amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:26
 

Mánudagurinn 16. mars 2009

«
15. mars

16. mars 2009
»
17. mars
Fréttir

Lánardrottnar Kaupþings í Lúxemborg höfnuðu endur­skipulagningu

Lánardrottnar Kaupþings í Luxemborg höfnuðu í dag áætlun um endur­skipulagningu bankans. Yfirvöld í Lúxemburg og líbýskur fjárfestingar­sjóður munu leggja nýja áætlun fyrir kröfuhafa.

Ný neyðaraðstoð rússneskra stjórnvalda

Rússland sekkur stöðugt dýpra í kreppufenið. Því ráðgera stjórnvöld þar í landi enn frekara peningainnstreymi í hagkerfið í þeirri von að blása nýju lífi í það. Þetta kom fram hjá Vladimir Putin, forsætis­ráðherra Rússlands, í dag.

Skila­nefnd Glitnis tekur yfir Moderna Finance

Skila­nefnd Glitnis hefur tekið yfir allt hlutafé í Moderna Finance AB, dóttur­félag Milestone ehf. í Svíþjóð. Gengið var að veðum í öllum hlutafé Moderna samkvæmt samkomulagi. Með þessu færast yfirráð yfir íslenskum dóttufélögum Moderna, þ.e. Sjóvá, Askar Capital og Avant, til skila­nefndar Glitnis.

Hluta­bréf Citigroup upp um 146% á einni viku

Hluta­bréf fjármálafyrirtækja hafa hækkað verulega á hluta­bréfamörkuðum í Bandaríkjunum í dag. Það sem af er degi hafa bréf Citigroup hækkað um liðlega 42%. Þetta þýðir að hluta­bréf bankans hafa hækkað um nær 146% á einni viku.

Loðnuleit lokið - enginn loðnukvóti

Umfangsmikilli loðnuleit hafrannsóknaskipa og fiskiskipa er nú lokið án þess að loðnukvóti væri gefinn út. Ekki náðist að mæla þau 400 þúsund tonn sem miðað við sem grundvöll til útgáfu aflamarks. Þetta er í fyrsta sinn frá veiðitímabilinu 1982/1983 sem ekki hefur verið gefinn út loðnukvóti.

Krónan veikist um 2,5%

Gengisvísitala krónunnar hækkaði um 2,45% í dag og því lækkaði gengi krónunnar. Dollarinn hækkaði um 1,6% og var í lok dag á 115,28 krónur samkvæmt yfirliti M5.is. Evran hækkaði um 2,6% og er rétt um 150 krónur.

Nítján heimskulegustu lykilorðin

Password 1234 12345 123456 1234567 12345678. Ef þú ert með þessi lykilorð að tölvunni þinni er skynsamlegt að skipta strax. Sjá enn fremur önnur heimskuleg lykilorð á lista þar um.

SUS harmar fljótfærni og óvönduð vinnubrögð

SUS geldur varhug við öfgabreytingum sem nú er í fullri alvöru rætt um að keyra í gegn, örskömmu fyrir kosningar. Þrátt fyrir að íslenska hagkerfinu, fyrirtækjunum og heimilunum hafi verið greitt þungt högg á undanförnum mánuðum réttlætir það ekki algera gjörbyltingu á grunnstoðum sam­félagsins án nokkurrar umræðu eða tilrauna til breiðrar samstöðu, segir m.a. í ályktun sambandsins.

FME og sérstakur saksóknari setja sér samskipta­reglur

Sérstakur saksóknari og settur for­stjóri Fjármála­eftirlitsins hafa undirritað verklags­reglur sem hafa hafa það markmið að greiða fyrir upplýsinga­flæði milli aðila, stuðla að auknum skilningi á verkaskiptingu og koma í veg fyrir að mál verði rannsökuð samtímis á fleiri en einum stað.

Sjálfkjörið í bankaráð Seðlabankans

Sjálfkjörið var í bankaráð Seðlabankans, en tveir listar voru lagðir fram á Alþingi í dag. Annars vegar listi ríkis­stjórnar og hins vegar minnihluta. Alls voru sjö aðalmenn kjörnir og jafnmargir til vara.

Tryggvi Þór vill fella niður 20% af skuldum heimila og fyrirtækja

Tryggvi Þór Herbertsson hag­fræðingur, sem varð í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Norðaustur­kjördæmi, vill fella niður 20% af skuldum heimilanna og 20% af skuldum fyrirtækja sem eiga í viðskiptum við nýju bankana.

Reglur settar um hagsmunaskráningu alþingis­manna

Forsætis­nefnd Alþingis samþykkti í dag reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingis­manna og trúnaðarstörfum utan þings. Í reglunum er kveðið á um að skrifstofa Alþingis skuli halda skrá, og birta opinberlega, um fjárhagslega hagsmuni alþingis­manna svo og um trúnaðarstörf þeirra utan þings.

Veðsetning tónlistarhúss felur ekki í sér viðbótarskuldbindingar

Ríkisendurskoðun telur að veðsetning vegna Tónlistar- og ráð­stefnuhúss feli ekki í sér viðbótarskuldbindingar fyrir ríkis­sjóð samkvæmt fyrirliggjandi samningum varðandi TR. Það er því mat Ríkisendurskoðunar að veðsetningin sé ekki í andstöðu við fjárreiðulög.

Fallist á undanþágu Íslands frá hvíldartíma atvinnubíl­stjóra

Fasta­nefnd EFTA ríkjanna hefur samþykkt undanþágubeiðni Íslands frá reglum Evrópu­sambandsins um akstur og hvíld atvinnubíl­stjóra. Þar með er fallist á sérstöðu Íslands í samgöngumálum en vegakerfi landsins og aðstæður atvinnubíl­stjóra til hvíldar hér á landi eru mjög frábrugðnar því sem gerist á meginlandi Evrópu.

Eiginfjárframlag ríkisins til bankanna lægra en ætlað var

Allt stefnir í að eiginfjárframlag ríkis­sjóðs til nýju bankanna þriggja verði lægra en áður var talið þörf á. Gengið hefur verið út frá að ríkis­sjóður leggi bönkunum til 385 milljarða króna en Gylfi Magnússon viðskipta­ráðherra segir að líklega þurfi ekki svo háa fjárhæð.

Microsoft miðar áfram við evrugengi 120 krónur

Samningar hafa náðst milli Microsoft Íslandi og höfuðstöðva Microsoft um að öll viðskipti íslenskra fyrirtækja og almennings við Microsoft muni miðast við að gengi evrunnar sé 120 fram til júníloka. Slíkt fyrirkomulag hafði verið í gildi frá byrjun desember en rann út 10. mars. Evrugengi er nú um 146 krónur.

Meginlínur í ríkisfjármálum kynntar Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum

Steingrímur J. Sigfússon, fjármála­ráðherra segir að meginlínur í ríkisfjármálum fyrir komandi ár hafi verið kynntar fyrir fulltrúum Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins, þegar fulltrúar hans voru hér á landi. Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Geirs H. Haarde á þingi.

Tímabundin úttekt á séreignar­sparnaði

Landsbankinn hefur brugðist við samþykkt Alþingis um breytingu á lögum um útgreiðslu séreignar­sparnaðar þess efnis að á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010 verði heimilt að óska eftir fyrirfram­greiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar.

Toyota sker hressilega niður í Formúlu 1

Því fer fjarri að lið Toyota í Formúlu 1 keppninni verði með bensínið í botni í sumar en Formúlan hefst í Ástralíu 29. mars næstkomandi. Við lá að Toyota færi að að dæmi Honda og hætti keppni en ákvað þess í stað að skera útgjöld verulega niður.

SI: Starfsfólki stærstu fyrirtækja fækkaði um 3.574

Samtök iðnaðarins hafa gert könnun meðal stærstu félagsmanna sinna varðandi stöðu og horfur. Fram kom að uppsögnum síðustu mánaða sé að mestu lokið og starfsfólki hafi fækkað um 24% frá árunum 2007/2008, eða úr 14.911 í 11.337. Mestur samdráttur er í byggingariðnaði.

Jón Baldvin: Skýringar á hraklegri útreið

Heimavarnarlið SF í Reykjavík hefur hér með hafnað því að málflutningur minn muni styrkja stöðu SF meðal framvarðarsveitarinnar og í komandi kosningum. Ég hef að sjálfsögðu meðtekið skilaboðin, enda verða þau ekki misskilin, segir Jón Baldvin Hannibalsson, sem hvorki verður í framboði til þings né flokksformennsku.

Segir Logos ekki hafa starfað sem lögmenn fyrir Baug

Lögfræðiskrifstofan Logos ítrekar að lögmannsstofan hafi ekki starfað sem „lögmenn fyrir“ Baug. Yfirlýsingin er gefin út vegna umræðan um tengsl stofunnar við Baug Group, en Erlendur Gíslason hrl. og með­eigandi Logos hefur verið skipaður skipta­stjóri þrotabús Baugs Group.

Innbrotafaraldur í Árnessýslu

Tilkynning barst í nótt um innbrot í sumarbústað í Grímsnesi. Sú tilkynning kemur í kjölfar fjölda slíkra undanfarna viku í Árnessýslu. Brotist hefur verið inn í fyrirtæki, sumarbústaði og gróðrarstöð en þar var gróðurhúsalömpum stolið. Slík tól nota þrjótar til kannabisræktunar.

Verð á hráolíu hríðféll

Verð á hráolíu hríðféll á mörkuðum í kjölfar þess að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, ákváðu að fresta enn ákvörðun um að hægja á framleiðslu sinni. Olíuverð er nú komið niður í 43.6 dollara á tunnuna og féll um tæplega 6% í kjölfar ákvörðunar OPEC.

Hlustað eftir kröfum um endurnýjun

„Ástæða þess að við völdum að styðja Ragnheiði Elínu til forystu í Suður­kjördæmi er einfaldlega sú að við töldum okkur skylt að hlusta eftir kröfum sam­félagsins um endurnýjun í forystusveit sjálfstæðis­manna,“ segir í yfirlýsingu nokkurra forystumanna Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi.

Greining Íslandsbanka spáir stýrivaxta­lækkun um 0,5 prósentustig

Greining Íslandsbanka telur að Seðlabankinn lækki stýrivexti um 0,5 prósentustig næstkomandi fimmtudag og vextir verði í kjölfarið 17,5%.

Stjórnlagaþing kostar 1.700 til 2.100 milljónir

Kostnaður við stjórnlagaþing getur orðið allt að 2.148 milljónir króna ef það starfar í 24 mánuði. Ef stjórnlagaþing starfar í tíu mánuði gæti kostnaður orðið 1.176 milljónir króna samkvæmt mati frá fjármála­ráðuneytinu.

Endurreisn bankakerfisins í utandagskrárumræðu

Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, er málshefjandi í utandagskrárumræðu um endurreisn bankakerfisins. Gylfi Magnússon viðskipta­ráðherra mun vera til andsvara fyrir hönd ríkis­stjórnar­innar.

Hraðakstur á Ásbraut í Hafnarfirði

Tuttugu og fimm ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Ásbraut í Hafnarfirði á föstudag en þar var staðsett ómerkt lög­reglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála.

Fíkniefnamál í Kópavogi

Piltur um tvítugt var handtekinn í fjölbýlishúsi í Kópavogi eftir hádegi á föstudag. Í fórum hans fannst talsvert af fíkniefnum. Um var að ræða marijúana og var það ætlað til sölu. Pilturinn hefur áður komið við sögu hjá lög­reglu vegna fíkniefnamála.

Logos vann fyrir Baug vegna skaðabótamáls á hendur íslenska ríkisins

Lögfræðiskrifstofan Logos hefur með beinum hætti unnið fyrir Baug Group, en Erlendur Gíslason, lögmaður og einn eigandi Logos, hefur verið skipaður skipta­stjóri í þortabúi Baugs Group. Baugur réði Logos til að vinna að málshöfðun á hendur íslenska ríkinu árið 2005. Þá vann stofan að yfirtöku Baugs á Mosaic Fashion árið 2007.

Jón Bjarnason leiðir lista VG í Norðvestur­kjördæmi

Jón Bjarnason alþingis­maður hreppti 1. sætið í forvali Vinstri grænna í Norðvestur­kjördæmi. Lilja Rafney Magnús­dóttir á Suðureyri varð önnur.

Reikna með 1-1,5% stýrivaxta­lækkun á fimmtudaginn

Hagfræði­deild Landsbankans reiknar með því að Seðlabankinn muni lækka stýrivexti um 1 til 1,5 prósentustig á fimmtudaginn kemur en þá verður ákvörðun tekin um stýtivexti. Þetta verður í fyrsta sinn sem ný peningastefnu­nefnd tekur ákvörðun um vextina

Bretar 2000 milljörðum punda fátækari

Kreppan hefur gert hvern fullorðinn Breta 40.000 pundum fátækari, eða sem svarar 6,3 milljónum króna. Þegar það safnast saman hafa Bretar tapað stjarnfræðilegri upphæð, nær 2000 milljörðum punda, eða sem svarar 316 þúsund milljörðum íslenskra króna.

Fjölgun erlendra ríkisborgara

Þann 1. janúar 2009 voru skráðir hérlendis 24.379 erlendir ríkisborgarar. Það samsvarar fjölgun um 958 manns frá sama tíma í fyrra. Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda var 7,6% í ársbyrjun 2009 samanborið við 7,4% ári áður. Fjölmennasti voru Pólverjar, rúmlega 11 þúsund.

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 99 milljörðum í fyrra

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 99 milljörðum króna á árinu 2008 samanborið við 80 milljarða yfir árið 2007. Aflaverðmæti hefur aukist um 18,8 milljarða eða 23,5% á milli ára. Aflaverðmæti í desember nam tæpum 8 milljörðum miðað við rúma 5 milljarða í desember 2007.

Framboðslisti V-lista í Norðaustur­kjördæmi samþykktur

Kjördæmisþing VG í Norðaustur­kjördæmi haldið 15. mars, samþykkti framboðslista V-listans til Alþingis­kosninga 25. apríl næstkomandi. Listinn er birtur hér í heild.

Tryggvi Þór fylgir Kristjáni Þór en Arnbjörg í þriðja sæti

Kristján Þór Júlíusson sigraði með afgerandi hætti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Norðaustur­kjördæmi. Tryggvi Þór Herbertsson hafnaði í öðru sæti og Arnbjörg Sveins­dóttir í því þriðja.

Birkir Jón hafði betur í baráttunni við Höskuld

Birkir Jón Jónsson, alþingis­maður og varaformaður Framsóknar­flokksins, sigraði í prófkjöri Framsóknar­flokksins í Norðaustur­kjördæmi. Höskuldur Þórhallsson alþingis­maður varð í öðru sæti.

Hluta­bréf í Asíu og Evrópu hækka

Hluta­bréf hækkuðu á helstu mörkuðum í Asíu og við opnun markaða í Evrópu seig verðið einnig upp. HÆkkunin kemur í kjölfar ummæla Ben. S. Bernanke seðlabanka­stjóra Bandaríkjanna um að komið hefði verið í veg fyrir heimskreppu.

Fuglahvísl

Össur fallinn á tíma

Pjetur Hafstein Lárusson, rithöfundur með meiru, skrifar pólitíska minningargrein um Össur Skarphéðinsson á vefsíðu sína. Þar segir hann að svo virðist sem nokkurri þögn hafi slegið á Össur Skarphéðinsson við úrslit prófkjörs hjá Samfylkingunni í höfuðborginni.

Framsóknar­sálin of hátt metin?

Smáfuglunum er ljóst, að framsóknar­menn seldu sálu sínu við myndun ríkis­stjórnar­innar fyrir stjórnlagaþing. Þeir mátu hana á 300 milljónir króna, ef marka má Helgu Sigrúnu Harðardóttur. Hún viðurkennir á vefsíðu sinni, að talan hefur hækkað, en þar segir:

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX