| « 27. febrúar |
■ 28. febrúar 2009 |
» 1. mars |
Á annað hundrað í forvali VG um allt land
Alls gefa 103 kost á sér í forvali Vinstri grænna í öllum kjördæmum vegna alþingiskosninga í apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.
Yfir tuttugu gefa kost á sér hjá VG í Norðvesturkjördæmi
Alls gefa 22 kost á sér í forvali vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi vegna alþingiskosninga í apríl. Jón Bjarnason þingmaður flokksins sækist eftir endurkjöri.
Össur Skarphéðinsson, iðnaðar- og utanríkisráðherra, stefnir að þriðja sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í prófkjöri fyrir komandi kosningar. Þetta er í samræmi við yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðardóttur og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í morgun.
Jón Baldvin gegn Ingibjörgu Sólrúnu
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Alþýðuflokksins, ætlar að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í mars. Með þessu stendur hann við orð sín um að bjóða sig fram ef Ingibjörg Sólrún víkur ekki af sjálf.
Ingibjörg heldur áfram og Jóhanna verður forsætisráðherraefni
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ætlar að halda áfram þingmennsku og gefa kost á sér til endurkjörs sem formaður Samfylkingarinnar. Hún mun leggja til við landsþing flokksins að Jóhanna Sigurðardóttir verði forsætisráðherraefni flokksins eftir komandi kosningar.
Mosaic á leið í greiðslustöðvun og Kaupþing eignast félagið
Mosaic Fashion, sem er að stórum hluta í eigu Baugs Group, er á leið í greiðslustöðvun samkvæmt frétt Times í morgun. Talið er líklegt að Kaupþing eignist 90% hlutafjár eftir að félagið hefur gengið í gegnum róttækja endurskipulagningu.
Hagnaður Íslandspósts 79 milljónir
Hagnaður Íslandspósts á síðasta ári nam 79 milljónum króna. Hann var minni en áætlað var. Hagnaður fyrirtækisins var um 230 milljónir króna árið 2007.
Jóhanna og Ingibjörg Sólrún með sameiginlega blaðamannafund
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafa boðað sameiginlegan blaðamannafund kl. 11.00 í dag. Þar er búist við yfirlýsingu Ingibjargar Sólrúnar um framtíð hennar í stjórnmálum.
Þúsundir bókatitla á bókamarkaði
Í dag, laugardaginn 28. febrúar, hefst hinn sígildi og árlegi bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda í Perlunni. Bókamarkaðurinn hefur verið við lýði næstum samfleytt frá því í lok sjötta áratugar síðustu aldar og táknmynd hans, glaðbeitti bókakarlinn, er greipt í huga íslensks almennings.
Fimmtán í framboði hjá Samfylkingunni í Kraganum
Fimmtán gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, sjö konur og átta karlar. Kosið verður á netinu 12.-14. mars næstkomandi. Kosning er bundin við félaga í Samfylkingunni og stuðningsmenn sem hafa skráð sig í síðasta lagi 10. mars kl. 18.
Fimmtán í forvali VG í Kraganum
Alls gefa 15 kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Suðvesturkjördæmi vegna alþingiskosninganna. Í forvalinu á að raða allt að sex frambjóðendum í efstu sæti á listanum.
Smáfuglunum þykir það ekki styrkleikamerki hjá Samfylkingunni að ákveðið skuli með einhliða yfirlýsingum, hvernig framboði skuli háttað í Reykjavík. Þetta minnir aðeins á það, þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hætti sem borgarstjóri, af því að hún naut ekki lengur trausts innan R-listans.