| « 13. febrúar |
■ 14. febrúar 2009 |
» 15. febrúar |
Jón Ásgeir með nýja áætlun fyrir Baug Group
Jón Ásgeir Jóhannesson og stjórnendur Baugs Group ætla að leggja fram nýja áætlun um framtíð félagsins, að því er Visir.is segir í frétt. Markmiðið er að allir kröfuhafar félagsins fái kröfur sínar greiddar. Áætlunin verður lögð fram á stjórnarfundi á mánudag.
Ekki samið um samstarf eftir kosningar
Össur Skarphéðinsson, utanríkis- og iðnaðarráðherra, segir að ekki hafi verið rætt um áframhald á ríkisstjórnarsamstarfi Samfylkingar og Vinstri grænna, að loknum kosningum. Málið verði væntanlega rætt eftir kosningar í apríl.
Valgerður hættir í stjórnmálum
Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, hefur ákveðið að láta af þingmennsku í komandi kosningum. Hún greindi frá þessari ákvörðun á heimasíðu sinni og síðan á kjördæmisþingi framsóknarmanna sem haldið var í dag.
Lúxusíbúð Jóns Ásgeirs í New York til sölu á 2,9 milljarða
Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir hafa sett lúxusíbúð sína í New York í sölu. Ásett verð er 25 milljónir dollara eða tæpir 2,9 milljarða króna. Íbúðin er á einum besta stað á Manhattan. Að sögn New York Times var íbúðin sett á söluskrá fyrir tveimur vikum.
Donald Trump hefur sagt sig úr stjórn Trump Entertainment Resorts, sem er gríðarlega skuldsett. Með þessu er milljarðamæringurinn í raun að forða sér frá gjaldþrota fyrirtæki. Lánadrottnar munu að líkindum óska eftir greiðslustöðvun í komandi viku.
Skoða riftunarmál vegna sölu Baugs á Högum
Hugsanlegt er að smærri fjármálafyrirtæki sem eiga verulega kröfur á Baug Group muni höfða riftunarmál vegna sölunnar á Högum til fjárfestingarfélags Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu á síðasta ári. Baugur er nú í greiðslustöðvun og alls óvíst um framtíð fyrirtækisins.
Tilnefningar til blaðamannaverðlauna
Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna hefur komið sér saman um þrjár tilnefningar í hverjum af hinum þremur flokkum verðlaunanna. Laugardaginn 21. febrúar verður síðan tilkynnt um hverjir verðlaunahafarnir eru í hinum einstöku flokkum.
Vilhjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur ársins
Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands var valinn viðskiptafræðingur ársins á þekkingardegi Félag viðskipta- og hagfræðinga í gær. CCP var valið þekkingarfyrirtæki ársins, en þrjú fyrirtæki voru tilnefnd.
Samfylking og Vinstri grænir vilja samstarf eftir kosningar
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Vinstri grænna, segir í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Morgunblaðinu, að áhugi sé á því að Samfylking og vinstri grænir haldi samstarfi áfram eftir alþingiskosningar í apríl. Hún segir að flokkarnir þurfi að ná lendingu í Evrópumálum.
Helgi Seljan og Kastljós þegja þunnu hljóði vegna Jóhönnu Sigurðardóttur
Björn Bjarnason, alþingismaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra gagnrýnir Kastljós og Helga Seljan sérstaklega, fyrir að þegja þunnu hljóði yfir því að Jóhanna Sigurðardóttir hafi,sem félagsmálaráðherra, brotið stjórnsýslulög samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms.
Jón Baldvin sendir Ingibjörgu Sólrúnu kaldar kveðjur
Jón Baldvin Hannibalsson sendir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur kaldar kveðjur. Hann vill að hún hætti sem formaður Samfylkingarinnar. Gamli refurinn telur það eðlilega kröfu, en um löngun hans til endurkomu í pólitík hefur enginn efst um