amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:31
 

Sunnudagurinn 15. febrúar 2009

«
14. febrúar

15. febrúar 2009
»
16. febrúar
Fréttir

Spara á milljarð með því að beina lyfjanotkun í ódýrari lyf

Ögmundur Jónasson, heilbrigðis­ráðherra, hefur gefið út reglugerð sem hefur í för með sér umtalsverðar breytingar á niður­greiðslum vegna lyfjakostnaðar sjúklinga. Með reglugerðinni er lögð áhersla á að beina lyfjanotkun í ódýrari lyf, og að notkun lyfja hér verði ekki ólík því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum.

Tilgangur frumvarpsins er að reka Davíð Oddsson

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, segir að raunverulegur tilgangur seðlabanka­frumvarps ríkis­stjórnar­innar sé að reka Davíð Oddsson. Það sé rangt að tala um frumvarp til breytinga á lögum um Seðlabankann.

Kristján Þór ekki ákveðinn um formannsframboð

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann bjóði sig fram til formennsku í Sjálfstæðis­flokknum, á landsfundi sem haldinn verðu í mars. Kristján Þór telur rétt að fara í gegnum prófkjör áður en yfirlýsingar séu gefnar út.

Framsóknar­menn í Reykjavík skipa forvals­nefnd

Kjördæmisþing Framsóknar­manna ákvað í gær að forvals­nefnd skuli gera tillögur að framboðslistum flokksins í Reykjavík. Framboðslistarnir vera lagðir fyrir kjördæmisþing sem kemur fram saman 28. febrúar næstkomandi.

Flughált á Vatnsskarði og upp Norðurárdal

Varað er við flughálku á Vatnskarði, Sauðárkróksbraut og upp Norðurárdal og er vegarendur beðnir að fara sérstaklega varlega.Á Suðurlandi er þoka á Hellisheiði og sumstaðar eru enn hálkublettir á útvegum. Flughált er á Grafningsvegi.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX