amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:09
 

Föstudagurinn 20. febrúar 2009

«
19. febrúar

20. febrúar 2009
»
21. febrúar
Fréttir

Sigurður Kári stefnir að 2.-3. sæti í Reykjavík

Sigurður Kári Kristjánsson, alþingis­maður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík sem haldið verður dagana 13. og 14. mars næstkomandi vegna komandi Alþingis­kosninga. Sigurður Kári sækist eftir forustusæti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík.

Icelandair tapaði 7,5 milljörðum króna á síðasta ári

Icelandair Group tapaði 7,5 milljörðum króna á liðnu ári eftir skatta. Þetta eru veruleg umskipti frá árinu á undan þegar hagnaður félagsins nam 300 milljónum króna. Allt tapið má rekja til fjórða ársfjórðungs en þá tapaði félagið 10,6 milljörðum króna.

SS tapaði 1.550 milljónum króna á síðasta ári

Tap samstæðu Slátur­félags Suðurlands á árinu 2008 var 1.555,0 milljónir króna. Árið áður var 132,7 milljóna hagnaður. Neikvæð breyting í afkomu milli ára stafar fyrst og fremst af gengistapi erlendra lána samstæðunnar og háu vaxta­stigi, segir í frétt frá félaginu.

Guðlaugur Þór býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík

Guðlaugur Þór Þórðarson hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík sem fram fer dagana 13. og 14. mars næstkomandi.

Bandaríkin á mörkum verðhjöðnunar

Verðbólga í Bandaríkjunum hefur ekki verið minni í hálfa öld sé mið tekið af þróuninni frá desember til janúar. Bandaríkin sluppu að þessu sinni naumlega við verðhjöðnun.

Ný stjórn Íslandsbanka

Ný stjórn Íslandsbanka, áður Glitnis, var skipuð á hluthafafundi bankans í dag.

Frumdrög að frumvarpi til stjórnar­skipunarlaga

Ráðgjafahópur skipaður af forsætis­ráðherra hefur gert frumdrög að frumvarpi til stjórnar­skipunarlaga sem meðal annars tekur til stjórnlagaþings. Frumvarpið hefur verið sent til formanna þing­flokka.

Versta efnahagskerfi í heimi rétt hjálparhönd

Seðlabanka­stjóri Zimbabwe flutti þau gleðitíðindi í dag að hópur fjárfesta myndi lána hinu hrjáða landi 500 milljónir Bandaríkjadollara. Í júlí náði verðbólga þar 231 milljón prósent og í nóvember fjórfaldaðist verð á hverjum degi. Tólf núll voru skorin af Zimbabwedollar nú í febrúar.

Landsbankinn veitir afslátt af upp­greiðslugjaldi íbúðalána

Vegna breyttra aðstæðna í þjóð­félaginu vill Landsbankinn veita viðskiptavinum betra svigrúm til að greiða upp skuldir og hefur ákveðið að veita tímabundið afslátt af upp­greiðslugjaldi vegna íbúðalána bankans og innborgunar á höfuðstól.

Anna Pála í prófkjör Samfylkingar í Reykjavík

Anna Pála Sverris­dóttir lög­fræðingur hefur ákveðið að sækjast eftir fimmta sæti í prófkjör Samfylkingar­innar í Reykjavík. Hún er formaður Ungra jafnaðarmanna og var oddviti Röskvu í Háskóla Íslands.

Þrír buðu í Moggann

Þrjú tilboð bárust í Árvakur, Útgáfu­félag Morgunblaðsins. Þeir sem buðu eru Óskar Magnússon, Almenningshluta­félag um Morgunblaðið og ástralski fjárfestirinn Steve Cosser.

Forsætis­ráðherra Lettlands segir af sér

Forsætis­ráðherra Lettlands, Ivar Godmanis, hefur sagt af sér. Ríkis­stjórnin hefur verið óvinsæl og það hefur verið krafa tveggja af fjórum stjórnar­flokkum að Godmanis segði af sér. Pólitíska kreppan skellur á Lettlandi um leið og efnahagskreppan sem leikur landið grátt.

Ingi Björn aftur í slaginn

Ingi Björn Albertsson, fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram til Alþingis á nýjan leik en hann sat í átta ár þingi frá 1987 til 1995.

Óskýrður launamunur kynja mælist 7%

Ný rannsókn sem byggir á upplýsingum úr launabókhaldi 37 fyrirtækja og nær til rúmlega sex þúsund starfsmanna sýnir að konur sem könnunin náði til voru með rúmlega 7% lægri laun en karlar. Í sambærilegri könnun árið 2006 reyndist óskýrður launamunur kynja 12%.

Raunlækkun orkuverðs til fjölda ára

Verð á raforku til almennra notenda er lægra hérlendis en í helstu samanburðar­löndum og hefur lengi verið. Verðið hefur farið lækkandi á heitu vatni og raforku, að teknu tilliti til verðlags­þróunar, segir í ályktun aðalfundar Samoku.

Íslandsbanki: Aukið gagnsæi og úrlausnir fyrir viðskiptavini

Íslandsbanki tekur við af Nýja Glitni á þriðjudaginn. Í tilkynningu hans er farið yfir helstu verkefni hins nýja banka sem varð til eftir bankahrunið, þá 129 daga sem liðnir eru frá stofnun hans en óhætt er að segja að þeir hafi einkennst af breytingum og óvissu í íslensku efnahagslífi.

Telur að 72 milljarðar falli á Ísland vegna Icesave

Lárus Finnbogason, formaður skila­nefndar Landsbankans, sagði á kynningarfundi með kröfuhöfum gamla Landsbankans að líklegt væri að 72 milljarðar króna féllu á Ísland vegna Icesave reikninganna í Bretlandi, að því er Vísir greinir frá.

Íslandsbanki tekur við af Nýja Glitni á þriðjudaginn

Nafni Nýja Glitnis hefur verið breytt í Íslandsbanki hf. Nafnaskiptin verða formlega á þriðjudaginn.

Gjaldþrotahrina - aðstæður í atvinnulífi með versta móti

Ekki kemur á óvart að gjaldþrotum fyrirtækja hafi fjölgað á undanförnu ári enda eru allar aðstæður í íslensku atvinnulífi nú með versta móti. Aðgengi að fjármagni hefur snarminnkað, vextir eru háir og höft á fjármagnsflutningum eru við lýði.

Lítill hvati til húsbygginga

Hvati til húsbygginga minnkar stöðugt enda eftir litlu að slægjast þegar söluverð íbúðar­húsnæðis er ekki líklegt til að skila hagnaði af byggingu þess, segir Greining Glitnis.

Mörg alþjóða­fyrirtæki skera niður í Kína

Meira en fjórðungur allra alþjóða­fyrirtækja sem hafa komið sér fyrir í Kína í gríðarlegum uppvexti undanfarinna ára grípur nú til niðurskurðar og uppsagna starfsmanna. Tíðindin eru ekki góð fyrir kínversk yfirvöld sem óttast óróa í landinu vegna ástandsins.

Gengistryggðu íbúðalánin fryst áfram

Ríkis­stjórnin ræddi frystingu gengistryggðra íbúðar­lána á fundi sínum í morgun. Bjóða á fólki að frysta lánin áfram hjá ríkisbönkunum meðan unnið er að varanlegri lausn.

Framkvæmda­stjóri Byrs verð­bréfa lætur af störfum

Samkomulag hefur orðið um að Ingólfur V. Guðmundsson, framkvæmda­stjóri Byrs verð­bréfa, láti af störfum hjá fyrirtækinu frá og með deginum í dag. Samkomulagið er gert í fullri sátt á milli aðila.

Afleiðingar finnsku kreppunnar

Mánudaginn 23. febrúar mun finnski þjóð­félags­fræðingurinn Veli-Matti Ritakallio flytja erindi um þjóð­félagsleg áhrif þeirrar efnahagskreppu sem Finnar gengu í gegnum frá 1991-4. Fyrirlesturinn er á vegum Þjóðmála­stofnunar Háskóla Íslands

Pólska ríkis­stjórnin í stríð við seðlabanka­stjórann

Pólska ríkis­stjórnin í stríð við seðlabankann. Eitthvað hljómar það kunnuglega. Vígvöllurinn er víðar en á Arnarhóli. Gengi pólska zlotysins fellur. Ríkis­stjórnin vill tengja það við evru en seðlabanka­stjórinn, kunnur evrus­andstæðingur, stendur þver á móti.

Smásala jókst óvænt í Bretlandi

Smásala jókst óvænt í janúar í Bretlandi. Aukningin var 0,7% miðað við desember og 3,6% miðað við janúar árið á undan. Sér­fræðingar reiknuðu með samdrætti milli mánaða. Fyrirtæki í íslenskri eigu eru áberandi í smásölu í Bretlandi.

Fyrirætlanir skila­nefndar um kaup kröfuhafa á Nýja Kaupþingi

Skila­nefnd Kaupþings kynnir Gylfa Magnússyni viðskipta­ráðherra í dag fyrirætlanir og gang viðræðna við kröfuhafa bankans um að þeir kaupi Nýja Kaupþing, að því er Fréttablaðið greinir frá.

„Evrópu­sambandið getur breytt löggjöf á sviði fiskimála að vild“

„Evrópu­sambandið getur breytt löggjöf á sviði fiskimála að vild með auknum meirihluta,“ segir Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands.

Skip verða rifin í ár sem aldrei fyrr

Stærsti kaupandi skipa til niðurrifs, indverska félagið GMS, býst við því að fá um 1000 skip sem sigla sína síðustu ferð á þessu ári. Það er metfjöldi. Skipafélög stríða við aukinn vanda en um leið blómstra brotajárnsfélögin.

Í fyrra voru 748 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta

Árið 2008 voru 748 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem er 18% meira en árið 2007 þegar 633 fyrirtæki voru úrskurðuð gjaldþrota.

Hækkun byggingarvísitölu

Vísitala byggingarkostnaðar hækkar um 0,5% frá fyrra mánuði. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 27,6%.

Talsvert tap á Norwegian Air á síðasta árfjórðungi

Norska lágfargjaldaflug­félagið Norwegian Air Shuttle var rekið með talsverðu tapi á síðasta ársfjórðungi, Tapið á fjórðungnum nam 2,8 milljörðum íslenskra króna. Norwegian tók við mörgum flugleiðum Sterling eftir gjaldþrot þess í haust.

Saab í greiðslustöðvun

Sænski bílaframleiðandinn Saab fékk í morgun heimild til greiðslustöðvunar. Rekstri félagsins verður þó haldið áfram. General Motors, eigandi Saab, er tilbúið að leggja í það fjármagn komi enn meira frá sænska ríkinu. Sér­fræðingar eru efins um að það dugi til.

Færeyska flug­félagið Atlantic Airways rekið með hagnaði

Hóf er best í öllu. Það sést best á rekstri færeyska flug­félagsins Atlantic Airways, sem m.a. heldur uppi áætlunarflugi til Íslands. Þetta litla flug­félag skilaði hagnaði á síðasta ári, sem er meira en segja má um margan flugrisann.

Fimm fjórhjólum stolið í Grindavík

Brotist var inn í fjórhjólaleigu í Grindavík og þaðan var fimm fjórhjólum stolið, auk fjölmargra fylgihluta.

Verðmunur milli verslana oft gríðarlegur

Það er nauðsynlegt fyrir almenning að fylgjast vel með verðlagi á þessum umbrotatímum, það sýnir ný verðkönnun ASÍ í matvöru­verslunum. Verðmunur getur jafnvel numið hundruðum prósenta.

Fuglahvísl

Össur: Næst eru það kafbátarnir!

Hafi Jóhanna og félagar skekið Ísland undanfarna daga, virðist nú ætlunin að fara að skekja allan heiminn með markvissum málflutningi um friðlýsingu N-Atlantshafs og allra heimshafanna. Það er stóra utanríkis­málið, sem sameinar stjórnar­flokkanna og ýtir umræðum um Evrópu­sambandið sjálfkrafa til hliðar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX