Stjórnarmenn í gamla Kaupþingi heyrðu fyrst um félagið Black Sunshine hjá fréttamanni en bandarísk undirmálslán sem Kaupþing fjárfesti í enduðu í þessu félagi í Lúxemborg, sagði í frétt Stöðvar 2. Fyrrverandi forstjóri Kaupþings hafnar því að bókhald félagsins hafi verið fegrað.
Rannsóknarnefndin skoðar fjölmiðla- og stjórnmálamenn
Rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið mun óska eftir starfsmannalistum frá öllum fjölmiðlum landsins og er ætlunin að kanna hvort starfsmenn fjölmiðla hafi notið óeðlilegrar fyrirgreiðslu hjá bönkunum. Þá verður skoðað hvort stjórnmálamenn hafi fengið sérstaka fyrirgreiðslu í bankakerfinu.
Vítisenglum vísað frá Leifsstöð
Lögreglan hefur í dag og undanfarna daga stöðvað félaga í vélhjólasamtökunum Hells Angels, eða Vítisenglum og stuðningsklúbbum við komu þeirra til Keflavíkurflugvallar. Mönnunum hefur verið meinuð landganga og er hluti þeirra er farinn úrt landi.
Mun stjórnlagaþing kosta 1.200 til 1.500 milljónir króna?
Mun stjórnlagaþing kosta 1.200 til 1.500 milljónir króna? Svo spyr Birgir Ármannsson alþingismaður og segir með ólíkindum að forsætisráðherra og fjármálaráðherra skuli flytja mál af þessu tagi án þess að geta gert grein fyrir áætluðum kostnaði vegna þess.
Bændasamtökin telja sig ekki hafa brotið samkeppnislög
Bændasamtök Íslands telja sig ekki hafa brotið samkeppnislög en svo telur Samkeppniseftirlitið sem úrskurðað hefur að BÍ skuli greiða 10 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir það sem kallað er ólöglegt verðsamráð.
Ferðamálaráð uggandi vegna hvalveiða
Ferðamálaráð tekur undir þær áhyggjur sem Samtök ferðaþjónustunnar og fyrirtæki í Hvalaskoðunarsamtökum Íslands, hafa þegar lýst af fyrirhuguðum hvalveiðum Íslendinga.
Ferðakostnaður ráðherra og ríkisstarfsmanna lækkaður
Fjármálaráðherra vill lækka dagpeninga starfsmanna ríkisins á ferðalögum erlendis. Jafnframt hefur hann ákveðið að breyta sérstökum ákvæðum um endurgreiddan ferðakostnað og dagpeninga til ráðherra og æðstu embættismanna ríkisins.
Ólögmætt verðsamráð á vettvangi Bændasamtaka Íslands
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Bændasamtök Íslands hafi brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem miðuðu að því að hækka verð á búvörum. Snýr brotið að búvörum sem ekki lúta opinberri verðlagningu skv. búvörulögum, s.s. kjúklingum, eggjum, grænmeti og svínakjöti.
Norrænir námsmannastyrkir í kreppunni
Samstarfsráðherrar Norðurlanda samþykktu að veita jafnvirði 14,4 milljóna danskra króna til að aðstoða Íslendinga í fjármálakreppunni. Meginmarkmiðið er aðstoða fræðimenn og ungt fólk sem hyggst stunda nám og rannsóknir í háskólum á Norðurlöndum.
Tveir fyrrum miðlarar Kaupþings ákærðir
Tveir fyrrverandi verðbréfamiðlarar hjá gamla Kaupþingi hafa verið ákærðir fyrir markaðsmisnotkun. Er þeim gefið að sök að hafa reynt að hafa áhrif á verðmyndun skuldabréfa í Exista til hækkunar.
Breska sjónvarpsstöðin Sky News segir, að verslunarkeðjan Debenhams sé að kaupa keðjuna Principles af Mosaic Fashons.
Ríkisstjórnin hyggst skapa 4000 ný ársverk
Ríkisstjórnin hefur samþykkt viðtækar tillögur í atvinnumálum, sem ætlað er að skapa ríflega 4000 ársverk á næstu misserum. Það eru störf í byggingariðnaði, við byggingu snjóflóðavarnagarða, gróðursetningu, kvikmyndagerð, ferðaþjónustuverkefni og fleira.
Stork með 50 milljarða í handbæru fé
Stork samstæðan, sem meðal annars er í eigu Eyris Invest, skilaði um 25 milljarða hagnaði á síðasta ári. Handbært fé fyrirtækisins er hátt í 50 milljarðar króna eða 330 milljónir evra. Í frétt frá félaginu kemur fram að það sé vel fjármagnað til lengri tíma.
Raungengi krónunnar enn afar lágt
Raungengi krónunnar er enn afar lágt í sögulegu samhengi þrátt fyrir þann bata sem orðið hefur síðustu mánuði. Þannig er raungengið nú fimmtungi undir langtímameðaltali og þriðjungi lægra en það var í lok árs 2005 þegar það náði hámarki, segir Greining Íslandsbanka.
Samið um uppgjör vegna dótturfélags Glitnis í Lúxemborg
Skilanefnd Glitnis og Seðlabanki Lúxemborgar hafa undirritað samning um hvernig staðið skuli að uppgjöri skulda vegna dótturfélags Glitnis í Lúxemborg. Með samningnum hefur tekist að verja mikilvæga hagsmuni Glitnis og viðskiptavina hans, segir skilanefndin.
Bréf Stoða valda Royal Unibrew vanda
Staða danska bruggfyrirtækisins Royal Unibrew er alvarleg. Verð hlutabréfa félagsins hefur helmingast undanfarna sjö daga og hefur ekki verið lægra síðan 1988. Óvissa um stöðu fimmtungshlutar Stoða í félaginu veldur félaginu m.a. vanda á markaði.
Bónus oftast með lægsta verðið
Bónus var oftast með lægsta verðið í verðkönnun ASÍ í lágvöruverðsverslunum. Nettó var oftast með hæsta verðið. Mestur verðmunur í könnuninni var 92% á tannkremstúpu og mestur verðmunur á heilhveitibrauði var 84%.
Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs var jákvætt um 16 milljarða króna í janúar. Það er 9,4 milljörðum lakari útkoma en á sama tíma í fyrra.
Samdráttur landsframleiðslu á síðasta ársfjórðungi
Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 0,9% að raungildi frá 3. ársfjórðungi 2008 til 4. ársfjórðungs 2008. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 14%.
Aukið umferðareftirlit á Hafnarfjarðarvegi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu boðar aukið umferðareftirlit á Hafnarfjarðarvegi en þar hefur borið á hraðakstri. Sýnileg löggæsla verður aukin og ökumenn mega búast við því að sjá lögreglumenn við radarmælingar.
Landsframleiðslan jókst um 0,3% á síðasta ári
Landsframleiðslan á árinu 2008 varð 1.465 milljarðar króna og jókst að raungildi um 0,3% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 5,5% vaxtar á árinu 2007.
Berglind sett aðstoðaryfirlögregluþjónn í efnahagsbrotadeild
Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur að tillögu ríkislögreglustjóra sett Berglindi Kristinsdóttur til þess að gegna embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns í efnahagsbrotadeild tímabundið um hálfs árs skeið.
Fundu leynilegan bankareikning Baggers í Bretlandi
Efnahagsbrotadeild dönsku lögreglunnar komst á snoðir um leynilegan bankareikning danska fjársvikarans Stein Baggers í Bretlandi. Vegna þessa er honum haldið lengur í varðhaldi. Yfirvöld vilja ekki að hann sleppi undan réttvísinni á ný.
Starfsmönnum boðin húsgögn Baugs
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, býður nú húsgögn af skrifstofum félagsins í London til sölu. Húsgögnin voru boðin núverandi og fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins í tölvupósti.
Rannsóknanefndin vill lista yfir stjórnendur 365
Rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið hefur óskað eftir að fá lista yfir þá sem hafa starfað sem stjórnarmenn í 365 frá 2004 til 2008 og yfirmenn hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins í morgun.
LÍÚ: Megum ekki draga úr því öryggi sem þyrlurnar veita
Við megum ekki undir neinum kringumstæðum draga úr því öryggi sem þyrlurnar veita okkur,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ og lýsir áhyggjum sínum yfir þeim áhrifum sem niðurskurður ríkisútgjalda hefur á starfsemi Landhelgisgæslunnar.
Greiðslubyrði húsnæðislána í erlendri mynt minnkuð
Í komandi viku geta viðskiptavinir Íslandsbanka sótt um greiðslujöfnun á húsnæðislánum í erlendri mynt. Miðað verður við greiðslubyrði eins og hún var 1. maí á síðasta ári. Þá var gengisvísitalan rétt undir 150 stig en í lok dag í gær var gengisvísitalan 188,11 samkvæmt upplýsingum M5.is.
Fimmtudaginn 5. mars gafst ráðherrum NATO-ríkjanna tækifæri til að hitta Hillary Clinton, nýjan utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi í Brussel. Slíkir fundir, þar sem ekki er skipulögð löng dagskrá, gefa gott tækifæri til að hitta starfsbræður og skiptast á skoðunum um heimsmálin eða einstök málefni í samskiptum ríkja.
Smáfuglarnir undrast ekki, að fylgi Samfylkingar minnki, eftir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagðist ætla að halda áfram sem formaður og ákvað þrjú efstu sætin á framboðslistanum í Reykjavík og leyfi prófkjör um restina.