amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:12
 

Þriðjudagurinn 3. mars 2009

«
2. mars

3. mars 2009
»
4. mars
Fréttir

Styrkur til að kenna rennismíðanemum

Véla- og skipaþjónustan Framtak hlaut í gær tæplega fimm milljóna króna styrk til að kenna 13 nemum í rennismíði.

L-listinn býður fram í öllum kjördæmum

Nýtt stjórnmálaafl - L-listinn - var formlega kynntur í dag. Listinn ætlar að bjóða fram í öllum kjördæmum landsins.

Frumvarp um skattaskjól

Steingrímur J. Sigfússon fjármála­ráðherra leggur til að upplýsinga­skylda banka og fjármálafyrirtækja til skattyfirvalda verði stóraukin. Koma á í veg fyrir að eignum og tekjum verði skotið undan til leyni­félaga í karabíska hafinu og öðrum skattaskjólum.

Fall sænsku krónunnar gæti leitt til aukinnar verðbólgu

Sænska krónan heldur áfram í frjálsu falli. Menn óttast að verðbólguskot fylgi í kjölfar gjaldmiðilsvandans í Svíþjóð. Sænska krónan hefur fallið um 25% undanfarna sex mánuði og um 18% gagnvart danskri krónu frá því í ágúst.

Greiðslustöðvun gamla Landsbankans framlengd

Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í dag beiðni skila­nefndar Landsbanka Íslands hf. um níu mánaða framlengingu á greiðslustöðvun bankans, eða til 26. nóvember 2009.

Segir ekkert til fyrirstöðu að þing starfi eftir þingrof

Sigurður Líndal lagaprófessor segir ekkert því til fyrirstöðu að þingfundir haldi áfram þótt þing hafi verið rofið. Ástæðan sé sú að þingmenn missi ekki umboð sitt við þingrof, heldur haldi því fram á kjördag.

Dögg sækist eftir 2.-4. sæti Sjálfstæðis­flokks í Reykjavík

Dögg Páls­dóttir hæstaréttarlögmaður sækist eftir 2.- 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík sem boðað hefur verið til dagana 13. – 14. mars nk.

Ríflega 4.100 ráðnir í sumarstörf hjá Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg mun ráða yfir 4.100 einstaklinga í ýmis konar sumarstörf í sumar. Flestir eða um 2.900 verða ráðnir til tímabundinna starfa hjá Vinnuskóla Reykjavíkur. Ríflega 840 verða ráðnir til afleysinga á fagsviðum borgarinnar. Að auki er stefnt er að því að skapa að minnsta kosti 400 sumarstörf.

Ráðherrar funda um atvinnutækifæri Íslendinga í Kanada

Ásta R. Jóhannes­dóttir félags- og tryggingamála­ráðherra tekur á móti Nancy Allan, atvinnu- og innflytjendamála­ráðherra Manitoba í Kanada, á morgun og munu ráðherrarnir funda um möguleg atvinnutækifæri Íslendinga í Kanada.

Deborah Voigt á Listahátíð

Ein fremsta sópransöngkona heims, Deborah Voigt, heldur einsöngstónleika á Listahátíð í Reykjavík 31. maí n.k. Á efnisskrá hennar eru m.a. verk eftir Amy Beach, Giuseppe Verdi, Richard Strauss og Leonard Bernstein.

Birgir Ármannsson sækist eftir 3.-4. sæti

Birgir Ármannsson alþingis­maður sækist eftir 3.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík. Hann stefnir því að því að skipa 2.sætið í öðru hvoru Reykjavíkur­kjördæminu við þingkosningarnar í vor.

Milljarða dollara hagnaður JPMorgan Chase þrátt fyrir kreppu

JPMorgan Chase sem að markaðsvirði er nú stærsti banki Bandaríkjanna skilaði 5,6 milljarða dollara hagnaði árið 2008, þrátt fyrir að illa hafi árað á Wall Street. Hagnaðurinn gæti nær tvöfaldast þegar afleiðuviðskipti hafa verið gerð upp.

Rekstrarlegar forsendur sveitar­félaga bættar

Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um tekju­stofna sveitar­félaga og lögum um gatnagerðargjöld. Breytingin er gerð að frumkvæði samgöngu­ráðherra og í samráði við Samband íslenskra sveitar­félaga. Tilgangur hennar er að skapa sveitarfélögunum betri rekstrarlegar forsendur vegna efnahagsástandsins.

Þjónusta við atvinnulausa í Kópavogi

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að Kópavogsbær greiði fyrir sex mánaða bókasafnskort og þriggja mánaða kort til að stunda líkamsrækt fyrir Kópavogsbúa sem eru á atvinnuleysisbótum. Um 1300 Kópavogsbúar eru atvinnulausir.

Sér­fræðingar til starfa í Jórdaníu og Afganistan

Íslenska friðargæslan hefur sent Þorvarð Atla Þórsson sér­fræðing til starfa hjá svæðisskrifstofu UNICEF í Jórdaníu, fyrir Mið-Austurlönd og norðurhluta Afríku. Erlingur Erlingsson og Garðar Forberg fóru í lok febrúar sem sér­fræðingar til starfa að uppbyggingu í Afganistan

Skipaður saksóknari við ríkis­saksóknaraembættið

Ragna Árna­dóttir dóms- og kirkjumála­ráðherra skipaði í dag Björn Þorvaldsson, aðstoðar­saksóknara og staðgengil saksóknara efnahagsbrota, í embætti saksóknara við ríkis­saksóknaraembættið.

Stýrivextir lækkaðir í Kanada

Seðlabanki Kanada lækkaði stýrivexti í dag um 0,5%. Vextirnir eru nú 0,5%. Bankinn horfir ekki fram á bata í efnahagslífinu í ár.

Meiri samdráttur á bandarískum fasteigna­markaði en búist var við

Færri Bandaríkjamenn keyptu sér fasteign í janúar en reiknað var með. Fallið á bandarískum fasteigna­markað heldur því áfram. Sér­fræðingar bjuggust við 3,5% samdrætti en hann var 7,7%.

SM framlengir samning um kyrrstöðutímabil við lánardrottna

Spari­sjóður Mýrasýslu framlengir samning um kyrrstöðutímabil (standstill) við helstu lánardrottna félagsins til 1. apríl. Undiritun samkomulags við lánardrottna er jákvætt skref í átt að því að tryggja framtíðarrekstur spari­sjóðsins, segir í tilkynningu hans.

Frekari rýming á Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu

Ákveðið hefur verið að rýma enn frekar á norðanverðum Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu. Fyrri veðurspá gekk ekki eftir og ofankoma hefur haldið áfram.

Nefnd til að endurskoða reglur um skipan dómara

Ragna Árna­dóttir dóms- og kirkjumála­ráðherra hefur ákveðið að skipa þriggja manna nefnd er vinni að því að móta tillögur um setningu nýrra reglna um skipan dómara.

Samningagerð milli gömlu og nýju bankanna

Ríkis­stjórnin hefur gengið til samninga við ráðgjafar­fyrirtækið Hawkpoint um að vinna að samningagerð milli gömlu og nýju bankanna undir stjórn fulltrúa íslenskra stjórnvalda.

Gylfi Zoega og Anne Sibert í peningastefnu­nefnd

Forsætis­ráðherra hefur í dag skipað tvo fulltrúa í peningastefnu­nefnd Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum. Þau eru Anne Sibert, Dr. í hagfræði og prófessor við Birkbeck College, University of London og Gylfi Zoega, Dr. í hagfræði og prófessor við Háskóla Íslands.

Þórarinn G. Pétursson í peningastefnu­nefnd

Seðlabanka­stjóri hefur ákveðið að Þórarinn G. Pétursson, starfandi aðalhag­fræðingur Seðlabanka Íslands, skuli sitja í peningastefnu­nefnd. Í nefndinni sitja einnig Svein Harald Øygard seðlabanka­stjóri, sem er formaður og Arnór Sighvatsson aðstoðar­seðlabanka­stjóri. Forsætis­ráðherra skipar tvo sér­fræðinga í nefndina.

Kreppan skekur Evrópu

Óhætt er að segja að alþjóðlega fjármálakreppan hafi kallað Evrópu­sambandið að prófborðinu. Kreppan og þau vandamál og áskoranir sem henni fylgja hefur gert það að verkum að framtíð bæði Evrópu­samstarfsins og evrunnar er nú rædd, segir Greining Íslandsbanka.

Hreinar erlendar skuldir miklar

Hrein erlend staða þjóðar­búsins var neikvæð um 3.675 milljarða króna í lok árs í fyrra og hafði þá versnað um 2.309 milljarða króna yfir árið. Tölurnar eru litaðar af bankahruninu. Að frátalinni stöðu þessara banka er erlend skuldastaða þjóðar­búsins betri, segir Greining Íslandsbanka.

130 þúsund bankamenn hafa misst vinnuna á fimm mánuðum

Fjármálakreppan bitnar hart á starfsmönnum banka- og fjármála­stofnana. Frá því í október hafa 130 þúsund manns misst vinnuna í þessum geira víða um heim. Skráðar uppsagnir í geiranum frá ágúst 2007 eru 325.000 manns en rauntalan er talin vera um 500.000 manns.

Samfylkingin kom í veg fyrir víðtækar heimildir sérstaks saksóknara

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmála­ráðherra, segir að ráðherrar Samfylkingar­innar hafi dregið lappirnar við afgreiðslu frumvarps um sérstakan saksóknara. Hann segir að Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskipta­ráðherra, hafi komið í veg fyrir að saksóknari fengi ríkari heimildir en raun var á.

Hluta­bréfin hækkuð um 50%!

Í ljósi sterkrar stöðu Friðarhúss Samtaka hernaðar­andstæðinga varð það niðurstaða aðalfundar að hækka verð á nýjum hluta­bréfum í félaginu um 50%. Í tilkynningu samtakanna segir að svo umtalsverð hækkun fasteigna­félags hljóti að vekja bjartsýni á markaði!

Flugáhafnir SAS næstar á uppsagnalista félagsins

Flugmenn og flugþjónar norræna flug­félagsins SAS mega búast við fjöldauppsögnum á næstunni. Flugvélum verður fækkað úr 130 í 100. Áætlun samsteypunnar allrar gerir ráð fyrir sölu fyrirtækja og þúsundum uppsagna.

Grunnskóla­nemendum fækkar frá síðasta skólaári

Grunnskóla­nemendum hefur fækkað um 330 frá síðastliðnu skólaári, eða 0,7%. Gera má ráð fyrir að nemendum grunnskóla fækki næstu árin því að þeir árgangar sem eru að hefja grunnskólanám eru fámennari en þeir árgangar sem ljúka munu grunnskóla­námi.

Starfsfólki við kennslu fjölgar þrátt fyrir fækkun nemenda

Starfsmönnum við kennslu fjölgar þó að grunnskóla­nemendum hafi fækkað um 330 frá síðasta skólaári. Starfsmenn við kennslu og skóla­stjórnun voru 5.084 í 4.999 stöðugildum og hefur fjölgað um 85 frá fyrra ári, sem er 1,7% fjölgun. Hver kennari vinnur skemur að meðaltali en áður.

Hratt dregur úr verðbólgu í Danmörku

Verulega dró úr verðbólgu í Danmörku í janúar. Hún er nú komin á svipað stig og í öðrum Evrópu­sambandsríkjum. Verðbólga í Danmörku var 1,7% í janúar en hún mældist 2,4% í desember. Verðbólga í evruríkjum er 1,1%.

Ráðleggur bændum að framleiða sem mest

Pål Haugstad, formaður norsku bænda­samtakanna, ráðleggur íslenskum bændum að framleiða sem allra mest af matvöru. Það sé efnahagslega hagkvæmt að framleiða öll þau matvæli sem hægt sé innanlands.

Löndun úr Sturlu GK vekur athygli í Grimsby

Löndun úr Sturlu GK 12 á fisk­markaði í Grimsby hefur vakið nokkra athygli þar. Íslenskar skipakomur þar voru algengar á sjöunda og áttunda áratugnum en lögðust af með tilkomu gámaflutninga.

Erlendar eignir Milestone seldar og innlendar eignir færðar til Íslands

Moderna Finance AB, dóttur­félag Milestone ehf. í Svíþjóð, hefur undirritað samninga um sölu á skaðatrygginga­félaginu Moderna Forsäkringar og sjóðstýringar­fyrirtækinu Aktie-Ansvar. Jafnframt verða íslenskar eignir félagsins, en það eru félögin Sjóvá, Askar Capital og Avant, seldar til Milestone og komast þar með aftur í eigu íslenskra aðila.

Forsetinn fór níu sinnum með einkavélum í boði auðmanna

Ólafur Ragnar Grímsson forseti fór níu sinnum með einkaþotum eða leiguvélum á vegum íslenskra fyrirtækja á árunum 2005 til 2008. Þetta kemur fram í svari forsetaembættisins við fyrirspurn Fréttablaðsins.

Kostnaður lög­reglunnar vegna mótmæla 80 milljónir króna

Í heild nemur kostnaður lög­reglunnar vegna mótmæla á þessu og síðasta ári liðlega 79 milljónum króna. Stærsti hluti þessa kostnaðar leggst á lög­regluembættið á höfuðborgar­svæðinu.

Toyota leitar á náðir ríkisins

Toyota hefur ákveðið að óska eftir láni frá japanska ríkinu. Fyrirtækið reiknar með tapi í fyrsta skipti í 59 ár og vaxta­álag fyrirtækisins hefur meira en tvöfaldast. Gert er ráð fyrir að Toyota fari fram á tveggja milljarða dollara lán frá ríkinu.

Fuglahvísl

Össur í „liði með Noregi“

Smáfuglarnir sáu dálítið á Smugunni, netmálgagni vinstri-grænna, sem eru í ríkis­stjórn með Össuri Skarphéðinssyni en Hjörleifur Guttormsson er meðal annarra í vinstri grænum og einnig Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX