amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:25
 

Laugardagurinn 14. mars 2009

«
13. mars

14. mars 2009
»
15. mars
Fréttir

Lokatölur Samfylkingar­innar í Reykjavík

Lokatölur liggja fyrir í prófkjöri Samfylkingar­innar í Reykjavík. Ásta Ragnheiður Jóhannes­dóttir fór upp í 8. sæti á lokasprettinum og Mörður Árnason fór upp fyrir Önnu Pálu Sverrisdóttur. Þá höfði Helgi Hjörvar og Sigríður Ingibjörg Inga­dóttir sætaskipti í 3. og 4. sætinu. Jóhanna Sigurðar­dóttir fékk 78% atkvæða í 1. sæti.

Enn óbreytt hjá sjálfstæðis­mönnum í Kraganum

Nú hafa 4000 atkvæði verið talin, eða 71%, í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Suðvestur­kjördæmi. Röð frambjóðenda er óbreytt frá síðustu tölum en enn er nokkuð mjótt á munum milli frambjóðenda í 3. - 6. sætið.

Óbreytt röð hjá sjálfstæðis­mönnum í Reykjavík

Um 78% atkvæða í prófkjöri sjálfstæðis­manna í Reykjavík hafa verið talin. Röðin er óbreytt frá síðustu tölum. Illugi leiðir, þá Guðlaugur Þór og Pétur Blöndal.

Fjórðu tölur úr Kraganum: Spenna um 3. - 6. sæti

Bjarni Benediktsson er sem fyrr efstur og Þorgerður Katrín önnur. Ragnheiður Ríkharðs­dóttir er þriðja, Jón Gunnarsson fjórði, Óli Björn Kárason fimmti og Ármann Kr. Ólafsson í sjötta sætinu. Spenna er um úrslitin því ekki munar miklu á 3.-6. sæti.

Fjórðu tölur úr Reykjavík - sætaskipti Erlu og Sigríðar

Þegar 5210 atkvæði hafa verið talin í prófkjöri sjálfstæðis­manna í Reykjavík er staðan óbreytt nema hvað Erla Ósk Ásgeirs­dóttir og Sigríður Á. Andersen hafa haft sætaskipti.

Þriðju tölur - Illugi áfram með örugga forystu

Þriðju tölur hafa verið birtar í talningu í prófkjöri sjálfstæðis­manna í Reykjavík. Talin hafa verið 4732 atkvæði og hefur Illugi Gunnarsson örugga forystu í 1. sætið, með alls 2814 atkvæði.

Árni Páll og Katrín efst hjá Samfylkingunni í Kraganum

Árni Páll Árnason er í fyrsta sæti á lista Samfylkingar í kraganum eftir að öll atkvæði hafa verið talin. Katrín Júlíus­dóttir er í 2.sæti, Lúðvík Geirsson í 3. sæti og Þórunn Sveinbjarnar­dóttir í því fjórða með 1104.

Sætaskipti hjá sjálfstæðis­mönnum í Kraganum

Ragnheiður Ríkharðs­dóttir er komin upp fyrir Jón Gunnarsson en þau eru í 3. og 4. sæti. Óli Björn Kárason kominn í 5. sæti en Ármann Kr.Ólafsson er í 6. sæti og Rósa Guðbjarts­dóttir er í 7. sæti. Bjarni og Þorgerður Katrín eru í 1.-2.

Jóhanna langefst í Reykjavík en Sigríður Inga fylgir Össuri

Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra er með yfirburðastöðu þegar talin hafa verið um 30% atkvæða í prófkjöri Samfylkingar­inar í Reykjavík. Össur Skarphéðinsson er annar og Sigríður Ingibjörg Inga­dóttir í þriðja. Ásta Ragnheiður nær ekki inn lista þeirra efstu.

Bjarni Benediktsson efstur í kraganum

Bjarni Benediktsson er efstur þegar talin hafa verið 200 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Suðvestur­kjördæmi. Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir er í öðru sæti.

Guðlaugur Þór ætlar ekki í formannsframboð

Guðlaugur Þór Þórðarsson alþingis­maður ætlar ekki að gefa kost á sér sem formaður á landsfundi Sjálfstæðis­flokksins. Hann greinir frá þessu á heimasíðu sinni.

Joly segir líkur á að stjórnendur banka hafi brotið lög

Eva Joly segir að miklar líkur séu á að stjórnendur íslensku bankana hafi gerst brotlegir við lög í starfsemi sinni. Hún lét þessi orð falla í vinsælum sjónvarpþætti í Noregi í gærkvöld, að því er Ríkisútvarpið greindi frá.

Gunnar Bragi og Guðmundur Steingrímsson efstir

Gunnar Bragi Sveinsson sigraði í prófkjöri Framsóknar­flokksins í Norðvestur­kjördæmi. Gunnar Bragi Sveinsson fékk 782 atkvæði í 1. sæti. Í öðru sæti varð Guðmundur Steingrímsson með 635 atkvæði í 1.-2. sæti.

Fuglahvísl

40 manns á útifundi Harðar Torfasonar

Fuglarnir hvísla að rétt um 40 manns hafi sótt útifund „Radda fólksins“ á Austurvelli í dag. Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvort þær upplýsingar munu koma fram í fjölmiðlum, ekki síst ríkisfjölmiðlunum.

Rouibini hefur rétt fyrir sér eins og framsókn

Smáfuglunum er eins farið og mörgum öðrum, að þeir eru ekki alltaf vissir um, hvaða hag­fræðingi þeir eiga að trúa. Skoðunum þeirra er demt yfir landsmenn í ýmsum myndum og þær virðast vera jafnmargar og mennirnir, sem flytja þær. Þess vegna er óhjákvæmilegt, að menn velji sér eitthvert átrúnaðargoð til að hafa fótfestu.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX