amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:00
 

Fimmtudagurinn 19. febrúar 2009

«
18. febrúar

19. febrúar 2009
»
20. febrúar
Fréttir

Stýrihópur um velferðarvakt skipaður

Félags- og tryggingamála­ráðherra, Ásta R. Jóhannes­dóttir, hefur í samræmi við samþykkt ríkis­stjórnar­innar skipað fimmtán manna stýrihóp um velferðarvakt sem ætlað er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga.

Vilja rafstreng héðan til Færeyja

Miklar umræður eru nú um orkumál í Færeyjum þar sem eru uppi hugmyndir um að fá raforku frá Íslandi um neðansjávar­streng. Næstum öll raforka sem notuð er í eyjunum kemur frá orkuverum sem knúin eru með olíu, að því er fram kom í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Þýskt stór­fyrirtæki kaupir helmingshlut í Creditinfo

Þýskt stór­fyrirtæki hefur keypt helmingshlut í erlendri starfsemi Creditinfo Group fyrir 2 til 3 milljarða króna, að því er fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Sigmundur Davíð býður sig fram í Reykjavíkur­kjördæmi norður

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar­flokksins, hefur ákveðið að bjóða sig fram fyrir hönd flokksins í Reykjavíkur­kjördæmi norður.

Kaupþing yfirtekur Pennann

Innlend starfsemi Pennans verður á næstu dögum færð undir stjórn Kaupþings, náist samkomulag við hluthafa. Stefnt er að því að selja erlendar eignir fyrirtækisins, sagði í frétt Ríkisútvarpsins. Verslunum Habitat og Salt­félagsins sem eru í eigu Pennans, hefur verið þegar verið lokað.

Olíuverð tók stökk upp á við

Minni olíubirgðir í Bandaríkjunum en ætlað var urðu til þess að olíuverð hækkaði umtalsvert í dag. Olíuverðið hækkaði um 2 dollara á tunnu af amerískri hráolíu og nálægt því eins mikið á Norðursjávar­olíu.

Lúðvík Bergvinsson hættir á þingi

Lúðvík Bergvinsson, þing­flokksformaður Samfylkingar­innar, gefur ekki kost á sér til endurkjörs í þingkosningunum í vor. Lúðvík hefur setið á Alþingi frá árinu 1995.

Skrúfað fyrir útlán hjá Citibank

Gjaldþrotabjöllurnar klingja hjá bandaríska stórbankanum Citibank sem nú hefur stöðvað útlán, segir danska viðskiptablaðið Börsen. Þar segir að dóttur­félagið Citibank í Danmörku rambi á barmi gjaldþrots, ekki síður en móður­félagið.

Pétur H. Blöndal sækist eftir 2. sæti hjá sjálfstæðis­mönnum í Reykjavík

Pétur H. Blöndal, alþingis­maður, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins fyrir komandi kosningar. Hann sækist eftir 2. sæti í prófkjörinu.

Fall bankakerfisins skýrir verri afkomu ríkis­sjóðs

Greiðsluuppgjör ríkis­sjóðs fyrir árið 2008 liggur nú fyrir. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 12,3 milljarða króna innan ársins, sem er 73,3 milljörðum verri útkoma en á árinu 2007. Hreinn lánsfjárjöfnuður er neikvæður um 398,4 milljarða króna, sem er 396,3 milljörðum króna lakari útkoma en árið áður og skýrist að mestu af aðgerðum vegna falls bankakerfisins.

Ungverjaland og Pólland ekki reiðubúin í undirbúningsferli evru

Hvorki seðlabankar Ungverjalands né Póllands mæla með því að ríkin tvö fari inn í ERM II, undirbúningsferli fyrir upptöku evru, fyrr en ljóst sé að skilyrðum þess að taka upp evruna verði mætt.

Frjálshyggju­félagið fagnar andláti nýfrjáls­hyggjunnar

Frjálshyggju­félagið fagnar andláti hinnar svokölluðu nýfrjáls­hyggju. Nýfrjáls­hyggjan fólst m.a. annars í aukinni ríki­svæðingu, ríkisábyrgðum og auknum opinberum afskiptum á flestum sviðum, segir m.a. í ályktun aðalfundar Frjálshyggju­félagsins.

Netprófkjör og fléttulisti Samfylkingar­innar í Kraganum

Samfylkingin í Suðvestur­kjördæmi mun velja í 5 efstu sætin á framboðslista flokksins í komandi alþingis­kosningum með netprófkjöri. Við uppröðun á listann verði fylgt svokölluðum fléttulista. Fimm efstu sætin í prófkjörinu eru bindandi með fyrirvara um uppröðun samkvæmt fléttulista.

St. Jósef­spítali samhæfður starfsemi Land­spítala

Ögmundur Jónasson heilbrigðis­ráðherra hefur ákveðið að samhæfa starfsemi St. Jósefs­spítala og Land­spítala. Við útfærsluna skal m.a. taka tillit til stöðu St. Jósefs­spítala í hafnfirsku nærsam­félagi.

Áfram verður haldið með Tónlistarhúsið

Katrín Jakobs­dóttir, menntamála­ráðherra og Hanna Birna Kristjáns­dóttir borgar­stjóri, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framkvæmdir við Tónlistarhús og ráðstefnu­miðstöð við Austurhöfnina í Reykjavík. Ríki og borg eru sammála mikilvægi þess að halda framkvæmdum áfram.

Tryggvi Þór vill í 2. sæti Sjálfstæðis­flokksins í NA-kjördæmi

Tryggvi Þór Herbertsson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík og fyrrum efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde, gefur kost á sér í 2. sætið á lista Sjálfstæðis­flokksins í Norðaustur­kjördæmi.

Verðlækkun á skuldabréfa­markaði

Töluverð verðlækkun varð á skuldabréfa­markaði í gær, á verðtryggðum jafnt sem óverðtryggðum skulda­bréfum. Á óverðtryggðum markaði má líta á hreyfingu gærdagsins sem leiðréttingu eftir myndarlega kröfulækkun flestra flokka ríkis­bréfa (og þar með verðhækkun) frá áramótum, segir Greining Glitnis.

Stöndumst við próf Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins?

Sendi­nefnd frá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum undir forystu Poul Thomsens mun koma í næstu viku til Íslands. Tilgangur heimsóknarinnar er að kanna hvort framvinda efnahagsmála hér fullnægi þeim skilyrðum sem sett voru fyrir 2,1 milljarðs Bandaríkjadala lánveitingu sjóðsins til landsins.

Málsverður SUS í opinberu boði ekki einsdæmi

Samband ungra sjálfstæðis­manna hefur áður þegið mat og drykk úr opinberum sjóðum. Þing SUS sem haldið var á Seyðisfirði árið 2007 í formannstíð Borgars Þórs Einarssonar innihélt þannig tvær móttökur á kostnað skattgreiðenda. Aðra hjá Seyðisfjarðarbæ og hina hjá Rafmagnsveitu ríkisins.

Gefur kost á sér í 1.-3. sæti í forvali VG í Reykjavík

Anna Ólafs­dóttir Björnsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1.-3. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík sem fram fer 7. mars.

Gert ráð fyrir aðstoðar­seðlabanka­stjóra

Viðskipta­nefnd Alþingis hefur lokið umfjöllun sinni um seðlabanka­frumvarpið. Veigamesta breytingin í meðförum nefndarinnar er að auglýst og skipað verður í stöðu aðstoðar­banka­stjóra.

Ögmundur hættir við sameiningu heilbrigðis­stofnana fyrir norðan

Ögmundur Jónasson heilbrigðis­ráðherra hefur slegið út af borðinu áform fyrirrennara síns um sameiningu heilbrigðis­stofnana á Norðurlandi undir eina yfir­stjórn, að því er fram kemur í frétt Ríkisútvarpsins.

Skuldir heimilanna um 2000 milljarðar

Skuldsetning íslenskra heimila hefur á síðustu árum vaxið hratt og eru samanlagðar skuldir heimilanna nú um 2.000 milljarðar króna. Þar af eru um 1.400 milljarðar verðtryggð lán og 370 milljarðar gengistryggð lán, segir í nýrri skýrslu Hag­deildar ASÍ.

Dýrkeypt rýrnun í versluninni

Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ, segja að áætlaður kostnaður verslunar á Íslandi af þjófnaði sé um 5-6 milljarðar króna á ári hverju og hafi hann aukist mjög mikið undanfarin ár. Við bætist kostnaður vegna öryggisgæslu. Fjallað verður um málið á morgunverðarfundi á föstudaginn.

Fleiri í framhalds- og háskóla­námi en nokkru sinni

”Haustið 2008 eru skráðir nemendur á framhalds- og háskóla­stigi fleiri en nokkru sinni fyrr eða 47.282. Í framhaldsskóla eru skráðir 29.271 og 18.011 nemendur í háskóla. Á milli áranna 2007 og 2008 fjölgaði skráðum nemendum um 2,6%.

AGS: Árið 2009 verður mjög slæmt

Dominique Strauss-Kahn, for­stjóri Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins (AGS), hefur bæst í hóp svartsýnismanna. Hann segir árið 2009 verða reglulega slæmt ár í efnahagslegu tilliti. Um heimskreppu sé að ræða sem einstakar ríkis­stjórnir ráði ekki við.

Ragnheiður Elín vill leiða lista Sjálfstæðis­flokks í Suður­kjördæmi

Ragnheiður Elín Árna­dóttir alþingis­maður sækist eftir 1. sæti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi en hún er nú þingmaður flokksins í Suðvestur­kjördæmi.

UBS afnemur bankaleynd

Enginn muni framar treysta leynd og öryggi svissneska bankakerfisins eftir að UBS, stærsti banki Sviss, tilkynnti að hann ætlaði að láta bandarískum yfirvöldum í té upplýsingar um nöfn þeirra Bandaríkjamanna, sem grunaðir eru um að nota aflandsreikninga í bönkum til að komast undan því að greiða skatta.

Valgerður hættir í bankaráði Seðlabankans

Valgerður Bjarna­dóttir, varaþingmaður Samfylkingar­innar, hefur sagt sig úr bankaráði Seðlabanka Íslands. Hún sendi Guðbjarti Hannessyni, forseta Alþingis, bréf þar um.

Líklega farið fram á greiðslustöðvun Saab

Búist er við því að stjórn Saab bílaverksmiðjanna fari fram á greiðslustöðvun fyrirtækisins nú fyrir hádegið. General Motors, eigandi Saab, fer fram á fjárstuðning sænska ríkisins til verksmiðja Saab en sænsk stjórnvöld neita.

Fleiri starfsmenn hjá CCP á hafnar­svæðinu en HB Granda

Fyrirtækjum á gamla hafnar­svæðinu í Reykjavík hefur fjölgað verulega frá 2004. Störfum hefur fjölgað í þjónustu, verslun, veitingarekstri en fækkað í fiskvinnslu, útgerð og heildsölu. Tölvu­fyrirtækið CCP er t.d. með fleiri starfsmenn á hafnar­svæðinu en HP Grandi.

Katrín sækist eftir að leiða annan Reykjavíkurlista VG

Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra sækist eftir að leiða lista Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í öðruhvoru Reykjavíkur­kjördæminu og gefur kost á sér í forvali Vinstri-grænna í Reykjavík sem haldið verður 7. mars.

Segja of seint að innleiða persónukjör fyrir vorkosningar

Þingmenn Sjálfstæðis­flokksins segja of seint að innleiða persónukjör fyrir komandi þingkosningar. Lagaleg óvissa ríki einnig um einstök ákvæði í frumvarpi ríkis­stjórnar­innar. Formaður flokksins er þó ekki afhuga hug­myndunum.

Sendiherra róaði þýsk stjórnvöld

Ummæli sem höfð voru eftir forseta Íslands í FT-Deutschland 10. febrúar um skuldbindingar á innistæðum þýskra sparifjár­eigenda á Edge-reikningum Kaupþings, ollu skjálfta í þýska stjórnkerfinu. Sendiherra Íslands gerði þýska utanríkis­ráðuneytinu grein fyrir málinu.

Nýi Glitnir fellir tímabundið niður upp­greiðslugjald

Nýi Glitnir hefur ákveðið að fella tímabundið niður upp­greiðslugjald verðtryggðra húsnæðislána. Upp­greiðslugjald samkvæmt skilmálum þessara lána er 2%. Með þessari aðgerð vill Glitnir koma til móts við þá viðskiptavini sem vilja greiða upp sín lán.

Fuglahvísl

Áströlsk hönd gamla Kaupþings?

Smáfuglarnir hafa að undanförnu flogið í kjölfar Steve Cossers, Ástralans sem enginn hvorki þekkir né hefur heyrt um, og orðið þess vísari að hann sé samstarfsmaður helstu lykilmanna í gamla Kaupþingi og aðstoði þá nú við að kaupa helstu fjölmiðla á Íslandi.

Katrín Júlíus­dóttir skammar sjálfstæðis­menn

Þriðjudaginn 17. febrúar stóð Katrín Júlíus­dóttir upp í upphafi þingfundar og þrumaði skammir yfir sjálfstæðis­mönnum fyrir að hafa staðið gegn því, að Ísland gengi í Evrópu­sambandið. Þeir vildu ekki taka þátt í að bjarga þjóðinni undan bráðavanda.

Björgun heimilanna hefst á að taka 13 þúsund milljónir úr vösum þeirra

Smáfuglarnir sem fylgst hafa agndofa með byggingu tónlistarhússins í Reykjavík eru nú enn agndofa en fyrr. Nýjustu fréttir um að klára eigi húsið fyrir 13 þúsund milljónir hafa sett marga smáfugla úr jafnvægi svo þeir eiga jafnvel erfitt með flug.

DV segir Geir ómerking en gleymir eigin fortíð

Það vakti ánægju smáfuglana að sjá að rit­stjórn DV hefur tekið ástfóstri við sannleikann á nýjan leik. Þannig skrifaði rit­stjórn blaðsins málefnalegan texta um fyrrverandi forsætis­ráðherra og sagði Geir H. Haarde ómerking. Smáfuglarnir reyndu að rifja aðeins upp fortíðina.

Þráinn, Þórlindur og netframboð

Smáfuglarnir sjá öll merki þess, að meiri hiti sé að færast í frambjóðendur í væntanlegum prófkjörum flokkanna og þá jafnframt stuðningsmanna þeirra. Verður spennandi að sjá, hvernig netið verður notað í þeim slag öllum.

„Einsdæmi“ Ólafs Ragnars

Nú hefur nýtt „einsdæmi“ bæst í safn Ólafs Ragnars, því að aldrei fyrr hefur utanríkis­mála­nefnd alþingis séð tilefni til að óska eftir skýrslu frá utanríkis­ráðuneytinu til að geta lagt mat á uppnám og jafnvel tjón, sem ummæli forseta Íslands hafa vakið á erlendum vettvangi.

Hallgrímur Helgason heiðraður

Smáfuglarnir samgleðjast Hallgrími með afmælið, þriggja ára listamannalaunin frá ríkinu og myndina af teppinu úr forsætis­ráðuneytinu. Þeim þætti vel við hæfi, að Hallgrími yrði einnig gefin mynd af því, þegar hann barði forsætis­ráðherrabílinn. Víst er, að það var ekki gert með bláu höndinni.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX