amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:35
 

Miðvikudagurinn 11. febrúar 2009

«
10. febrúar

11. febrúar 2009
»
12. febrúar
Fréttir

Auglýst eftir for­stjóra Fjármála­eftirlitsins

Starf for­stjóra Fjármála­eftirlitsins hefur verið auglýst laust til umsóknar. Í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu kemur fram að mikilvægt sé að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst en umsóknarfrestur er til 25. febrúar.

Grétar Mar þing­flokksformaður Frjálslynda flokksins

Grétar Mar Jónsson hefur verið kosinn formaður þing­flokks Frjálslynda flokksins. Hann er þriðji þingmaður flokksins til að gegna því embætti á því stutta kjörtímabili sem senn lýkur.

Eiginkona Madoffs kom stórfé undan rétt fyrir handtöku hans

Ruth Madoff, eiginkona hins stórtæka fjársvikara á Wall Street, Bernard Madoffs, náði 15,5 milljónum dollara, rúmlega 1,7 milljörðum íslenskra króna, út úr fyrirtæki sem að hluta var í eigu manns hennar. Þetta gerðist skömmu fyrir handtöku Bernard Madoffs í desember.

Tveir sænskir sjóðir kaupa Carnegie

Tveir sænskir fjárfestinga­sjóðir keyptu í dag sænska fjárfestingabankann Carnegie en hann komst á hendur sænska ríkisins skömmu fyrir áramót. Félag í eigu íslenska félagsins Milestone var hluthafi í Carnegie þegar bankinn komst í þrot.

Grænlandsbankinn stendur keikur þrátt fyrir kreppu

Grænlandsbankinn skilaði 71,8 milljóna danskra króna hagnaði fyrir skatta í fyrra, eða sem svarar 1,4 milljörðum íslenskra króna. Hagnaður eftir skatta nam 48,7 milljónum danskra króna, eða rúmlega 954 milljónum íslenskra króna.

Forgangsatriði að styrkja gengi krónunnar

Eiríkur Guðnason seðlabanka­stjóri segir að mikilvægasta viðfangsefnið nú í peningamálum sé að ná því að gengi krónunnar verði sæmilega stöðugt og styrkist nokkuð. Líkur séu á að vextir geti lækkað mikið á árinu.

Meirihluti þingmanna skrifar undir þingsályktunartillögu um hvalveiðar

Alls hafa 36 þingmenn skrifað undir þingsályktunartillögu um að veiðum á hrefnu og langreyði hér við land skuli haldið áfram, veiðileyfi gefin út til næstu fimm ára og að árlegur leyfilegur heildarafli verði eins og kveðið er á um í veiðiráðgjöf Hafró.

Magnús og Valur standa við afsögn

Magnús Gunnarsson, formaður bankaráðs Nýja Kaupþings og Valur Valsson, formaður bankaráðs Nýja Glitnis, hafa svarað Steingrími J. Sigfússyni fjármála­ráðherra og standa við afsagnar­bréf gærdagsins.

Olíuævintýri Dana í Norðursjó fjarar smám saman út

Nýjar tölur dönsku hagstofunnar sýna að Danir fluttu mest út af olíu árið 2000. Þá var flutt út 17,1 milljón tonna af olíu úr þeim lindum í Norðursjó sem tilheyra Danmörku. Frá þeim tíma hefur dregið úr framleiðslunni og árið 2007 var hún komin niður í 15,7 milljónir tonna.

Stórtap Credit Suisse

Svissneski stórbankinn Credit Suisse tapaði um 800 milljörðum íslenskra króna í fyrra en bankinn birti uppgjör sitt í dag. Þetta er mesta tap Credit Suisse frá upphafi.

Karfaveiðar að mestu óbreyttar á Reykjaneshrygg

Karfaveiðar verða lítt breyttar á Reykjaneshrygg á árinu 2009. Afstaða Íslands á fundinum var sem fyrr að draga úr sókn. Ekki náðist samstaða um slíkt og sætti Ísland sig við það í ljósi þess að ella hefði engin stjórn orðið á veiðunum.

Dökk spá ASÍ

Fram undan er mesta samdráttarskeið sem íslenskt efnahagslíf hefur gengið í gegnum á síðari árum. Fyrir höndum eru tvö erfið ár en það tekur að rofa til að nýju á árinu 2011, segir í nýrri hagspá Alþýðu­sambands Íslands.

SI verja 280 milljónum til menntamála og nýsköpunar

Samtök iðnaðarins verja 280 milljónum króna næstu þrjú ár til verkefna á sviði menntamála og nýsköðunar. „Í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru í efnahagslífinu er brýnna en nokkru sinni fyrr að styrkja undirstöður iðnaðarins,“ segir í tilkynningu SI.

Jafnvel Warren Buffett getur keypt of snemma

Stórfjárfestirinn og milljarðamæringurinn Warren Buffett, sem margir telja slyngasta fjárfesti í heimi, er ekki óskeikull og getur verið of fljótur á sér. Fjármálakreppan hittir hann ekki síður en aðra. En það er auðvelt að vera vitur eftir á.

Baugur Group fær greiðslustöðvun

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á beiðni stjórnar Baugs Group um að veita félaginu greiðslustöðvun. Heimildin er veitt til 4. mars næstkomandi eða í þrjár vikur. Þá þarf að taka málið fyrir að nýju ef óskað er framhalds.

Arabar óttast að svín finnist í dönskum kjúklingum

Arabar hafa brugðist ókvæða við eftir að greint var frá orðrómi um að svínaprótein væri notað við danska kjúklingaframleiðslu í sjónvarpsþætti dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2. Danir neita þessu og reyna að vernda mikilvæga útflutningsgrein.

Hættulegt að aka fyrir aftan Mercedes Vito

Mercedes Benz verksmiðjurnar vilja að eigendur bíla af gerðunum Viano og Vito fari með vagna sína á verkstæði því hætta er á að varahjólið detti af á akstri. Það getur því verið hættulegt að aka næst á eftir þeim.

Atvinnuleysi ekki meira í 14 ár og eykst hratt

Skráð atvinnuleysi í janúar 2009 var 6,6% eða að meðaltali 10.456 manns og eykst atvinnuleysi um 32% að meðaltali frá desember eða um 2.554 manns. Atvinnuleysi hefur ekki verið meira í 14 ár. Í dag eru hins vegar skráðir 14.483 á vinnu.

Eiríkur Guðnason ætlar að hætta

Eiríkur Guðnason, seðlabanka­stjóri, hyggst láta af störfum fyrsta júní næstkomandi. Í bréfi sem hann skrifaði Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætis­ráðherra, fagnar hann því að hún ætli að tryggja að sem minnst röskun verði á starfsemi Seðlabanka Íslands.

Lífeyris­sjóðir stöndugir þrátt fyrir eignar­ýrnun

Hrein eign lífeyris­sjóðanna til greiðslu lífeyris var 1.658 milljarðar króna í lok árs í fyrra og hafði þá lækkað um 10% frá hruni bankanna en í lok september síðastliðins var eign þessi 1.839 milljarðar króna. Þrátt fyrir þetta eru sjóðirnir enn stórir og stöndugir.

Heimskreppan sögð Greenspan að kenna, Bush, Brown – og Geir!

Könnun eða val breska blaðsins The Guardian sýnir að flestir kenna Alan Greenspan, fyrrum banka­stjóra Seðlabanka Bandaríkjanna, um heimskreppuna. Aðrir sem eru ofarlega á þessum lista eru George W. Bush, Gordon Brown og Geir H. Haarde.

Lissabon-sáttmálinn fyrir þýskan dómstól

Þýski stjórnlagadómstóllinn í Karlsruhe hóf þriðjudaginn 10. febrúar athugun sína á því, hvort það samrýmdist þýsku stjórnar­skránni, að þýska þingið staðfesti Lissabonsáttmálann, nýjan stofnsáttmála Evrópu­sambandsins (ESB).

Bergþór vill 2. sæti í Norðvestur­kjördæmi

Bergþór Ólason, fyrrverandi aðstoðar­maður samgöngu­ráðherra, hefur ákveðið að bjóða sig fram til 2. sætis í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Norðvestur­kjördæmi vegna Alþingis­kosninganna í vor.

Trommuleikur við Seðlabankann

Fámennur hópur mótmælenda tók sér stöðu fyrir utan Seðlabanka Íslands í morgun með trommur, lúðra og barefli. Ætlunin var að hitta á banka­stjórana Davíð Oddsson og Eirík Guðnason.

Útlán Íbúðalána­sjóðs 3,6 milljarðar í janúar

Alls námu heildarútlán Íbúðalána­sjóðs tæplega 3,6 milljörðum króna í janúar. Þar af voru tæpir 2,2 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 1,4 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Meðalútlán almennra lána voru um 10,7 milljónir króna í janúar en það er um 14% minna en í fyrra mánuði.

Sjálfstætt eignar­halds­félag um hluta­bréf í bönkunum

Nefnd um endurreisn fjármálakerfisins telur rétt að hugað verði að því að setja upp sjálfstætt eignar­halds­félag sem fari með hluta­bréf ríkisins í bönkum og fjármála­stofnunum. Nefndin kynnti tillögur sínar í morgun.

Peugeot Citroën fækkar um 11 þúsund manns

PSA Peugeot Citroën, frönsku bílaverksmiðjurnar, munu fækka starfsmönnum um 11 þúsund á árinu. Ástæðan er 50 milljarða króna taprekstur. Fækkunin verður víða um heim en ekki í Frakklandi sjálfu.

Suður-afríska randið gæti bjargað Zimbabwe

Kgalema Motlanthe, forseti Suður-Afríku, hefur lagt til að Zimbabwe hætti að nota sína eigin mynt, dollar, en taki þess í stað upp gjaldmiðil Suður-Afríku, rand. Zimbabwedollar er handónýtur enda verðbólga í landinu stjarnfræðileg.

Baugur: Eignir duga fyrir 10% skulda - greiðslustöðvun afgreidd í dag

Beiðni Baugs Group um formlega greiðslustöðvun verður afgreidd hjá Héraðsdómi í dag. Forráðamenn félagsins afturkölluðu beiðni um greiðslustöðvun 14 dóttur­félaga. The Guardian heldur því fram að eignir Baugs dugi fyrir 10% skulda félagsins við íslensku bankana.

Vextir lækkaðir í 1% í Svíþjóð

Seðlabanki Svíþjóðar lækkaði stýrivexti í morgun um 1% sem er meiri vaxta­lækkun en búist var við. Hag­fræðingar höfðu gert ráð fyrir 0,5% lækkun. Stýrivextir í Svíþjóð eru því 1% eftir lækkunina.

Hluta­bréf í Asíu lækka í verði í kjölfar falls í Bandaríkjunum

Hluta­bréf á mörkuðum í Asíu lækkuðu töluvert í verði í kjölfar mestu lækkunar á Wall Street frá 1. desember. Það voru bréf fjármálafyrirtækja sem lækkuðu einna mest. Lækkunin var þó ekki eins mikil á í Bandaríkjunum í gær.

Wernersbræður missa Milestone

Bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir munu missa Milestone úr sinni eigu. Jafnframt verður eignar­hald Sjóvá fært til Íslands, en félagið hefur verið í eigu Moderna, sem skráð er í Svíþjóð, en er í eigu Milestone.

Svartur dagur á Wall Street

Hluta­bréf snarféllu í verði á mörkuðum í Bandaríkjunum í gær, þrátt fyrir yfirlýsingar Timothy Geithner, fjármála­ráðherra um að séð yrði til þess að framboð lánsfjár yrði stóraukið á komandi mánuðum. Óljósar hugmyndir ríkis­stjórnar Obama um hvernig verði staðið að verki leiddu til verðlækkunar.

Fuglahvísl

Þöggun á Bessastöðum

Smáfuglunum er ljóst, að Jóhönnu Sigurðardóttur er ákaflega mikið í mun að auka veg og virðingu Íslands á alþjóða­vettvangi. Í því skyni ákvað hún til dæmis að birta hótunar­bréf sitt í garð seðlabanka­stjóranna opinberlega. Það gleymdis greinilega við stjórnar­myndunina, að setja Bessastaðafólkið í þagnarbindindi.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX