Þegar ákveðið var hinn 23. janúar að fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins til 26. mars, boða til þingkosninga 9. maí og efna til prófkjara innan flokksins fyrir landsfundinn auk þess sem við blasti, að Geir H. Haarde mundi ekki gefa kost á sér til endurkjörs, hvorki sem þingmaður né flokksformaður, var augljóst, að sjálfstæðismenn væru að hefja stormasama vegferð.
Ragnheiður Elín og Árni efst í Suðurkjördæmi
Ragnheiður Elín Árnadóttir alþingismaður sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi. Árni Johnsen alþingismaður varð í 2. sæti og Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri í 3. sæti.
Jón Ásgeir seldi snekkjuna og einkaþotuna
Jón Ásgeir Jóhannesson hefur selt einkaþotu sína og 50 metra langa Hessen snekkju, að því er kemur fram í viðtali, sem Sunday Times birtir og mbl.is vitnar til. Þá hefur hann sett glæsiíbúð sína í New York á sölu.
Guðfríður Lilja og Ögmundur efst hjá VG í Kraganum
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir framkvæmdastýra varð efst í forvali Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi í dag. Ögmundur Jónasson varð annar.
Lokatölur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík
Lokatölur liggja fyrir í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Illugi Gunnarsson þingmaður varð efstur og fékk alls 4232 atkvæði í 1. sæti. Guðlaugur Þór Þórðarson hafnaði í öðru sæti. Þeir munu leiða sitt hvorn Reykjavíkurlistann. Pétur Blöndal varð þriðji.
Ragnheiður Elín efst hjá sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi
Ragnheiður Elín Árnadóttir er efst í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi þegar talin hafa verið 1.400 atkvæði af um það bil 4.000. Hún hefur hlotið 715 atkvæði í 1. sæti. Unnur Brá Konráðsdóttir er í öðru sæti og Kjartan Ólafsson í þriðja sæti.
LOGOS ekki fyrir Baug – en hvað segir dómstjórinn?
Smáfuglarnir sjá, að LOGOS segist ekki hafa unnið fyrir Baug og þess vegna sé lögmannstofan ekki vanhæf til þess að fjalla um málefni Baugs Group. 55 lögfræðinga starfi hjá stofunni og þótt einn starfsmaður sem starfi hjá LOGOS í London hafi eitt sinn unnið fyrir Baug geri það stofuna ekki vanhæfa að mati eigenda hennar.
Smáfuglarnir velta því fyrir sér, eftir að hafa horft á Silfur Egils 15. mars, hvort Egill Helgason sé í nægilegu jafnvægi til að stýra umræðum um afleiðingar bankahrunsins. Það var greinilegt á orðaskiptum Egils og Bjarna Benediktssonar, að Bjarna var nóg boðið um þann umræðugrundvöll, sem Egill lagði og vildi að yrði undirstaða samræðnanna.
Bullið í Hrannari B. og vonbrigði Þorsteins P.
Hrannar Björn Arnarsson fylgdi Jóhönnu Sigurðardóttur sem aðstoðarmaður úr félagsmálaráðuneyti í forsætisráðuneyti. Hann heldur uppi vörnum fyrir Jóhönnu á vefsíðu sinni og ræðst harkalega á Þorstein Pálsson, ritstjóra Fréttablaðsins, fyrir að segja Jóhönnu sitja við hlið vindanhanans vegna þess að hún segi eitt um Evrópumál á viðkiptaþingi og annað á Alþingi.