Hús rýmd í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu
Lýst hefur verið yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu í Bolungarvík og hefur verið ákveðið að rýma reit 4, en þar eru eftirtalin hús: Ljósaland 2, Traðarland 18-21-22 og Tröð I.
Leitin að Aldísi Westergren heldur áfram
Leit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að Aldísi Westergren, 37 ára, hefur enn engan árangur borið en síðast er vitað um ferðir hennar við Gvendargeisla í Grafarholti í Reykjavík þriðjudaginn 24. febrúar.
Nýr framkvæmdastjóri DHL á Íslandi
Christophe Piganiol hefur tekið til starfa sem nýr framkvæmdastjóri hjá DHL á Íslandi. Christophe tekur við starfinu af Shad Hallam sem tekur við nýju starfi hjá DHL í Svíþjóð.
Enginn arður og stjórnarlaun lækkuð
Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að ekki verði greiddur arður vegna rekstrarársins 2008. Stjórnin leggur enn fremur til að laun stjórnarmanna verði lækkuð um 20%.
Viðbúnaður vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum
Viðbúnaður er vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Snjólfóðavakt Veðurstofu Íslands hefur lýst yfir óvissuástandi vegna hættunnar.
Kaupþing yfirtekur hluta Mosaic Fashions
Kaupþing hefur ákveðið, í samvinnu við fyrrum stjórnendur Mosaic Fashions, að stofna félagið Aurora Fashions sem tekur yfir rekstur verslanakeðjanna Karen Millen, Coast, Warehouse og Oasis sem áður tilheyrðu Mosaic Fashions.
Brim segir upp fólki á Grenivík
Nær öllum starfsmönnum landvinnslu Brims á Grenivík hefur verið sagt upp störfum. Starfsmenn eru sextán og hefur þrettán þeirra verið sagt upp.
Icelandair Group tapaði 7,5 milljörðum á liðnu ári
Tap á rekstri Icelandair Group á síðasta ári nam 7,5 milljörðum króna. Árið áður var 257 milljóna króna hagnaður af rekstri félagsins.
David Moffet, forstjóri bandaríska fasteignabankans Freddie Mac, hefur sagt upp störfum. Samhliða leitar bankinn enn á náðir bandarískra stjórnvalda um aðstoð.
Dollarinn styrkist og styrkist
Samhliða því að ástand versnar stöðugt á hlutabréfamarkaði styrkist Bandaríkjadollar og virðist nú vera hin örugga höfn. Japanska jenið býður ekki lengur sama stöðugleika og áður og því leitar fjárfestar í dollar. Styrking dollars gagnvart evru er veruleg.
Íslensk sala í Grimsby í fyrsta sinn í mörg ár
„Það eru einhver ár frá því íslenskt fiskiskip landaði þarna síðast,“ segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík, en skip félagsins, Sturla GK 12, seldi í dag 65 tonn af blönduðum afla á fiskmarkaði í Grimsby.
Kínverjar sagðir kaupa Volvo fyrir mánaðamót
Kínverski bílaframleiðandinn Geely Automobile Holdings mun kaupa Volvo áður en marsmánður er úti, fullyrðir Asíuútgáfa Wall Street Journal. Ford á Volvo. Viðræður Ford og Geely um Volvo eru sagðar hafa staðið vikum saman.
Úrskurðarnefnd lækkar fiskverð um 10-15%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag, 2. mars, var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski og slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila. Karfaverð er óbreytt.
Sigmundur Davíð gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir aðgerðaleysi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins gagnrýnir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur harðlega fyrir aðgerðaleysi. Ríkisstjórnin er minnihlutastjórn og ver Framsóknarflokkurinn hana falli.
Ríkissafn Íslandsbanka fær góðar viðtökur
Í desember síðastliðnum setti Eignastýring Íslandsbanka nýjan verðbréfasjóð á markað og ber hann heitið Ríkissafn - ríkisskuldabréf og innlán. Sjóðurinn fjárfestir eingöngu í skuldbréfum með ábyrgð ríkissjóðs og í innlánum fjármálastofnana.
Skattsvik með aðstoð bankamanna?
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri er sannfærður um að ákveðnir starfsmenn fallinna íslenskra banka hafi átt þátt í því að auka skráningu félaga í skattaskjólum. Hann hefur, samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins, rökstuddan grun um að þetta hafi menn gert til að svíkja undan skatti.
Tapið nam 3,2 milljörðum króna á klukkustund
Tap bandaríska tryggingarisans AIG á síðasta ársfjórðungi var stjarnfræðilegt. Erfitt að átta sig á slíkum tölum Vilji menn brjóta þær upp má sjá að tapið á dag nam 78 milljörðum og á hverri klukkustund tapaði AIG 3,2 milljörðum króna!
Ólíkt hafast þau að, Jóhanna og Jón Sigurðsson
Vinnubrögð við breytingu á lögum um Seðlabankann, sem samþykkt voru í síðustu viku, eru gjörólík þeim sem voru við höfð árið 1993 þegar Jón Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra lagði fram frumvarp um breytingar á lögum um bankann.
Slysarannsóknarnefndir sameinaðar í eina
Frumvarp til laga um rannsókn samgönguslysa er nú til umsagnar. Felur það í sér sameiningu núverandi rannsóknarnefnda sjóslysa, flugslysa og umferðarslysa í eina og er markmiðið að efla og bæta slysarannsóknir.
Embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins auglýst
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Undir hana heyra m.a. fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.
Umsvif á húsnæðismarkaði jukust lítillega í febrúar frá fyrri mánuði en samtals voru gerðir 175 kaupsamningar um húsnæði í febrúar samanborið við 117 samninga í janúar. Engu að síður eru umsvifin enn afar lítil miðað við það sem áður var, segir Greining Íslandsbanka.
Þrjú efstu sætin „frátekin“ hjá Samfylkingunni
Fátt bendir til annars en að Jóhanna Sigurðardóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skaprhéðinsson raði sér í þrjú efstu sætin í prófkjöri Samfylkingarinnar. Lítið svigrúm virðist fyrir nýliða í átta efstu sætunum.
Sebelius þykir líkleg sem heilbrigðisráðherra Obama
Víst þykir að Kathleen Sebelius, ríkisstjóri í Kansas, verði næsti heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Bandaríkjanna. Hennar bíður að koma í gegn þeim endurbótum sem Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur lofað á heilbrigðiskerfi landsins.
Aðdáendur Vina hafa óbeit á Paris Hilton
Á dögunum fjölluðu fjölmiðlar um sprotafyrirtækið TellmeTwin - www.tellmetwin.com - sem hlaut í janúar síðastliðnum hæsta styrk sem tækniþróunarsjóður Rannís veitir. Styrkurinn er veittur til að þróa virkni vefsins áfram og er verkefnið unnið í samstarfi við Ara Kristinn Jónsson, forseta tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík og Andreas Weigend, kennara við Berkeley- og Stanford- háskólana í Bandaríkjunum.
Lítil endurnýjun hjá Samfylkingunni í Reykjavík
Svo gæti farið að lítil endurnýjun verði í þingliði Samfylkingarinnar í Reykjavík. Sitjandi þingmenn, varaþingmenn og gamall refur í pólitík gætu skipað „öruggu“ sætin. Fátt kemur í veg fyrir að Jóhanna Sigurðardóttir verði í fyrsta sæti í prófkjöri flokksins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði kjörin í annað sætið.
Skuldabréf Existu á athugunarlista
Skuldabréf útgefin af Existu hf. hafa verið færð á athugunarlista Kauphallar Íslands vegna óvissu um fjárhagslega stöðu útgefanda.
Buffett svartsýnn vegna 2009 en sér ljósið þegar líður á 2010
Það verður liðið nokkuð á árið 2010 áður við förum að sjá ljós við enda efnahagskreppunnar, segir hinn heimsþekkti fjárfestir Warren Buffett. Niðursveiflan nú er það gjald sem við greiðum fyrir margra ára óábyrga lánastefnu.
Spjallfundur um ESB, evru og hagsmuni Íslands
Gunnar Rögnvaldsson verður á opnum spjallfundi Heimssýnar um Evrópusambandið og Ísland kl. 17 í dag. Þar verður rætt um þróun efnahagsmála innan ESB, íslensku krónuna, evruna og hvort hag Íslendinga sé betur borgið innan eða utan ESB eða með eða án evru.
Gjaldeyrishöft ekki afnumin að sinni
Seðlabanki Íslands hefur metið hvort nauðsynleg skilyrði þess að hægt sé að afnema gjaldeyrishöft séu til staðar og komist að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki. Næsta endurskoðun mun eiga sér stað eigi síðar en 1. september.
Í lok árs 2008 voru 1.529 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun og hafði þeim fækkað um 113 frá árinu áður. Vélskipum fækkaði um 65 og opnum fiskibátum fækkaði um 44 milli ára.
HSBC segir upp 6100 í Bandaríkjunum
Breski stórbankinn HSBC, sem er stærsti banki Evrópu, tilkynnti í morgun að tekjutap liðins árs næmi 70%. Versnandi hagur bankans hefur það í för með sér að hann neyðist til að segja upp 6100 starfsmönnum í Bandaríkjunum.
Bandaríksk stjórnvöld koma AIG enn og aftur til bjargar
Bandarísk stjórnvöld koma tryggingarisanum AIG enn til hjálpar og nú með 30 milljarða dollara framlagi. Tap AIG á fjórða ársfjórðungi var gríðarlegt, eða 60 milljarðar dollara. Frá því í haust hefur ríkið lagt AIG til 150 milljarða dollara.
Exista óskar eftir frestun á greiðslu vaxta og afborgana
Exista hefur óskað eftir frestun á greiðslu vaxta og afborgana sem koma til greiðslu á meðan félagið er í viðræðum við helstu lánadrottna. Exista á í viðræðum við innlendar og erlendar lánastofnanir um endurskoðun lánasamninga og uppgjör gagnkvæmra krafna.
Ótrúlegt að ákvæði stjórnarskrár vefjist fyrir mönnum
Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segi að það sé ótrúlegt að ákvæði stjórnarskrá vefjist fyrir mönnum þegar kemur að skipan erlendra ríkisborgara í embætti. Hann segir það með ólíkindum, að sú áhætta skuli tekin að ganga gegn þessu ákvæði, þegar seðlabankastjóri á í hlut.
Tuttugu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík
Alls gefa 20 kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar vegna alþingiskosninganna í apríl. Kosið er um átta efstu sætin á framboðslistanum í báðum Reykjavíkurkjördæmunum. Jóhanna Sigurðardóttir býður sig ein fram í efsta sætið, en Jón Baldvin Hannibalsson óskar eftir stuðningi í eitt af átta efstu.
Smáfuglarnir lesa í málgagni Jóns Baldvins Hannibalssonar, keppinauts Ingibjargar Sólrúnar, um formennsku í Samfylkingunni, að hann eigi sér einnig vin sem væntanlegan varaformann, engan annan en Árna Pál Árnason, alþingismann.
Bloggarinn Andrés Jónsson, sem smáfuglarnir líta á sem samvisku Samfylkingarinnar í netheimum, spáði því, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mundi falla frá framboði til formennsku í flokknum. Sú spá rættist ekki og nú hefur Andrés skýrt frá því, hvers vegna það gerðist ekki.
Hvað vilja framsóknarmenn upp á dekk?
Smáfuglarnir hugsuðu með sér, þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, kveinkaði sér undan því í kvöldfréttum sjónvarps, að Jóhanna Sigurðardóttir virtist hafa gleymt því, að hún sæti í minnihlutastjórn í skjóli framsóknar, að ekki myndi líða á löngu, þar til einhver þingmaður Samfylkingarinnar lýsti vonbrigðum með Sigmund Davíð.