Viðmiðunarfjárhæð vaxtabóta hækkar um 25% og unnt verður að breyta gengistryggðum fasteignalánum í hefðbundin verðtryggð lán verði tillögur ríkisstjórnarinnar að lögum.
Fjármálaráðgjafi ráðinn til að stýra viðræðum við kröfuhafa bankanna
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að koma samningaviðræðum milli nýju bankana sem stofnaðir voru eftir hrun gömlu bankanna og kröfuhafa gömlu bankanna í fastan farveg. Fjármálaráðuneytið hefur ráðið Þorstein Þorsteinsson rekstrarhagfræðing til að fara fyrir þessum viðræðum.
Gengi rússnesku rúblunnar styrkist
Rússneska rúblan hækkaði í dag í fyrsta skipti í þrjár vikur gagnvart evru og dollar. Ástæðan er hækkandi verð á olíu og gasi og yfirlýsingar rússneskra stjórnvalda um að rúblan verði varin.
Allir geta tekið milljón af séreignasparnaði
Frumvarp um endurgreiðslu séreignarsparnaðar var samþykkt samhljóða á Alþingi í dag. Allir landmenn mega taka milljón krónur út úr séreignasparnaði sínum, þ.e. þeir sem á annað borð hafa safnað á slíkan reikning.
Karl V. Matthíasson alþingismaður verður ekki í framboði við þingkosningarnar í vor. Hann telur sig ekki hafa fengið hljómgrunn innan Samfylkingarinnar í prófkjöri í Norðvesturkjördæmi um helgina.
Yfirtaka FME á Straumi hefur ekki áhrif á Íbúðalánasjóð
Yfirtaka Fjármálaeftirlitsins á Straumi í gær hefur ekki áhrif á fjárhagslega stöðu Íbúðalánasjóðs, segir í yfirlýsingu sjóðsins.
Lars Johansen, sem verið hefur bankastjóri FIH Erhvervsbank í Danmörku í 11 ár, lætur af störfum 30. júní næstkomandi. Bankinn er í eigu íslenska ríkisins sem tók veð í honum gegn stórláni til Kaupþings rétt fyrir fallið í haust. Guðni Aðalsteinsson tók við sem varaformaður stjórnar.
Íslandsbanki hvetur Baug til að leggja fram gögn
Sé það vilji forsvarsmanna Baugs Group að taka af allan vafa um fjárhagsstöðu og málefni félagsins er þeim í lófa lagið að veita almenningi og fjölmiðlum aðgang að þeim gögnum sem lögð voru fram fyrir Héraðsdómi í gærmorgun, segir í athugasemd Íslandsbanka.
Methækkun danskra banka í kjölfar hækkunar í Bandaríkjunum
Hin mikla hækkun sem varð á verði hlutabréfa í Bandaríkjunum í dag smitaði út frá sér. Þannig hækkuðu t.d. danskir bankar verulega í verði. Hækkun Nordea var söguleg, eða 18,1%. Í kjölfarið fylgdi Danske Bank með 10,95%. Sama þróun var annars staðar í Evrópu.
Hrefnuskyttur skulu hafa sótt námskeið í meðferð skutulbyssna
Í reglugerð um hrefnuveiðar er kveðið á um þau skilyrði sem uppfylla þarf til að fá leyfi til veiðanna. Að minnsta kosti einn úr áhöfn skal hafa reynslu af hrefnuveiðum og einnig skulu skyttur sem annast veiðar og aflífun dýra hafa sótt námskeið í meðferð skutulbyssna og sprengiskutlna og í aflífunaraðferðum við hvalveiðar.
Hlutabréf Century Aluminium hækka um 32%
Hlutabréf Century Aluminum hafa hækkað gríðarlega í verði í dag eða um liðlega 32%. Viðskipti með bréfin eru óvenju mikil. Century er móðurfélag Norðuráls á Grundartanga og hefur uppi áform um byggingu álvers í Helguvík.
Mikil hækkun á hlutabréfum í Bandaríkjunum
Mikil hækkun verið á verði hlutabréfa í Bandaríkjunum það sem af er dags. Fyrir stundu hafði Dow Jones iðnaðarvísitalan hækkað um 4,13% og Nasdaq um 5%. Þá hefur S&P 500 vísitalan hækkað um 4,7%.
Skilanefnd Glitnis undrast áróðurskennda yfirlýsingu Baugs
Skilanefnd Glitnis undrast áróðurskennda yfirlýsingu Baugs Group hf. sem send hefur verið fjölmiðlum og vísar henni alfarið á bug, segir í athugasemd skilanefndarinnar þar sem fram kemur að hún standi í einu og öllu við málatilbúnað sinn.
Jóhanna undir feldi vegna formennsku
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að hún sé að íhuga hvort hún eigi að gefa kost á sér í formennsku Samfylkingarinnar. Það sé skylda hennar en áskoranir um að hún taki við embættinu hafi komið henni á óvart.
Listi Moody's yfir stórfyrirtæki í mestri gjaldþrotahættu
Matsfyrirtækið Moody's hefur birt lista 283 stórfyrirtækja sem eru í mestri gjaldþrotahættu vegna mikillar skuldsetningar. Helstu fyrirtæki á þessum lista eru hart leiknir bílaframleiðendur í Bandaríkjunum, spilavíti, smásöluverslanakeðjur, dagblöð, sjónvarpsstöðvar, flugfélög og orkufyrirtæki.
Segir Bjarna Harðarson fara fram í Reykjavík norður
Bjarni Harðarson, fyrrverandi alþingismaður, mun skipa efsta sæti L-listans í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir héraðsblaðið Sunnlendingur. Áður var reiknað með honum í efsta sæti listans í Suðurkjördæmi.
Á Landvetterflugvellinum í Gautaborg voru í fyrra gefin saman 157 hjón. Skilyrði hjónavígslunnar er að hjónin séu skráð í flug. Kirkjuleg vígsla tekur um korter en borgaraleg innan við fimm mínútur. Svo er bara að vona að vélinni seinki ekki.
Eva Joly verður ráðgjafi vegna rannsókna á efnahagsbrotum
Eva Joly, sem er víðkunn af rannsóknum sínum á fjármálabrotum og fjármálaspillingu í Evrópu, verður sérstakur ráðgjafi vegna rannsókna á efnahagsbrotum sem tengjast hruni fjármálakerfisins hér, að tillögu dómsmálaráðherra.
Stuðlað að endurskipulagningu mikilvægra atvinnufyrirtækja
Ríkisstjórnin hefur samþykkt frumvarp fjármálaráðherra um stofnun hlutafélags í eigu ríkisins til að stuðla að endurskipulagningu þjóðhagslegra mikilvægra atvinnufyrirtækja. Hlutafélagið verður starfrækt tímabundið.
Eðli og uppruni kreppa á Viðskiptaþingi
Dr. Pedro Videlo hagfræðiprófessor mun á Viðskiptaþingi fjalla um eðli og uppruna kreppa af því tagi sem Ísland á nú við að etja, reynslu frá öðrum löndum og aðgerðir sem líklegastar eru til að vinna bug á ástandinu.Viðskiptaþing verður haldið á fimmtudaginn.
ESB vill fjórfalda framlag til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Framlög til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) verða stóraukin svo hann megni að aðstoða lönd sem stríða við mikinn efnahagsvanda. Um þetta voru fjármálaráðherrar ESB samála. Þeir stefna að því að tvöfalda framlög til sjóðsins en styðja fjórföldun. Hætt er við að sjóðir AGS tæmist dragist kreppan á langinn.
Fiskneysla bætir námsárangur sænskra táningspilta
Niðurstöður vísindamanna við háskólann í Gautaborg benda eindregið til þess að fiskneysla stuðli að bættum námsárangri táningspilta. Þeir úr hópnum, sem borðuðu fisk oftar en einu sinnu í viku, náðu tæplega 11% betri námsárangri en jafnaldrar þeirra að þremur árum liðnum.
Færeyskt tryggingarfélag vill á íslenskan markað
Tryggingarfelagið Føroyar (TF) stefnir að því að hefja starfsemi á Íslandi fyrir árslok 2009. Álitlegasti kosturinn, að mati félagsins, er að kaupa að fullu eða að hluta tryggingarfélag í rekstri og ráðamenn TF sjá ýmsa möguleika í þeirri stöðu.
Gríðarlegar breytingar á gjaldeyrismarkaði
Veltan á millibankamarkaði er nú ekki nema svipur hjá sjón miðað við það sem áður var. Tvo fyrstu mánuði ársins var velta á millibankamarkaði tæpir 4 milljarðar króna í hvorum mánuði en fyrir hrun nam veltan hundruðum milljarða í hverjum mánuði.
Engum blekkingum beitt segja Baugs-menn
Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group og Stefán Hilmarsson, aðstoðarforstjóri, hafna þeim staðhæfingum að stjórnendur félagsins hafi meðvitað blekkt kröfuhafa eða lagt fram villandi upplýsingar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem þeir hafa sent frá sér.
Útlendingar áhugalitlir um ríkispappíra
Útlendingar hafa undanfarið verið áhugalitlir um útboð ríkisvíxla og -bréfa en áhugi innlendra aðila á slíkum bréfum hefur verið þeim mun meiri, segir Greining Íslandsbanka.
Telja að atvinnuleysi í Bandaríkjunum fari í 9,4%
Ástandið á bandarískum vinnumarkaði versnar stöðugt. Boomberg fréttaveitan leitaði til 54 hagfræðinga og telja þeir að atvinnuleysi fari í 9,4% á árinu og haldist hátt út árið 2011. Búist er við 2,5% samdrætti í bandarísku efnahagslífi í ár. Fari svo hefur samdrátturinn ekki verið meiri milli ára frá árinu 1946.
Danskir bensínþjófar gerast æ kræfari
Það er víðar en á Íslandi sem eldsneytisþjófnaður fer vaxandi. Í Danmörku jókst slíkur þjófnaður á bensínstöðvum um 50% milli áranna 2007 og 2008. Forráðamenn bensínstöðvanna hafa brugðið á það ráð að birta myndir af þjófunum en mega eiga von á sektum fyrir tiltækið.
Neytendastofa beitir Og fjarskipti dagsektum
Neytendastofa hefur lagt dagsektir á Og fjarskipti ehf. (Vodafone) þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að ákvörðun Neytendastofu. Og fjarskiptum var bönnuð notkun orðsins fríkeypis fyrir þjónustu sem greiða þarf fyrir en hafa ekki fjarlægt orðið af vefsíðu sinni.
Ríkisaðstoð þarf ekki að kosta Barclays sjálfstæðið
Stórbankinn Barclays klárar sig betur en helstu bresku keppinautarnir, risabankarnir Royal Bank of Scotland og Lloyds Banking Group. Það eykur líkur á því að Barclays fái hlut í neyðarpakka breska ríkisins án þess að þurfa að láta af sjálfstæði sínu.
Biðlað til Jóhönnu um tímabundna formennsku
Á meðan beðið er eftir svari Jóhönnu kunna orð Össurar Skarphéðinssonar um að engin forystukreppa sé í Samfylkingunni, að vera rétt. En hitt er ljóst að standi Jóhanna fast á sínu kann mat utanríkisráðherra að breytast. Og merkilegt er að innan Samfylkingarinnar er litið á hugsanlega formennsku Jóhönnu Sigurðardóttir sem tímabundna lausn í 1-2 ár.
AGS mun koma Zimbabwe til bjargar
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) er reiðubúinn til að koma Afríkuríkinu Zimbabwe til aðstoðar. Búist er við að neyðaraðstoð verði kynnt í næsta mánuði. Efnahagur landsins er í rúst, atvinnuleysi gríðarlegt og verðbólga stjarnfræðileg.
Peningaleg eign hins opinbera versnaði um 312 milljarða
Hrein peningaleg eign hins opinbera, þ.e. peningaleg eign umfram skuldir, var neikvæð um 301 milljarð króna í árslok 2008, eða sem svarar 20,5% af landsframleiðslu. Hún hafði versnað um rúmlega 312 milljarða króna milli ára eða um 21,4% af landsframleiðslu.
Opin nýsköpun á Nýsköpunarþingi
Opin nýsköpun verður yfirskrift Nýsköpunarþings Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs sem verður haldið næstkomandi fimmtudag. Þar veitir menntamálaráðherra Nýsköpunarverðlaun fyrir árið 2009.
Atvinnuleysi í Bandaríkjunum verður 9,4% á þessu ári
Hagfræðingar reikna með að atvinnuleysi verði 9,4% á þessu ári í Bandaríkjunum og að lítið dragi úr fjölda atvinnulausra fram til ársins 2011. Fjölgun atvinnulausra mun ógna hagvexti. Þetta er niðurstaða könnunar Bloomberg fréttastofunnar meðal hagfræðinga.
Óvænt verðbólguaukning í Danmörku
Vísitala neysluverðs hækkar í Danmörku. Aukin verðbólga kemur hagfræðingum þar í landi á óvart. Þeir höfðu búist við lækkun í kjölfar lækkandi orkuverðs og áhrifa efnahagskreppunnar.
Volvo gæti orðið sænskur á ný. Verksmiðjurnar eru í eigu Ford en bandaríski bílaframleiðandinn vill selja. Meðal áhugasamra kaupenda er hópur sænskra fjárfesta. Kínverjar banka einnig á dyrnar hjá Ford.
Opinn borgarafundur: 500 milljarðar til eigenda - glæpur eða vinagreiði
Opinn borgarafundur verður haldinn í Iðnó miðvikudaginn 11. mars kl. 20-22 undir yfirskriftinni: 500 milljarðar til eigenda - glæpur eða vinagreiði. Frummælendur verða Atli Gíslason þingmaður, Bjarni Benediktsson þingmaður og Björn Þorri Viktorsson hæstaréttarlögmaður.
Smáfuglanir hafa tekið eftir því, að við allar breytingar á völdum innan Samfylkingarinnar, hefst ákveðið ferli á vegum dv.is, sem miðar að því að upphefja Össur Skarphéðinsson.
Smáfuglarnir fylgdust með umræðum á Alþingi að kvöldi mánudagsins 9. mars, þegar rætt var um frumvarp um útgreiðslu séreignasparnaðar. Þar ræddu þingmenn Sjálfstæðisflokksins málefnalega um tillögur í málinu, þar til Árni Þór Sigurðsson, þingmaður vinstri-grænna, birtist eins og þrumuský í ræðustólnum.
Vingott er siðferði Atla Gíslasonar
Atli Gíslason tók til varna fyrir fjármálamenn í Vestmannaeyjum sem kostuðu Ísfélag Vestmannaeyja og samfélagið þar í heild mörg hundruð milljónir með fjáræfingum sínum.