amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 17:58
 

Miðvikudagurinn 11. mars 2009

«
10. mars

11. mars 2009
»
12. mars
Fréttir

Magnús Þór út í kuldanum hjá frjálslyndum

Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins lenti í fjórða sæti í póstkosningu flokksins í Norðvestur­kjördæmi, en hann stefndi að öðru sæti á eftir Guðjóni Arnari Kristjánssyni formanni.

Fimmtán í forvali VG í Kraganum

Fimmtán gefa kost á sér í forvali vinstri grænna í Suðvestur­kjördæmi sem fer fram næstkomandi laugardag. Kjósa skal um sex efstu sætin. Kosið verður á þremur stöðum í kjördæminu, segir í tilkynningu frá VG.

Fíkniefnamál í Garðabæ

Karl um þrítugt var handtekinn í Garðabæ eftir hádegi í gær. Í bíl hans fundust nokkrir tugir gramma af fíkniefnum en um var að ræða bæði hass og marijúana. Efnin voru ætluð til sölu.

Atvinnuleysi 8,2% í febrúar

Skráð atvinnuleysi í febrúar 2009 var 8,2% eða að meðaltali 13.276 manns og eykst atvinnuleysi um 27% að meðaltali frá janúar eða um 2.820 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.631 manns. Miðað við daginn í dag eru 16.693 atvinnulausir á landinu.

Stjórn Baugs hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum félagsins

Stjórn Baugs Group hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum félagsins eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur synjaði beiðni þess um framlengingu greiðslustöðvunar. Niðurstaðan er forráðamönnum Baugs mikil vonbrigði, segir stjórnar­formaður félagsins.

Leitað var tilboða í bíla og því besta tekið

Í yfirlýsingu frá Nýja Kaupþingi segir að bankinn hafi leitað tilboða í bíla, sem áður voru í eigu gamla bankans, hjá þremur bílasölum og besta tilboðinu tekið. Salan var gerð á viðskiptalegum forsendum, með hagsmuni bankans og eigenda hans að leiðarljósi.

Sampo sækist eftir auknum hlut í Nordea

Finnska tryggingar­félagið Sampo vill kaupa stærri hlut í Nordea, stærsta banka Norðurlanda. Félagið er næststærsti eigandi bankans, á eftir sænska ríkinu. Bakkavör átti, áður en harðna tók á dalnum, stóran eignar­hlut í Sampo. Félagið seldi þann hlut með umtalsverðu tapi.

Daimler sendir 18 þúsund starfsmenn heim

Þýski bílarisinn Daimler glímir við neyslusamdrátt ekki síður en aðrir bílaframleiðendur. Fyrirtækið bregst við þessu með því að segja upp 18.000 starfsmönnum næstu mánuði. Daimler er stærsti vörubílaframleiðandi heims. Fjórar af verksmiðjum Mercedes Benz lenda í fyrirhuguðum niðurskurði.

Skýrsla um áhættumat fyrir Ísland

Formaður starfshóps um áhættumat fyrir Ísland skilaði í dag skýrslu hópsins til Össurar Skarphéðinssonar utanríkis­ráðherra. Í skýrslunni eru áhættuþættir metnir út frá líkindum á því að hættuástand skapist og sam­félagslegum áhrifum þess og veikleikum og styrkleikum Íslands.

Veislan á Wall Street heldur áfram

Kauphallar­fyrirtækin á Wall Street hækka í verði og halda áfram þaðan sem frá var horfið í gær, ekki síst bankarnir. Citigroup hefur hækkað mest í dag, eða um 15%. Bank of America hefur hækkað um 9,5% og JP Morgan Chase um 3,5%.

Museum Erotica gjaldþrota

Kynlífssafnið Museum Erotica í hjarta Kaupmannahafnar er gjaldþrota. Þar með er 26 árs sögu þess lokið. Fulltrúi safnsins segir það öngva klámbúllu verið hafa heldur hafi þar verið rakin saga kynlífs frá því 10 þúsund árum fyrir Krist.

Af óbærilegum léttleika þjóðar­gjaldþrots

Þórólfur Matthíasson prófessor ritaði grein vegna ummæla Helga Magnússonar, formanns SI, á Iðnþingi. Þar hneykslaðist Helgi á orðum Þórólfs „að ástandið á Íslandi væri verra en þjóðar­gjaldþrot.“ Hér má lesa grein Þórólfs og viðbrögð Helga við henni.

Framlag til umferðaröryggis­áætlunar verður 367 milljónir króna

Framlag til umferðaröryggis­áætlunar verður í ár alls 367 milljónir króna. Kristján L. Möller samgöngu­ráðherra kynnti áætlunina í dag og um leið var skrifað undir samninga um umferðar­eftirlit milli Ríkislögreglu­stjóra annars vegar og hins vegar Vegagerðarinnar og Umferðarstofu.

Iðnaðar­ráðuneytið sparar

Iðnaðar­ráðuneytið vill fara fyrir í orkusparnaði. Allar perur ráðuneytisins eru sparperur og umhverfisvænar. Um 20% af raforkunotkun heimila fer til lýsingar. Með því að skipta út hefðbundnum glóperu fyrir sparperur má draga verulega úr raforkunotkun.

LÍN kemur til móts við námsmenn

Stjórn Lána­sjóðs íslenskra námsmanna hefur breytt reglum sjóðsins til að koma frekar til móts við þá sem hafa orðið fyrir áföllum eins og til dæmis atvinnumissi. Tekjumörk vegna undanþágu frá greiðslu fastrar afborgunar árið 2009 verða hækkuð úr 2,1 milljón í 4 milljónir.

Hagkerfi heimsins bregðast of seint við kreppunni

Dominique Strauss Kahn, framkvæmda­stjóri Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins, varar við því að hin þróuðu hagkerfi heimsins bregðist allt of seint og hægt við fjármálakreppunni og eru mistök þeirra falin í því að losa fjármála­fyrirtæki of seint við óhagstæðar og erfiðar skuldir.

Baugur: Eigið fé neikvætt um 150 milljarða og áætlanir óraunhæfar

Arngrímur Ísberg, héraðsdómari segir að fyrirætlanir forráðamanna Baugs Group um björgun félagsins hafi verið óraunhæfar og ekki líklegar til að koma nýrri skipan á fjármál fyrirtækisins. Vegna þessa hafnaði hann beiðni um áframhandandi greiðslustöðvun félagsins.

Útlán Íbúðalána­sjóðs dragast saman

Alls lánaði Íbúðalána­sjóður ríflega 3,3 milljarða króna í febrúar sem jafngildir 6% samdrætti á milli mánaða. Lítil ummerki eru um að húsnæðis­markaður sé að taka við sér og eru útlán til íbúðakaupa í lágmarki.

Bílasala dregst enn saman

Bílasala hefur ekki farið vel af stað á nýju ári. Fyrstu tvo mánuði ársins voru 296 nýjar bifreiðar nýskráðar en á sama tímabili fyrir ári síðan voru þessar bifreiðar um 2.000 talsins og hefur nýskráningum því fækkað um 85% á milli ára.

Áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs hafnað

Gjaldþrot virðist blasa við Baugi Group eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði áframhaldandi greiðslustöðvun félagsins.

Áhrif fjármálakreppu á efnahag heimila

Af 8.900 heimilum með lán í erlendri mynt eða blönduð lán þá eru 3.400 í neikvæðri eiginfjárstöðu. Af 67 þúsund hús­eigendum með lán í krónum þá eru 11.200 heimili í neikvæðri eiginfjárstöðu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirliti Seðlabankans um áhrif fjármálakreppunnar á fjárhag heimilanna.

Talið víst að Boeing verði samstarfsaðili Vestas

Talið er víst að nýr samstarfsaðili danska vindmylluframleiðandans Vestas sé bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing. Búist er við tilkynningu um samstarfið síðar í dag. Hagsmunir fyrirtækjanna fara víða saman.

Norsku olíupeningarnir fossuðu burt

Verðmæti norska olíu­sjóðsins, lífeyris­sjóðs Norðmanna, rýrnaði um hvorki meira né minna en 23,3% á síðasta ári í kjölfar mikils falls hluta­bréfa víða um heim. Afkoma ársins var hin versta í sögu sjóðsins.

Lufthansa horfir fram á bjartari tíma 2010

Þýska risaflug­félagið Lufthansa væntir rekstrarbata árið 2010 og reiknar með að markaðurinn taki að rétta við við lok þriðja fjórðungs þessa árs. Heildarhagnaður félagsins dróst saman um 64% milli áranna 2007 og 2008.

Samið við erlenda lánardrottna bankanna í næsta mánuði

Gylfi Magnússon viðskipta­ráðherra segir að stefnt sé að því að ganga frá samkomulagi við lánardrottna hinna föllnu banka í komandi mánuði. Í símaviðtali við Bloomberg fréttaveituna segir ráðherra ríkið muni bjóða lánardrottnum að eignast hluti í bönkunum eða sætta sig við lengri greiðslufrest.

Verst gengur að selja sumarhúsin

Þess var getið í vetur að um tíundi hluti íslenskra sumarhúsa væri til sölu og að verðlækkun hefði orðið á þeim markaði í kjölfar kreppunnar. Hið sama virðist eiga við í nágrannalandinu Danmörku. Sumarhús þar eru lengst allra fasteigna á söluskrá.

Madoff má búast við 150 ára fangelsisdómi

Bandaríski fjársvikarinn Bernard Madoff viðurkenndi sekt sína fyrir rétti í gær. Þangað mætti hann í skotheldu vesti. Saksóknari í máli Madoffs segir að hann megi búast við 150 ára fangelsisdómi. Lúxuslífinu er því lokið.

Ungir sjálfstæðis­menn í Suður­kjördæmi vilja kynslóðaskipti

Ungir sjálfstæðis­menn í Suður­kjördæmi hvetja til stuðnings við unga frambjóðendur í prófkjöri flokksins. Þeir segja nauðsynlegt fyrir flokkinn að ákveðin kynslóðaskipti verði. Undir ályktunina skrifa sjö ungliðahreyfingar Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi.

Viðskipti við Kaupþing voru eðlileg

Lýður og Ágúst Guðmundssyni, aðal­eigendur Exista og Bakkavarar, segja að viðskipti þeirra og fyrirtækja þeim tengdum við Kaupþing, hafi verið eðlileg. Þeir segja að nú fari fram skipulagður undirróður þar sem gögnum um Kaupþing sé markvisst lekið til fjölmiðla.

Tíu skotnir til bana í Alabama

Maðurinn, sem gekk berserksgang í bænum tveimur bæjum í Alabama skaut a.m.k. tíu manns til bana. Meðal fórnarlamba var móðir mannsins, eiginkona og þriggja mánaða barn lög­reglumanns.

Mikil hækkun hluta­bréfaverðs

Hluta­bréf hækkuðu mikið í verði í Bandaríkjunum í gær og var dagshækkun S&P 500 vísitölunnar sú mesta frá 24. nóvember. Hækkunin í Bandaríkjunum hefur smitast yfir á aðra markaði en í dag hækkuðu helstu hluta­bréfavísitölur í Asíu töluvert.

Fuglahvísl

Söðull staksteinahöfundar

Hinn árvarkri staksteinahöfundur Morgunblaðsins kemst að þeirri niðurstöðu í dálki sínum 11. mars, að „stjórnmálamannastéttin“ hvað sem það nú er, hafi ekki úr háum söðli að detta, traust til á „stéttinni“ sé í algjöru lágmarki.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX