amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:21
 

Fimmtudagurinn 26. febrúar 2009

«
25. febrúar

26. febrúar 2009
»
27. febrúar
Fréttir

Segir Kristin H. á leið í prófkjör Samfylkingar­innar

Kristinn H. Gunnarsson alþingis­maður hefur sagt sig úr þing­flokki Frjálslynda flokksins, eins og AMX hefur greint frá. Ríkisútvarpið segist hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að Kristinn ætli sér að taka þátt í prófkjöri Samfylkingar­innar í Norðvestur­kjördæmi.

Seðlabanka­frumvarpið samþykkt

Frumvarp ríkis­stjórnar­innar um breytingar á Seðlabankanum var samþykkt á Alþingi með 33 atkvæðum gegn 18. Með lögunum eru störf seðlabanka­stjóra lögð niður. Nýr seðalbanka­stjóri verður skipaður til bráðabirgða.

Flug­félagið Emirates semur við Dohop um flugupplýsinga­kerfi

Íslenska tækni­fyrirtækið Dohop hefur gert samning við Emirates flug­félagið um rekstur á flugupplýsinga­kerfi fyrir vefsíðu Emirates.com. Kerfið gerir viðskiptavinum Emirates kleift að finna framhaldsflug á einfaldan og þægilegan hátt.

„Engin störf tapast í fiskvinnslu vegna hvalveiða“

„Það hafa engin störf tapast í fiskvinnslu vegna hvalveiða okkar. Að halda slíku fram er oftúlkun á innihaldi bréfs bresku Waitrose-verslanakeðjunnar til íslenskra stjórnvalda,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmda­stjóri LÍÚ.

„Brotamenn stanga vegginn“

Forsvarsmenn Teymis hafa hörfað úr hverju víginu í annað í varnarbaráttu sinni við að draga athygli almennings frá kjarna málsins sem snýst um margítrekuð lagabrot gegn samkeppnisfrelsi Tals, segir í yfirlýsingu frá Jóhanni Óla Guðmundssyni, stjórnar­manni í Tali.

Yfirlit yfir þróun efnahagsmála

Hagvísar Seðlabanka Íslands fyrir febrúarmánuð 2009 eru komnir út. Þar er meðal annars fjallað um verðlags­þróun, nýjustu vísbendingar um eftirspurn, afkomu ríkis­sjóðs og vöruviðskipti við útlönd á árinu 2008.

Sendi­nefnd AGS komin

Sendi­nefnd frá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum (AGS) er komin hingað til lands og verður hér fram til 10. mars. Heimsóknin er liður í undirbúningi fyrir fyrstu endurskoðun á efnahags­áætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins.

Tap GM 30,9 milljarðar dollara

Tap General Motors bílaverksmiðjanna nam 30,9 milljörðum dollara eða um 3.481 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta er annað mesta tap fyrirtækisins í eina öld. Uppsafnað tap fyrirtækisins frá 2004 nemur 82 milljörðum dollurum.

Marel segir upp 15 manns

Marel hefur sagt upp 15 manns og voru uppsagnirnar kynntar á starfsmannafundi klukkan þrjú. Uppsagnirnar eru í framleiðslu­deild fyrirtækisins í Garðabæ og er um að ræða iðnaðarmenn og starfsmenn í samsetningu.

Er ekkert gott að frétta?

Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) heldur morgunverðarfund á Hótel Loftleiðum,á morgun, föstudaginn 27. febrúar frá kl. 8.00 til 9.45. Yfirskrift fundarins er: „Er ekkert gott að frétta?“

17 í prófkjöri sjálfstæðis­manna í Norðvestur­kjördæmi

Framboðsfrestur til prófkjörs Sjálfstæðis­flokksins í Norðvestur­kjördæmi rann út í gær, 25. febrúar. Þá höfðu 17 staðfest þátttöku sína í prófkjörinu sem fram fer 21. mars næstkomandi.

Fjárlagahalli Bandaríkjanna 197 þúsund milljarðar króna

Barack Obama Bandaríkja­forseti leggur í dag fram fjárlagafumvarp fyrir árið 2010. Þar kemur fram að fjárlagahalli þessa árs nemur 1750 milljörðum dollara sem jafngildir 197 þúsund milljörðum íslenskra króna. Hallinn svarar til 12,3% af þjóðar­framleiðslu Bandaríkjanna.

Teymi: Hermann og Jóhann Óli eru hústökumenn í jakkafötum

Í tilkynningu frá Teymi, sem á 51% hlutafjár í Tal, eru Jóhann Óli Guðmundsson og Hermann Jónasson sakaðir um lögleysi með því að bera út for­stjóra Tals og setja Hermann í hans stól.

Davíð og Eiríkur kvöddu sitt fólk

Seðlabanka­stjórarnir Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason kvöddu starfsfólk sitt fyrir hádegi. Nú stendur yfir þriðja og síðasta umræða um ný lög um Seðlabanka Íslands. Því er reiknað með því að dagurinn í dag sé síðasti starfsdagur seðlabanka­stjóranna.

Bjarni og fleiri sagðir með nýtt framboð í burðarliðnum

Nýtt framboð gegn aðild að Evrópu­sambandinu og flokksræði er í burðarliðnum og fara þeir Bjarni Harðarson fyrrverandi Framsóknar­þingmaður og séra Þórhallur Heimisson fyrir hópnum. Stefnt er að framboði á landsvísu, segir Vísir.

Segir kaupendur í biðröð eftir Saab

Átta líklegir kaupendur eru að sænsku Saab bílaverskmiðjunum, að því er Jan-Åke Jonsson, for­stjóri Saab greinir frá. Hann er bjartsýnn á að lausn finnist á vanda verksmiðjanna innan tíðar. Saab er í greiðslustöðvun, en félagið er í eign bandaríska bílarisans General Motors.

Aðalheiður Ármann vill 2.-3. sæti hjá Frjálslynda flokknum

Aðalheiður Ármann, stjórnar­maður Lands­sambands ungra frjálslyndra og stjórnmálafræðinemi, ætlar að sækjast eftir 2. -3. sæti fyrir Frjálslynda flokkinn í Reykjavík suður.

Hermann for­stjóri Tals á ný

Hermann Jónasson hefur tekið við for­stjórastarfi Tals á nýjan leik eftir miklar sviptingar í kringum fyrirtækið undanfarnar vikur.

Yfir 16 þúsund manns án atvinnu

Atvinnulausum hefur fjölgað um 3.857 í febrúarmánuði en á vef Vinnumála­stofnunar eru nú 16.264 skráðir án atvinnu sem er 30% fleiri en skráðir voru án atvinnu í lok janúar en þá voru 12.407 skráðir atvinnulausir. Atvinnulausum hefur fjölgað mikið allt frá bankahruninu í október.

Verðbólguvæntingar lækka

Sterk viðbrögð á skuldabréfa­markaði í kjölfar á birtingu verðbólgutalna gærdagsins benda til þess að verðbólguvæntingar hafi lækkað talsvert, segir Greining Íslandsbanka.

Gengisþróunin ætti að kæta AGS

Þróunin á gjaldeyris­markaði undanfarnar vikur ætti að vera sendi­nefnd Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins (AGS) að skapi. Krónan hefur styrkst um 17% frá því að millibanka­markaður með gjaldeyri var settur á fót að nýju þann 4. desember, segir Greining Íslandsbanka.

Umtalsverð lækkun vísitölu framleiðsluverðs

Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2009 var 169,7 stig og lækkaði um 7,3% frá desember 2008, að því er Hagstofa Íslands greinir frá.

Kristinn H. hættir í þing­flokki Frjálslynda flokksins.

Enn fækkar í þing­flokki Frjálslynda flokksins. Kristinn H. Gunnarsson hefur sagt sig úr þing­flokknum en stutt er síðan Jón Magnússon sagði sig úr flokknum og gekk til liðs við Sjálfstæðis­flokkinn.

Árni M. Mathiesen hættir þingmennsku

Árni M. Mathiesen, alþingis­maður og fyrrverandi ráðherra, hættir þingmennsku eftir kosningarnar í vor. Hann hefur sent kjördæmisráði Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi erindi þar sem fram kemur að hann ætlar ekki að gefa kost á sér í prófkjöri flokksins í kjördæminu.

Svartfjallaland í biðsal Evrópu­sambandsins

Umræður um aðild Íslands að Evrópu­sambandinu snúast gjarnan um nauðsyn þess að setja fram samningsmarkmið. Fyrst þurfi að gera það og síðan að ganga til aðildarviðræðna. Því er á hinn bóginn einnig haldið fram, að með þessum hætti nálgist menn ekki viðfangsefnið á réttan hátt.

Stærsta bankatap í breskri sögu

Tap Royal Bank of Scotland á síðasta ári er hið mesta í breskri sögu, 34 milljarðar dollara eða sem svarar 3825 milljörðum íslenskra króna. Þetta er mesta tap í sögu bresks banka.

Kaupþing fer fram á gjaldþrotaskipti Eurotrust

Kaupþing hefur farið fram á gjaldþrotaskipti á búi Eurotrust, félagi sem skráð er í kauphöllina í London og var áður á Nasdaq. Gjaldþrotabeiðnin verður tekin fyrir í rétti í Kolding í Danmörku á mánudaginn. Félagið var áður í upplýsinga­tækni en síðar í fasteigna- og vindmyllurekstri.

Mikið tap Royal Unibrew og fjöldauppsagnir

Mikið tap var á danska brugg­fyrirtækinu Royal Unibrew á liðnu ári, 483 milljónir danskra króna eða sem svarar 9,4 milljörðum íslenskra króna. Vegna tapsins verður félagið að grípa til fjöldauppsagna. FL Group (Stoðir) átti árið 2006 rúmlega 20% í Royal Unibrew.

Þingfundur kl. 10:30 og Seðlabanka­frumvarpið í lokaaf­greiðslu

Þingfundur hefst kl. 10:30 í dag og er Seðlabanka­frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur á dagskrá. Viðskipta­nefnd afgreiddi frumvarpið til þriðju umræðu þrátt fyrir óskir minnihluta nefndarmanna um að fá lengri tíma.

Hluta­bréf í Asíu lækka í kjölfar lækkunar í Bandaríkjunum

Hluta­bréf lækkuðu í Asíu í kjölfar lækkunar á mörkuðum í Bandaríkjunum í gær. MSCI Asíu vísitalan lækkaði um 1%. Vísitalan hefur lækkað um 17% það sem af er ári sem er mesta lækkun í 20 ár. Í Bandaríkjunum lækkuðu allar helstu vísitölu um 1% eða meira.

Fuglahvísl

Tveir þungavigtarmenn eftir

Við upphaf þingfundar að morgni fimmutdags 26. febrúar var skýrt frá því, að Kristinn H. Gunnarsson hefði fetað í fótspor Jóns Magnússonar og sagt sig úr Frjálslynda flokknum.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX