amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:23
 

Mánudagurinn 23. febrúar 2009

«
22. febrúar

23. febrúar 2009
»
24. febrúar
Fréttir

Hluta­bréf snarlækka í verði á Wall Street - vísitölur ekki lægri í 12 ár

Hluta­bréf tóku dýfu á bandarískum hluta­bréfamörkuðum í dag. Dow Jones iðnaðarvísitalan lækkaði um 3,4% og hefur gildi hennar ekki verið lægra frá 7. maí 1997. Hluta­bréf 28 af 30 fyrirtækjum sem mynda vísitöluna lækkuðu í verði.

Framsókn vill afskrifa 20% húsnæðislána

Framsóknar­menn leggja til að öll húsnæðislán einstaklinga verði flutt til Íbúðalána­sjóðs, sem afskrifi 20% allra lána. Það sama á við um fyrirtæki, Framsóknar­menn vilja afskrifa fimmtung lána þeirra, segir í frétt Ríkisútvarpsins.

Citigroup óskar enn meiri aðstoðar

Bandaríski stórbankinn Citigroup hefur þegar fengið 45 milljarða dollara frá bandaríska ríkinu en það virðist ekki hafa dugað til að halda lífinu í bankanum. Hann þarf meira. Stjórnvöld ætla að meta stöðu 20 stærstu bankanna. Tímabundin þjóðnýting hefur komið til tals.

Nýtt viðskiptasetur í Lækjargötu

Frumkvöðlar kynna viðskiptahugmyndir sínar við opnun Kvosarinnar – viðskiptaseturs á morgun 24. febrúar í húsnæði Íslandsbanka við Lækjargötu.

Spáir því að olíuverðið fari niður undir 30 dollara á tunnu

Eftirspurn eftir olíu minnkar svo hratt að OPEC, samtök olíuframleiðsluríkja, ná ekki að halda uppi verðinu. Norskur sér­fræðingur spáir því að verðið geti farið niður undir 30 dollara á tunnu. Hann segir að Norðmenn eigi að draga úr framleiðslu eins og OPEC.

Kínverjar óttast verðhjöðnun

Kínverska efnahagshraðlestin var á fullri ferð þar til alþjóðlega fjármálakreppan skall á. Hún hefur leitt af sér mjög mikinn samdrátt í eftirspurn. Kínverski seðlabankinn varaði við því í dag að hætta væri á verðhjöðnun.

Áhugi fyrir löngum ríkis­bréfum

Fjárfestar virðast áhugasamir um löng óverðtryggð ríkisskulda­bréf. Viðtökur í ríkis­bréfaútboði Seðlabankans á föstudag sýna það. Athygli vekur að Seðlabankinn seldi meira af lengsta flokknum en þeim næstlengsta, segir Greining Íslandsbanka.

„Rauður“ þorskur veldur misskilningi

Sú ákvörðun World Wildlife Fund, WWF, að halda Norðursjávar­þorski á svokölluðum „rauðum lista“ hefur valdið misskilningi á meðal kaupenda sjávar­afurða, neytenda og stjórnmálamanna.

Úrskurðaður í farbann vegna fíkniefnamáls

Pólverji sem hefur verið búsettur hér um skeið hefur verið úrskurðaður í farbann. Hann er grunaður um aðild að innflutningi fíkniefna.

Fósturvísa má geyma í tíu ár

Geymslutími fósturvísa er tvöfaldaður samkvæmt reglugerð um tæknifrjóvgun. Hann verður tíu ár í stað fimm, eins og áður var ákveðið í reglugerð sem felld hefur verið úr gildi.

Bretar verða að láta seðlaprentvélarnar ganga

Best er að takast á við kreppuna í Bretlandi með því að auka peningamagn í umferð og auka með þeim hætti verðbólgu. Þetta er mat helstu breskra hag­fræðinga. Þeir segja að auka eigi peningamagnið um allt að 1,5% á mánuði næstu mánuðina. Englandsbanki verður því að láta seðlaprentsmiðjuna ganga.

Sobiecki handtekinn í Póllandi

Robert Dariusz Sobiecki, sem lög­reglan á höfuðborgar­svæðinu lýsti eftir í desember, hefur verið handtekinn í Póllandi. Unnið er að því að hann afpláni refsingu sína þar ytra.

Evrunni ógnað af 2300 milljarða dollara stórskuld

Sannkallað skuldafjall, sem nemur 2300 milljörðum dollara, ógnar evrunni. Seðlabanki Evrópu verður annað hvort að dæla peningum inn í haltrandi hagkerfi álfunnar eða halda í þýskar dyggðir og aga í fjármálum.

Alls gefa 32 kost á sér í forvali VG í Reykjavíkurkjördæmunum

Alls gefa 32 kost á sér í forvali VG í Reykjavíkur-kjördæmunum tveimur fyrir alþingis­kosningarnar í vor. Forvalið fer fram 7. mars næstkomandi.

Fiskimála­stjóri ESB: Ofveiði verður að linna

Joe Borg, fiskimála­stjóri ESB, er þungorður í garð sameiginlegrar sjávar­útvegs­stefnu sambandsins og segir að ofveiði verði að linna, allt of margir séu að eltast við allt of lítið magn af fiski. Reksturinn sé óarðbær sem bitni á sjómönnum og afkomu strandbyggða.

Klofningur í Framsókn vegna frumvarps um Seðlabankann

Framsóknar­flokkurinn klofnaði í viðskipta­nefnd Alþingis í morgun þegar Sjálfstæðis­menn lögðu til að fresta afgreiðslu frumvarps um Seðlabankann. Annar fulltrúi Framsóknar­flokksins myndaði meirihluta í nefndinni með fulltrúum Sjálfstæðis­flokksins, að því er fram kom í frétt Ríkisútvarpsins.

XD: Endurreisnar­nefnd óskar eftir tillögum og hugmyndum

Endurreisnar­nefnd Sjálfstæðis­flokksins hefur verið að störfum í um þrjár vikur en nefndinni er ætlað að leggja fram hugmyndir og tillögur fyrir flokkinn í því mikla starfi sem framundan er við að byggja upp efnahag landsins og atvinnulíf.

Um fjórðungur ráðstöfunartekna í afborganir og vexti

Reikna má með því að tæplega fjórðungur af ráðstöfunartekjum heimilanna hafi á síðasta ári farið í afborganir og vextir af lánum. Hefur hlutfall þetta hækkað á síðustu þremur árum vegna aukinnar skuldsetningar og hærri vaxta, segir Greining Íslandsbanka.

Hægir á launahækkunum

Laun hækkuðu um 0,6% í janúar og er hækkunin m.a. tilkomin vegna kjarasamninga grunnskóla­kennara auk þess sem áhrifa kjarasamninga Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja gætir enn. Þetta er engu að síður mun minni hækkun launa en venjulega sést á þessum árstíma, segir Greining Íslandsbanka.

Bagger ætlar að skrifa bók um fjársvikaferilinn

Danski fjársvikarinn Stein Bagger ætlar að skrifa bók og greina þar frá því hvernig hann stóð að mestu fjársvikum í sögu Danmerkur. Eiginkona hans hefur farið á milli útgefenda en enn hefur ekkert danskt forlag slegið til því verðið sem hjónin setja upp þykir hátt.

Sextán takast á um sæti á lista Framsóknar í NA-kjördæmi

Sextán frambjóðendur hafa gáfu kost á sér til framboðs í kjör um 8 efstu sæti framboðslista Framsóknar­flokksins í Norðaustur­kjördæmi vegna alþingis­kosninganna 25. apríl 2009.

Fionia Bank fær danska ríkisaðstoð

Danski bankinn Fionia Bank fær einn milljarð danskra króna, eða sem svarar 19,3 milljörðum íslenskra króna, í aðstoð. Fjármagnið kemur frá sjóði sem settur var á laggirnar síðastliðið haust til aðstoðar dönskum fjármálafyrirtækjum.

Tugir umsókna um tvær skrifstofu­stjórastöður

Fjöldi umsókna um tvær skrifstofu­stjórastöður í samgöngu­ráðuneytingu segja nokkra sögu um atvinnuástandið hér á landi. Tugir manna sóttu um stöðurnar tvær, en allmargir um báðar. Nafnalisti umsækjenda birtist hér.

Örlítil batamerki

Tækifæri kunna að vera myndast á hlutabréfa­markaði og athugandi að taka þar örlitla áhættu, án þess þó að spenna bogann um of, segir danskur hlutabréfasér­fræðingur. Merki eru um það að botninum kunni að vera náð í Bandaríkunum.

XD: Ingigerður sækist eftir 5. sæti í Suður­kjördæmi

Ingigerður Sæmunds­dóttir gefur kost á sér í prófkjör sjálfstæðis­manna í Suður­kjördæmi 14.mars. Hún sækist eftir 5. sæti á framboðslistanum.

Cosser segist vera með hæsta tilboðið í Árvakur

Steve Cosser segir að sinn skilningur sé sá að tilboð hans í Árvakur, útgáfu­félag Morgunblaðsins sé hæst. Þrjú formleg tilboð bárust í Árvakur fyrir helgina en Íslandsbanki hafnaði tilboði Almenningshluta­félags um Morgunblaðið undir forystu Vilhjálms Bjarnasonar.

Íslandsbanki frestar endurskoðun á vaxta­álagi erlendra húsnæðislána

Íslandsbanki hefur ákveðið að fresta endurskoðun á vaxta­álagi erlendra húsnæðislána um eitt ár, fram til 1. mars 2010. Nú eru liðin fimm ár frá því að bankinn hóf að veita húsnæðislán í erlendri mynt.

Viltu vinna milljarð besta myndin

Viltu vinna milljarð eða Slumdog Millionaire var valin besta kvikmyndin á Óskarsverðlauna­hátíðinni sem fór fram í nótt. Myndin var til­nefnd til tíu verðlauna og hlaut átta m.a. fyrir bestu leik­stjórn, handrit og myndatöku.

Fuglahvísl

Álfheiður í felum

Þegar rætt var um seðlabanka­frumvarpið á þingi föstudaginn 20. febrúar, áttu stjórnar­þingmenn með Jóhönnu Sigurðardóttur í broddi fylkingar ekki nógu sterk orð til að hæla Álfheiði Ingadóttur fyrir frækilega framgöngu hennar sem formanns viðskipta­nefndar.

RÚV óánægðara en Jóhanna

Smáfuglunum finnst merkilegt að fylgjast með því, hvernig fréttastofa Ríkisútvarpsins segir frá því, að meirihluti viðskipta­nefndar vill fá sem gleggstar upplýsingar um hugmyndir Evrópu­sambandsins um starfsumhverfi seðlabanka.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX