| « 12. febrúar |
■ 13. febrúar 2009 |
» 14. febrúar |
Álit Seðlabanka Evrópu afþakkað
Seðlabanki Evrópu bauðst til að gefa Íslendingum álit á nýju frumvarpi um Seðlabanka Íslands. Viðskiptanefnd Alþingis afþakkaði boðið.
„Innlend framleiðsla ORA er íslensk framleiðsla“
Fiskbollurnar frá ORA eru íslensk framleiðsla, rétt eins og þorri þeirra vörutegunda sem seldur er undir merkjum ORA, segir í tilkynningu fyrirtækisins. Hún kemur í framhaldi af fréttum um það hvenær vara sé íslensk og hvenær ekki.
Ungir sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi kalla eftir endurnýjun
Ungir sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi hvetja til þess að kynslóðaskipti eigi sér stað í forystusveit flokksins, bæði í kjördæminu sem og annars staðar, að því er fram kemur í ályktun frá öllum félögum ungra sjálfstæðismanna í kjördæminu.
Samruni Morgunblaðsins og Fréttablaðsins ógiltur
Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruni Morgunblaðsins og Fréttablaðsins hefði falið í sér mjög alvarlegar samkeppnishömlur á mörkuðunum fyrir útgáfu dagblaða, auglýsingar í dagblöðum, dreifingu dagblaða og prentun dagblaða.
Sendiherrar hafa áhyggjur af hvalveiðum
Sendiherrar Bandaríkjanna, Finnlands, Bretlands, Þýskalands, Svíþjóðar, Frakklands og Hollands afhentu Steingrími J. Sigfússyni sjávarútvegsráðherra bréf þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna áforma um veiðar á 150 langreyðum og 100 hrefnum hér við land í ár.
Framkvæmdanefnd um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um að sett verði laggirnar framkvæmdanefnd um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Í henni eiga sæti forsætisráðherra og fjármálaráðherra en með nefndinni starfar verkefnisstjóri.
Stuðningur við nýju ríkisstjórnina mælist 56,1%
Stuðningur við nýja ríkisstjórn mælist nú töluvert hærri en fyrri ríkisstjórn naut dagana fyrir stjórnarslit. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 56,1% en fylgi fyrri ríkisstjórnar mældist 24,2% í janúar, samkvæmt nýrri könnun MMR.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur á ný
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu eykst milli kannana en fylgi Vinstri grænna dregst saman. Þá dalar fylgi Framsóknarflokks dalar heldur, að því er fram kemur í nýrri könnun MMR.
Seltjarnarnes er draumasveitarfélagið
Seltjarnarnes er útnefnt draumasveitarfélagið í Vísbendingu, vikuriti um viðskipti og efnahagsmál. Seltjarnarnes fær einkunnina 7,8 og er eina sveitarfélagið sem fær yfir 7,0 í einkunn. Næst kemur Snæfellsbær með 6,8, þá Eyjafjarðarsveit með 6,7.
Eldisfiskur frá Víetnam ógnar þorskmörkuðum í Evrópu
Stóraukinn innflutningur Evrópusambandsins á eldisfiskinum Pangasius frá Víetnam er þegar farinn að ógna hefðbundnum mörkuðum sjávarafurða að mati forvígismanna í norskum sjávarútvegi. Fiskurinn er í auknum mæli notaður í stað þorsks.
Forval VG í Reykjavík fer fram 7. mars
Forval Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar fer fram 7. mars næstkomandi en framboðsfrestur rennur út 19. febrúar næstkomandi.
Unnur Brá vill í 2. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra og varaþingmaður, gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hún óskar eftir stuðningi í 2. sæti í prófkjörinu.
Fasteignakaupendur ánægðir með Íbúðalánasjóð
Í viðhorfskönnun meðal fasteignakaupenda sem Capacent Gallup gerði nýlega kemur fram að 94,1% þeirra eru jákvæðir gagnvart Íbúðalánasjóði. Jákvæðni gagnvart sjóðnum meðal fasteignakaupenda hefur aldrei verið meiri frá því að slíkar mælingar hófust.
Efnahagspakki Bandaríkjanna lyftir olíuverði lítillega
Von um að hinn gríðarlegi efnahagspakki Bandaríkjastjórnar stöðvi enn frekara fall efnahagslífs þar í landi hefur heldur lyft hlutabréfamörkuðum í dag og hækkað olíuverð eftir margra daga verðfall. Olíuverð er engu að síður mjög lágt, tæpir 35 dollarar á tunnu.
Kjötframleiðsla og sala dregst saman
Sala á kjöti var 24% minni í janúar en á sama tíma í fyrra og um 11% síðustu þrjá mánuði. Mestur samdráttur er á sölu kindakjöts milli mánaða 55.3% og 27,6% sé horft til síðustu þriggja mánaða. Framleiðsla á kjöti var 9,3% minni í janúar en í sama mánuði 2008.
Íhuga rannsókn á íslensku bönkunum í Bretlandi
Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar hefur til skoðunar hvort hefja eigi formlega rannsókn á starfsemi íslensku bankanna í Bretlandi. Þetta kemur fram í netútgáfu breska dagblaðsins The Times.
Nú er tekin U-beyja. Í stað þess að vinna út frá því að dreifa sem mest eignarhaldi á fyrirtækjum miðað við þá þröngu stöðu sem upp er komin og leggja drög að nýrri uppbyggingu á virkum og trúverðugum hlutabréfamarkaði sem er algjör nauðsyn fyrir öflugt atvinnulíf er tekin þveröfug stefna, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Ævi Önnu Nicole Smith verður að óperu
Í hugum manna byggist efnisþráður í óperu gjarnan á því að aðalpersónan deyr eftir dramatíska atburðarás. Hvað getur þá hentað betur í fyrir óperu en stormasamt líf Önnu Nicole Smith sem lést fyrir réttum tveimur árum, í febrúar 2007?
Hypo Real skrefi nær þjóðnýtingu í Þýskalandi
Þýska ríkið hefur færst skrefi nær því að þjóðnýta Hypo Real Estade bankann eftir að upp úr samningaviðræðum við bandaríska fjárfestinn J. C. Flowers slitnaði í gær. Það yrði fyrsta þjóðnýting þýsks banka frá árinu 1931.
Apple setur ódýrari iPhone síma á markað í sumar og um leið verður 3G gerðin uppfærð. Hinn nýi sími mun kosta 99 dollara í Bandaríkjunum, eða rúmlega 11 þúsund krónur. Síminn verður eins í útliti, með sömu grafík en minna minni.
Flughálka er að myndast víða um land og er fólk beðið um að sýna aðgát og athuga aksturskilyrði áður en lagt er af stað. Á Vesturlandi er víðast hvar flughálka.
Mikill samdráttur á evrusvæðinu
Landsframleiðslan dróst saman um 1,5% á evrusvæðinu á milli þriðja og fjórða fjórðungs síðastliðins árs og er það mesti samdráttur á milli ársfjórðunga sem mælst hefur á svæðinu í 13 ár. Samdrátturinn var mikill í tveimur stærstu hagkerfum svæðisins, Þýskalandi og Frakklandi, segir Greining Glitnis.
AGS boðar tímasetta áætlun um afnám hafta
Heildarmat á skilvirkni hamlanna á gjaldeyrismarkaði og áform um að aflétta þeim smám saman verður hluti af fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda sem unnin er í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) núna í febrúar, segir Greining Glitnis.
Ráðinn framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum
Björn Zoëga bæklunarskurðlæknir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum. Aðrir umsækjendur voru Friðbjörn Sigurðsson, Kristján Sigurðsson og Vilhelmína Haraldsdóttir.
Aurora velgerðasjóður ráðstafar 111,5 milljónum
Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur úthlutað alls 111,5 milljónum króna í styrki til sex verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar hérlendis og í Afríkuríkjunum Síerra Leóne og Mósambík, þar af til fjögurra verkefna sem sjóðurinn hefur ekki styrkt áður.
Danir rifja upp hrakfarir Dash 8/Q400
Flugslysið í Buffalo þar sem ný gerð Dash 8/Q400 hrapaði verður til þess að Danir rifja enn upp hrakfallasögu þessarar flugvélartegundar hjá SAS. Félagið stöðvaði rekstur allra slíkra véla af eldri gerð Q400 eftir þrjú óhöpp en hefur nú endurnýjað flotann með nýju gerðinni.
Ólöf Nordal þingmaður fer fram í Reykjavík
Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur ákveðið að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar. Prókjörið fer fram 13. og 14. mars næstkomandi.
Ætlum að koma standandi út úr kreppunni
„Við fórum standandi inn í þessa kreppu og ætlum helst að koma standandi út úr henni,“ segir Andrés Sigurðsson rekstrarstjóri Loftorku í Reykjavík, en fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir ákveðin viðbrögð við efnahagsþrengingunum,segir á síðu SA.
Einar Skúlason vill fyrsta sæti hjá framsókn í Reykjavík
Einar Skúlason, skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að bjóða sig fram í fyrsta sæti flokksins í Reykjavík suður í komandi þingkosningum.
Fiskafli í janúar nam alls 70.852 tonnum í janúar 2009 samanborið við 76.891 tonn í janúar 2008. Metinn á föstu verði var hann þó 33% verðmeiri en á sama tíma í fyrra, segir Hagstofan.
Kastrup verður safnflugvöllur langflugs SAS
Norræna flugfélagið SAS verður að draga saman seglin í kreppunni. Hluti af því er að gera Kastrupflugvöll í Kaupmannahöfn að safnflugvelli fyrir langflug félagsins í austur og vestur. Norðmenn og Svíar verða því í flestum tilfellum að fljúga til Kaupmannahafnar, ætli þeir að nota SAS til langferða.
Meira tap á Air France-KLM en búist var við
Risaflugfélagið Air France-KLM tapaði miklu á þriðja fórðungi ársins, 505 milljónum evra, eða sem svarar 75 milljörðum íslenskra króna. Tapið er rúmlega tvöfalt meira en sérfræðingar höfðu spáð.
Bílasala minnkar um 27% í Evrópu - hrun á Íslandi, Írlandi og Lettlandi
Sala bifreiða í Evrópu dróst saman um 27% í janúar og hefur sala ekki verið minni í rúma tvo áratugi, samkvæmt upplýsingum Samtaka evrópskra bílaframleiðenda. Nær algjört hrun var í sölu á Íslandi, Írlandi og Lettlandi.
Danske Bank tapar mest norrænna stórbanka
Danske Bank tapar mest norrænna stórbanka. Útþensla bankans til Írlands og Finnlands hefur haft vond áhrif á rekstur hans. Sex stærstu bankar á Norðurlöndunum Nordea, Danske Bank, Handelsbanken, SEB Bank, DnB Nor og SwedBank töpuðu 461 milljarði króna.
XD: Árni Árnason vill 4. sæti Suðurkjördæmi
Árni Árnason blaðamaður úr Reykjanesbæ, gefur kost á sér í 4. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, sem fram fer 14. mars næstkomandi.
Glitnir lækkar leigugreiðslu bílasamninga
Glitnir Fjármögnun hefur ákveðið að bjóða þeim viðskiptavinum sem eru með bílasamninga í erlendri mynt skilmálabreytingu sem felur í sér tímabundna lækkun á leigugreiðslu í 8 mánuði og lengingu á samningi um fjóra mánuði.
Hagfræðingar svartsýnni á efnahagsbata í Bandaríkjunum
Hagfræðingar eru almennt svartsýnni á bata í efnahagslífinu í Bandaríkjunum en áður. Þetta er niðurstaða könnunar Wall Street Journal. Flestir búast við nokkrum hagvexti á seinni helmingi ársins en ekki nægjanlegum.
Hlutabréf í Asíu hækkuðu nokkuð í verði í fyrsta skipti í fimm daga. Það voru bankar og rafeindafyrirtæki sem leiddu hækkunina. Enn einu sinni hafa fjárfestar reynt að lofa bjartsýni ráða ferðinni. MSCI Asíu vísitalan hækkaði um 1,2%.
49 látnir í flugslysi í Buffalo í New York-ríki
49 manns fórust þegar farþegavél á leið til Buffalo-borgar í New York-ríki hrapaði skömmu fyrir lendingu, þarf af voru 44 farþegar og fjögurra manna áhöfn. Einn maður á jörðu lést. Flugvélin, sem var frá Continental flugfélaginu átti aðeins fimm mínútur á áfangastað.
Rannsókn á sölu stjórnarmanna á stofnbréfum í SPRON
Ríkissaksóknari hefur falið efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra að rannsaka sölu þriggja stjórnarmanna í SPRON á stofnbréfum sumarið 2007, áður en fyrirtækið var skráð á markað. Rannsóknin beinist að Hildi Petersen, Ásgeiri Baldurs og Gunnari Þór Gíslasyni.
Smáfuglarnir eru þeirrar skoðunar, að það þurfi enginn að krefjast afsagnar Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, hún hljóti, trú eigin skoðun, að segja af sér, eftir að hafa verið dæmd fyrir lögbrot í héraðsdómi.
Verður Jóhanna krafin um afsögn?
Smáfuglarnir fengu sjokk þegar þeir lásu um það að Héraðsdómur hefði fellt þann dóm að Jóhanna Sigurðardóttir hefði brotið stjórnsýslulög, sem félagsmálaráðherra. Fjölmiðlar og ýmsir stjórnmálamenn hafa kallað eftir afsögn ráðherra af minna tilefni.