amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 17:59
 

Miðvikudagurinn 4. mars 2009

«
3. mars

4. mars 2009
»
5. mars
Fréttir

Iceland Express með tvö flug á dag til Lundúna

Iceland Express hyggst auka verulega framboð á flugsætum til Lundúna næsta haust. Frá og með 1. september næstkomandi mun félagið fljúga tvisvar á dag til Lundúna.

Félagsmála­ráðherra fundaði með atvinnumála­ráðherra Manitoba

Ásta Ragnheiður Jóhannes­dóttir félagsmála­ráðherra fundaði í dag með Nancy Allan, atvinnu- og innflytjendamála­ráðherra Manitoba í Kanada. Á fundi ráðherranna var unnið að því að ljúka við gerð samkomulags sem skapar atvinnutækifæri fyrir Íslendinga í Manitoba.

Danir gæta okkar

Fjórar danskar F16 orustuþotur og 50 danskir hermenn komu til landsins í dag til að sinna loftrýmis­eftirliti við Ísland. Bresk flugsveit sem sinna átti loftrýmis­eftirliti hér í desember kom ekki enda mikil andstaða gegn því hér á landi.

Borgarahreyfingin stefnir á framboð í öllum kjördæmum

Nýr stjórnmála­flokkur, Borgarahreyfingin, tilkynnti í dag um framboð til alþingis. Flokkurinn stefnir á framboð í öllum kjördæmum undir listabókstafnum O.

Annast rekstur og viðhald símkerfa SimCorp 12 löndum

Skyggnir hefur tekið að sér rekstrar- og viðhaldsþjónustu á IP símkerfi fyrir danska hugbúnaðar­félagið SimCorp í Ástralíu. Skyggnir mun veita þjónustuna með fjartengingu frá Íslandi. Félagip annast nú rekstur á IP símkerfi SimCorp í 12 löndum.

Steingrímur og Þuríður efst hjá VG í NA-kjördæmi

Talningu í forvali Vinstri grænna í Norðaustur­kjördæmi er lokið og var kjörsókn tæplega 63%. Steingrímur J. Sigfússon fékk afgerandi kosningu í fyrsta sætið. Þuríður Backman alþingis­maður var valin í annað sætið og Björn Valur Gíslason í þriðja.

Gamla Kaupþing afskrifaði ekki tugmilljarða króna tap

Stjórn gamla Kaupþings fegraði stöðu bankans með því að afskrifa ekki tug milljarða tap vegna skulda­bréfa. Lögmenn segja almenning sem fjárfesti í bankanum hafa verið blekktan en því hafnar Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi for­stjóri Kaupþings, að því er fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Bandaríkin munu beita sér af þunga gegn skattaskjólum

Barack Obama Bandaríkja­forseti og Bandaríkjaþing vilja koma í veg fyrir að fólk sendi peninga inn á reikninga í skattaskjólum erlendis án þess að gera skattayfirvöldum í landinu grein fyrir sendingunum. Lagasetning er í bígerð.

Sindri verðlaunar hæstu einkunn á sveinsprófi húsasmiða

Sindri, Fag­félagið (Trésmíða­félag Reykjavíkur) og Meistara­félag húsasmiða hafa gert með sér samkomulag um að Sindri verðlauni hæstu einkunn á sveinsprófi í framtíðarútskriftum. Fyrstu verðlaunin voru veitt við útskrift 28 húsasmiða nýverið.

Lög­reglan nýtur mikils trausts

Lög­reglan nýtur mikils trausts hjá almenningi en um það má lesa í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Spurt var um traust til tólf stofnana og embætta en 79% aðspurðra sögðust treysta lög­reglunni og fékk hún næstbestu útkomuna að þessu sinni, á eftir Háskóla Íslands.

Fundur um ritskoðun, þöggun og sjálfsritskoðun

Hefur hér ríkt þögul ritskoðun? Hefur átt sér stað þöggun gagnvart þeim sem hafa haft efasemdir um viðtekin sannindi? Hafa fjölmiðla­menn ástundað sjálfsritskoðun af ótta við eigendur eða voldug hagmunaöfl? Um þetta verður fjallað á fundi á sunnudaginn.

Netbókhald.is selt

Fjárfestahópur undir forystu meirihluta starfsmanna Netbókhald.is hefur keypt allt hlutafé í Netbókhald.is ehf. Seljandi er Glitnir Eignar­halds­félag ehf. sem heyrir undir skila­nefnd gamla Glitnis. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi seljanda.

Áfrýjunar­nefnd staðfestir 315 m.kr. stjórnvaldssekt Haga vegna Bónuss

Áfrýjunar­nefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppnis­eftirlitsins um að sekta Haga, móður­félag Bónus, um 315 milljónir króna vegna alvarlegra brota á samkeppnislögum. Bónus misnotaði markaðsráðandi stöðu sína gegn keppinautum sínum.

Mörður vill kjósa framkvæmda­stjóra á landsfundi

Mörður Árnason varaþingmaður hefur lagt þá tillögu fyrir landsfund Samfylkingar­innar í mánaðarlok að framkvæmda­stjóri flokksins verði kosinn á landsfundi. Hann verði þannig betra mótvægi við þá sem veljast til annarra forystustarfa í flokknum.

Segir að ástandið hefði orðið verra á Íslandi með evru

Kenneth Rogoff, prófessor í hagfræði við Harvardháskóla, segir að Íslendingar geti þakkað sínum sæla fyrir að hafa ekki verið með evru sem gjaldmiðil þegar bankarnir féllu. Við hrunið hefði það þýtt þjóðar­gjaldþrot að vera með evru.

Bresku pöbbarnir berjast fyrir lífi sínu

Sex breskum krám er lokað á degi hverjum. Helsta ástæða þess er lágt verð á áfengi í stórmörkuðum. Bágt ástand bresku pöbbanna veldur Bretum áhyggjum enda eru þeir stór hluti af tilveru þjóðar­innar. 155 þingmenn leita áheyrnar stjórnvalda en hitta þar fyrir Darling, fjandvin Íslendinga, sem vill skattleggja ölið.

Húsasmiðjan opnar timbur­miðstöð

Timbur­verslun Húsasmiðjunnar í Súðarvogi flyst í opið rými í nýrri timbur­miðstöð í verslun Húsasmiðjunnar í Grafarholti, auk þess sem timburráðgjöf verður einnig opnuð í versluninni í Skútuvogi. Þar verður til stærsta byggingavöru-, timbur- og garð­verslun á Íslandi undir einu þaki.

Íslensk afþreying gengur að tilboði í Senu

Stjórn Íslenskrar afþreyingar hf. hefur, að undangengu formlegu söluferli, gengið að tilboði Garðarshólma Rekstrar­félags í öll hluta­bréfin í Senu. Tilboðið metur heildarvirði Senu á 500 milljónir króna. Garðarshólmi yfirtekur engar skuldir frá Íslenskri afþreyingu við söluna.

Ekki tekin afstaða til beiðni Baugs um lengri greiðslustöðvun

Héraðsdómur tók ekki afstöðu til beiðni forráðamanna Baugs Group um að framlengja greiðslustöðvun félagsins. Þetta var gert að samkvæmt ósk kröfuhafa. Málið verður tekið fyrir að nýju á mánudag í komandi viku.

Gullið missir glansinn en olíuverð hækkar

Hráolía hækkar í verði annan daginn í röð eftir að kínversk stjórnvöld tilkynntu að þau myndu styrkja efnahag landsins og stuðla að vexti. Gull hefur hins vegar fallið í verði í London undanfarna átta daga í röð en slík þróun hefur ekki átt sér stað síðan í júní 2006.

Evrópski seðlabankinn andvígur rýmri skilyrðum fyrir upptöku evru

Seðlabanki Evrópu­sambandsins er andvígur því að dregið verði úr þeim skilyrðum sem sett eru fyrir því að ríki sambandsins geti tekið upp evruna sem gjaldmiðil. Leiðtogar Póllands og Ungverjalands settu fram þá hugmynd að sá tími, sem gjaldmiðlar ríkja þurfa að vera tengdir gengi evrunnar áður en hún er tekin upp, yrði styttur.

Segir öryggi sjómanna stefnt í hættu

Það veldur miklum vonbrigðum að heyra af uppsögnum innan Landhelgisgæslunnar en stofnunin er ein af meginstoðum í öryggisneti þjóðar­innar, sérstaklega þegar hugað er að öryggi sjómanna," segir Sigurður Kári Kristjánsson alþingis­maður.

Innstæðu­bréf Seðlabankans til 3 mánaða gefið út 25. mars

Seðlabankinn mun gefa út innstæðubréfa­flokk 25. mars til 3 mánaða að fjárhæð allt að 75 milljarðar króna en stefnt er að því að minnka útgáfuna síðar. Minni ástæða er fyrir Seðalbankann að gefa út skammtímaverð­bréf þar sem ríkis­sjóður hefur aukið útgáfu ríkis­bréfa og víxla.

Beiðni um lengri greiðslustöðvun Baugs tekin fyrir eftir hádegi

Beiðni Baugs Group um framlengingu á greiðslustöðvun félagsins verður tekin fyrir hjá Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi í dag. Fjárhagslega staða félagsins er mjög óljós en töluverð óánægja var með kynningarfund fyrir kröfuhafa Baugs í síðustu viku.

Spari­sjóðirnir vinsælir

Vörumerki spari­sjóðanna, Spari­sjóðurinn, Byr og SPRON raða sér í þrjú efstu sætin Íslensku ánægjuvogarinnar í hópi fjármálafyrirtækja og er þetta 10. árið í röð sem spari­sjóðirnir hreppa þá viðurkenningu.

Sautján í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi

Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi rann út á föstudaginn. Alls gefa sautján frambjóðendur kost á sér í prófkjörinu, sem fer fram 14. mars næstkomandi.

Hjólað í banka sem nýta sér skattaskjól

Frakkland og Þýskaland munu beita sér gegn þeim bönkum sem nýta sér skattaskjól. Það er liður í baráttu þessara burðarása Evrópu­sambandsins gegn slíkum gerðum fjármála­stofnana. Málið verður tekið fyrir á G20 toppfundinum í aprílbyrjun.

Yfirmönnum Ísfélagsins sagt upp störfum

Stjórn Ísfélags Vestmannaeyja ákvað á fundi sínum í dag að segja upp Ægi Páli Friðbertssyni, framkvæmda­stjóra félagsins og hefur hann þegar látið af störfum. Þetta kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins.

Rýmingu aflétt á Vestfjörðum

Ákveðið hefur verið að færa viðbúnað vegna snjóflóðahættu á Vestfjörðum af hættustigi á óvissustig. Rýmingu hefur verið aflétt og hafa íbúar fengið leyfi til að snúa til síns heima.

Fjallað um hinn bráða efnahagsvanda á Iðnþingi

Á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins sem haldið verður á Grand Hótel Reykjavík á morgun verður efnt til umræðu um efnahagsmálin.Lagt verður fram ritið Vöxtur og vermæti – Mótum eigin framtíð. Það fjallar um þann bráða efnahagsvanda sem blasir við.

Bang & Olufsen reynir fyrir sér í Teheran

Danski hljómtækjaframleiðandinn Bang & Olufsen opnaði í gær sína fyrstu verslun í Teheran, höfuðborg Írans. B&O beinir nú augum sínum að markaði í Miðausturlöndum, Rússlandi og Kína því salan hefur dregist saman á Vesturlöndum.

Snúðar bakarameistara til styrktar Mæðrastyrks­nefnd

Kaupi menn snúð í bakaríum landsins dagana 5.-8. mars, hvort heldur er með glassúr, súkkulaði eða karamellu, styrkja þeir Mæðrastyrks­nefnd Reykjavíkur um leið. Bakarameistarar láta 25 krónur af andvirði hvers snúðs renna til nefndarinnar.

Vöruskipti hagstæð um 6 milljarða í janúar

Útflutningur í janúar nam rúmum 32,3 milljörðum króna en innflutningur rúmum 26,4 milljörðum. Vöruskipti voru því hagstæð um 6 milljarða króna í mánuðinum.

Hagnaður France Telecom dregst saman

Hagnaður France Telecom, þriðja stærsta síma­fyrirtækis Evrópu, dróst saman um 35% á síðasta ári miðað við árið á undan.Hagnaðurinn árið 2008 nam 4,1 milljarði evra. Forráðamenn fyrirtækisins líta þó björtum augum fram á veginn.

Kínversk stjórnvöld grípa til umsvifamikilla aðgerða

Wen Jiabao, forsætis­ráðherra Kína, mun á morgun kynna auknar aðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum. Stjórnvöld hafa þegar heitið því að grípa til ýmissa aðgerða fyrir um 585 milljarða dollara, en margir reikna með að sú fjárhæð verði þrefölduð.

Fuglahvísl

Álitsgjöf peninga­stefnumanns

Seðlabanka­stjórar hafa ekki látið að sér kveða í umræðum um menn og málefni heldur litið svo á, að staða þeirra sé þess eðlis, að þeir eigi að láta sem minnst að sér kveða í opinberum umræðum. Þannig liðu um fjórir mánuðir á milli þess, að Davíð Oddsson kæmi fram í Kastljósi, þrátt fyrir stöðugar óskir um að fá að ræða við hann og þótt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur fyndist Davíð ráða of miklu um umræður í landinu.

Banki í tætlum – rökfesta álitsgjafa

Jón Sigurðsson, fyrrverandi seðlabanka­stjóri og formaður Framsóknar­flokksins, skrifar um setningu norsks mann í embætti seðlabanka­stjóra á pressan.is 4. mars.

Hvað á að afsaka vegna hrunsins?

Í nóvember 2005 skipaði Halldór Ásgrímssson, forsætis­ráðherra, nefnd undir formennsku Sigurðar Einarssonar, stjórnar­formanns Kaupþings, til að semja skýrslu um Ísland sem alþjóðlega fjármála­miðstöð. Ári síðar lauk nefndin störfum en þá var Geir H. Haarde orðinn forsætis­ráðherra.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX