amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:02
 

Þriðjudagurinn 24. febrúar 2009

«
23. febrúar

24. febrúar 2009
»
25. febrúar
Fréttir

Svigrúm til vaxta­lækkana á Íslandi segir AGS

Yfirmaður sendi­nefndar Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins segir að svigrúm til vaxta­lækkana hér á landi sé að myndast. Krónan sýni meiri stöðugleika og verðbólga fari lækkandi. Vaxta­lækkun og afnám gjaldeyris­hafta í ákveðnum skrefum séu því framundan.

Fjármunir fluttir úr dóttur­félagi Kaupþings í Bretlandi

Davíð Oddsson segir að hugsanlega hafi það haft áhrif ákvörðun breskra yfirvalda að beita hryðjuverkalögum gegn Landsbankanum, að miklir fjármunir hefðu verið fluttir úr dóttur­félagi Kaupþings í London. Hér á hann líklega við Singer & Friedland, þó hann hafi ekki nefnt það.

Fyrsta útlánatap Eksportfinans frá upphafi vegna Glitnis

Norska fjármála­fyrirtækið Eksportfinans hefur lagt á afskriftarreikning 8,3 milljarða króna. Það er tilkomið vegna máls er snertir gamla Glitni og vanskil á þremur lánum þar sem Glitnir var milligönguaðili en skilaði ekki þótt lánin væru uppgreidd. Þetta er í fyrsta skipti sem fyrirtækið sýnir tap í 47 ára sögu þess.

Óli Björn Kárason býður sig fram í 4. sæti í Suðvestur­kjördæmi

Óli Björn Kárason blaðamaður hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Suðvestur­kjördæmi vegna komandi alþingis­kosninga. Hann óskar eftir stuðningi í 4. sæti. Óli Björn er annar rit­stjóra AMX.

XD: Guðrún Inga gefur kost á sér í fjórða sætið

Guðrún Inga Ingólfs­dóttir, hag­fræðingur, vill svara kalli um endurnýjun og gefur því kost á sér í fjórða sætið í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík. Hún er 36 ára Reykvíkingur með reynslu af félagsstörfum og pólitísku starfi innan Sjálfstæðis­flokksins.

Gunnar Örn formaður stjórnar Nýja Kaupþings

Á hluthafafundi Nýja Kaupþings var Gunnar Örn Kristjánsson kosinn formaður í stað Magnúsar Gunnarssonar og Ástríður Þórðar­dóttir kosin í vara­stjórn í stað Eiríks Jónssonar sem óskað hafði eftir að verða leystur frá störfum.

Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar

Ríkis­stjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, félags- og tryggingamála­ráðherra um breytingu á lögum um atvinnleysistryggingar.

Verðmat bankanna fyrir marslok

Deloitte LLP mun ljúka verðmati nýju íslensku bankanna í lok mars 2009. Í framhaldi af því mun Oliver Wyman skila skýrslu um framkvæmd verðmatsins, eigi síðar en 15. apríl.

Hvernig tölum við efnahagslífið niður?

Reynum að vanda okkur í yfirlýsingum. Vandræðin eru alveg næg þó svo við séum ekki að ýkja umfang þeirra, segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins. „Skaðinn er skeður, hreinsunarstörfin standa yfir og raunsætt mat skiptir meiru en svartnættisspár.“

Stjórnar­skrárbreytingar, stjórnlagaþing og persónukjör

Ríkis­stjórnin hefur samþykkt hugmyndir ráðgjafarhóps, sérstaks ráðgjafa og frumvörp sem á þeim eru byggð, er mæla fyrir um breytingar á stjórnar­skrá, breytingar á kosningalögum og kosningum til sérstaks stjórnlagaþings.

Krefja ESB um endur­greiðslu jöfnunargjalds á lax

Þrír útflytjendur laxaafurða í Noregi hafa höfðað mál á hendur framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins og krefjast þess að þeim verði endurgreiddar sem svarar 200 milljónum íslenskra króna vegna sérstaks jöfnunargjalds sem þeir þurftu að greiða.

Bernanke: Viðsnúningur getur orðið 2010

Ben Bernanke, seðlabanka­stjóri Bandaríkjanna, dró ekki úr vandamálum bandarísks efnahagslífs þegar hann ávarpaði öldunga­deild Bandaríkjaþings en sagði að bata mætti vænta þegar á næsta ári með réttum viðbrögðum.

Eiríkur Guðnason lýsir furðu sinni á vinnubrögðum forsætis­ráðherra

Eiríkur Guðnason seðlabanka­stjóri lýsir furðu sinni á vinnubrögðum og yfirlýsingum í sambandi við stjórnkerfisbreytingar á Seðlabankanum. Þetta gerir hann í bréfi til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra.

Kona í gæsluvarðhald vegna gruns um milligöngu vændis

Lög­regluembættin á höfuðborgar­svæðinu og Suðurnesjum hafa nú til rannsóknar mál þar sem grunur leikur á milligöngu um vændi. Þrítugt kona hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 27. febrúar í tengslum við rannsókn málsins.

Bandarískir neytendur aldrei svartsýnni

Það er ekki bara á Íslandi sem neytendur eru svartsýnir. Bandarískir neytendur hafa aldrei verið svartsýnni en nú en miðað er við mælingar sem ná aftur til ársins 1967.

Írland ýtir Íslandi úr botnsætinu

Eftir að efnahagsbólan í Írlandi sprakk leita Írar, einkum unga fólkið, úr landi. Írland er e.t.v. það land í Evrópu sem hefur orðið verst úti í kreppunni, segir Börsen og vitnar í Bloomberg fréttaveituna. Samkvæmt því er Írland að velta Íslandi úr botnsæti kreppuhrjáðra landa.

Davíð Oddsson í Kastljósi í kvöld

Davíð Oddsson seðlabanka­stjóri verður gestur Kastljóss Ríkissjónvarpsins í kvöld. Þetta kemur fram í frétt á Eyjunni. Síðast var Davíð í viðtali í Kastljósi 7. október í upphafi bankahrunsins.

XS: Magnús Orri Schram sækist eftir 3.-4. sæti í Suðvestur­kjördæmi

Magnús Orri Schram, sölu- og markaðs­stjóri útflutnings hjá Bláa Lóninu, býður sig fram í 3. til 4. sæti í prófkjöri Samfylkingar­innar í Suðvestur­kjördæmi í komandi alþingis­kosningum.

Fleiri gjaldmiðlar fallvaltir en krónan

Ýmsar þeirra mynta sem fylltu flokk hávaxta­mynta líkt og krónan og voru því vinsælar til vaxta­munarviðskipta hafa deilt örlögum hennar frá því fjármálakreppan brast á síðsumars árið 2007. Hefur krónan veikst tiltölulega lítið gagnvart sumum þeirra, segir Greining Íslandsbanka.

Svartsýnir neytendur

Væntingar íslenskra neytenda til efnahags- og atvinnuástandsins eru litlar um þessar mundir, samkvæmt væntingavísitölu Gallup. Vísitalan er álíka lág og hún hefur verið frá hruni bankanna, að því er fram kemur í samantekt Greiningar Íslandsbanka.

Svavar stýrir Icesave nefnd

Svavar Gestsson sendiherra verður formaður nýrrar samninga­nefndar um Icesave-skuldbindingarnar. Þá stýrir Jón Sigurðsson samninga­nefnd vegna þeirra lána sem Íslendingum hefur verið heitið frá nokkrum ríkjum.

Breytingar á útsvari og fasteignagjöldum 2009

Verðlags­eftirlit ASÍ hefur tekið saman upplýsingar um breytingar á útsvari og álagningu fasteignagjalda í 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins á árinu 2009. Þar má sjá breytingar milli ára á útsvari, fasteignagjöldum, holræsagjöldum og vatnsgjöldum.

Tvær bækur væntanlegar frá Condoleezza Rice

Condoleezza Rice, fyrrverandi utanríkis­ráðherra Bandaríkjanna, lætur sér ekki duga eina minningabók heldur sendir frá sér tvær. Minningabókar um ferillinn er að vænta árið 2011 og síðar má vænta bókar um uppvöxtinn i Alabama.

Illugi Gunnarsson í fyrsta sæti í Reykjavík

Illugi Gunnarsson, alþingis­maður hefur ákveðið að bjóða sig fram í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík vegna komandi kosninga. Þar með er ljóst að tveir sitjandi þingmenn munu berjast um forystusætið í Reykjavík.

Óbreyttir dráttarvextir en lægri vextir óverðtryggðra lána

Dráttarvextir haldast óbreyttir næsta mánuðinn, 25%, en vextir óverðtryggðra lána lækka úr 20 í 19% og skaðabótavextir verða 12,7% í stað 13,3%, að því er fram kemur í tilkynningu Seðlabankans.

Bílasala hrynur í Danmörku

Danir halda að sér höndum þegar kemur að bílakaupum. Í janúar síðastliðnum seldust helmingi færri bílar þar í landi en í sama mánuði í fyrra. Staðan er enn verri þegar kemur að vörubílum en þar nam sölusamdrátturinn 61%.

Mannfjölgun í öllum landshlutum nema Austurlandi

Árið 2008 fjölgaði íbúum í öllum landshlutum, að frátöldu Austurlandi. Þar fækkaði íbúum frá fyrra ári um 1.153. Landsmenn voru 319.368 hinn 1. janúar 2009, en voru 315.459 fyrir ári. Þetta jafngildir því að íbúum hafi fjölgað um 1,2% á einu ári

70 fyrirtæki gjaldþrota í janúar

Í janúar 2009 voru 70 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 41 fyrirtæki í janúar 2008, sem jafngildir tæplega 71% aukningu á milli ára.

For­stjóri nýrrar stofnunar

Ásta Ragnheiður Jóhannes­dóttir, félags- og tryggingamála­ráðherra, hefur ákveðið að skipa Huld Magnúsdóttur for­stjóra þjónustu- og þekkingar­miðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, til næstu fimm ára.

Seðlabanka­frumvarpið ekki afgreitt í dag

Viðskipta­nefnd tók ekki fyrir Seðlabanka­frumvarp Jóhönnnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra á fundi sínum í morgun. Frumvarpið er því enn til meðferðar í nefndinni sem á eftir að afgreiða það til þriðju og síðustu umræðu á Alþingi.

Milljarðar til eigenda Lego

Mikill uppgangur hefur verið hjá danska leikfangafram-leiðandanum Lego. Mikill vöxtur hefur verið í rekstri félagsins undanfarin ár og öll met voru slegin á liðnu ári. Leikfangarisinn færir eigendum sínum milljarða í arð.

Seðlabanka­frumvarpið á dagskrá þingsins í dag

Seðlabanka­frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra er á dagskrá þingsins í dag. Enginn þingfundur var í gær eftir að ljóst var að meirihluti viðskipta­nefndar vildi ekki afgreiða frumvarpið fyrr en skýrsla Evrópu­sambandsins um lagaumhverfi á fjármála­markaði verður birt.

Gríðarlegt átak nauðsynlegt í orkumálum heimsins

Gríðarlegt átak þarf í orkumálum heimsins til að ná niður útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, fjallaði um vandann sem við blasir á aðalfundi Samorku.

Hluta­bréf í Asíu ekki lægri í rúm fimm ár

Hluta­bréf á mörkuðum í Asíu féllu í verði og helstu vísitölur hafa ekki verið lægri í fimm ár. Verðlækkunin kemur í kjölfar mikillar lækkunar í Bandaríkjunum í gær.

Fuglahvísl

Passíusálmarnir fyrir íhaldið en ekki vinstri græna

Smugan, vefrit Vinstri grænna, er fremur óhress með ráðherra sína eftir örfáa daga á valdastólum. Finnst þeir farir að tileinka sér um of borgaralega siði, líkt og að fara í kirkju og lesa upp sálma. Smugan telur að ráðherrarnir eigi að fara í kröfugöngur og mæta á mótmæli.

Ingimundur til norska seðlabankans

Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabanka­stjóri, ætlar ekki að sitja lengi auðum höndum. Eftir ítrekaðar tilraunir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra að losna við seðlabanka­stjóra, var Ingimundi nóg boðið og ákvað að taka hatt sinn og staf. Maðurinn sem forsætis­ráðherra treystir ekki nýtur hins vegar virðingar og trausts í öðrum löndum.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX