerðir til bjargar heimilum og fyrirtækjum í landinu.

Skipaður for­stjóri Straums

Óttar Pálsson, fyrrum framkvæmda­stjóri lögfræðisviðs Straums, hefur verið skipaður for­stjóri Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf.

AIG stefnir að endur­greiðslu ríkisframlagsins

Edward Liddy, for­stjóri bandaríska tryggingar­isans AIG, segir að sér hafi af lögfræðilegum ástæðum ekki komist undan því að greiða „smekklausa“ bónusta til helstu stjórnenda félagsins. Hann segir að félagið muni leggja hart að sér til að endurgreiða þá 180 milljarða dollara sem ríkið hefur lagt því til.

Glæsihýsi Jensby fer fyrir lítið

Asger Jensby, fyrrum stjórnar­formaður upplýsinga­tækni­fyrirtækisins IT Factory í Danmörku, verður trúlega að selja lúxusvillu sína í Noregi með miklum afföllum. Þessi fyrrum samstarfsmaður alræmda fjársvikarans Stein Bagger byggði húsið 2007 en fær vart meira en þriðjung bygginarkostnaðar fyrir það.

Auknir skattar lenda á almenningi og fyrirtækjum vegna nokkurra tuga manna

Almenningur allur og hefðbundinn atvinnurekstur landsmanna – þurfa að greiða aukna skatta vegna þeirrar afdrifaríku meðferðar fjármuna sem virðist hafa átt sér stað hjá nokkrum tugum manna sem flestir höfðu yfir sér huliðshjálm bankaleyndar og skattaskjóla, segja ríkisskattsjóri og vararíkisskatt­stjóri.

Bank of America: Vill endurgreiða 45 milljarða dollara til ríkisins

Það er ekki nóg með að Bank of America hafi tilkynnt að árið 2009 byrji vel. Nú hefur Kenneth Lewis aðalbanka­stjóri kunngert að bankinn hugleiði að endurgreiða ríkinu 45 milljarða dollara framlag sem hann fékk í neyðaraðstoð.

Frjálslyndi flokkurinn vill 8% stýrivexti strax

Meðal þeirra ályktana sem Frjálslyndi flokkurinn samþykkti um aðgerðir í efnahagsmálum á landsfundi sínum í Stykkishólmi síðastliðinn laugardag var að færa stýrivexti strax niður í 8%. Þá vill flokkurinn afnema verðtryggingu tímabundið.

Engar athugasemdir FME við fjárfestingar Frjálsa lífeyris­sjóðsins

Fjármála­eftirlitið hefur lokið skoðun á Frjálsa lífeyris­sjóðnum fyrir árið 2008. Skoðunin leiddi ekkert aðfinnsluvert í ljós í fjárfestingum sjóðsins, segir í tilkynningu hans. Ekki þarf að skerða réttindi eða lífeyri sjóð­félaga í trygginga­deild sjóðsins.

SA: Hagsmunir Íslands í loftslagsmálum verði tryggðir

Samtök atvinnulífsins styðja eindregið að þingsályktunartillaga um hagsmuni Íslands í loftslagsmálum sem nú liggur fyrir Alþingi verði samþykkt. „Alger nauðsyn er að útstreymisheimildir Íslands samkvæmt nýju samkomulagi endurspegli raunverulegt útstreymi að meðtöldum heimildum íslenska ákvæðisins svokallaða,“ segja SA.

Hrein erlend skuldastaða þjóðar­búsins jákvæð

Erlendar skuldir gömlu bankanna munu hverfa smám saman á næstu misserum samhliða eignasölu og afskrifta á skuldum. Erlendar skuldir fara þá niður í um tvöfalda landsframleiðslu og verða erlendu eignirnar aðeins meiri þannig að hrein skuldastaða verður lítillega jákvæð, segir Greining Íslandsbanka.

Skuldir ríkisins eftir bankahrunið eru viðráðanlegar

Skuldir íslenska ríkisins munu aukast mikið í bankakreppunni en þrátt fyrir að skuldir hins opinbera verði miklar er eignahliðin talsvert myndarleg á móti, og því er hrein staða hins opinbera mun hagfelldari en ætla mætti við fyrstu sýn, segir Greining Íslandsbanka m.a.

Atvinnuleysi eykst hratt í Bretlandi

Atvinnuleysi jókst mun meira í Bretlandi í febrúar en búist var við. Alls bættust 138.400 manns á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þetta er mesta aukning atvinnuleysis milli mánaða frá því að atvinnuleysismælingar hófust þar í landi árið 1971.

Orkuveitan þarf að greiða Hafnarfjarðarbæ 7,6 milljarða

Orkuveita Reykjavíkur þarf að greiða Hafnarfjarðarbæ rúmlega 7,6 milljarða króna með dráttarvöxtum frá 28. apríl 2008 gegn afhendingu á eignar­hlut sínum í HS Orku hf. (áður Hitaveitu Suðurnesja) og á eignar­hlut í HS Veitum hf., samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Rekstur í lagi hjá Almenna lífeyris­sjóðnum

Vegna frétta um rannsóknir á fjárfestingum lífeyris­sjóða vill Almenni lífeyris­sjóðurinn taka fram að Fjármála­eftirlitið hefur farið yfir eignir og fjárfestingar sjóðsins á árinu 2008. Við þá skoðun kom ekkert óeðlilegt í ljós.

Laun á almennum vinnu­markaði hækkuðu um 8% árið 2008

Laun á almennum vinnu­markaði hækkuðu um 8,0% að meðaltali á milli áranna 2007 og 2008 samkvæmt vísitölu launa. Laun verkafólks hækkuðu mest á tímabilinu eða um 9,7% en laun stjórnenda hækkuðu minnst, 6,1%.

Bankarnir hafa ekki lært sína lexíu

Bankarnir hafa ekki lært sína lexíu af fjármálakreppunni. Áhættustýring var augljóslega slök í mörgum bönkum en samkvæmt rannsókn endurskoðunarskrifstofunnar KPMG munu aðeins fjórir af hverjum tíu bönkum breyta aðferðum sínum.

Björgvin G. segir menn bera út róg um sig

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskipta­ráðherra, segir að menn hafi borið út róg um sig. Ein sagan sé sú að 100 milljónir króna skuldir hans hafi verið afskrifaðar. Þetta sé rangt. Engar skuldir hans hafi verið afskrifaðar.

Geithner vill draga 165 milljónir dollara frá AIG stuðningi

Timothy Geithner, fjármála­ráðherra Bandaríkjanna, vill að stjórnvöld dragi 165 milljónir dollara frá stuðnings­greiðslum ríkisins til bandaríska tryggingar­isans AIG en ríkið leggur fyrirtækinu til 30 milljarða dollara til þess að halda því á floti.

Bætt dreifingarkerfi ÁTVR á landsbyggðinni

ÁTVR getur nú samið beint við birgja um afhendingu vöru, sem ætluð er til dreifingar á nær­svæði framleiðenda, á öðrum dreifingarstað en í vöruhúsi ÁTVR á Stuðlahálsi.

Innistæður úr Straumi flytjast í Íslandsbanka

Allar innistæður í Straumi - Burðarási munu færast í Íslandsbanka, samkvæmt ákvörðun Fjármála­eftirlitsins. Allir skilmálar umræddra innlána um tímalengd, vaxta­kjör, mynt o.þ.h. halda sér óbreytt gagnvart Íslandsbanka.

Fuglahvísl

Arfavitlaust hjá vinstri-grænum

Grímur Atlason, sveitar­stjóri í Búðardal og áður í Bolungarvík, er einn þeirra, sem tók þátt í forvali vinstri-grænna í norðvestur­kjördæmi, þar sem Jón Bjarnason, þingmaður, hlaut glæsilega kosningu. Smáfuglarnir trúðu aldrei hvísli um, að Jón hefði ekki setið við sama borð og aðrir.

Kynjaveröld fjármála­ráðherra

Smáfuglarnir skildu strax, að með þessum kynlega hætti væri ráðherrann að bregðast við sívaxandi gagnrýni innan flokks síns vegna þess, hvernig hann hefur staðið að málum undanfarið.

Spegill, spegill herm þú mér…

Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra bað hinn 12. mars fyrrum vistmenn á Breiðavíkurheimilinu og fjölskyldur þeirra afsökunar fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og íslensku þjóðar­innar á þeirri ómannúðlegu meðferð sem vistmennirnir voru látnir sæta.

Jóhanna, Grandi, BYR og arð­greiðslur

Smáfuglarnir hlustuðu á Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætis­ráðherra, segja í Þjóðmenningarhúsinu 17. mars, að það væri „siðlaust með öllu“, að hluthafar í Granda greiddu sér arð af eign sinni í félaginu.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX