Vinna fyrir faglærða Íslendinga í Manitoba
Faglærðum Íslendingum býðst fljótlega tímabundin atvinna í Kanada. Atvinnu og innflytjendamálaráðherra Manitoba, Nancy Allan segir helst vanta þar fólk í byggingariðnaði, fólk með menntun í upplýsingatækni og orkumálum.
Össur pressar á Helguvíkurálver
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra leggur allt kapp á að fá Alþingi til að samþykkja fjárfestingasamning um álver í Helguvík. Þetta kom fram í máli ráðherrans á Iðnþingi í dag.
Segir ESB ekki valkost heldur nauðsyn
Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyrir Invest, sagði á Iðnþingi í dag að aðild okkar að Evrópusambandinu væri ekki valkostur heldur brýn nauðsyn.
Ný heimasíða rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma
Markmið rammaáætlunar er að meta og forgangsraða á faglegan og hlutlægan hátt vernd og nýtingu íslenskra náttúrusvæða gagnvart virkjunarkostum fallvatna og háhitasvæða. Leggja skal mat á og flokka virkjunarkosti.
Tímabundið landamæraeftirlit í Leifsstöð
Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur ákveðið að tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins fari fram í Flugstöð Leifs Eiríkssonar dagana 5.-7. Aðgerðin er talin tengjast hugsanlegri komu félaga Vítisenglasamtakanna hingað.
Hundruð eignarhaldsfélaga stofnuð í Lúxemborg
Hundruð eignarhaldsfélaga, tengd íslendingum og íslenskum fyrirtækjum, hafa verið stofnuð í Lúxemborg á undanförnum árum. Flest félögin hafa verið stofnuð á vegum íslensku bankanna, að því er fram kom í kvöldfréttum Sjónvarps.
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins afhent
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin.
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur - stjórnarflokkarnir í meirihluta
Fylgi Samfylkingarinnar tekur dýfu samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallups. Sjálfstæðisflokkurinn hefur mest fylgi, en ríkisstjórnarflokkarnir fengju meirihluta þingsæta, gengi þessi niðurstaða eftir í kosningum, sagði í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.
Kannabisræktun í Kópavogi stöðvuð
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar. Einnig var lagt hald á nokkra gróðurhúsalampa.
Stóriðja vettvangur sprotafyrirtækja
Rannveig Rist, forstjóri Ísal í Straumsvík, segir það misskilning að nýsköpun í atvinnulífinu og stóriðja fari ekki saman. Þvert á móti hafa álverin verið vettvangur fyrir sprotafyrirtæki.
Seðlabankastjórastöðurnar auglýstar
Forsætisráðherra hefur, í samræmi við ný lög um Seðlabanka Íslands, auglýst embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 31. mars nk.
Danski seðlabankinn fylgir í kjölfar þess evrópska og lækkar stýrivexti
Danski seðlabankinn fylgdi síðdegis í fótspor Seðlabanka Evrópu og lækkaði stýrivexti sína. Evrópski seðlabankinn lækkaði vexti um 0,5%, niður í 1,5%. Danski seðlabankinn lækkaði stýrivexti sína um 0,75%, úr 3% í 2,25%.
Jón Þorsteinn hættir sem stjórnarformaður Byrs
Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður, hefur tilkynnt stjórn Byrs, að hann sjái sig knúinn til að láta tímabundið af stjórnarstörfum fyrir sparisjóðinn fram að næsta aðalfundi hans. Við stjórnarformennsku Jóns Þorsteins tekur Jón Kristjánsson sem verið hefur varaformaður stjórnar Byrs.
Eftirlaunafrumvarp orðið að lögum
Frumvarp um eftirlaun forseta, ráðherra, þingmanna og hæstaréttardómara var samþykkt á Alþingi nú eftir hádegi. Frumvarpið var afgreitt með öllum greiddum atkvæðum. Þar með hafa umdeild lög um eftirlaun verið numin úr gildi.
Efla þarf stoðir atvinnustarfsemi í landinu
Íslenskt samfélag á nú allt undir því að efldar verði stoðir atvinnustarfseminnar í landinu. Þetta kom fram í erindi Ólafs Ísleifsson hagfræðings á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins sem fram fer í dag.
„Megum ekki draga úr því öryggi sem þyrlurnar veita okkur“
„Við megum ekki undir neinum kringumstæðum draga úr því öryggi sem þyrlurnar veita okkur,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ og lýsir áhyggjum sínum yfir þeim áhrifum sem niðurskurður ríkisútgjalda hefur á starfsemi Landhelgisgæslunnar.
SI: Lækkun vaxta og endurreisn bankakerfisins meðal forgangsmála
Samtök iðnaðarins segja að lækkun vaxta og endurreisn bankakerfisins séu meðal forgangsmála í endurreisn efnahagslífsins. Afnema verður gjaldeyrishöft, semja við erlenda kröfuhafa, auka útflutningstekjur og blása lífi í fasteignamarkaðinn. SI telja að sækja eigi um aðild að Evrópusambandinu.
Vextir Englandsbanka ekki lægri frá árinu 1694
Englandsbanki lækkaði í dag stýrivexti sína um 50 punkta, 0,5%. Vextirnir eru nú 0,5% og hafa aldrei verið lægri í sögu bankans sem nær aftur til ársins 1694. Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, viðurkennir að vaxtavopnið sé hætt að virka.
Stjórn bresku tískuvörukeðjunnar Mosaic Fashions óskar eftir gjaldþrotaskiptum félagsins enda er félagið ófært um að standa við skuldbindingar sínar. Eignarhlutur Baugs í félaginu var nær helmingur.
Makaskipti halda uppi fölsku íbúðaverði
Nafnverð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um tæplega 4% frá hruni bankanna og um tæplega 6% á síðastliðnum tólf mánuðum. Lækkunin er lítil miðað við að hagkerfið er að ganga í gegnum eina erfiðustu kreppu sem það hefur tekist á við, segir Greining Íslandsbanka.
Líklegt er að nokkur hagvöxtur hafi verið á Íslandi í fyrra þrátt fyrir sífellt fastari tök fjármálakreppunnar á hagkerfinu eftir því sem leið á árið. Hagstofan birtir í fyrramálið þjóðhagsreikninga fyrir síðasta fjórðung nýliðins árs og þar með bráðabirgðatölur fyrir árið í heild.
Eftirspurn eftir sænskum iðnaðarvörum hefur dregist verulega saman. Til að koma í veg fyrir uppsagnir fólks hafa því samtök atvinnurekenda í Svíþjóð og verkalýðsfélög samið um allt að 20% tímabundna lækkun launa.
Air France-KLM áhugasamt um kaup á tékkneska flugfélaginu CSA
Risaflugfélagið Air France-KLM hefur augastað á tékkneska flugfélaginu CSA en til stendur að einkavæða það. Fleiri líta það hýru auga, meðal annars rússneska flugfélagið Aeroflot.
Vöruskiptin hagstæð um 52 milljarða síðustu sex mánuði
Vöruskiptajöfnuður við útlönd hefur verið hagstæður um tæplega 51,1 milljarð króna á síðustu sex mánuðum. Allt frá september á síðasta ári hefur verið afgangur af vöruskiptum við útlönd og mest í desember eða 24,2 milljarðar króna.
Hrefnan étur allt að 300 þúsund tonn af þorski og ýsu á ári
Niðurstöður hrefnurannsókna Hafrannsóknastofnunarinnar á árunum 2003-2007 benda til þess hrefnan éti árlega allt að 300.000 tonn af þorski og ýsu. Það er fimmfalt meira magn en eldri rannsóknir hafa leitt í ljós. Til samanburðar má nefna að heildaraflamark þorsks og ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári er um 250.000 tonn.
Rammaáætlun um nýtingu vantsafls og jarðvarma
Verkefnisstjórn rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma hefur opnað heimasíðuna www.rammaáætlun.is. Vefsíðan er sniðin að þeim sem vilja kynna sér rammaáætlun, tilurð hennar, markmið, verklag og framgang.
Íslendingum búsettum erlendis í meira en átta ár gert kleift að kjósa
Breyting á lögum um kosningar til Alþingis sem tók gildi í dag gerir íslenskum ríkisborgurum, sem hafa verið búsettir erlendis í meira en átta ár og höfðu ekki sótt um að verða teknir á kjörskrá fyrir 1. desember sl., kleift að kjósa í alþingiskosningunum 25. apríl nk.
Gjaldþrot fyrirtækja í Danmörku hafa aldrei verið fleiri, segir í nýjum tölum dönsku Hagstofunnar. Í febrúar urðu 513 dönsk fyrirtæki gjaldþrota og í desember voru þau 470.
Laun á almennum vinnumarkaði lækkuðu en hækkuðu hjá hinu opinbera
Laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 2,7% á síðasta ársfjórðungi liðins árs, en laun á almennum vinnumarkaði lækkuðu um 0,5% miðað við þriðja fjórðung. Þetta kemur fram í útreikningi Hagstofunnar á launavísitölu sem hækkaði í heild um 0,4%.
Gistinóttum á hótelum í janúar fækkaði en fækkun gistináttanna má eingöngu rekja til Íslendinga, gistinóttum Íslendinga fækkaði um 33%, en gistinóttum útlendinga fjölgaði um 6% milli ára.
Sviptingar á rússneskum bjórmarkaði
Sú var tíðin að Íslendingar fylgdust með rússneskum bjórmarkaði meðan Björgólfsfeðgar voru þar. Stærstu bjórrisar heims bítast enn um þann mikla ölmarkað. Líklegt er að Anheuser-Bush selji dótturfélag sitt þar sem kæmi dótturfélagi Carlsberg til góða.
Bændur einhuga gegn aðild að Evrópusambandinu
Bændur eru einhuga gegn aðild að Evrópusambandinu. Það kom fram á Búnaðarþingi sem lauk í gærkvöld. Búnaðarþing lýsti óánægju sinni með að ekki skuli staðið við búvörusamninga.
Bankastjórnendum helst kennt um hrunið
Næstum tveir af hverjum þremur landsmönnum telja að eigendur og stjórnendur bankanna hafi valdið mestu um bankahrunið í haust. Þetta kemur fram í könnun sem Viðskiptablaðið birtir í dag.
Containerships yfirtekur rekstur Contaz Line
Containerships í Finnlandi sem að hluta til er í eigu Eimskip hefur yfirtekið rekstur á fyrirtækinu Contaz Line sem er lítið skipafélag með starfsemi í Miðjarðarhafinu.
Smáfuglunum er ljóst, að þeir, sem bjóða sig fram í prófkjörum, ganga fram af mikilli aðgát í öllum yfirlýsingum og gæta þess að segja aldrei annað en það, sem þeir geta staðið við og rökstutt. Þetta á ekki síður við um Árna Pál Árnason, þingmann og varaformannsefni Samfylkingarinnar, en aðra.
Endurtekið efni um efnahagsbrotadeild
Þegar smáfuglarnir hlustuðu á fyrstu frétt sjónvarps ríkisins að kvöldi 4. mars, þar sem enn var verið að tala um, að fækkað hefði í efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og meira fé streymdi til annarra en hennar, veltu þeir fyrir sér, hvaða mál væri nú í bögglingi hjá saksóknara deildarinnar.