amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:08
 

Laugardagurinn 21. febrúar 2009

«
20. febrúar

21. febrúar 2009
»
22. febrúar
Fréttir

Hópmálsókn gegn gömlu bönkunum

Verið er að undirbúa hópmálsókn á hendur gölmu bönkunum. Lögmenn Laugardal hafa frá því í nóvember undirbúið málið fyrir hönd hóps einstaklinga, sem eru illa staddir vegna skulda í kjölfar verðbólgu og gengishruns. Í frétt Vísis.is kemur fram að málið verði stótt á grundvelli þess að bankarnir hafi markvisst valdið viðskiptavinum sínum tjóni með því að fella krónuna.

Hvað ef við hefðum haft evru?

Heimssýn, hreyfing sjálfstæðis­sinna í Evrópu­málum, boðar til almenns fundar nk. sunnudag 22. febrúar á Kaffi Rót Austurstræti 17, 101 Reykjavík, kl. 14:00. Frummælandi á fundinum verður Egill Jóhannsson, for­stjóri Brimborgar.

Forval VG í Suðvestur­kjördæmi verður 14. mars

Kjör­stjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Suðvestur­kjördæmi ákvað á fundi sínum þann 21. febrúar 2009 að kjörfundur vegna forvals verði laugardaginn 14. mars 2009 enekki dagana 5. og 6. mars eins og áður hefur verið auglýst.

XD: Gréta Ingþórs­dóttir sækist eftir 4-5. sæti í Reykjavík

Gréta Ingþórs­dóttir gefur kost á sér í 4.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík vegna alþingis­kosninganna í apríl.

Örfáir á Austurvelli

Fámennt var á tuttugasta útifundi Radda fólksins, sem Hörður Torfason er í forsvari fyrir. Talið er að aðeins 200 manns hafi mætt á fundinn sem bar yfirskriftina Breiðfylking gegn ástandinu.

XD: Birgitta Jóns­dóttir í prófkjör í Suður­kjördæmi

Birgitta Jóns­dóttir Klasen, náttúrulæknir, gefur kost á sér í 3.-4. sæti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi í prófkjöri sem fram fer 14.mars næstkomandi.

Gamli Landsbankinn afskrifar 1.452 milljarða

Gamli Landsbankinn þarf að afskrifa 1.452 milljarða króna að lokinni skuldajöfnun. Þetta er mun meiri afskrift en hjá gamla Kaupþingi sem metur þörfina vera 954 milljarða en efnahagur Kaupþings mun mun stærri en Landsbankans.

Illugi með meiri stuðning í 1. sæti í Reykjavík en Guðlaugur Þór

Illlugi Gunnarsson nýtur töluvert meiri stuðnings í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðis­flokksins en Guðlaugur Þór Þórðarson. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir stuðningsmenn Illuga.

Fuglahvísl

Samfylkingin ræðst á Sigmund Davíð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. formaður Framsóknar­flokksins, segir í viðtali við Fréttablaðið laugardaginn 21. febrúar, að Samfylkingin hafi skipulagt neikvæða netumræðu um sig og fjármál konu sinnar. Andrés Jónsson, samviska Samfylkingar­innar í netheimum, bregst illa við þessum orðum.

Ígripa pólitíkusinn Jón Baldvin

Smáfuglarnir hafa yfirleitt talið viðtöl Kolbrúnar Bergþórsdóttur með besta efni sem birtist í Morgunblaðinu. Viðtal hennar við Jón Baldvin er fyrir margra hluta merkilegt þó fátt hafi komið þar nýtt fram. Gamli maðurinn er beinskeittur en hittir ekki alltaf í mark.

Egill Helgason með Guðlaugi Þór?

Smáfuglunum er ljóst, að Egill Helgason hefur eigið „agenda“ í stjórnmálum, svo að notað sé útlent orð til að fara sem mildustum orðum um hinn óhlutdræga álitsgjafa. Með þetta í huga reyndu smáfuglarnir að lesa á milli línanna í eftirfarandi álitsgjöf Egil.

Framboðskynning í Speglinum

Nú þegar dregur nær prófkjörum flokkanna, í aðdraganda kosninga, leita frambjóðendur allra leiða til að kynna sig. Sumir frambjóðendur eiga góða vini á fjölmiðlum sem nýtast vel við PR-störfin sem eru hverjum stjórnmálamanni nauðsynleg.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX