amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:07
 

Miðvikudagurinn 25. febrúar 2009

«
24. febrúar

25. febrúar 2009
»
26. febrúar
Fréttir

Viðskipta­nefnd afgreiddi Seðlabanka­frumvarpið

Meirihluti viðskipta­nefndar afgreiddi Seðlabanka­frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur úr nefndinni um kvöldmatarleitið og til þriðju og síðustu umræðu. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknar­flokksins myndaði nú meirihluta með stjórnar­flokkunum.

Níu fórust í brotlendingu við Schiphol

Níu manns fórust þegar tyrknesk farþegaflugvél brotlenti við Schiphol-flugvöll í Amsterdam í morgun. Alls voru 134 um borð. Mildi þykir að eldur skyldi ekki koma upp. Óstaðfestur orðrómur er um að vélin hafi orðið eldsneytislaus.

Segir að fleiri Bo Concept verslanir muni loka

„Bo Concept neyðist til að loka verslunum víðar en í Danmörku en ég vona að það verði ekki með jafn dramatískum hætti og gerðist í Kaupmannahöfn,“ segir Viggo Mølholm for­stjóri. Hann segir að móður­fyrirtækið muni hér eftir standa fastar við bakið á leyfishöfum verslananna.

Þórsmörk hæstbjóðandi í Árvakur

Samningar hafa tekist um að Þórsmörk ehf. eignist útgáfu­félagið Árvakur hf. með yfirtöku skulda og nýju hlutafé. Þórsmörk ehf. er í eigu Óskars Magnússonar en hluthafar með honum verða Gísli Baldur Garðarsson, Guðbjörg Matthías­dóttir, Gunnar B. Dungal, Pétur H. Pálsson, Þorgeir Baldursson og Þorsteinn Már Baldvinsson.

Vinnuhópur um spítalasamhæfingu

Heilbrigðis­ráðherra hefur skipað vinnuhóp sem hefur það hlutverk að útfæra hugmynd hans um samhæfingu Land­spítala og Heilbrigðis­stofnunar Suðurnesja.

Samið um frestun launahækkana

Samkomulag náðist síðdegis milli SA og ASÍ um frestun fyrirhugaðra launahækkana 1. mars en ákveðið var að fresta ákvörðun um endurskoðun kjarasamninga um allt að fjóra mánuði. Samningsaðilar telja að þessi frestun sé mikilvægt framlag til stöðugleika í efnahagslífinu.

Jón Baldvin í prófkjör

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, hefur tilkynnt þátttöku í forkosningu um 8 sæti á framboðslista Samfylkingar­innar í Reykjavík.

Larosiere skýrslan lögð fram í viðskipta­nefnd

Minnisblað um Larosiere skýrsluna, um fjármálastarfsemi, sem samið var af þremur ráðuneytum, var lagt fram í viðskipta­nefnd Alþingis í morgun. Skýrslan hefur verið mjög til umræðu vegna breytinga á lögum um stjórn­skipulag Seðlabanka Íslands.

Gunnar Örn hættir eftir tvo daga sem formaður bankaráðs Kaupþings

Gunnar Örn Kristjánsson viðskipta­fræðingur sem nýlega var skipaður í bankaráð Kaupþings, hefur óskað eftir því við fjármála­ráðherra að láta af störfum. Gunnar Örn var kjörinn formaður á hluthafafundi á mánudag.

Hnattvæðingarþing norrænna forsætis­ráðherra

Forsætis­ráðherrar Norðurlandanna, þau Jóhanna Sigurðar­dóttir, Anders Fogh Rasmussen, Fredrik Reinfeldt, Jens Stoltenberg og Matti Vanhanen munu taka þátt í hnattvæðingarþingi sem haldið verður í Bláa Lóninu 26. og 27. febrúar. Íslendingar eru gestgjafar þingsins.

Óbreytt afstaða til Mannréttindadómstólsins

Fyrri ríkis­stjórn ákvað að kanna aðra möguleika til málshöfðunar, m.a. fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Núverandi ríkis­stjórn hefur ekki breytt þeirri ákvörðun og enga ákvörðun tekið um að höfða slíkt mál fyrir þeim dómstóli eða öðrum,segir í yfirlýsingu viðskipta­ráðuneytisins.

Útflutningsverðmæti gulldeplu orðið 800 milljónir króna

Útflutningsverðmæti gulldepluafurða eru nú orðið um 800 milljónir króna. Alls eru um 31.600 tonn af gulldeplu komin á land. Fiskurinn er unninn í mjöl og lýsi.

Leyfishafi Bo Concept verslananna í Danmörku finnst ekki

Stjórn Bo Concept í Danmörku hefur ekki tekist að finna leyfishafa vörumerkisins en fimm húsgagnaverslanir keðjunnar í Kaupmannahöfn og nágrenni hafa verið lokaðar í gær og í dag, eins og AMX hefur greint frá. Stjórnin hefur leitað til yfirvalda vegna ástandsins.

Viðskipta­nefnd kölluð saman síðdegis vegna Seðlabanka­frumvarps

Viðskipta­nefnd hefur verið kölluð saman að nýju kl. 18:15 í dag, en nefndin kom saman til fundar rétt fyrir hádegi í dag. Ætlun ríkis­stjórnar­innar er að afgreiða úr nefndinni Seðlabanka­frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur til þriðju umræðu.

American Express borgar fólki fyrir að loka reikningunum

Sú var tíðin stóru greiðslukorta­fyrirtækin í Bandaríkjunum reyndu að lokka til sín viðskiptavini. En nú á krepputímum er öldin önnur. American Express býður ákveðnum viðskiptamannahópi 300 dollara greiðslu vilja hann vinsamlega loka kortareikningnum sínum.

Sjö skip á gulldepluveiðum

Sjö skip eru nú á Gulldepluveiðum djúpt suður af Vestmannaeyjum. Öll fengu þau einhvern afla í gær en bræla og leiðindaveður er á svæðinu og því ekki hægt að kasta í morgun.

Viðskipta­nefnd afgreiddi ekki Seðlabanka­frumvarpið

Viðskipta­nefnd Alþingis, sem var kölluð saman rétt fyrir hádegi, afgreiddi ekki Seðlabanka­frumvarpið til þriðju umræðu. Á fundinum var lögð fram skýrsla nefndar Evrópu­sambandsins um lagaumhverfi fjármála­markaðarins og minniblöð íslenskra embættismanna.

Engir óeðlilegir eignaflutningar segir fyrrum for­stjóri hjá Kaupþingi

Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi for­stjóri Kaupthing Singer & Friedlander, vísar ummælum Davíðs Oddssonar seðlabanka­stjóra um tilfærslur frá Bretlandi.

Raunverð íbúðar­húsnæðis hefur lækkað um 20% undanfarið ár

Íbúðaverð lækkaði um 3% í febrúar frá fyrri mánuði sem meiri lækkun á milli mánaða en sést hefur. Húsnæðisverð hefur nú lækkað um 6,2% að nafnverði undanfarna 12 mánuði sem samsvarar því að raunverð húsnæðis hafi á sama tíma lækkað um rúmlega 20%.

Enn kreppir að í bresku efnahagslífi

Breskt efnahagslíf varð fyrir enn einu högginu í morgun en þá sýndu tölur 1,5% samdrátt í þjóðar­framleiðslu milli þriðja og fjórða ársfjórðungs 2008. Svo mikill samdráttur hefur ekki orðið í landinu síðan 1980.

Hækkun bifreiðastyrkja til hreyfihamlaðra

Fjárhæðir styrkja og uppbóta vegna bifreiðakaupa hreyfihamlaðs fólks hækka um 20% og ýmis skilyrði fyrir styrkjum verða rýmkuð samkvæmt nýrri reglugerð félags- og tryggingamála­ráðherra.

Verðbólguhraðinn kominn niður í 6,3% og forsendur vaxta­lækkunar batna

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,51% frá janúar til febrúar samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Þetta þýðir að verðbólguhraðinn er 6,3% umreiknað til árshækkunar en var 7,1% í janúar og 19,9% í desember. Forsendur fyrir vaxta­lækkun eru því enn betri en áður.

Olíuverð fellur en kopar hækkar

Verð á olíu féll í kjölfar vísbendinga um að kreppan fari harðnandi í Asíu. Tölur sýna að innflutningur Japana á olíu í janúar dróst saman um 8% miðað við sama mánuð í fyrra, en Japan er í þriðja sæti þjóða heims sem nota mest af olíu. Kopar hækkaði hins vegar í verði.

Ríkis­stjórnin kúvendir í málum gegn breskum stjórnvöldum

Ríkis­stjórnin hefur ákveðið að falla frá hugsanlegri málssókn fyrir Mannréttindadómstól Evrópu á hendur breskum stjórnvöldum vegna beitingar hryðjuverkalaga. Þetta staðfestir Gylfi Magnússon viðskipta­ráðherra í viðtali við Financial Times.

Þýskur útflutningur og efnahagur í frjálsu falli

Mjög dró úr útflutningi frá Þýskalandi á síðasta fjórðungi liðins árs.Innflutningur varð og minni en búist hafði verið við. Reiknað er með 2,8% samdrætti þjóðar­framleiðslu í Þýskalandi í ár, sem er mesta fall frá seinni heimstyrjöldinni.

Einkahlutafélög þekktra manna með sérþjónustu í bönkunum

Hundruð einkahluta­félaga, sem m.a. eru í eigu þekktra manna í þjóðlífinu og stjórnmálum, fengu sérþjónustu í bönkunum, að því er Davíð Oddsson seðlabanka­stjóri segir. Rannsókn á þessum félögum hafi ekki farið fram, þrátt fyrir ábendingar.

Samfylking, VG og forseti sameinuðust í aðför að þingræðinu

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmála­ráðherra, segir að Samfylking, vinstri-græn og Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafi sameinast í aðför að þingræðinu til að verja fjölmiðla­veldi Baugs. Hann segir að hið sama hafi gerst með myndun minnihluta­stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.

Davíð benti efnahagsbrota­deild á viðskipti sjeiksins

Davíð Oddsson seðlabanka­stjóri skrifaði efnahagsbrota­deild ríkislögreglu­stjóra bréf 2. desember síðastliðinn þar sem hann vakti athygli á viðskiptum Al-Thani frá Katar með hluta­bréf í Kaupþingi og hundruð milljarða tilfærslur þeim tengdum.

XD: Sigríður Finsen stefnir á 5. sæti í Reykjavík

Sigríður Finsen hag­fræðingur gefur kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík. Undanfarið ár hefur Sigríður verið aðstoðar­maður Sturlu Böðvarssonar, þingmanns og fyrrverandi forseta Alþingis.

Fuglahvísl

Bankahrun með augum málsvara vegagerðar

G. Pétur Matthíasson er blaðafulltrúi vegagerðar ríkisins. Hann lætur sig þó einnig bankahrunið varða eins og Þórólfur, bróðir hans, sem er gjarnan kallaður til, þegar ríkisútvarpið þarf að fá nýja, svartsýna afstöðu frá hag­fræðingi við Háskóla Íslands.

Er Steingrímur J. icesave?

Þegar Steingrímur J. Sigfússon var í stjórnar­andstöðu átti hann ekki nógu sterk orð til að lýsa andstöðu sinni við stefnu ríkis­stjórnar­innar í Icesave málinu. Þá talaði hann um „nauðungarsamning“. Flokksbróðir hann á hins vegar að vinna í samræmi við stefnu fyrri ríkis­stjórnar.

Vinir verja Lesbókarmann

Smáfuglunum hefur þótt forvitnilegt að því að fylgjast með reiði póstmódernista og annarra menntamanna yfir því, að Þröstur Helgason hætti sem umsjónarmaður Lesbókar Morgunblaðsins. Látið er eins og þar hafi orðið meiriháttar menningarslys og þeir, sem hæst kveinka sér, eru auðvitað þeir, sem áttu innhlaup hjá Þresti.

Gylfi hopar frá Strassborg

Smáfuglarmir undrast, að Steingrímur J. Sigússon fjármála­ráðherra hafi samþykkt álvörðun Gylfa Magnússonar viðskipta­ráðherra, um að Ísland félli frá málaferlum fyrir mannréttindadómstóli Evrópu í Strassborg.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX