amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:34
 

Mánudagurinn 9. mars 2009

«
8. mars

9. mars 2009
»
10. mars
Fréttir

Lögmannsstofa dæmd til að afhenda kaupsamninga

Lögmannsstofan Logos hefur verið dæmd til að afhenda kaupsamninga og önnur gögn varðandi meint fjársvik og fjárdrátt í sambandi við sölu á fjórum flugvélum City Star Airline.

Milestone ávítt og beitt févíti

Kauphöllin hefur ákveðið að áminna Milestone ehf. opinberlega og beita févíti þar sem félagið er talið hafa gerst brotlegt við ákvæði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í Kauphöllinni. Févíti er að fjárhæð kr. 1.500.000.

Buffett segir stríðsástand ríkja og vill verðbólgu

Hinn heimsfrægi fjárfestir og milljarðamæringur Warren Buffett segir að efnahagur heimsins sé kominn niður á hnén og langan tíma taki að koma honum á fætur á ný. Hann segir tíma til kominn að koma verðbólgu af stað á ný, enda ríki stríðsástand í efnahagsmálum.

Kaupa hús á dollar í Detroit

Bandarískur bílaiðnaður er enn í borginni Detriot en hann má muna sinn fífil fegurri. Vandræði bílarisanna hafa haft mikil áhrif á borgina og íbúa hennar. Íbúatalan hefur helmingast frá gullaldarárum sjötta áratugarins og nú má fá hús þar fyrir lítið - og nánast ekki neitt á uppboðum.

Eigið fé 100 milljarðar um áramót og CAD-hlutfallið 16,9%

Fall Straums-Burðaráss er enn eitt áfallið fyrir íslenskt efnahagslíf. Bankinn átti að standa skil á 33 milljónum evra í dag en handbært fé bankans var aðeins 15,3 milljónir. Það vantaði því 17,7 milljónir evra eða 2,5 milljarða króna til að bankinn gæti staðið í skilum.

Um 10% af eignum Úrvals­bréfa Landsbankans hluta­bréf í Straumi

Um 10% af heildareignum Úrvals­bréfa-sjóðs Landsbankans voru hluta­bréf í Straumi-Burðarási. Þau bréf eru nú verðlaus eftir að Fjármála­eftirlitið tók yfir bankann í morgun. Gengi sjóðsins hefur þegar verið lækkað sem nemur hlutafjáreigninni, sem er glötuð.

Íslensk ríkiseign á Magasin breytir litlu um daglegan rekstur

Íslenska ríkið eignaðist dönsku stór­verslunina Magasin du Nord í raun með yfirtöku Straums. Fjármála­stjóri hinnar þekktu stór­verslunar segir eigenda skiptin litlu skipta fyrir daglegan rekstur. Ríkiseigan kunni jafnvel að flýta fyrir sölu fyrirtækisins.

Mikil ásókn í fjármálanámskeið Íslandsbanka

Mikil ásókn hefur verið í fjármálanámskeið Íslandsbanka, en um 500 manns hafa skráð sig á þau. Íslandsbanki og Opni háskólinn í HR hafa vegna þessa ákveðið að bjóða upp á viðbótarnámskeið og til stendur að bjóða upp á svipuð námskið á landsbyggðinni á næstunni.

Helgi Hjörvar sækist eftir 3. sætinu

Helgi Hjörvar alþingis­maður sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Samfylkingar­innar í Reykjavík. Hann tilkynnti breytt áform í kjölfar brotthvarfs Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr stjórnmálum.

Ásta Ragnheiður vill 3. sætið

Ásta Ragnheiður Jóhannes­dóttir félags- og tryggingamála­ráðherra sækist nú eftir 3. sæti á lista Samfylkingar­innar í Reykjavík, vegna breyttra aðstæðna, þ.e.brotthvarfs Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr stjórnmálum.

Ingibjörgu Sólrúnu þökkuð störf í þágu Samfylkingar­innar

Stjórn Samfylkingar­innar þakkar Ingibjörgu Sólrúnu frábær störf í þágu flokksins, en hún mun draga sig í hlé, eins og fram hefur komið. Í samþykkt stjórnar­innar kemur fram að mikil eftirsjá sé að Ingibjörgu sem formanni flokksins.

Húsasmíðameistarar telja umhverfis­ráðuneytið einangrunarsinnað - eða þannig!

Meistara­félag húsasmiða segir að sérstaða Íslands með sitt hagstæða orkuverð hafi að engu verið höfð þegar umhverfis­ráðuneytið löggilti nýjan staðal um varmatap húsa. Krafa um aukna einangrun húsa hækki byggingarkostnað verulega.

Össur vill leiða annan Reykjavíkurlista Samfylkingar­innar

Össur Skarphéðinsson utanríkis- og iðnaðar­ráðherra gefur kost á sér í annað sæti í prófkjöri Samfylkingar­innar í Reykjavík og vill leiða annan Reykjavíkurlista flokksins í komandi þingkosningum.

Þrýst á Jóhönnu að bjóða sig fram til formennsku

Mikill þrýstingur er innan Samfylkingar­innar á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra að bjóða sig fram til formanns flokksins á landsfundi, að því er fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Samfylkingin stendur fram fyrir algerri endurnýjun forystunnar síðar í mánuðinum.

Vaxandi halli á hinu opinbera

Umtalsverður viðsnúningur hefur verið í afkomu hins opinbera nú á skömmum tíma líkt og reikna mátti með. Tekjur hafa dregist saman sökum samdráttar í hagkerfinu en aðallega hafa tekjur hins opinbera af sköttum á vöru og þjónustu dregist saman, segir Greining Íslandsbanka.

Finnski EQ bankinn verður að leita nýs eiganda vegna falls Straums

Starfsemi finnska fjárfestingabankans EQ heldur áfram eins og ekkert hafi í skorist þrátt fyrir fall Straums en Straumur keypti bankann í maí árið 2007. Hins vegar er ljóst að finna verður bankanum nýjan eiganda.

RARIK tapaði 7,2 milljörðum króna á síðasta ári

RARIK tapaði alls 7.232 milljónum króna á síðasta ári og munar þar mestu um að fjármagnskostnaður tífaldaðist á milli ára. Nettó fjármagnsgjöld námu 5.645 milljónum borið saman við 544 milljónir króna árið 2007. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði nam hins vegar 979 milljónum króna.

Leita verður nýrra eigenda þjóðar­gersema Dana

Leita verður að nýjum eigendum dönsku stórverslananna Illum og Magasin og húsgagnakeðjunnar Biva enn og aftur og það verður að gerast fljótt. Þær eru í eigu hins fallna Straums. For­stjóri Straums í Danmörku segir þessar eignir bankans danskar þjóðar­gersemar.

Staða vegamála­stjóra auglýst laust til umsóknar

Samgöngu­ráðuneytið hefur auglýst lausa til umsóknar stöðu vegamála­stjóra. Umsóknarfrestur er til 23. mars næstkomandi. Vegamála­stjóri veitir Vegagerðinni forstöðu.

Óbreyttir vextir Íbúðalána­sjóðs

Íbúðalána­sjóður hefur ákveðið að halda útlánavöxtum óbreyttum. Ákvörðunin er tekin í kjölfar útboðs á íbúða­bréfum. Útlánavextir íbúðalána með upp­greiðsluákvæði verða áfram 4,9% en 5,4% á íbúðalán án upp­greiðsluákvæðis.

„Fall Straums kom ekki á óvart“

„Fall Straums kemur ekki á óvart,“ segir Harald Magnus Andreassen, aðalhag­fræðingur First Securities í Noregi. Miklar afskriftir og gríðarlegt tap á síðasta fjórðungi liðins árs hafi íþyngt bankanum mjög. Allir íslensku stórbankarnir heyra nú sögunni til.

Norðurlönd hlaupa undir bagga

Norræna ráðherraráðið undir formennsku Kolbrúnar Halldórsdóttur, samstarfs­ráðherra Norðurlanda, hefur ákveðið að veita Íslendingum 14 milljónir danskra króna í styrk, sem greiðist á tveimur árum.

Skila­nefnd fyrir Straum-Burðarás skipuð

Fjármála­eftirlitið hefur þegar skipað skila­nefnd yfir Straum-Burðarás, en bankinn var yfirtekinn í nótt, þar sem ljóst var að hann gæti ekki haldið áfram reglulegri starfsemi.

Fall Straums-Burðarás fréttaefni í helstu fjölmiðlum heims

Fall Straums-Burðarás hefur vakið töluverða athygli erlendra fjölmiðla. Bloomberg fréttastofan greinir frá því að ríkið hafi yfirtekið bankanns, sem og reuters og Financial Times. Norrænir fjölmiðlar og þá einkum danskir hafa einnig verið með ítarlega umfjöllun.

Útibú Straums í Danmörku í biðstöðu

Fjárfestingabankinn Straumur hefur rekið útibú í Danmörku en því var lokað í morgun, líkt og höfuðstöðvunum hér á landi. Yfirmaður útbúsins bíður fyrirmæla Fjármála­eftirlitsins á Íslandi. Danska ríkið tryggir innistæður í útibúinu.

Straumur – eigandi Magasin og Illum - fallinn

Fall Straums vekur mikla athygli í Danmörku enda tók fjárfestingabankinn yfir 75% hlut M-Holding, eiganda stórverslananna Magasin du Nord og Illum við fall viðskiptaveldis Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Að auki yfirtók Straumur dönsku húsgagnakeðjuna Biva í haust.

Sense Center opnar í Kringlunni

Ekki halda allir að sér höndum í kreppunni. Ný raftækja­verslun, Sense Center, var opnuð í Kringlunni um helgina.

Björgólfsfeðgar tapa milljörðum á falli Straums-Burðarás

Samson Global Holding er stærsti hluthafinn í Straumi-Burðarási sem ríkið hefur tekið yfir en Fjármála­eftirlitið mun skipa skila­nefnd yfir bankanum. Alls var hlutur Samson Global 34,3%. Landsbankinn í Lúxemborg, sem er í skiptameðferð, var annar stærsti hluthafinn með liðlega 15,9%.

Stuðningur við aðildar­viðræður en andstaða við ESB-þátttöku

Nálægt þrír af hverjum fjórum Íslendingum eru hlynntir því að taka upp aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið. Á hinn bóginn eru þeir nú fleiri sem segjast andvígir aðild en þeir sem segjast hlynntir aðild að ESB, að því er fram kemur í nýrri könnun Capacent Gallup.

Ríkið tekur yfir Straum-Burðarás og for­stjórinn segir af sér

Ríkið hefur tekið yfir Straum-Burðarás Fjárfestingarbanka. Ljóst er að vegna bágrar lausafjárstöðu getur bankinn ekki haldið áfram reglulegri starfsemi. Félags­stjórn hefur verið vikið frá, en Björgólfur Thor Björgólfsson, hefur verið stjórnar­formaður.

Fuglahvísl

Flott fréttamat

Smáfuglunum finnst forvitnilegt, að fylgjast með því, hvað verðlauna-fréttamanni mbl.is, Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, þykir spennnandi fréttefni. Þeim þótti mikið til þess komið, þegar hún sýndi myndir af bókahillu í fjármála­ráðuneytinu og síðan bréfakörfu, þar sem á stóð orðið Gagnaeyðing

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX