amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 17:59
 

Mánudagurinn 16. febrúar 2009

«
15. febrúar

16. febrúar 2009
»
17. febrúar
Fréttir

Seðlabanka­stjórar á fund viðskipta­nefndar

Viðskipta­nefnd Alþingis hefur boðað alla þrjá banka­stjóra Seðlabanka Íslands á sinn fund í fyrramálið. Ingimundur Friðriksson, sem látið hefur af störfum, mætir hálftíma á undan Davíð Oddssyni og Eiríki Guðnasyni. Skipulag yfir­stjórnar og fleira verður rætt.

Endurskoðun kjarasamninga frestað

Formannafundi ASÍ um beiðni SA um frestun á endurskoðun kjarasamninga til sumars og þar með frestun launahækkana er lokið. Skoðanir voru skiptar en þó virtist góður meirihluti fundarmanna vera fylgjandi frestun vegna hrikalegrar stöðu efnahagsmála.

BMW segir upp 850 starfsmönnum í Bretlandi

Þýski bílaframleiðandinn BMW mætir alvarlegum mótvindi í Bretlandi. Fyrirtækið tilkynnti í dag uppsagnir 850 starfsmanna í verksmiðju í Oxford, en þar er Mini Cooper framleiddur. Samdráttur hefur orðið í sölu. Verkalýðsfélög mótmæla uppsögnunum.

Gallup mælir Samfylkinguna stærsta

Samfylkingin mælist stærsti stjórnmála­flokkurinn samkvæmt nýrri könnun, sem Capacent gerði fyrir Ríkisútvarpið. VG og Samfylking gætu myndað meirihluta­stjórn, samkvæmt könnuninni.

Fagnar aukinni notkun samheitalyfja

Íslenska samheitalyfja­fyrirtækið Portfarma fagnar þeirri stefnumörkun sem fram hjá heilbrigðis­ráðherra að ná fram sparnaði í heilbrigðiskerfinu með aukinni notkun samheitalyfja.

Sannsögli Jóhönnu dregin í efa

Fram kemur í svari IMF til Geirs H. Haarde að trúnaðar sé ekki óskað af sjóðnum heldur sé það í valdi stjórnvalda að ákveða hvernig trúnaði sé háttað. Gengur það svar þvert á orð Jóhönnu Sigurðardóttur sem margsinnis hefur sagt sjóðinn hafa óskað eftir trúnaði.

Hver eru úrræði ríkis­stofnana á samdráttartímum?

Tilgangur fundar forstöðumanna og stjórnenda ríkis­stofnana er að fjalla um hvaða aðgerðir séu mögulegar í rekstri stofnana til að mæta samdrætti á fjárlögum og til hvaða úrræða stjórnendur geta gripið til í rekstri með sérstakri áherslu á starfsmanna- og launamál.

Fyrsti þjónustusamningur Keflavíkurflugvallar ohf. og samgöngu­ráðuneytis

Skrifað var í dag undir fyrsta þjónustusamning milli Keflavíkurflugvallar ohf. og samgöngu­ráðuneytisins. Samningsupphæðin er 1.455 milljónir króna og stendur hún undir hluta af rekstri flugvallarins og flugstöðvarinnar.

Fíkniefnahundurinn á Selfossi er allur

Fíkniefnahundur lög­reglunnar á Selfossi er allur. Ríkislögreglu­stjóri og Fangelsimála­stofnun hafa heitið lög­reglunni á Selfossi öllum mögulegum stuðningi til að brúa bilið þar til annar hundur fæst en það getur tekið allt að einu ári.

Hófsemi og aðhald í prófkjörum Sjálfstæðis­flokksins

Sjálfstæðis­flokkurinn hefur ákveðið að beina þeim tilmælum til framjóðanda í prófkjörum Sjálfstæði­flokksins að sýna hófsemi og aðhald í kosningabaráttunni sem senn fer í hönd.

Hrund framkvæmda­stjóri starfsþróunar Marels

Hrund Rudolfs­dóttir hefur verið ráðin framkvæmda­stjóri starfsþróunar hjá Marel Food Systems Corporate, sem er ný staða hjá fyrirtækinu.

Gjaldþrot Sterling dró úr hagnaði Kastrup

Gjaldþrot lágfargjaldaflug­félagsins Sterling í Danmörku setti strik í reikning flugvalla Kaupmannahafnar, einkum Kastrup. Tekjutapið nam um 1,4 milljörðum króna þótt keppinautarnir væru fljótir að fylla í skörðin sem mynduðst við gjaldþrotið.

Barist við kreppu án verndaraðgerða

Alls staðar í kringum okkur glíma nágrannar við slæmar efnahagsaðstæður, versnandi atvinnuhorfur, erfitt aðgengi að lánsfé og samdrátt. Leiðtogar G7 fundarins í Róm leita leiða til að sporna gegn efnahagslegum samdrætti án þess að hverfa til verndunar- og einangrunar­stefnu.

Akraneslög­reglan leitar upplýsinga vegna íkveikju

Lög­reglan á Akranesi óskar eftir upplýsingum vegna íkveikju í nýbyggingu við hús sem hýsir Bókasafn Akraness, Krónuna og Pennann/Eymundsson.

Land­eigendur rísa upp á afturlappirnar

Í ljós hefur komið að mikil þörf er fyrir mun umfangsmeiri hagsmunagæslu land­eigenda en varðandi þjóðlendur, svo sem gagnvart Vegagerðinni, Lands­virkjun, Landsneti og RARIK. Einnig gagnvart Alþingi og opinberri stjórnsýslu, segir stjórn Lands­samtaka land­eigenda.

Lánardrottnar yfirtaka allt hlutafé Nýsis

Í kjölfar óformlegs greiðslustöðvunarferlis hefur viðræðum milli eigenda Nýsis hf. og helstu lánadrottna félagsins nú lokið með yfirtöku lánardrottna,sem eru helstu bankar og spari­sjóðir, á öllu hlutafé í Nýsi.

Forsætis­ráðherra býr við traust en forsetinn síður

Innan við þriðjungur segist bera mikið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, en flestir bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra, að því er fram kemur í skoðanakönnun MMR.

Bernskuheimili Bernanke á nauðungaruppboð

Ung bandarísk hjón sem keyptu æskuheimili Ben Bernanke, banka­stjóra Seðlabanka Bandaríkjanna, hafa farið illa í kreppunni. Eiginmaðurinn, bankamaður, er gjaldþrota og eiginkonan atvinnulaus. Bernskuheimili Bernanke fór því á nauðungaruppboð.

Allt að milljón úr séreigna­sjóði

Fólki í fjárhagsvanda gefst kostur á að taka allt að eina milljón króna úr séreignar­sjóði, samkvæmt frumvarpi ríkis­stjórnar­innar sem væntanlega verður kynnt þing­flokkum stjórn­flokkanna, að því er fram kom í frétt Ríkisútvarpsins.

Framleiðendur laxaafurða í Alaska senda vottunar­fyrirtæki tóninn

Djúpstæður ágreiningur er nú sprottinn upp á milli framleiðenda laxafurða í Alaska og vottunar­fyrirtækisins Marine Stewardship Council, MSC. Svipuð afstaða gagnvart vottunar­fyrirtækinu hefur komið fram hjá íslenskum útvegs­mönnum.

Hátindi verðbólguskotsins líklega náð

Margt bendir nú til að hátindi verðbólguskotsins sem staðið hefur undanfarið ár sé loks náð, segir Greining Glitnis sem spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 1,1% í febrúar.

Ört minnkandi kortavelta sýnir hríðversnandi stöðu heimila

Ört minnkandi kortavelta að raunvirði er til marks um hríðversnandi stöðu íslenskra heimila. Erlend velta hefur skroppið mun meira saman en innlend, enda leggjast veik króna og erfiðari fjárhagur margra heimila á eitt um að draga úr ferðagleði landans, segir Greining Glitnis.

Auðlindir og hagsmunagæsla á N-Atlantshafi og Norðurskautinu

Mikil umræða fer nú fram um vaxandi skipaferðir á Norður-Atlantshafinu og auðlindanýtingar á heimskauts­svæðinu í kjölfar þess að íshellann er á undanhaldi vegna loftslagsbreytinga. SVS og Varðberg standa að málstofu um auðlindir og hagsmunagæslu á norðurslóðum á morgun.

Mjög aukið aflaverðmæti á síðasta ári

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 91 milljarði króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2008 samanborið við 75,1 milljarð á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15,8 milljarða eða 21,1% á milli ára.

Hótanir OPEC þrýsta olíuverðinu upp

Olíuverð hækkaði í morgun, annan daginn í röð. Talið er að hótanir OPEC, samtaka olíuríkja, um enn meiri samdrátt í framleiðslu, hafi þessi áhrif. Verðið er þó enn lágt en OPEC hótar að grípa til aðgerða haldist það undir 40 dollurum á tunnu.

Alvarlegt þegar forseti Íslands fer á svig við sannleikann

Eiður Guðnason skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann fjallar um ummæli forseta Íslands á fundi með erlendum sendiherrum síðastliðið haust. „Það er alvarlegt mál, þegar forseti Íslands kemur í sjónvarp og fer á svig við sannleikann um orð sín á fundi með erlendum sendiherrum,“ segir hann.

Ålandsbanken kaupir rekstur Kaupþings í Svíþjóð

Ålandsbanken hefur keypt rekstur Kaupþings í Svíþjóð en þó er undanskilinn stærstur hluti fyrirtækjalána Kaupthing Sverige. Bankinn er með höfuðstöðvar á Álandseyjum en kemst með kaupunum inn á sænskan markað.

Volkswagen kaupir Porsche út úr Scania

Volkswagen hefur keypt eignar­hlut Porsche í sænsku vörubílaverksmiðjunum Scania fyrir 395 milljónir evra eða sem svarar 58,5 milljörðum íslenskra króna. Eftir kaupin á Volkswagen 49,29% í Scania en fer með meirihluta atkvæða.

Hald lagt á listiskútu Baggers

Hald hefur verið lagt á listiskútu Stein Baggers, fjársvikarans danska, en hún er nú í franskri höfn. Allt er nú gert til að rekja spor svikarans og reyna að endurheimta peninga sem hann kom undan. M.a. er flóttaför hans í Bandaríkjunum undir smásjá lög­reglunnar.

„Dylgjur um flutningskostnað ómerkilegur málflutningur“

Kristján Loftsson, framkvæmda­stjóri Hvals hf., segir að þær tölur sem nefndar voru á Alþingi um flutningskostnað á 82 tonnum af frystum hvalaafurðum með flugi til Japans séu fráleitar og úr öllu samhengi við raunveruleikann.

Ungir jafnaðarmenn styðja Ingibjörgu Sólrúnu

Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir óskoruðum stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem formann Samfylkingar­innar. Tilefni þessarar yfirlýsingar eru orð Jóns Baldvins Hannibalssonar um að hún ætti ekki að gefa kost á sér áfram.

Sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðis­flokks í Norðaustur­kjördæmi

Soffía Lárus­dóttir sækist eftir öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Norðaustur­kjördæmi. Hún er forseti bæjar­stjórnar Fljótsdalshéraðs og framkvæmda­stjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi.

Prófkjör Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi 14. mars

Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi fyrir alþingis­kosningar vorið 2009 fari fram 14. mars næstkomandi.

Gefur kost á sér í 3.-4. sæti Sjálfstæðis­flokks í Suður­kjördæmi

Vilhjálmur Árnason, lög­reglumaður hjá Lögreglu­stjóranum á Suðurnesjum, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. – 4. sæti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Suður­kjördæmi í komandi prófkjöri.

Viðskiptaveldi á brauðfótum

Veldi Baugs Group riðar til falls og fátt getur komið í veg fyrir að feðgarnir Jón Ásgeir og Jóhannes Jónsson og fjölskyldur þeirra, missi allt félagið úr höndunum. Heimildir AMX innan bankakerfisins herma að líklega þurfi feðgarnir einnig að horfa á eftir Högum.

Fuglahvísl

Sleggjudómar Jóns Baldvins um Jóhönnu

Stuðningur Jóns Baldvins Hannibalssonar við Jóhönnu Sigurðardóttur til formennsku í Samfylkingunni, er fremur holur hljómur. Enginn leggur nokkurn trúnað á að hugur fylgi máli, en Jóhanna segist ekki ætla að taka að sér formennsku í Samfylkingunni.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX