amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:24
 

Fimmtudagurinn 12. febrúar 2009

«
11. febrúar

12. febrúar 2009
»
13. febrúar
Fréttir

AGS gerir athugasemdir við menntunarkröfur

Alþjóða­gjaldeyris-sjóðurinn hefur gert nokkrar efnislegar athugasemdir við seðlabanka­frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra. Meðal annars er bent á að ekki sé venja að kveðið sé á í lögum um hvaða menntun seðlabanka­stjórar eigi að hafa.

Snjóbrettum stolið í Bláfjöllum

Mikið er um að snjóbrettum sé stolið þessa dagana. Að undanförnu hafa lög­reglu borist margar slíkar tilkynningar og ekkert lát virðist vera á. Tilkynningarnar hafa nánast undantekningarlaust komið frá þeim sem hafa farið á snjóbretti í Bláfjöll.

Fjórir líklegir framkvæmda­stjórar NATO

Solomon Passy, fyrrverandi utanríkis­ráðherra Búlgaríu, sækist eftir því að verða framkvæmda­stjóri NATO. Nýr framkvæmda­stjóri tekur við af Hollendingurinn Jaap de Hoop Scheffer í maí. Þrír aðrir þykja koma til greina í starfið.

Tekin tvisvar fyrir ölvunarakstur

Kona var tekin í tvígang fyrir ölvunarakstur á einum sólarhring í umdæmi lög­reglunnar á höfuðborgar­svæðinu. Fyrst var hún stöðvuð í ónefndu sveitar­félagi á þriðjudagskvöld en þar lenti konan í umferðaróhappi.

Leifsstöð framúrskarandi

Þjónusta í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli er framúrskarandi að mati alþjóða­samtaka flugvallarekenda, Airports Council International. Í reglulegri gæðakönnun samtakanna meðal flugfarþega var stöðin í fyrsta sæti evrópskra flugstöðva.

Rússar vilja víðtæk tengsl við NATO

Rússland óskar eftir víðtækum og nánari tengslum við NATO sem er í þágu beggja aðila, segir Dmitrij Medvedev Rússlands­forseti. Meiri sáttatónn er í rússneskum stjórnvöldum gagnvart Bandaríkjunum og NATO og eftir að Barack Obama tók við embætti Bandaríkjaforseta.

Sitt er hvað langreyður og langreyður

Ekki er hægt að setja alla langreyðar­stofna undir einn og sama hatt. Eins mætti friða hreindýr á Íslandi vegna þess að hreindýra­stofninn í Kanada væri illa á sig kominn, segir Gísli Víkingsson hvalasér­fræðingur í viðtali við Fiskifréttir.

Staða Haga sterk

Greiðslustöðvun Baugs hefur ekki áhrif á rekstur Haga, segir í tilkynningu félagsins. Þar kemur fram að rekstur Haga hafi gengið ágætlega á yfirstandandi rekstrarári. Meðal fyrirtækja innan vébanda Haga eru Bónus, Hagkaup og 10-11.

Seinheppinn ökumaður

Hann var heldur seinheppinn ökumaðurinn sem varð á vegi lög­reglumanna í miðborginni í gær. Laganna verðir komu honum til aðstoðar en búið var að brjótast inn í bíl mannsins. En þar með voru vandræðin ekki að baki.

Vonum framar gengur að framfylgja áætlun stjórnvalda með AGS

Efnahags­áætlun stjórnvalda sem unnin er í samstarfi við Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn (AGS) gengur almennt vel samkvæmt skýrslu starfsmanna AGS. Þrátt fyrir að aðgerðir í peningamálum hafi þegar skilað árangri telja starfsmenn AGS að enn sé of snemmt að breyta um stefnu.

Netanyahu gerir sér vonir um endurkomu

Bæði fráfarandi utanríkis­ráðherra og leiðtogi Kadima­flokksins í Ísrael, Tzipi Livni og Benjamin Netanyahu, formaður Likudbandalagsins, hafa lýst yfir sigri í þingkosningunum. Þó er talið að Netanyahu standi betur að vígi en Livni til stjórnar­myndunartilraunar.

Þokkalegt gos í Coca-Cola

Bréf í gosdrykkja-framleiðandanum Coca-Cola hækkuðu um 5% í dag vegna jákvæðari afkomu en búist hafði verið við. Samdráttur er þó umtalsverður milli ára en honum hefur verið mætt með miklum niðurskurði útgjalda.

Norðmenn í markaðsherferð með þorskinn

Norðmenn ætla á næstunni að verja sem svarar 340 milljónum ísl. króna til markaðsstarfs á þorski. Verð á þorski á mörkuðum hefur farið lækkandi á undanförnum vikum og mánuðum.

Nær þúsund einstaklingar fengu ríkisborgararétt 2008

Alls fengu 979 einstaklingar íslenskt ríkisfang á árinu 2008. Pólverjar voru flestir en Filippseyingar og Serbar fylgdu í kjölfarið.

Atvinnuleysi eykst enn í Bandaríkjunum

Fjórðu vikuna í röð eykst avinnuleysi í Bandaríkjunum. Nú er 4,81 milljón manna á atvinnuleysibótum í landinu.

Búddahof við Hádegismóa

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að úthluta lóð til tælenska félagsins, Thai Temple in Iceland Foundation, undir Búddahof.

Viðar Guðjohnsen vill leiða lista frjálslyndra í Reykjavík suður

Viðar Guðjohnsen, formaður Lands­sambands ungra frjálslyndra, sækist eftir að leiða lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík suður.

Færri Danir vilja skipta dönsku krónunni út fyrir evru

Leita þarf aftur til ársins 2001 til að finna jafn lítinn stuðning á meðal Dana við að skipta dönsku krónunni út fyrir evruna og í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar Gallup fyrir danska dagblaðið Berlingske Tidende.

Hæsta íbúðaverð í heimi er í Mónakó

Gleymið öllu um frosinn fasteigna­markað og mikið verðfall. Fasteignakreppan þekkist ekki í furstadæminu Mónakó, þar sem hver fermetri fasteignar kostar um fimm milljónir króna. Moskva og London eru í öðru og þriðja sæti en langt á eftir borgríkinu við Miðjarðarhafið.

Almenn og svipuð svartsýni í hagspám

Talsvert hefur verið birt af hagspám fyrir íslenskt efnahagslíf undanfarið. ASÍ birti nýja spá í gær, Seðlabankinn 29. janúar, Moody's 22 janúar og fjármála­ráðuneytið 20. janúar. Segja þær allar svipaða sögu, að samdráttur verði afar mikill í ár.

Stefnir í að atvinnuleysi nái áður óþekktum hæðum

Atvinnuleysi eykst nú hröðum skrefum og er útlit fyrir að það nái áður óþekktum hæðum á vordögum. Atvinnuleysi er nú 6,6% og stefnir í að það fari í eða yfir 10% fyrir sumarið, að því er fram kemur hjá Greiningu Glitnis.

Mikið dró úr aðflutningi fólks til landsins árið 2008

Mikið dró úr aðflutningi fólks til landsins árið 2008 en þá fluttu 1.144 fleiri til landsins en frá því. Miklu munar frá árunum 2006 og 2007 sem voru metár. Hvað innanlandsflutninga varðar hafa Suðurnes náð því forskoti sem höfuðborgar­svæðið hafði áður.

SA: Þrek fyrirtækjanna dvínar ört

Tæplega sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA fækkuðu ekki starfsmönnum á síðasta ári þrátt fyrir versnandi rekstrarhorfur. Tæp 18% fyrirtækjanna brugðu á það ráð að breyta fullum störfum í hlutastörf til þess að forðast uppsagnir og um 18% gripu til launalækkana, að því er fram kemur í könnun SA.

Sex vilja stýra Háskólanum á Akureyri

Sex sóttu um stöðu rekstor við Háskólann á Akureyri sem var auglýst 9. janúar síðastliðinn. Menntamála­ráðherra skipar í stöðuna samkvæmt tilnefningu háskóla­ráðs.

Vilji fyrir því að miðborg Oslóar heiti Kristjanía

Meirihluti í menningar- og mennta­nefnd borgar­stjórnar Oslóar er fylgjandi því að miðborgin breyti um nafn og heiti Kristjanía. Með því á að styrkja borgrhlutann og glæða hann meira lífi. Vísað er aftur í tímann, til þess svæðis sem hét Kristjanía, áður en borgin tók að þenjast út.

Stórkaupmenn viðurkenna brot á samkeppnislögum

Félag íslenskra stórkaupmanna (FÍS) hefur viðurkennt að innan félagsins hafi átt sér stað umræður um verðlags­málefni aðildarfyrirtækja félagsins sem starfa á sviði matvöru. FÍS hefur fallist á að greiða eina milljón króna í stjórnvaldssekt vegna þessa.

Íbúða­bréf til lengri tíma könnuð

Stjórn Íbúðalána­sjóðs samþykkti á fundi sínum 5. febrúar sl. að hafin yrði könnun á stofnun nýs flokks íbúða­bréfa með lengri líftíma en núverandi útgáfa býður upp á.

Real Madrid er ríkasta knattspyrnu­félag í heimi

Fjórða árið í röð er spænska knattspyrnu­félagið Real Madrid talið hið ríkasta í heimi. Enska stórliðið Manchester United kemur næst á eftir Real Madrid en hið veika breska pund kostaði Manchesterliðið titilinn.

Kaupglaðir Danir nýta sér veika sænska krónu

Danskir smáfánar skreyta verslunarglugga í Málmey og Helsingborg, þeim sænsku borgum sem næstar eru kaupglöðum Dönum. Danir hafa nefnilega uppgötvað hina veiku sænsku krónu og streyma því yfir Eyrarsund til að gera góð kaup.

Metútflutningur Bandaríkjamanna til Kúbu

Útflutningur landbúnaðarvara frá Bandaríkjunum til Kúbu jókst um 61% á árinu 2008 miðað við árið á undan, sem er met. Kúba komst þar með í hóp 30 rikja sem kaupa mest frá Bandaríkjunum. Á liðnu ári voru Bandaríkin fimmta stærsta viðskiptaland Kúbu.

Baugur Group líklega í þrot - þeir sem ekki eiga veðkröfur tapa öllu

Morgunblaðið fullyrðir í fréttaskýringu í dag að Baugur Group stefni í gjaldþrot. Eigið fé er sagt neikvætt um 150 milljarða króna. Baugur fékk greiðslustöðvun í gær en eins og kom fram hér á AMX í gær er líklegt að eignir félagsins dugi aðeins fyrir broti af heildarskuldum.

136 huldufélög skráð á Tortola-eyju með viðskipti hér á landi

Alls fengu 136 félög, sem eru skráð til heimilis á Tortola-eyju, leyfi til að stunda viðskipti á Íslandi á árunum 2000 til 2008. Í frétt Morgunblaðsins segir að þetta komi fram í tölum frá Fyrirtækjaskrá.

Vill allsherjarkosningu í formann VR

Kristinn Örn Jóhannesson ætlar að óska eftir því að fram hafi allsherjarkosning um formennsku í VR fyrir kjörtímabilið 2009-2011. Í yfirlýsingu segir Kristinn að sitjandi formaður hafi virt beiðni félagsmanna VR um að stíga til hliðar að vettungi.

Fuglahvísl

Fjölskyldufaðir svarar smáfuglunum

Helgi J. Hauksson, fjölskyldufaðirinn, sem stýrir mannréttinda­samtökunum ALMA og hefur veist að lög­reglu og sakað hana um ósæmilega framgöngu í félags­miðstöð í Kópavogi, hefur ritað rit­stjórn AMX bréf í tilefni af því, að smáfuglar AMX hafa sagt frá bakhlið frásagna Helga J.

Fjármála­ráðherra hefur grunsemdir um lög­reglu

Magnús Björn Ólafsson, tíðindamaður kommúníska vefritsins Nei, ræddi við pólitískan leiðtoga sinn Steingrím J. Sigfússon á dögunum. Þar heldur Magnús Björn því fram, að lög­regla, dómsmála­ráðuneyti og ríkislögreglu­stjóri hafi „stundað persónunjósnir og safnað upplýsingum um almenna borgara“ og vill, að rannsókn fari fram á þessu.

Lúður Sturlu og fréttir Þóru Kristínar

Smáfuglarnir hlusta grannt eftir orðalagi fjölmiðla­manna, þegar þeir eru að segja fréttir í beinni útsendingu eða af vettvangi af nýju ríkis­stjórninni og öðru tengdu henni eins og mótmælum við Seðlabanka Íslands, sem njóta velvilja forsætis­ráðherra og fjármála­ráðherra.

Kópavogsbær gagnrýnir lög­regluskrif Smugunnar

Smáfuglarnir hafa fregnað, að Kópavogsbær hafi krafið Smuguna um að upplýsa alla þætti í fjölskyldustríðinu sem háð við lög­regluna undir merkjum mannréttinsda­samtakanna ALMA og í „fréttaskýringu“ á Smugan.is, málgagni vinstri-grænna.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX