amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:23
 

Föstudagurinn 27. febrúar 2009

«
26. febrúar

27. febrúar 2009
»
28. febrúar
Fréttir

Hætt við sameiningu

Heilbrigðis­stofnun Vestfjarða og Heilbrigðis­stofnunin á Patreksfirði verða ekki sameinaðar gegn gildum rökum heimamanna. Ögmundur Jónasson, heilbrigðis­ráðherra, tilkynnti þetta í dag eftir að hafa rætt við sveitar­stjórnar­menn á norðanverðum Vestfjörðum.

Mun fleiri vilja að Jóhanna leiði Samfylkinguna en Ingibjörg Sólrún

Mun fleiri vilja að Jóhanna Sigurðar­dóttir leiði Samfylkinguna í næstu kosningum en Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir. Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem greint var frá á Stöð 2 og Vísi.

Kristinn H. í prófkjör hjá Framsókn í NV-kjördæmi

Kristinn H. Gunnarsson alþingis­maður er genginn á Framsóknar­flokkinn á ný og hyggst taka þátt í prófkjöri flokksins í Norðvestur­kjördæmi. Kristinn sagði sig úr Frjálslynda flokkunum á dögunum. Í upphafi þingferils síns var Kristinn í Alþýðubandalaginu.

Grímur Atlason gefur kost á sér í 1.-2. sæti VG í NV-kjördæmi

Grímur Atlason, sveitar­stjóri í Dalabyggð, gefur kost á sér í 1.-2. sæti í forvali Vinstri grænna, í Norðvestur­kjördæmi, vegna alþingis­kosninganna 25. apríl næstkomandi.

Búnaðarþing sett á sunnudaginn

Búnaðarþing verður sett á sunnudaginn. Haraldur Benediktsson, formaður Bænda­samtaka Íslands, flytur setningarávarp. Steingrímur J. Sigfússon sjávar­útvegs- og landbúnaðar­ráðherra mun sömuleiðis ávarpa samkomuna.

Unnið að sameiningu SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans

Stjórnir SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans, dóttur­félags SPRON, hafa ákveðið að vinna að sameiningu félaganna. Sameiningin er liður í skipulagsbreytingum til að mæta breyttu rekstrarumhverfi.

Innan við þriðjungur ánægður með forseta Íslands

Innan við þriðjungur landsmanna, 31%, er ánægður með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, að því er fram kemur í nýjum þjóðapúlsi Gallups. Þetta er algjör viðsnúningur frá því í fyrra, þegar 87% landsmanna voru ánægð með störf forsetans, segir í frétt Ríkisútvarpsins.

Kolbrún óvinsælust ráðherranna

Gallup könnun sýnir að 65% landsmanna eru ánægð með störf Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra. Mest óánægja er með störf Kolbrúnar Halldórs­dóttir umhverfis­ráðherra. 48% eru óánægð með störf hennar; aðeins14% ánægð, segir í frétt Ríkisútvarpsins.

Ármann Kr. óskar eftir 2.-3. sæti Sjálfstæðis­flokks í SV-kjördæmi

Ármann Kr. Ólafsson alþingis­maður hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað til þriðja sæti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Suðvestur­kjördæmi fyrir komandi alþingis­kosningar.

Ísland og Noregur bíða eftir NATO framboði Anders Fogh

Í norrænu NATO löndunum Noregi og Íslandi bíða menn þess að Anders Fogh Rasmussen, forsætis­ráðherra Dana, taki ávörðun um það hvort hann bjóði sig fram sem arftaka Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmda­stjóra varnarbandalagsins.

Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á vsk hjá aðilum á landbúnaðarskrá

Vegna sérstakra aðstæðna telur fjármála­ráðuneytið að gildar ástæður séu til að beita heimild laga til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á virðisaukaskatti fyrir uppgjör aðila á landbúnaðarskrá vegna síðari hluta ársins 2008.

Lúðvík Geirsson vill leiða lista Samfylkingar­innar í SV-kjördæmi

Lúðvík Geirsson, bæjar­stjóri í Hafnarfirði, gefur kost á sér til að leiða lista Samfylkingar­innar í Suðvestur­kjördæmi.

Segir Seðlabankann ekki hafa brugðist við varúðarorðum

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnar­formaður Kaupþings, segir að Seðlabanki Íslands hafi ekki brugðist við „eindregnum varúðarorðum“ frá forsvarsmönnum Kaupþings, í apríl í fyrra, um að bankakerfið íslenska stæði ekki nægilega traustum fótum.

Ryanair íhugar taka klósettgjald af farþegum

Brátt kann að borga sig að halda í sér í flugferðum. Ryanair, stærsta lágfargjaldaflug­félag Evrópu, íhugar að taka gjald af þeim farþegum sem þurfa að nota klósett um borð í flugvélum félagsins.

Þórunn vill 1. eða 2. sæti í Kraganum

Þórunn Sveinbjarnar­dóttir, fyrrverandi umhverfis­ráðherra, sækist eftir endurkjöri til Alþingis. Hún stefnir að forystusæti á framboðslista Samfylkingar­innar í Suðvestur­kjördæmi í prófkjörinu sem fram fer 12. til 14. mars næstkomandi.

Hulda Dóra Styrmis­dóttir nýr stjórnar­formaður Kaupþings

Hulda Dóra Styrmis­dóttir, hag­fræðingur og skrifstofu­stjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, hefur verið skipuð stjórnar­formaður Kaupþings. Gunnar Örn Kristinsson sem var skipaður á mánudag, hætti tveimur dögum síðar.

Kristinn H. Gunnarsson í Framsókn

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður hefur gengið til liðs við Framsóknar­flokksinn að því er fram kemur á fréttavef Feykis. Þar er sagt að Kristinn, sem áður var þingmaður Frjálslynda flokksins og þar áður Framsóknar­flokksins, hafi gengið í flokkinn ásamt Elsu Friðfinnsdóttur eiginkonu sinni.

Fær versta seðlabanka­stjórastarf Vesturlanda

Það verður vart sagt að heillaóskir hafi falist í fyrirsögn blaðamanns norska dagblaðsins Aftenposten en frá fréttinni er greint á norska viðskiptavefmiðlinum E24. Þar segir hreinlega að Svein Harald Øygard, nýsettur seðlabanka­stjóri á Íslandi taki við versta seðlabanka­stjórastarfi á Vesturlöndum.

Davíð vill ekki

Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabanka­stjóri, hefur hafnað áskorunum manna í Suður­kjördæmi um framboð í þingkosningunum í vor.

Ríkis­stjórnin afgreiddi 6 frumvörp til laga

Ríkis­stjórnin afgreiddi 6 frumvörp til laga á fundi sínum í dag. Hún hefur þar með samþykkt að leggja 29 mál fyrir Alþingi, þar af 26 lagafrumvörp sem gera ráð fyrir breytingum á 42 lögum.

Björgunarleiðangur gerður út til handa Austur-Evrópu

Alþjóða­bankinn, evrópski fjárfestingabankinn og evrópski þróunarbankinn munu samtals veita 25 milljörðum evra til að hjálpa fyrirtækjum og bönkum Austur-Evrópu að reisa sig við. Ungverjaland vill evru strax, segir Greining Íslandsbanka.

Davíð fram á Suðurlandi?

Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabanka­stjóri og forsætis­ráðherra, er sagður íhuga það að bjóða sig fram fyrir Sjálfstæðis­flokkinn á Suðurlandi, að því er mbl.is greinir frá. Davíð á rætur að rekja til Selfoss.

Lítt þekktur Norðmaður tekur við Seðlabanka Íslands

Norðmaðurinn Svein Harald Øygard, nýráðinn banka­stjóri Seðlabanka Íslands, er tiltölulega lítt þekktur í Noregi utan síns sérfræðisviðs. Hann er talinn afar fær maður og sagt er að hann skilji vandamál Íslands betur en margir Íslendingar.

Hagstæð vöruskipti

Í janúar voru fluttar út vörur fyrir 33,6 milljarða króna og inn fyrir 33,2 milljarða króna fob (36,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 0,3 milljarða króna.

Gistinóttum fjölgaði milli ára

Heildarfjöldi gistinátta hér á landi var 2,7 milljónir árið 2008 sem er um 2,7% aukning frá fyrra ári. Aukningin var hlutfallslega mest á Vestfjörðum og nam 16,4%, að því er fram kemur í ritinu Gistiskýrslum 2008 sem Hagstofa Íslands gefur út.

Hægt að taka milljón út af séreignasparnaði

Allir sem eiga frjálsan séreignar­sparnað geta leyst út allt að einni milljón króna á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010, samkvæmt frumvarpi sem nú hefur verið lagt fram á þingi um tímabundna heimild til útgreiðslu séreignasparnaðar.

Volkswagen Golf mest seldi bíllinn í Evrópu

VW Golf var mest seldi bíllinn í Evrópu 2008, samkvæmt samantekt Automotive News Europe. Ný gerð Golf verður kynnt hér á landi á vormánuðum. Peugeot 207 var í öðru sæti og Ford Focus í því þriðja. Sala dróst saman hjá öllum söluhæstu bílunum nema Golf.

Svíþjóð í frjálsu falli

Efnahagur Svíþjóðar er í frjálsu falli. Þjóðarframleiðsla Svía féll um 2,4% frá þriðja til fjórða ársfjórðungs 2008. Sænska krónan, sem var veik áður, féll enn frekar. Þjóðarframleiðsla Norðmanna er í fyrsta skipti orðin meiri en Svía.

Hryðjuverkalögum beitt vegna símtals

Hryðjuverkalögunum var beitt gegn Íslendingum eftir símtal sem Alistair Darling, fjármála­ráðherra Breta átti við Árna Mathiesen, þáverandi fjármála­ráðherra okkar Íslendinga. Þetta kemur fram í frétt Morgunblaðsins.

Jarle Bergo talinn líklegur seðlabanka­stjóri

Reiknað er með að Norðmaður verði ráðinn seðlabanka­stjóri til bráðabirgða. Margt bendir til þess að það verði Jarle Bergo, fyrrum aðstoðar­banka­stjóri norska seðlabankans.

Gefur kost á sér í 5.-7. sæti Sjálfstæðis­flokks í Reykjavík

Gylfi Þór Þórisson markaðs­stjóri gefur kost á sér í 5. – 7. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík fyrir komandi þingkosningar.

Samfylkingin stærsti flokkurinn og ríkis­stjórnin með 37 þingmenn

Samfylkingin bætir við sig fylgi og ríkis­stjórnin er með góðan meirihluta, samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Morgunblaðið. Alls fengi ríkis­stjórnin 37 þingmenn kjörna ef gengið yrði til kosninga nú.

Fuglahvísl

Ingibjörg og Stoltenberg vilja rauða stjórn við Bláa lónið

Smáfuglarnir velta fyrir sér hinu skrýtna mati fjölmiðla á fundi norrænna forsætis­ráðherra, sem haldinn var í Bláa lóninu fimmtudaginn 26. febrúar og snerist um alþjóða­væðinguna. Já, skrýtna fréttamati, því af frásögnum mætti halda, að þarna hefði Jens Stoltenberg, forsætis­ráðherra Noregs, leikið eitthvert lykilhlutverk ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingar­innar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX