amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 17:58
 

Fimmtudagurinn 12. mars 2009

«
11. mars

12. mars 2009
»
13. mars
Fréttir

Stjórnar­flokkarnir töluðu í austur og vestur um ESB

Varaformaður Samfylkingar­innar sagði á Viðskiptaþingi í dag að ESB aðild yrði líklega skilyrði fyrir samstarfi í ríkis­stjórn en formaður Vinstri grænna lýsti furðu á þessari kröfur Samfylkingar­innar. Samhljómur stjórnar­flokkanna var því enginn í Evrópu­málum.

Viðskiptaráð: Einhugur um aðild að ESB

Fulltrúar viðskiptalífsins voru einhuga í afstöðu sinni til Evrópu­sambandsins í pallborðsumræðum á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem fór fram í dag.

Forsætis­ráðherra bað Breiðavíkurdrengi afsökunar

Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra bað í dag, fyrir hönd stjórnvalda og þjóðar­innar, fyrrverandi vistmenn á Breiðavíkurheimilinu og fjölskyldur þeirra afsökunar á þeirri ómannnúðlegu meðferð sem þeir voru látnir sæta á meðan þeir dvöldust á vistheimilinu.

Málþing um rafræna sjúkraskrá

Það verður að gera átak í að byggja upp rafræna sjúkraskrá fyrir allt landið, sagði Ögmundur Jónasson heilbrigðis­ráðherra á málþingi um málefnið í dag. Heilbrigðis­ráðherra sagði að veruleg hætta væri á að Íslendingar drægjust aftur úr öðrum þjóðum á þessu sviði ef ekki yrði ráðist í þetta átak.

Nýsköpunarverðlaun veitt Mentis Cura

Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra afhenti í dag Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunar­miðstöðvar og Útflutningsráðs. Verðlaunin hlaut Mentis Cura sem hefur þróað aðferðir til að greina heilabilanir með heilaritum og nútíma myndgreiningartækni.

Jón Gerald kynnir lágvöruverðs­verslunina Smart Kaup

Jón Gerald Sullenberger kynnti í dag hugmyndir að nýrri lágvöruverðs­verslun, sem kallast Smart Kaup. Verði verslunin að veruleika mun hún aðallega selja matvöru og aðrar nauðsynjavörur fyrir heimilin.

Hægt að „kíkja“ í prófkjöri Samfylkingar­innar

Samfylkingin ætlar að breyta prófkjörssíðu flokksins á netinu. Eins og síðan er nú er hægt að sjá hverjir hafa kosið í prófkjörinu með því að slá inn kennitölur viðkomandi. Einnig er hægt að sjá hvort fólk sé á kjörskrá hjá Samfylkingunni.

Nova kærir Tal fyrir meiðandi ummæli

Síma­fyrirtækið Nova hefur ákveðið að kæra keppinautinn Tal fyrir skaðleg og meiðandi ummæli forstöðumanns sölu- og markaðssviðs í blaðaviðtali.

Litla fiskbúðin í Hafnarfirði og Fiskbúðin Freyja í Kópavogi ódýrastar

Verðlags­eftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á ferskum fiski í verslunum á höfuðborgar­svæðinu. Kannað var verð á 29 tegundum fiskmetis í fiskbúðum og fiskborðum stór­markaða. Lægsta verðið var oftast að finna í Litlu fiskbúðinni í Hafnarfirði. Fiskbúðin Freyja í Kópavogi var 9 sinnum með lægsta verðið af þeim 11 tegundum sem til voru þar.

Mikill samdráttur var í verslun í febrúar

Verulega hefur dregið úr veltu í smásölu­verslun og var samdrátturinn meiri í febrúar en áður hefur mælst, ef desember síðastliðinn undanskilinn. Mestur var samdrátturinn í raftækja­verslun, þá húsgagna­verslun og þar á eftir fata- og skó­verslun. Velta í dagvöru­verslun hefur ekki verið minni að raunvirði frá því í febrúar 2007.

Madoff: Ég er sekur

Bernard Madoff, fjársvikarinn bandaríski sem á hættu að verða dæmdur í 150 ára fangelsi, lýsti sig sekan af öllum 11 ákæruliðum svikamálsins fyrir rétti í New York í dag. Svikamálið hefur vakið gríðarlega athygli víða um heim. Um 100 blaðamenn og fjöldi sjónvarpsstöðva voru við réttarhöldin á Manhattan.

Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð

Lög­reglan á höfuðborgar­svæðinu stöðvaði mjög umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Laugardalshverfinu í gærkvöld. Við húsleit á áður­nefndum stað fundust nokkur hundruð kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Málið er talið tengjast öðru svipuðu máli.

Samningur við Cayman-eyjar um baráttu gegn skattaflótta

Gengið var frá samkomulagi milli aðildarríkja Norrænu ráðherra­nefndarinnar, Íslands þar á meðal, og Cayman-eyja um undirritun upplýsinga­skiptasamnings. Samningurinn er liður í sameiginlegri viðleitni samningsaðilanna til að stöðva skattaflótta.

„Fyrirtæki og stofnanir geta sparað hundruð milljóna í ferðakostnað“

Íslensk tækni getur lækkað ferðakostnað og gjaldeyris­þörf fyrirtækja og stofnana, segir í tilkynningu fyrirtækisins Dohop en það hefur verið í fremstu röð í þróun ferðaleitarvéla.

100 milljónum varið til uppbyggingar á Laugavegi 4 og 6

Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að 100 milljónum króna verði varið til uppbyggingar húsanna tveggja við Laugaveg 4 og 6. Er miðað við að húsin verði gerð upp þannig að hægt verði síðar að byggja á lóðinni í heild.

Kynningarfundur um atvinnu í Kanada

Kynningarfundur um atvinnu í Kanada, með áherslu á Manitoba fylki verður haldinn í Skriðu, Háskóla Íslands (gamla Kennaraháskólanum) á morgun, föstudag. Samkomulag íslenskra stjórnvalda og Manitoba um atvinnu- og búsetuleyfi handa íslenskum ríkisborgurum verður kynnt.

Lögum breytt vegna skamms tíma til kosninga

Ragna Árna­dóttir dómsmála­ráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um kosningar til Alþingis. Með því er bætt inn í lögin ákvæði til bráðabirgða um breytingar á ýmsum frestum sem gilda í aðdraganda kosninga, með hliðsjón af yfirlýsingu um að kosið verði 25. apríl.

Forsætis­ráðherra segir viðskiptalífið bera mesta ábyrgð á hruninu

Ég trúi því að við sem erum stödd hér í dag gerum okkur fulla grein fyrir því að þeir sem teljast til viðskiptalífsins bera ríka ábyrgð á því hvernig komið er. Ef til vill ríkari ábyrgð en nokkur annar einstakur aðili hér á landi, enda þótt nú verði allir að líta í eigin barm, sagði Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra á Viðskiptaþingi.

Viðskiptaþing: Grunnforsendur markaðsbúskapar ekki brostnar

Rökin fyrir því að grunnforsendur markaðsbúskapar séu brostnar eru veik og geta reynst skaðleg fái þau víðtækan hljómgrunn. Þó nú blási á móti er ekki vænlegt að snúa baki við þeim almennu viðhorfum sem hafa leitt til hagsældar vestrænna ríkja síðustu áratugi, sagði formaður Viðskiptaráðs á Viðskiptaþingi.

Markmiði borgarinnar um 2,3 milljarða hagræðingu náð

Sett markmið við endurskoðun fjárhags­áætlunar Reykjavíkurborgar hefur náðst, þ.e. að hagræða um rúma 2,3 milljarða króna í samræmi við samþykkta fjárhags­áætlun og sameiginlegan vilja borgar­stjórnar.

Kreppan hefur breytt Íslandi í bílaútflutningsland

Endurgreidd hefur verið tæp 91 milljón króna af notuðum bílum sem hafa verið fluttir úr landi. Undanfarna þrjá mánuði hefur verið sótt um endur­greiðslu 190 útfluttra ökutækja og bíða 98 beiðnanna afgreiðslu. Efnahagskreppan hefur breytt Íslandi í bílaútflutningsland.

Sérstaki saksóknarinn fær skýrari rannsóknarheimildir

Ragna Árna­dóttir dómsmála­ráðherra lagði í gær fram frumvarp um breytingu á lögum um embætti sérstaks saksóknara. Með frumvarpinu er lagt til að heimildir embættisins til þess að kalla eftir upplýsingum og gögnum verði gerðar skýrar og ótvíræðar.

Fréttamenn klæmast á frönskunni

Forráðamönnum Alliance Française blöskrar greinilega hvernig fréttamenn klæmast á frönskunni. Því býður félagið fjölmiðla­fólki ókeypis örnámskeið svo bæta megi úr þessum vanda. Á námskeiðinu verður boðið upp á framburðarvökva, rauðan og hvítan

Eignir lífeyris­sjóðanna rýrna enn

Bankahrunið í fyrrahaust og sídýpkandi kreppa á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hafa valdið íslenskum lífeyris­sjóðum verulegum búsifjum á undanförnum mánuðum og var hrein eign þeirra í janúarlok ámóta mikil og hún var um mitt árið 2007. Að raungildi er hrein eign hins vegar svipuð og í árslok 2005, segir Greining Íslandsbanka.

Fjármálakreppan hefur mikil áhrif á heimilin

Óhætt er að segja að staða heimilanna hafi versnað umtalsvert við komu fjármálakreppunnar. Gengisfall krónunnar hefur veikt kaupmáttinn og eiginfjárstöðuna. Hratt vaxandi atvinnuleysi hefur dregið úr ráðstöfunartekjum heimilanna, segir Greining Íslandsbanka.

Mikil vöxtur í auglýsingasölu danskra netmiðla

Rekstur danskra netmiðla gekk vel á síðasta ári, öfugt við rekstur dagblaða sem hafa strítt við vaxandi vanda. Alls var auglýst í dönskum netmiðlum fyrir 2,9 milljarða danskra króna, eða sem svarar tæplega 56 milljörðum íslenskra króna. Netmiðlar fundu síður fyrir efnahagssamdrætti en aðrir miðlar.

Fíkniefnamisferli á Akureyri

Lög­reglan á Akureyri handtók tvo karlmenn vegna gruns um fíkniefnamisferli eftir að þeir voru stöðvaðir á bifreið. Í framhaldinu var gerð húsleit á heimilum þeirra þar sem fundust tól til fíkniefnaneyslu, nokkur grömm af fíkniefnum, kannabisfræ, sterar og loftskambyssa.

Lágar verðbólgutölur róa Seðlabanka Evrópu

Lægra hrávöruverð og mikill efnahagslegur samdráttur eru meginorsakir þess að verðbólga minnkar umtalvert á evru­svæðinu. Allar líkur eru á því að verðbólgan verði undir 2% markmiði Seðlabanka Evrópu bæði árið 2009 og 2010. Bankinn gerir ráð fyrir samdrætti í ár en sér batamerki 2010.

Styttist í þingrof

Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra rýfur þing fljótlega og tilkynnir um það í dag eða á morgun. Ríkis­stjórnin kom saman til aukafundar í stjórnar­ráðinu í morgun, til að afgreiða frá sér síðustu málin sem hún ætlar að leggja fyrir Alþingi.

Hagstofan rýkur upp í vinsældum

Vegir kreppunnar eru órannsakanlegir. Vefur Hagstofu Íslands hefur til dæmis aldrei verið jafn vel sóttur og á síðustu mánuðum. Sérstaklega hefur áhugi á efnahagstölum á enskum hluta vefsins aukist.

Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar

Félags- og tryggingamála­ráðherra, hefur mælt fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt því verður gildistími bráðabirgðaákvæðis um heimildir til að greiða hlutfallslegar atvinnuleysisbætur á móti skertu starfshlutfalli launamanna framlengdur til 31. desember nk.

Freddie Mac enn í vanda

Bandaríski fasteignalánarisinn Freddie Mac er enn í vanda þrátt fyrir gríðarlega aðstoð bandarískra stjórnvalda. Freddie Mac á eða tryggir meira en 20% af öllum fasteignalánum í Bandaríkjunum. Stóru lána­sjóðirnir tveir, Freddie Mac og Fannie Mae, standa fyrir nær helmingi fasteignalána vestra.

Saab segir upp 750 manns í Trollhättan

Bílaframleiðandinn Saab hefur sagt upp 750 starfsmönnum í Trollhättan í Svíþjóð. Aðstandendur Saab leita með logandi ljósi að kaupanda hins hrjáða fyrirtækis því ljóst er að General Motors mun ekki reka það áfram.

Björgólfur Thor enn á milljarðamæringalista Forbes

Björgólfur Thor Björgólfsson heldur sér á lista Forbes yfir ríkiustu menn í heimi en lækkar mikið. Hann er í 701.-793. sæti en eignir hans eru metnar á 1 milljarð dollara, sem jafngildir 112 milljörðum króna. Bill Gates tekur toppsætið á ný af fjárfestinum Buffett.

Illugi boðar fund um endurreisn fjármálakerfisins

Í dag, fimmtudag, verður fundur í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, um endurreisn fjármálakerfisins. Illugi Gunnarsson mun ræða stöðu efnahagsmála og Jón Gunnar Jónsson, sér­fræðingur í lánsfjármálum, fjallar um endurreisn bankakerfisins. Fundurinn er öllum opinn og hefst kl. 20.

Fuglahvísl

Karlaleg Valgerður og átta krumpaðir karlpungar

Smáfuglunum er ljóst að Smugan bindur miklar vonir við breytingar á stjórnar­skránni. Þær virðast hafa hrunið við val á mönnum í stjórnar­skrár­nefnd. Hin orðvara Björg Eva Erlends­dóttir, rit­stjóri Smugunnar, ritar hátíðar/hatursrávarp í tilefni að kjöri Alþingis á sér­nefnd til að fjalla um breytingartillögur á stjórnar­skránni.

Áfall fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur

Könnun Fréttablaðsins, sem birt var í morgun, er áfall fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra. Þar kemur í ljós að eftirspurnin eftir henni í formannsembætti Samfylkingar­innar er ekki eins mikil og reynt hefur verið að telja fólki trú um.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX