Sigurður Ingi dýralæknir leiðir Framsókn í Suðurkjördæmi
Sigurður Ingi Jóhannssson dýralæknir mun leiða lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi í kosningunum í vor. Eygló Harðardóttir alþingismaður verður í öðru sæti.
Guðbjartur Hannesson efstur hjá Samfylkingunni í NV
Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, varð efstur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi en Ólína Þorvarðardóttir nái öðru sæti. Karl V. Matthíasson þingmaður féll niður í fimmtasæti en fer í það fjórða vegna kynjakvóta.
Ingibjörg Sólrún hættir í stjórnmálum
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, ætlar að hætta í stjórnmálum af heilsufarsástæðum. Þetta tilkynnti hún á blaðamannafundi á heimili sínu síðdegis í dag. Hún muni því hvorki taka þátt í prófkjöri flokksins né sækjast eftir endurkjöri sem formaður.
Skipuleg rógsherferð, segir Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs Group, segir að skipulög rógsherferð standi yfir gegn ákveðnum fyrirtækjum og einstaklingum í íslensku viðskiptalífi. Hann segir að fórnarlömbin séu valin af óvinalista tiltekinna afla.
Meirihluti vill aðildarviðræður við ESB en stuðningur við aðild minnkar
Liðlega 64% Íslendinga eru hlynnt því að teknar verði upp viðræður við Evrópusambandið um aðild. Rúm 28% er því hins vegar andvíg. Þetta er niðurstaða könnunar Capacent Gallup fyrir Samtök iðnaðarins. Þrátt fyrir þetta fjölgar þeim sem eru andvígir því að ganga í Evrópusambandið.
Katrín efst hjá VG í Reykjavík
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráherra varð í efsta sæti í prófkjöri Vinstri grænn í Reykjavík. Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra hafnaði í sjötta sæti. Prófkjörið var haldið í gær og kusu 1101 félagi.
Siv skipar efsta sæti hjá Framsókn í Kraganum
Siv Friðleifsdóttir skipar efsta sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi en prófkjör flokksins fór fram í gær. Ellefu gáfu kost á sér í þau fimm sæti sem kosið er um.
Ósigur breytingasinna fyrir Kristjáni Möller
Benedikt Sigurðsson á Akureyri bauð sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í norðausturkjördæmi og ætlaði sér stóran hlut. Kosið var opinni netkosningu í þrjá daga og úrslit urðu þau, að Benedikt komst ekki einu sinni á blað og lenti þar á sama bekk og Einar Már Sigurðsson, fráfarandi þingmaður Samfylkingarinnar.
Tangarsókn kúluframboðs stöðvuð
Fréttir af forvalsfundi framsóknarmanna í Reykjavík voru um, að Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, hefði flutt ræðu gegn því, að Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur, yrði einn af frambjóðendum Framsóknarflokksins.
Sigmundur Ernir ekki í speglasalinn
Smáfuglarnir kynntu sér að sjálfsögðu álit Andrésar Jónssonar, samvisku Samfylkingarinnar, á úrslitum prófkjörsins laugardaginn 7. mars. Hann brást ekki frekar en fyrri daginn og var skorinorður um álit sitt á nýstirninu í norðausturkjördæmi, Sigmundi Erni Rúnarssyni.