amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:40
 

Laugardagurinn 7. mars 2009

«
6. mars

7. mars 2009
»
8. mars
Fréttir

Átján Hells Angels meðlimir verið stöðvaðir

Allt hefur verið með kyrrum kjörum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í dag. Alls hafa 18 Hells Angels meðlimir verið stöðvaðir undanfarna daga og eru þeir farnir úr landi. Umferð um flugstöðina hefur gengið vel og tíðindalítið fyrir sig.

Atli Gíslason efstur hjá VG í Suður­kjördæmi

Atli Gíslason alþingis­maður sigraði í forvali Vinstri grænna í Suður­kjördæmi.

Sigmundur Ernir líklegur á þing -Kristján Möller efstur

Kristján L. Möller samgöngu­ráðherra varð í efsta sæti í prófkjöri Samfylkingar­innar í Norðaustur­kjördæmi. Sigmundur Ernir Rúnarsson fjölmiðla­maður varð í öðru sæti. Líklegt er að Sigmundur Ernir hafi tryggt sér þingsæti í prófkjörinu.

Grétar Mar efstur hjá Frjálslyndum í Suður­kjördæmi

Grétar Mar Jónsson skipar fyrsta sætið á lista Frjálslynda flokksins i Suður­kjördæmi fyrir kosningarnar í vor. Valip var á lista flokksins á kjördæmis­félagi flokksins í dag.

Sigmundur Davíð efstur í Reykjavík norður en Vigdís í suður

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar­flokksins, verður í efsta sæti á lista flokksins fyrir þingkosningarnar í vor í Reykjavíkur­kjördæmi norður. Vigdís Hauks­dóttir leiðir lista flokksins í Reykjaíkur­kjördæmi suður.

Kolbrún efst hjá Frjálslynda flokknum í SV-kjördæmi

Kolbrún Stefáns­dóttir, framkvæmda­stjóri Sjálfbjargar, skipar 1. sæti á lista Frjálslynda flokksins í Suðvestur­kjördæmi í komandi þingkosningum. Helgi Helgason stjórnmála­fræðingur verður í öðru sæti.

Lítill stuðningur við Jón Baldvin

Lítill stuðningur er við framboð Jóns Baldvins Hannibalssonar í formennsku Samfylkingar­innar meðal stuðningsmanna flokksins. Þetta kemur fram í skoðanakönnun MMR. Ingibjörg Sólrún nýtur stuðnings mikils meirihluta.

Samkeppnis­eftirlitið hluti af froðuhagkerfinu segir Jón Bjarnason

Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, segir að Samkeppnis­eftirlitið sé á villigötum eftir að það sektaði Bænda­samtök Íslands um 10 milljónir króna vegna ólögmæts samráðs. Þingmaðurinn segir að lagaumgjörð og áherslur Samkeppnis­eftirlitsins séu hluti af því kerfi sem leiddi hrun þess froðuhagkerfisins.

Stór skref í endur­skipulagningu Kaupþings í Lúx

Mikilvægur áfangi hefur náðst í endur­skipulagningu Kaupthing Bank Luxembourg S.A., dóttur­félags Kaupþings banka hf. með samkomulagi milli bankanna um uppgjör sín á milli. Samkomulagið er hluti af endur­skipulagningu bankans sem var samþykkt af yfirvöldum í Lúxemborg með samningi við fjárfestingar­sjóð í eigu Líbýskra yfirvalda frá því í desember 2008.

Lánaði 478 milljarða til eiganda sinna

Gamli Kaupþings bankani lánaði nokkrum stærstum eigendum sínum og aðilum tengdum þeim 478 milljarða króna. Um er að ræða lán til félaga í eigu Ágústs og Lýðs Guðmundssonar, Ólafs Ólafssonar og Roberts Tchenguiz.

Beiðni Hansa um lengri greiðslustöðvun frestað

Beiðni Hansa, eignar­halds­félag Björgólfs Guðmundssonar um enska knattspyrnu­félagið West Ham, um framlengingu greiðslustöðvunar var tekin fyrir í gær hjá Hérðasdómi. Beiðnin var ekki afgreidd en dómari mun taka afstöðu til málsins í komandi viku.

Fuglahvísl

Gylfi og þróttur Kaupþings

Smáfuglarnir velta fyrir sér, hve langt aftur rannsóknar­nefnd bankahrunsins ætlar að leita og hvaða kvarða hún ætlar að nota um dómgreind þeirra, sem að því hafa komið að því að reisa þjóðinni þann hurðarás um öxl, sem blasir við öllum eftir hrun bankanna.

Rauði hnappur Hillary

Hillary Clinton og Sergei Lavrov, utanríkis­ráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands, hittust í Genf föstudaginn 6. mars, daginn eftir að Hillary var í Brussel, þar sem hún hitt því miður ekki Össur Skarphéðinsson, af því að hann ákvað að sitja heima.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX