amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:04
 

Þriðjudagurinn 17. mars 2009

«
16. mars

17. mars 2009
»
18. mars
Fréttir

Segir erlenda lánardrottna telja að íslensk stjórnvöld hafi stolið eignum

Agnar Hansson, banka­stjóri Spari­sjóðabankans, segir erfitt að selja eignir þar sem erlendir lánardrottnar telji að íslensk stjórnvöld hafi stolið eignum þegar þær voru færðar úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju.

„Súperstemning“ á Wall Street

Mikið stuð var á bandarískum hlutabréfa­markaði í dag. Tölur um mikla aukningu á bygginga­markaði komu á óvart, raunar mesta aukning í 19 ár, auk þess sem orðrómur um viðbótarframlag seðlabankans ýtti verði bréfa upp. Allar hluta­bréfavísitölur hækkuðu umtalsvert.

Japanski seðlabankinn kaupir annars flokks lánasöfn bankanna

Seðlabanki Japans hefur ákveðið að kaupa annars flokks lánasöfn japanskra banka í þeim tilgangi að flýta fyrir að eðlileg lánastarfsemi geti hafist á ný og hjól hagkerfisins taki að snúast af meiri krafti.

Félagsmála­ráðherra fagnar „kynjaðri hag­stjórn“

Ásta R. Jóhannes­dóttir, félags- og tryggingamála­ráðherra, segir ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar fjármála­ráðherra um að hefja undirbúning að kynjaðri hag­stjórn boða nýja tíma í jafnréttismálum hér á landi. Ákvörðunin skapi tímamót og sé mikið fagnaðarefni.

Straumur yfirtók þriðjungshlut í Sjóvá

Straumur-Burðarás gekk í dag að 33,4% hlut í Sjóvá, sem veðsettur var félaginu. Daglegur rekstur félagsins mun ekki verða fyrir áhrifum vegna þessa.

Stórir vaxta­gjalddagar hafa veikt krónuna

Veikingarhrinu krónunnar síðustu daga má líklega rekja til vaxta­gjalddaga á ákveðnum ríkisbréfa­flokki. „Ekki þarf að koma á óvart að stórir vaxta­gjalddagar á borð við þennan hafi áhrif á gjaldeyris­markaði til veikingar,“ segir Greining Íslandsbanka.

iPhone símar finna hver annan til upplýsinga­skipta

Apple kynnti í dag nýjan hugbúnaðarpakka í hinn vinsæla iPhone síma sinn. Meðal tækninýjunga er það að símarnir geta með sjálfvirkum hætti fundið aðra síma í grenndinni og skipst á upplýsingum gegnum „Bluetooth“.

SAS býður netþjónustu um borð á næsta ári

Norræna flug­félagið SAS mun frá árinu 2010 bjóða farþegum á viðskiptafarrými endurgjaldslausa nettengingu á langleiðum, til Bandaríkjanna, Asíu og Dúbaí. Farþegar á ódýrari farrýmum verða að greiða fyrir netaðganginn. Þjónustan verður ekki á styttri Evrópu­leiðum.

Guðrún Guðmunds­dóttir leiðir L-listann í Norðvestur­kjördæmi

L – listi fullveldissinna ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að Guðrún Guðmunds­dóttir bóndi á Guðlaugsstöðum í Blöndudal muni leiða L – listann í Norðvestur­kjördæmi og að Þórhallur Heimisson prestur í Hafnarfirði muni leiða L – listann í Suðvestur­kjördæmi.

Umsjónaraðili skipaður með lífeyris­sjóðum í vörslu Landsbankans

Sérstakur saksóknari hefur í dag óskað eftir og fengið í hendur upplýsingar um lífeyris­sjóði í umsjón Landsbankans. Tilgangurinn er að kanna hvort lífeyris­sjóðir hafi á fyrri hluta árs 2008 farið út fyrir lagaramma um fjárfestingarákvarðanir og hvort upplýsinga­gjöf þar að lútandi hafi verið ábótavant.

Farið eða fyrirfarið ykkur, segir þingmaður við AIG toppa

Dragið ykkur í hlé eða fyrirfarið ykkur. Það eru skilaboð Charles Grassley, öldungar­deildarþingmanns Repúblikana­flokksins í Bandaríkjunum, til forráðamanna bandaríska tryggingar­isans AIG. Hann hvetur þá til að fylgja japönsku fordæmi, að taka ábyrgðina á gríðarlegum vandræðum fyrirtækisins eða fremja sjálfsmorð.

Umfangsmikil kannabisræktun í Kópavogi

Lög­reglan á höfuðborgar­svæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í íbúð í Kópavogi í gærkvöld. Við húsleit á áður­nefndum stað fundust um 300 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar en íbúðin var undirlögð af þessari starfsemi.

Kaup á vændi verði gerð refsiverð

Ásta R. Jóhannes­dóttir félags- og tryggingamála­ráðherra hefur kynnt aðgerða­áætlun stjórnvalda gegn mansali. Meðal annars stendur til að breyta almennum hegningarlögum þannig að kaup á vændi verði gerð refsiverð.

Nýr Lundúnaleigubíll – Mercedes Benz

Hinn klassíski svarti Lundúnaleigubíll hefur fengið samkeppni. Segja má að þessir gamaldags leigubílar séu hluti af borgarmyndinni, ekki síður en rauðu tveggja hæða strætisvagnarnir. Nú kunna hins vegar að vera breytingar í vændum. Mercedes Benz Vito er kominn í leiguakstur á götum bresku höfuðborgarinnar.

Íslandsbanki: Greiðslumiðlun við útlönd í góðu horfi

Starfsmenn Íslandsbanka hafa á undanförnum mánuðum lagt áherslu á að byggja upp og viðhalda góðum samböndum við erlenda viðskiptabanka og með því hafa gjaldeyris­viðskipti og greiðslumiðlun komist aftur í gott horf á síðustu mánuðum.

SI: Ógnarháa vexti verður að kýla niður

Ógnarháa vexti verður að kýla niður. Seðlabanka­stjórinn og peningastefnu­nefndin verða að sýna kjark og framsýni á fimmtudaginn” segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmda­stjóri Samtaka iðnaðarins.

Kynjuð hag­stjórn

Steingrímur J. Sigfússon fjármála­ráðherra hefur ákveðið að skipa verkefnis­stjórn um stefnumótun og undirbúning að kynjaðri hag­stjórn (gender budgeting).

Fjárhags­reglur gildi strax um ráðherra

Ríkis­stjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að tillögur sem lagðar voru fyrir Alþingi 16. mars um reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingis­manna og trúnaðarstörfum utan þings eigi þegar í stað að gilda um ráðherra í ríkis­stjórn.

Aukin upplýsinga­gjöf stjórnvalda

Starfshópur á vegum forsætis­ráðuneytisins hefur unnið markvisst að því að bæta upplýsinga­streymi stjórnvalda þar sem lögð er áhersla á gagnsæi og lifandi upplýsinga­gjöf.

Viðskiptajöfrarnir færa sig aftur um nokkrar sætaraðir

Það eru fleiri hættir að fljúga á Saga Class en íslenskir útrásarvíkingar. Nýjar tölur frá IATA, alþjóða­samtökum flug­félaga, sýna að fjöldi farþega sem flaug á fyrsta farrými og svo­nefndu viðskiptafarrými flug­félaga hefur dregist saman um tugi prósenta undanfarna mánuði.

Mikill raunsamdráttur kortaveltu

Ekkert lát er á samdrætti í kortaveltu og er það til marks um að einkaneysla muni reynast mun minni á yfirstandandi ársfjórðungi en raunin var í fyrra. Að krónutölu er um ríflega 13% samdrátt að ræða á milli ára, en að raungildi nemur samdrátturinn hins vegar tæplega 30% frá febrúar 2008.

Íslendingar senda kosninga­eftirlitsmenn til Makedóníu og Moldóvu

Tveir kosninga­eftirlitsmenn halda í þessari viku til Makedóníu þar sem forsetakosningar fara fram á sunnudag. Viku síðar fara tveir fulltrúar til Moldóvu til að fylgjast með þingkosningum sem fram fara 5. apríl.

Spáir lækkun verðbólgu í 16,2%

Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,3% í mars. Reynist spáin á rökum reist mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 17,6% í 16,2%, en verðbólga fór hæst í 18,6% í janúar síðastliðnum. Áhrif gengishruns krónu á haustmánuðum í fyrra eru nú að fjara út.

Hús rýmd í Bolungarvík

Lögreglu­stjórinn á Vestfjörðum hefur í samráði við Veðurstofu Íslands lýst yfir óvissustigi í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu. Hættustig er hins vegar á reit 4 og er rýming húsa hafin við Ljósaland 2, Traðarland 18, 21, 22 og Tröð. Reitur 4 er fyrir neðan Traðargil í Bolungarvík og þar er verið að setja upp snjóflóðavarnargarð, sem ekki er tilbúinn.

IBM kynnir samskiptalausnir framtíðarinnar á Íslandi

Alþjóðlega tækni­fyrirtækið IBM hyggst kynna framtíðarsýn sína í samskiptalausnum á Lotusphere, ráð­stefnu sem haldin verður hér á landi næsta fimmtudag. Aðgangur er ókeypis á ráð­stefnuna.

Matvælalöggjöf ESB verði innleidd á Íslandi

Mikilvægt er að Alþingi samþykki að innleiða matvælalöggjöf Evrópu­sambandsins áður en það lýkur störfum á næstu vikum þar sem miklir viðskiptahagsmunir þjóðar­innar eru í húfi, segir á síðu Samtaka atvinnulífsins.

LÍÚ: Óskiljanlegar kvartanir Norðmanna

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmda­stjóri LÍÚ undrast stóryrta gagnrýni kollega síns, Audun Maråk, framkvæmda­stjóra hjá samtökum norskra útvegs­manna. Þar er haft eftir Maråk að setning einhliða veiðiheimilda Íslendinga á makríl sé „óábyrg, fáheyrð og óafsakanleg.“

Bankabreytingar í Sviss geta tekið mörg ár

Svisslendingar geta ekki breytt bankakerfi sínu í einu vetfangi. Það kann því að verða bið eftir auknu gegnsæi í bankakerfinu þar í landi. Forsætis­ráðherra Breta hefur fagnað skrefum Svisslendinga til afléttingar bankaleyndar en Þjóðverjar vilja að athafnir fylgi orðum.

Frjósemi í fyrra en aðeins þriðjungur barna fæddist í hjónabandi

Árið 2008 fæddust 4.835 börn hérlendis. Það eru 275 fleiri börn en ári áður, en þá fæddust hér 4.560 börn. Aðeins tvisvar í sögu Íslands hafa fleiri lifandi fædd börn komið í heiminn á einu ári, árin 1960 og 1959. Aðeins rúmlega þriðjungur barna á Íslandi fæddist í hjónabandi árið 2008.

SI fagna 100% endur­greiðslu vasks af vinnu á byggingarstað

Samtök iðnaðarins fagna nýjum lögum um 100% endur­greiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað íbúðar­húsnæðis. Þetta hefur lengi verið kappsmál samtakanna, hvetur til umsvifa og kemur í veg fyir svarta vinnu.

Trúnaðargögnum stolið frá Kaupþingi og þau notuð til hótana

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnar­formaður Kaupþings, telur að trúnaðargögnum úr Kaupþingi hafi verið stolið og þau notuð í fréttaflutning í Morgunblaðinu. Gögnin hafi einnig verið notuð til að hóta nafngreindum einstaklingum.

Miklar birgðir lækka olíuverðið

Neyslusamdráttur í Bandaríkjunum hefur haft það í för með sér að olíubirgðir hafa safnast upp þar í landi. Bandaríkin eru það land í heiminum sem notar mest af olíu. Þessar auknu birgðir hafa áhrif á olíuverð til lækkunar, bæði í New York og London.

Heilsa á dagskrá Norðurlanda

Málstofa á vegum Norrænu nýsköpunar­miðstöðvarinnar og Norrænu ráðherra­nefndarinnar verður haldin í dag, 17. mars, undir formennsku Íslendinga. Fjallað verður um hvernig efla má heilbrigðisþjónustu óháð landamærum og hvaða möguleikar felast í viðtækara samstarfi Norðurlandanna á helbrigðissviði.

Fuglahvísl

Samþjöppun á vakt Samkeppnis­eftirlitsins

Vöxtur Baugs á matvöru­markaði hérlendis var mikill og á tíðum ótrúlegur. Smáfuglarnir velta fyrir sér hvernig það hafi gerst á meintri vakt Samkeppnis­eftirlitsins sem virðist hafa brugðist hlutverki sínu með öllu.

Álitsgjafar á valdi baugsins

Smáfuglarnir fylgjast af nokkurri undrun með því, hvernig álitsgjafar, sem hafa verið á framfæri Baugs og talað og skrifað eins og þeir vita, að fellur eigendum í geð, leitast nú við að skrifa sig frá Baugi.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX