| « 28. febrúar |
■ 1. mars 2009 |
» 2. mars |
Barack Obama Bandaríkjaforseti verður í önnum fyrstu dagana í apríl. Hann verður í London 1.apríl á G20-toppfundi. Þá tekur við leiðtogafundur NATO 3.-4. apríl og loks hittir hann þjóðarleiðtoga Evrópusambandsins í Prag 5. apríl.
Meirihluti landsmanna andvígur aðild að Evrópusambandinu
Meirihluti landsmanna er andvígur því að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er niðurstaða könnunar Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Alls eru tæp 54% andvíg því að sækja um aðild en 46% er því hlynnt.
Dagur B. Eggertsson ætlar í varaformann Samfylkingar
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi hefur ákveðið að sækjast eftir embætti varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins um miðjan mars næstkomandi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Dags.
Umferðarslys á Breiðamerkursandi
Um kl. 09:30 var tilkynnt til lögreglunnar á Höfn um að alvarlegt umferðarslys hefði orðið á Breiðamerkursandi skammt austan við Jökulsárlón. Um var að ræða fimm einstaklinga af erlendum uppruna.
Atvinnuleysið veldur AGS áhyggjum
Vaxandi atvinnuleysi og tafir við endurreisn bankakerfisins eru meðal helstu áhyggjuefna sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem nú er stödd hér á landi, segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.
Býður sig fram til formennsku í Frjálslynda flokkinum
Guðni Halldórsson, viðskiptalögfræðingur ætlar að bjóða sig fram til formennsku í Frjálslynda flokknum á landsþingi sem haldið verður um miðjan mars. Hann sækist jafnframt eftir efsta sæti í prófkjöri flokksins í Norðvesturkjördæmi.
Ásta Ragnheiður sækist eftir 4. sæti í Reykjavík
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags og tryggingamálaráðherra sækist eftir 2. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna og stefnir því á 4. sætið í prófkjörinu.
Enn fellir kreppan tvo bandaríska banka
Bandarísk yfirvöld hafa neyðst til að yfirtaka tvo banka sem sáu ekki fram úr vandamálum sínum. Þar með eru bankarnir orðnir 16 sem stjórnvöld hafa orðið taka yfir það sem af er þessu ári. Bankarnir sem voru þjóðnýttir eru Security Savings bankinn í Nevada og Heritage Community Bank í Illinois.
Snarpur jarðskjálfti undir Vatnajökli
Snarpur jarðskjálfti, 4,3 á Richter, varð við Lokahrygg undir vestanverðum Vatnajökli þegar klukkuna vantaði 20 mínútur í 1 í nótt.Enginn gosórói er á skjálftasvæðinu, eða annað sem bendir til eldsumbrota.
Asískir fjárfestar sagðir vera að kaupa West Ham
Hópur asískra fjárfesta er í þann veginn að kaupa enska úrvalsdeildarliðið West Ham af Björgólfi Guðmundssyni, segir breska blaðið Sunday Mirror. Sagt er að kaupverð sé 90 milljónir breskrar punda, eða sem svarar hálfum fimmtánda milljarði króna.
Smáfuglarnir taka undir með Steinunni Sigurðardóttur, rithöfundi, þegar hún gagnrýnir í Fréttablaðinu 28. febrúar þá ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur, að setja Norðmann í stöðu seðlabankastjóra. Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafi í valdagræðgi sinni tapað allri sómatilfinningu fyrir hönd íslensku þjóðarinnar.