amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:02
 

Þriðjudagurinn 17. febrúar 2009

«
16. febrúar

17. febrúar 2009
»
18. febrúar
Fréttir

Með varnarmála­stofnun er lögð rækt við leifar liðins tíma

„Ég er þeirrar skoðunar, að sjónarmiðin, sem búa að baki almannavarnalögunum og lögunum um Landhelgisgæslu Íslands eigi að ráða ferð íslenskra stjórnvalda við mótun og úrvinnslu nútímalegrar stefnu í öryggismálum. Með varnarmála­stofnun er verið að leggja rækt við leifar liðins tíma,“ sagði Björn Bjarnason á fundi í dag.

Utanríkis­mála­nefnd fjallar um ummæli forseta Íslands

Utanríkis­mála­nefnd Alþingis fjallar á morgun um ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, í þýskum fjölmiðlum að undanförnu.

Ryanair vill fá 200 nýjar Boeing og Airbusþotur á hálfvirði

Kreppan hefur haft þau áhrif að verð á flugvélum hefur fallið mjög. Írska lágfargjaldaflug­félagið Ryanair vonast því til að fjölga verulega í flugvélaflota sínum með því að bæta við 200 flugvélum frá Boeing og Airbus og reyna að fá þær á hálfvirði.

Líklega haldið áfram með Tónlistarhúsið

Allt stefnir í að Austurhöfn haldi áfram með byggingu Tónlistarhússins við Reykjavíkurhöfn. Kostnaður við að ljúka byggingunni er áætlaður 13-14 milljarðar króna og verður það fjármagnað með lánum frá Nýja Landsbankanum, sagði í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Frestur til að gera tilboð í Árvakur lengdur

Frestur til að skila inn skuldbindandi tilboðum í Árvakur, útgáfu­félag Morgunblaðsins hefur verið framlengdur til föstudags.

Persónukjör verður auðveldað í alþingis­kosningum

Ríkis­stjórnin hefur samþykkt frumvarp dóms- og kirkjumála­ráðherra um breytingar á kosningalögum. Frumvarpið miðar að því að auðvelda persónukjör í alþingis­kosningum.

Kreppuóttinn eykst og olían hrapar í verði

Aukinn ótti um að kreppuspírallinn bori sig enn dýpra inn í efnahagslíf Bandaríkjanna, Evrópu og Asíu varð til þess að olíuverð hrapaði niður fyrir 36 dollara á tunnu. Verðið féll um heil 6,8% í dag. Við bætist að hlutabréfa­markaðir eru á niðurleið.

Bloggari sviptir barn kynferðisafbrotamanns nafnleynd

Bloggarinn Ómar R. Valdimarsson birti nafn og mynd af manni sem var nýverið dæmdur fyrir að misnota dóttur sína kynferðislega. Að sögn Svölu Ísfeld kennara í refsirétti við HR hefur Ómar nú svipt barnið nafnleynd með myndbirtingunni.

Heilbrigðis­ráðherra fundaði með forystumönnum Eflingar

Ögmundur Jónasson heilbrigðis­ráðherra hitti í morgun forystumenn Eflingar – stéttar­félags, til að ræða aðstæður ófaglærðra á heilbrigðis­stofnunum. Ráðherrann hefur undanfarna daga átt viðræður við ýmsa starfs- og faghópa heilbrigðis­stofnana.

Innra rekstrarumhverfi Landsbankans hlýtur gæðavottun

Landsbankinn hefur staðfest vottun sem tekur fyrir upplýsinga­öryggi og meðhöndlun trúnaðarupplýsinga. Hún nær til allrar starfsemi bankans og tekur m.a. á rekstri upplýsinga­kerfa, öryggisvitund starfsmanna, umgengni um skjalageymslur og aðgengi annarra en starfsmanna.

Viðræður um framhald kjarasamninga halda áfram

Á fundi forystu SA og ASÍ sem fram fór hjá Ríkissáttasemjara síðdegis í dag var ákveðið að hittast aftur næstkomandi mánudag til þess að fjalla um áframhald kjarasamninga og frestun fyrirhugaðra launahækkana 1. mars næstkomandi.

Laun hækkuðu um 30% frá 2005-2008

Laun hækkuðu um 30% á almennum vinnu­markaði á árunum 2005-2008, að því er fram kemur í Launagreiningu ParX Viðskiptaráðgjafar IBM. Laun hækkuðu á tímabilinu mest hjá fjármála- og tryggingafélögum, eða um 39%. Á næstunni má hins vegar búast við launalækkunum.

Alvarleg kreppa í Úkraínu

Efnahagskreppan í Úkraínu verður stöðugt alvarlegri. Iðnaðarframleiðsla landsins féll í janúar um hvorki meira né minna en 34% miðað við sama mánuð ári áður og 16% miðað við desember. Augljóst er að Úkraína er á leið í alvarlega kreppu.

Rússneskur efnahagur á hraðri niðurleið

Rússneska fjármála­ráðuneytið segir efnahagsástand landsins enn verra en áður hefur komið fram. Ráðuneytið reiknar nú með 2,2% samdrætti þjóðar­framleiðslu en áður var talið að samdrátturinn yrði 0,2%. Í haust var reiknað með 6% hagvexti.

VG kallar eftir frambjóðendum í forval í Reykjavík

Kjör­stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík hefur nú hafið störf og auglýst eftir frambjóðendum í forval sem fram fer 7. mars.

Ótti um að missa vinnuna

Alls segjast 17,7% hafa misst vinnuna eða að starfshlutfall þeirra hafi verið skert vegna kreppunnar, að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun MMR. Þar kemur einnig fram að 13,9% aðspurðra óttast að missa vinnuna.

Björgvin vill áfram skipa 1. sæti Samfylkingar­innar i Suður­kjördæmi

Björgvin G. Sigurðsson, alþingis­maður og fyrrverandi viðskipðta­ráðherra, sækist eftir 1. sæti á lista Samfylkingar­innar í þingkosningunum í vor. Prófkjörið fer fram 7. mars.

Samræðufundur um þróun lýðræðis

Efnt verður til samræðufundar um þróun lýðræðis á Íslandi í átt til virkari þátttöku almennings og hagsmunaaðila næstkomandi fimmtudag í HÍ. Markmiðið er að beina sjónum að þeim þætti lýðræðis sem snýr að þátttöku almennings og leiða saman hin ólíku sjónarmið um virkara lýðræði.

Lífleg útgáfa á ríkispappírum

Ágætar viðtökur voru við útboði 3ja mánaða ríkisvíxla í gær. Seðlabankinn hafði áætlað að taka tilboðum fyrir 10 milljarða króna að nafnverði og gekk það eftir. Alls bárust tilboð fyrir 22,7 milljarða króna að nafnverði í víxlana.

Forval VG í Suðvestur­kjördæmi verður 5.-6. mars

Stjórn kjördæmisráðs VG í Suðvestur­kjördæmi (Kraganum) hefur ákveðið að efna til forvals vegna komandi alþingis­kosninga. Forvalið verður 5. og 6.mars en framboðsfrestur rennur út 23. febrúar.

Sækist eftir einu af einu efstu sætunum í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík

Sigríður Á. Andersen héraðsdómslögmaður tekur þátt í prófkjöri sjálfstæðis­manna í Reykjavík í næsta mánuði og mun sækjast eftir stuðningi flokksmanna í eitt af efstu sætum. Sigríður er 37 ára Reykvíkingur og starfar við lögmennsku.

Aðgerðir boðaðar vegna vanda lántakenda

Unnið er að aðgerðum fyrir þá sem eru með myntkörfulán og þá sem hafi lent illa í verðtryggingunni, að því er fram kom á blaðamannafundi forráðamanna ríkis­stjórnar­innar. Fram kom að nauðungarsölum verður frestað til ágústloka.

Skuldir ríkis­sjóðs viðráðanlegar

Hreinar skuldir ríkisins eru tæplega 466 milljarðar króna að mati Tryggva Þórs Herbertssonar. Þetta er um 33% af áætlaðri landsframleiðslu þessa árs, vel viðráðanleg staða að mati Tryggva og eigi verra til langs tíma en hjá mörgum erlendum þjóðum.

„Eignar­hald í sjávar­útvegi myndi færast í hendur útlendinga“

Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, segir í viðtali við The Scotsman að með aðild að Evrópu­sambandinu „myndi eignar­hald í sjávar­útvegi smám saman færast í hendur útlendinga.“

Nýir möguleikar fyrir afbrotamenn skapast í kjölfar hruns fjármálakerfisins

Hrun fjármálakerfisins hér er tímamótaviðburður. Erfitt efnahagsástand og mikið atvinnuleysi mun setja mark sitt á þá skipulögðu glæpastarfsemi sem haldið er uppi á Íslandi. Umskiptum þessum fylgir að margir nýir möguleikar munu skapast fyrir afbrotamenn, segir í matsskýrslu ríkislögreglu­stjóra.

Citigroup sker niður – nema hjá toppunum

Gagnrýni Bandaríkjaforseta á ofurlaun og bónusa bandarískra bankaforkólfa virðist ekki hafa náð til fyrrum stjórnenda Citigroup. Þeir hafa haldið greiðslum, skrifstofum, einkariturum og jafnvel aðgangi að einkaþotu. 39 þúsund starfsmönnum hefur hins vegar verið sagt upp.

Býður sig fram í 1.-2. sæti á lista Sjálfstæðis­flokks í Norðvestur­kjördæmi

Birna Lárus­dóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1.-2. sæti á framboðslista Sjálfstæðis­flokksins í Norðvestur­kjördæmi fyrir alþingis­kosningarnar í vor.

Býður sig fram í 7. sæti Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík

Valdimar Agnar Valdimarsson hefur ákveðið að bjóða sig fram í 7. sæti prófkjörs Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík sem fer fram 13. og 14. mars næstkomandi.

Schwarzenegger rekur 20 þúsund ríkisstarfsmenn

Arnold Schwarzenegger, ríkis­stjóri í Kaliforníu, hefur sagt upp um 20 þúsund ríkisstarfsmönnum. Samstaða náðist ekki um aðgerðir vegna efnahagsvanda ríkisins. Ríkis­stjórinn óttaðist sjóðþurrð og greip því til harkalegra sparnaðaraðgerða.

„Stjórnsýslubastarður“

Mikilvægt er að kasta ekki til höndunum við breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands. Fyrirbyggja þarf að úr verði stjórnsýslubastarður, sem geri stjórnina óskilvirka og valdi tortyggni innan sem utan bankans, segir í niðurlagi umsagnar banka­stjórnar Seðlabankans til viðskipta­nefndar Alþingis.

Hyggst opna skrifstofuhótel í Vestmannaeyjum

Jákvætt framtak er uppörvandi í öllu krepputalinu. Jóhann Sigurður Þórarinsson, Vestmannaeyingur sem verið hefur við nám í Svíþjóð, er ákveðinn að snúa til baka til Eyja og stofna þar skrifstofuhótel eða skrifstofuver.

Sækist eftir 1.-2. sæti á lista Sjálfstæðis­flokks í Norðvestur­kjördæmi

Ásbjörn Óttarsson, hefur ákveðið að sækjast eftir 1.-2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Norðvestur­kjördæmi fyrir komandi alþingis­kosningar. Ásbjörn er forseti bæjar­stjórnar Snæfellsbæjar og útgerðarmaður.

Gefur kost á sér í 4. sæti í forvali VG í Reykjavík

Steinunn Þóra Árna­dóttir gefur kost á sér í 4. sæti í sameiginlegu forvali Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fyrir Reykjavíkur­kjördæmin.

Evran hríðfellur gagnvart dollar

Síðastliðinn sólarhring hefur evran fallið um 1,3% gagnvart dollar. Fallið kom eftir tilkynningu mats­fyrirtækisins Moody´s um lækkun lánshæfismats margra austur-evrópskra banka. Evran hefur fallið um rúm 12% gagnvart dollar frá því í desember.

Skila­nefnd Glitnis býðst til að setja milljarða í Moderna

Skila­nefnd Glitnis hefur boðist til að setja allt að 20 milljarða króna inn í sænska félagið Moderna, dóttur­félag Milestone, til að halda yfirráðum yfir eignum þess. Ella er hætt við að sænskar eignir félagsins verði seldar á útsölu.

Fuglahvísl

Enn um einbeittan brotavilja Jóhönnu

Þurfi menn að grípa til dæmisögu til að skýra hvað felst í orðinu forherðingu, mætti nota afstöðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætis­ráðherra og fyrrverandi félagsmála­ráðherra, í máli fyrrum formanns stjórnar­nefndar fatlaðra en ráðherrann hlaut dóm fyrir brot á stjórnsýslulögum vegna brottvikningar hans.

Eftirlaunalögin feitur biti fyrir Steingrím J. – og fleiri

„Eftirlauna­frumvarpið“ tók gildi 30. desember 2003. Frá þeim tíma hafa verið 61 mánaðamót. Allan þann tíma var Steingrímur J. Sigfússon formaður vinstrigrænna. Hann hefur því 61 sinni fengið þingfararkaup með 50 % álagi vegna „eftirlauna­frumvarpsins“.

Fjölmiðla­deildir ríkisbankanna

Greiningar­deild ríkisbankans Glitnis er nú farin að segja frá niðurstöðum skoðanakannana um fylgi stjórnmála­flokka. Er það talið eitt af meginverkefnum fjármála­stofnana að senda fjöldapóst með slíkum upplýsingum.

Vinstri Grænir setja spurningamerki við eignar­réttinn

Álfheiður Inga­dóttir telur að ræða þurfi um hina „eilífu virðingu fyrir eignar­réttarákvæði stjórnar­skrárinnar“ með það fyrir augum að gera eitthvað í málinu. Þetta sagði hún í Silfri Egils. Fjölskyldufólki og fyrirtækjum má því ljóst vera hvað Vinstri Grænir ætla sér.

Jóhanna bendir þingmönnum á skúrkinn

Ríki­sjóður var dæmdur til að greiða nær 1200 þúsund vegna axarskafta í stjórnsýslu félagsmála­ráðuneytisins undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Smáfuglarnir heyrðu á þingi í gær að ráðherrann lítur svo á að dómurinn hafi ekki fallið á sig og bendir á skúrkinn.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX