| « 17. febrúar |
■ 18. febrúar 2009 |
» 19. febrúar |
Stjórn SUS vill snæða á kostnað bæjarsjóðs Akraness
Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna sendi nú undir kvöld út fjölpóst til félagsmanna um væntanlegt þorrablót. Fyrsti liður á dagskrá er matur í boði hins opinbera eða bæjarstjórnar Akraness. Félagsmenn telja þetta sæta mikilli furðu og ganga í berhögg við stefnu sambandsins um lækkun skatta og einkaframtak.
Gylfi gat ekki lofað breskum sveitarfélögum fullri greiðslu
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra lofaði þvi ekki að bresk sveitarfélög, sem áttu fé í íslensku bönkunum, fái alla peningana til baka en greint er frá viðtali við ráðherrann á Sky-frettastofunni í frétt mbl.is.
Gunnar Svavarsson hættir þingmennsku
Gunnar Svavarsson, alþingismaður Samfylkingarinnar og oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi, tilkynnti á fundi kjördæmisráðs í kvöld að hann sækist ekki eftir endurkjöri til Alþingis.
Bandaríkjaforseti kynnir neyðaraðstoð fyrir níu milljónir fjölskyldna
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti í dag aðstoðaráætlun ætlaða íbúðareigendum í vanda. Aðgerðirnar eiga að koma í veg fyrir enn verra ástand en nú er á fasteignamarkaði í landinu. Heildarpakkinn nemur 275 milljörðum dollara.
Frakklandsforseti kynnir neyðarpakka
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, kynnti í dag aðgerðapakka franskra stjórnvalda til þess að rétta við efnahag landsins. Forsetinn hefur sætt gagnrýni fyrir að aðstoða banka og bílaverksmiðjur en ekki fjölskyldur í landinu.
Jón genginn í Sjálfstæðisflokkinn
Jón Magnússon alþingisþingmaður sem verið hefur utan þingflokka síðustu vikur eftir að hafa sagt sig úr þingflokki Frjálslynda flokksins hefur nú gengið til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins.
Ríkisstjórnin eykur upplýsingagjöf til almennings
Starfshópur á vegum forsætisráðuneytisins hefur á síðustu dögum unnið að því að finna leiðir til að bæta upplýsingastreymi stjórnvalda. Þetta verður gert með tilkynningum, með fundum, svörun fyrirspurna og miðlun efnis á vefjum stjórnarráðsins.
Minnihlutastjórnin gerir lítið úr stjórnskipun Íslands
Sigríður Á. Andersen, frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, telur að miklar breytingar sem boðaðar séu af minnihlutastjórn vinstrimanna geri lítið úr stjórnskipun Íslands. Þá segir Sigríður að misskilnings gæti um tilhögun þingkosninga. Vel sé hægt að styðja persónur þrátt fyrir flokkakerfið.
Lestarræninginn Biggs frjáls í sumar – ef hann lifir
Lestarræninginn frægi, Ronnie Biggs, gæti gengið frjáls maður í sumar – ef hann lifir svo lengi. Eftir stærsta lestarrán í breskri sögu, árið 1963, slapp hann úr fangelsi og lifði í vellystingum í áratugi í Brasilíu. Hann gaf sig hins vegar fram 2001 eftir að heilsan fór að gefa sig.
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Höllu Gunnarsdóttur blaðamann sér til aðstoðar í heilbrigðisráðuneytinu. Hún hefur starfað sem blaðamaður undanfarin sex ár og síðustu tvö ár sem þingfréttaritari Morgunblaðsins.
Innbrotaleiðangur í sumarbústaði
Þrennt var tekið í nótt á Biskupstungnabraut með flatskjái og fleira góss í bíl sínum. Þau játuðu innbrot í sumarbústaði við Flúðir. Þetta er önnur nóttin í röð sem innbrotsþjófar eru teknir í Árnessýslu. Lögreglan leggur áherslu á eftirlitsferðir um sumarbústaðasvæði sýslunnar.
Sex ESB-lönd brjóta grundvallarreglur evrusamstarfsins
Sex Evrópusambandslönd brjóta reglur sem settar voru um evrusamstarfið, að því er fram kemur í skýrslu Evrópuráðsins. Syndaselirnir eru Írland, Grikkland, Spánn, Frakkland, Lettland og Malta sem öll eru með of mikinn fjárlagahalla.
Hættið þrasi og farið að vinna
Það er ekki boðlegt að á meðan hriktir í grunnstoðum samfélagsins og fjölskyldum og fyrirtækjum blæðir, horfi þjóðin upp á karp og hráskinnaleik á Alþingi sem engu máli skiptir og engu skilar, segir ASÍ og vill markvissar björgunaraðgerðir.
Hraðakstursbrot ökumanna mynduð á Miklubraut
Brot 108 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, að Rauðarárstíg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 971 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt.
Vakta má börnin með nýjum farsíma
Nýstofnað danskt símafyrirtæki kynnir í næstu viku tímamóta tæki. Það eru sérstakir farsímar sem ætlaðir eru börnum. Gegnum þá geta foreldrar eða forráðamenn fylgst með þeim allan sólarhringinn, slökkt á myndavél símans, lesið sms-skeytin og takmarkað leikjanotkun og netvafur.
Opinberar framkvæmdir fyrir rúmlega 50 milljarða
Heildarupphæð fyrirhugaðra framkvæmda opinberra aðila verður rúmlega 50 milljarðar króna á þessu ári. Um 60% samdráttur er á framkvæmdum miðað við síðasta ár þegar upphæðin var 130 milljarðar.
Hvalveiðiákvörðun stendur í ár
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra tilkynnti í dag að ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, standi óbreytt fyrir yfirstandandi ár.
Íslensk lögsaga verði friðlýst fyrir ferðum kjarnorkuknúinna farartækja
Samtök hernaðarandstæðinga minna á það gamla baráttumál sitt að Ísland og íslensk lögsaga verði friðlýst fyrir ferðum kjarnorkuknúinna farartækja, segir í tilkynningu samtakanna í framhaldi af fréttum af árekstri tveggja kjarnorkukafbáta í Atlantshafi.
Skráðum umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði talsvert árið 2008 miðað við árið á unda. Vísbendingar eru um lækkaðan hraða í umdæminu.
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkar
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,6% á milli desember og janúar síðastliðins samkvæmt upplýsingum sem Fasteignaskrá Íslands birti í gær. Undanfarna 12 mánuði hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 5,5% að nafnvirði og rúmlega 20% að raunvirði.
Ekki aðhafst frekar vegna ummæla forseta Íslands
Utanríkismálanefnd telur ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna ummæla forseta Íslands í þýskum fjölmiðlum um að innistæður sparifjáreigenda þar í landi hjá Kaupþingi séu tapaðar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir ummælin mjög óheppileg og fullt tilefni sé til að endurskoða hlutverk forsetans.
Aðgerðapakki Bandaríkjaforseta í höfn
Barack Obama Bandaríkjaforseti samþykkti í gær aðgerðapakka að upphæð 787 milljarða Bandaríkjadala til að sporna gegn efnahagssamdrætti, atvinnuleysi og gjaldþrotum í bandaríska hagkerfinu. Næsta verkefni forsetans er að endurreisa húsnæðismarkaðinn.
Krónan heldur áfram að sækja í sig veðrið og er gengi hennar nú hærra gagnvart flestum helstu gjaldmiðlum en verið hefur frá bankahruninu í október. Gærdagurinn var hagfelldur íslensku krónunni og styrktist hún um 1,5% ef miðað er við gengisvísitölu, segir Greining Glitnis.
Gefur kost á sér í 4. sæti Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi
Íris Róbertsdóttir, grunnskólakennari í Vestmannaeyjum, gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Ráðherra hvetur formenn flokka til að tryggja kynjajafnræði á listum
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra hvetur formenn stjórnmálaflokkanna til að tryggja jafnræði kynjanna á uppröðun á framboðslistum þannig að hlutur karla og kvenna verði sem jafnastur á þingi.
Jóhanna býður norrænum forsætisráðherrum í Bláa lónið
Markar fjármálakreppan endalok eða upphaf framsækinnar loftslagsstefnu? Leitað verður svara við þessari spurningu og öðrum á hnattvæðingarþingi norrænu forsætisráðherranna sem haldið verður við Bláa lónið á fimmtudag og föstudag í næstu viku.
Þýsk stjórnvöld fá heimild til þjóðnýtingar banka
Angela Merkel, kanslari Þýskalands og ríkisstjórn hennar, hefur komið í gegn lögum sem heimila þjóðnýtingu illa farinna banka í landinu. Lögin gera stjórnvöldum kleift að taka yfir suður-þýska bankann Hypo Real Estate.
Samdráttur í sölu nýrra bíla hér á landi 88%
Sala nýrra bíla í Evrópu í janúarmánuði varð sú minnsta í tvo áratugi. Hvergi var þó ástandið verra en á Íslandi. Þar reyndist samdrátturinn vera 88 prósent miðað við janúar á síðasta ári.
Viðskiptaráð: Endurreisn í samstarfi við alþjóðasamfélagið
Sá vandi sem hefur myndast í efnahagsmálum þjóðarinnar verður aðeins leystur í samstarfi við alþjóðasamfélagið enda ljóst að aðrir kostir myndu leiða til efnahagslegrar einangrunar með tilheyrandi stöðnun og velferðartapi, segir Viðskiptaráð.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði í gærkvöld. Við húsleit fundust allnokkrar kannabisplöntur. Einnig var lagt hald á gróðurhúsalampa.
CCP valið Þekkingarfyrirtæki ársins
Hugbúnaðarfyrirtækið CCP var valið Þekkingarfyrirtæki ársins af Félagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Aðalafurð þess er tölvuleikurinn Eve Online. Auk CCP voru Marel og Össur tilnefnd tilverðlaunanna.
Alls gefur 21 kost á sér í forvali VG í Norðausturkjördæmi
Framboðsfrestur fyrir forval VG í Norðausturkjördæmi, kjördæmi formannsins, Steingríms J. Sigfússonar, er runninn út. Alls gefur 21 kost á sér í forvalinu.
Føroya Banki býr við gott gengi
Ísland á engan sjálfstæðan banka lengur en það gengur betur í Færeyjum þar sem Føroya Banki horfir fram á bjarta daga í ár, segir danska viðskiptablaðið Börsen.
Jafnvel Greenspan sér hag í þjóðnýtingu
Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir að tímabundin þjóðnýting hluta bankakerfisins sé nauðsynleg til þess að koma fjármálakerfinu af stað á ný. „Ef þjóðnýting er það sem virkar, þá þjóðnýtum við,“ segir hann.
Sækist eftir 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi
Haukur Þór Hauksson, viðskiptafræðingur í Garðabæ, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Hann sækist eftir 4. sæti framboðslistans.
GM ætlar sér að gera Saab að sjálfstæðu fyrirtæki
Genaral Motors stefnir að því að gera dótturfyrirtækið Saab að sjálfstæðu fyrirtæki á næsta ári en vill áður fá fjárstuðning sænska ríkisins. GM hefur lengi reynt að selja Saab en án árangurs.
Olíuverð lækkar en gullverð hækkar
Olíuverð heldur áfram að falla í New York og er nú komið undir 35 dollara á tunnu. Olíubirgðir jukust um 3,2 milljónir tunna í síðustu viku. Verð á annarri hrávöru lækkar einnig, svo sem málmum - nema gulli. Við núverandi aðstæður leita fjárfestar í öryggi góðmálmsins.