Madoff reynir að losna úr steininum
Bandaríski fjársvikarinn Bernard Madoff er nú á bak við lás og slá í rammgerðu fangelsi. Sólarhring eftir að hann játaði sig sekan um 65 milljarða dollara fjásvik reynir hann hvað hann getur til að sleppa úr haldi áður en dómur fellur í júní.
Efnahagur Íslands aftur á rétta braut
Fréttir sem umheiminum hafa borist af íslenskum efnahagsmálum undanfarna mánuði hafa verið neikvæðar, svo ekki sé meira sagt - þar til í kvöld. Þá mátti lesa fyrstu jákvæðu fréttina í Börsen en þar sagði að efnahagur Íslands væri aftur kominn á rétta braut eftir hrunið í haust.
Kópavogur sigraði í spurningakeppni stærstu sveitarfélaganna Útsvari í Ríkissjónvarpinu í kvöld og varði þar með titil sinn frá því í fyrra. Keppinautur Kópavogsliðsins í úrslitaleiknum var Fljótsdalshérað. Lokatölur urðu 69-62.
Flestir vilja að Bjarni verði formaður
Flestir vilja að Bjarni Benediktsson verði formaður Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Hann er sá eini sem hefur gefið kost á sér til formennskunnar.
Hundruð manna sóttu kynningarfund um atvinnu í Kanada, með áherslu á Manitoba fylki sem haldinn var í dag. Fundurinn var einkum ætlaður fólki með iðn- og háskólamenntun. Áhugi var á atvinnumöguleikum á gömlum Íslendingaslóðum.
HS Orka tapaði nær 11,7 milljörðum króna
Tap HS Orku, sem áður hét Hitaveita Suðurnesja, nam tæplega 11,7 milljörðum króna á síðasta ári.
Tap Byrs nær 29 milljarðar króna
Byr sparisjóður tapaði 28,8 milljörðum króna á síðasta ári. Það er mikill viðsnúningur frá árinu á undan en þá var hagnaður tæplega 8 milljarðar króna. Uppgjör Byrs ber þess skýr merki, að á síðasta ári reið yfir íslenskt efnahagslíf eitt versta áfall síðari tíma.
Hvetur útgerðir til að vinna sem mest af makríl til manneldis
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra hvetur útgerðir til að vinna sem mest af makrílafla sínum til manneldis sem skilar umtalsvert meiri verðmætum en fari aflinn til bræðslu og er auk þess meira í anda sjálfbærrar þróunar.
Nítján sóttu um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins
Nítján manns sóttu um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins en umsóknarfrestur rann út 11. mars. Listi umsækjenda fer hér á eftir.
44 fasteignir seldar á höfuðborgarsvæðinu í vikunni
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 6. mars til og með 12. mars 2009 var 44. Engum kaupsamningi þinglýst á Suðurnesjum í vikunni en 4 á Akureyri og 2 á Árborgarsvæðinu.
Olíufundur undan Brasilíuströndum hugsanlega hinn mesti í þrjátíu ár
Risaolíufélagið ExxonMobil tilkynnti í ársbyrjun um olíufund á svæði sem kallast Azulao-1, undan ströndum Brasilíu. Nánari rannsóknir leiða í ljós að þessi olíufundur, til viðbótar við fund brasilíska olíufélagsins Petrobras á svokölluðu Tupi-svæði, geti verið hinn mesti í þrjátíu ár.
Helguvík: Um 3.300 ársverk vegna framkvæmda
Alls skapast um 3.300 ársverk í kringum framkvæmdir vegna byggingar álvers Norðuráls í Helguvík. Mestur verður fjöldinn á vormánuðum 2011 en þá er talið að 1200-1500 starfsmenn verði í byggingaframkvæmdum, hönnun og byggingastjórn.
Viljayfirlýsing um flutning þjónustu fatlaðra til sveitarfélaga
Viljayfirlýsing milli ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um að sveitarfélög landsins taki við málefnum fatlaðra af ríkinu árið 2011 var undirrituð í dag. Heildarkostnaður þjónustu ríkisins við fatlaða nemur nú kringum 10 milljörðum króna árlega.
Skiptastjóri í þrotabúi Baugs Group
Erlendur Gíslason, lögmaður hjá lögmannsstofunni Logos, hefur verið skipaður skiptastjóri þrotabús Baugs Group. Félagið var lýst gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Helguvík: Rétt tímasetning og mikilvægar tekjur
Jafnvel þeir, sem eru á móti stóriðju, viðurkenna að ef á annað borð sé til rétt tímasetning fyrir að ráðast í framkvæmdir þá sé sá tími runninn upp. Efnahagslífið þarf á verulegri innspýtingu að halda og aukið atvinnuleysi kallar á aðgerðir í atvinnumálum.
Fjallað verði um sameiningu sveitarfélaga á Alþingi
Efling sveitarfélaga var meðal umfjöllunarefna Kristjáns L. Möller samgönguráðherra þegar hann flutti ávarp við setningu landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag. Ráðherrann setti fram þá hugmynd að Alþingi myndi ákveða sameiningarkosti með samráði við sveitarfélög.
Áframhaldandi greiðslustöðvun Hansa
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur veitt Hansa ehf. áframhaldandi greiðslustöðvun til 8. júní næstkomandi. Félagið er í eigu Björgólfs Guðmundssonar en helsta eign þess er enska knattspyrnuliðið West Ham United.
63 aftursætisbankastjórar á Alþingi
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir 63 aftursætisbankastjóra vera á Alþingi sem hver hafi sinn viðskiptavinahóp. Fjölmargir slíkir bankastjórar séu einnig utan þings sem allir telji sig vita betur en bankastarfsmenn hvernig eigi að reka banka.
Færri erlendir ferðamenn en meiri tekjur af hverjum
Á síðasta ársfjórðungi ársins 2008 fækkaði erlendum ferðamönnum til Íslands miðað við sama ársfjórðung ársins á undan um 1,3%. Hins vegar varði hver erlendur ferðamaður að jafnaði meira en helmingi hærri upphæð í neyslu hér á sama tímabili.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur hafist á morgun
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur hafist á morgun, laugardag, þar sem kjördagur fyrir kosningar til Alþingis hefur formlega verið ákveðinn 25. apríl næstkomandi.
Svigrúm til stýrivaxtalækkunar
Mark Flanagan formaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, segir að svigrúm sé að skapast fyrir lækkun stýrivaxta.
Eftir hægfara styrkingu undanfarnar vikur veiktist krónan um rúm 2% í gær og hefur gengið lækkað um 0,8% til viðbótar það sem af er degi. Er nú gengi krónu gagnvart evru lægra en það hefur verið frá miðjum febrúar síðastliðnum, segir Greining Íslandsbanka.
Sendinefnd Alþjóðgjaldeyrissjóðsins (AGS) sem verið hefur hér á landi er á heimleið. Rætt hefur verið um mótun stefnu í ríkisfjármálum til næstu ára, áætlun um afléttingu gjaldeyrishafta og lækkun vaxta, nýja tímaáætlun fyrir enduruppbyggingu bankarkerfisins og greiðsluaðlögun fyrir heimilin.
Neytendastofnanir auka eftirlit með bönkum og lánastofnunum
Neytendastofa og norrænar systurstofnanir hennar, sem fara með eftirlit og framkvæmd laga á sviði neytendamála á Norðurlöndunum, hafa markað sér þá sameiginlegu stefnu fyrir næsta ár að auka eftirlit með bönkum og lánastofnunum með það að markmiði að réttindi neytenda séu að fullu virt.
SA: Endurreisn atvinnulífs gengur allt of hægt
Samtök atvinnulífsins lýsa þungum áhyggjum af stöðu atvinnu- og efnahagsmála í bréfi til formanna stjórnmálaflokkanna. Þar segir að allt of hægt hafi gengið að taka lykilákvarðanir um endurreisn atvinnulífsins og seinagangurinn valdi íslenskum fyrirtækjum enn meiri erfiðleikum en fyrirsjáanlegt var.
Hnökrar lagfærðir í prófkjöri Samfylkingarinnar
Netkosningu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík var lokað tímabundið í gærkvöldi vegna hnökra á kerfinu en hefur verið opnuð á ný eftir lagfæringar. Hægt var að sjá hverjir höfðu kosið í prófkjörinu og hvort fólk væri á kjörskrá.
Karl V. gengur til liðs við Frjálslynda flokkinn
Karl V. Matthíasson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn. Hann fékk ekki brautargengi í prófkjöri Samfylkingarinnar um síðustu helgi. Karl segir hugsjónir sínar um sjávarútvegsmál eiga hljómgrunn í Frjálslynda flokknum.
Fjölgun þjófnaða og innbrota í efnahagskreppunni
Kreppan segir til sín víða. Þjófnuðum og innbrotum hefur fjölgað verulega frá því seinni hluta árs 2008 og fram í byrjun árs 2009. Niðurstöður samantektar ríkislögreglustjóra sýna að brotin eru 98% fleiri en yfir sama tímabil árið á undan.
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, var 27% meiri en í febrúar 2008. Aflinn nam alls 99.648 tonnum í febrúar 2009 samanborið við 85.808 tonn í sama mánuði árið áður.
Aukinn launakostnaður nema í iðnaði
Heildarlaunakostnaður á greidda stund jókst um 8,1% frá fyrri ársfjórðungi í samgöngum og flutningum, 6,1% í iðnaði, 5,7% í verslun og viðgerðarþjónustu og 5,3% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Heildarlaunakostnaður á greidda stund án óreglulegra greiðslna jókst í áðurnefndum atvinnugreinum nema iðnaði.
Markmið Heilsufélags Reykjaness er að skapa 300 ný störf
Sveitarfélögin Garður, Sandgerði, Reykjanesbær og Vogar auk Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Bláa Lónsins og Keilis – Miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs hafa stofnað Heilsufélag Reykjaness um uppbyggingu á heilsutengdum tækifærum á Reykjanesi. Meginmarkmið félagsins er að skapa 300 störf.
Evrópsku smáríkin Andorra og Liechtenstein hafa látið undan þrýstingi og munu ekki lengur halda hlífiskildi yfir ríkum útlendingum sem sent hafa gríðarlega fjármuni þangað í skattaskjól. Afstaða yfirvalda í þessum ríkjum eykur mjög þrýstinginn á stjórnvöld í Sviss.
Koma þarf í veg fyrir hrun byggingariðnaðar
Mikill samdráttur í byggingariðnaði hefur gríðarleg margfeldisáhrif og leiðir til enn frekari samdráttar í efnahagslífinu og minni hagvaxtar. Takist að koma í veg fyrir hrun greinarinnar skilar það sér margfalt til baka til samfélagsins, segir Ásgeir Magnússon, verkefnastjóri byggingasviðs SI.
Sjálfstæðisflokkur stærstur - meirihluti styður ríkisstjórn
Tæp 60% landsmanna styðja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti stjórnmálaflokkur landsins en Samfylkingin fylgir fast á hæla hans.
Smágfuglarnir hafa vakið athygli á því, að Björg Eva Erlendsdóttir, ritstjóri Smugunnar, fékk létt áfall, þegar hún áttaði sig á því, að kona með karlaleg sjónarmið, Valgerður Sverrisdóttir, væri í stjórnarskrárnefnd alþingis með átta „karlpungum“ og þeir þar að auki „með bindi og bumbu“. Nú hefur Valgerður verið kjörin formaður í nefndinni en það breytir að sjálfsögðu engu, enda fór Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, verðlauna-sjónvarpsfréttamaður mbl.is, á vettvang.
Morgunblaðið og talhraði Evu Maríu
Smáfuglarnir hafa eins og aðrir fyglst af athygli með umræðum á Alþingi og einnig umræðum um þær umræður í fjölmiðlum. Morgunblaðinu hefur verið sérstaklega uppsigað við sjálfstæðismenn, af því að þeir tóku nokkrar klukkustundir að kvöldi til og ræddu um séreignasparnað.
Karl V. verður Karl III. hjá frjálslyndum
Karl V. Matthíasson skipaði annað sæti á lista Samfylkingarinnar í norðvesturkjördæmi í kosningunum 2007. Hann bauð sig fram í prófkjöri fyrir kosningarnar núna en lenti í V. sæti. Vegna reglna um kynjakvóta var hann færður í IV. sæti listans.
Smáfuglarnir fagna því, að dyggur lesandi þeirra, Árni Páll Árnason, alþingismaður og frambjóðandi til varaformanns ef ekki formanns Samfylkingarinnar, var kjörinn í stjórnarskrárnefnd Alþingis í dag til að fjalla um það, hvort setja eigi ákvæði um eignarrétt á náttúrauðlindum í stjórnarskrána, brey...
Fall varaformanns vekur litla athygli
Fall Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, varaformanns Frjálslynda flokksins, í póstkosningu flokksins, hefur vakið litla athygli. Smáfuglanir eru undrandi á því en sumir þeirra telja það lýsandi fyrir stöðu frjálslynda; þeir skipta engu máli í þjóðmálaumræðunni.
Smáfuglarnir votta Björg Evu Erlendsdóttur, ritstjóra Smugunnar, alla samúð, sem þeir eiga. Hún hefur greinilega orðið fyrir léttu áfalli, þegar hún sá, hverjir skipa nýja stjórnarskrárnefnd, sem kjörin var á Alþingi í dag til að fjalla um það, sem Jóhanna Sigurðardóttir kallar nú brýnasta þingmálið – líklega málið sem bjargar hag heimila og fyrirtækja og snýst um að ákveða að verja 1,5 milljarði í stjórnlagaþing.