amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:18
 

Þriðjudagurinn 10. febrúar 2009

«
9. febrúar

10. febrúar 2009
»
11. febrúar
Fréttir

Forsetinn getur bundið þjóðina að þjóðar­rétti með yfirlýsingum

Björn Bjarnason, þingmaður og fyrrverandi dómsmála­ráðherra, segir að forseti Íslands geti bundið þjóðina að þjóðar­rétti með yfirlýsingum sínum. Þess vegna sé óhjákvæmilegt að forsætis­ráðherra og/eða utanríkis­ráðherra birti opinberlega yfirlýsingu um að forseti beri enga ábyrgð á stjórnar­athöfnum.

Sjálfstæðis­flokkurinn með prófkjör í Suðvestur­kjördæmi

Kjördæmisráð Sjálfstæðis­flokksins í Suðvestur­kjördæmi samþykkti á fundi í kvöld að halda prófkjör 14. mars vegna komandi þingkosninga.

Evrópskir bílaframleiðendur þurfa 15 milljarða evra

Evrópu­sambandið þarf að vera tilbúið til fjórfalda lán til evrópskra bílaframleiðenda í um 15 milljarða evra, vegna efnahagssamdráttar, segir Carlos Ghosn, for­stjóri Renault bílaverksmiðjanna.

Tólf líkamsárásir

Tólf líkamsárásir voru tilkynntar til lög­reglunnar um helgina. Meirihluti þeirra, eða sjö, átti sér stað í miðborginni aðfaranótt laugardags. Flestar líkamsárásanna voru minniháttar.

Magnús krafinn um tæpan milljarð vegna ógreidds skatts

Skattayfirvöld krefja Magnús Þorsteinsson um tæpan milljarð fyrir ógreiddan skatt af hagnaði við sölu á hlut hans í Samson eignar­halds­félagi árið 2005. Félag á bresku Jómfrúareyjunum í eigu Magnúsar var skráð fyrir hlutnum. Magnús hyggst kæra málið til yfirskatta­nefndar, að því er segir á Vísi.

Vondir dagar forsætis­ráðherra

Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra á ekki sjö dagana sæla. Tveir af þremur seðlabanka­stjórum höfnuðu beiðni hennar að segja upp störfum og sá þriðji óskaði eftir lausn en hafnaði boði forsætis­ráðherra um viðræður um starfslok. Og með ummælum sínum á þingi flæmdi forsætis­ráðherra formenn bankaráða í burtu.

Þorgerður Katrín sækist eftir endurkjöri sem varaformaður

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir sækist eftir endurkjöri sem varaformaður flokksins á komandi landsfundi, að sögn Ríkisútvarpsins. Hún hellir sér því ekki í formannsslaginn en Bjarni Benediktsson alþingis­maður býður sig fram til formennsku.

200 kannabisplöntur haldlagðar

Lög­reglan á höfuðborgar­svæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í miðborginni eftir hádegi á föstudag. Við húsleit á áður­nefndum stað fundust rúmlega 200 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar.

Öldunga­deildin samþykkti efnahagspakka Obama

Öldunga­deild Bandaríkjaþings hefur samþykkt efnahagsbjörgunarpakka Obama Bandaríkjaforseta. Alls samþykkti 61 öldungar­deildarþingmaður áætlun forsetans en 37 voru á móti.

Eignasýslu­félag taki við „þrotaeignum“ bankanna

Við endurreisn fjármálakerfisins er áætlað að stofna eignasýslu­félag sem hefur það hlutverk að yfirtaka eignir banka, þ.e. fyrirtæki í þeirra eigu og umsjá, þar sem starfsemin er í raun komin í þrot.

Steingrímur biður Magnús og Val að sitja áfram

Steingrímur J. Sigfússon fjármála­ráðherra hefur óskað eftir því við formenn banka­stjórna Nýja Glitnis, Magnús Gunnarsson, og Nýja Kaupþings, Val Valsson, að þeir endurskoði ákvarðanir sínar um að vera leystir frá störfum og gegni störfum áfram, að minnsta kosti fram að aðalfundum bankanna.

Þuríður sækist eftir 2. sæti

Þuríður Backman alþingis­maður hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðaustur­kjördæmi vegna Alþingis­kosninganna í vor. Hún var í því sæti í síðustu þingkosningum.

Valur Valsson og Magnús Gunnarsson hætta formennsku

Valur Valsson, formaður bankaráðs Nýja Glitnis og Magnús Gunnarsson formaður bankaráðs Nýja Kaupþings hafa ákveðið að hætta sem formenn bankaráðanna. Þeir hafa sent fjármála­ráðherra sameiginlegt bréf þessa efnis.

21 stútur tekinn um helgina

Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur í umdæmi lög­reglunnar á höfuðborgar­svæðinu um helgina. Þetta voru fimmtán karlar á aldrinum 17-60 ára og sex konur, 17-48 ára.

General Motors segir upp 10 þúsund starfsmönnum

General Motors (GM), stærsti bílaframleiðandi Bandaríkjanna, hefur sagt upp 10 þúsund starfsmönnum, þar af 3400 í Bandaríkjunum. Jafnframt tilkynnti fyrirtækið um 3-10% niðurskurð launa.

Velferðarvakt sett á laggirnar

Ríkis­stjórnin samþykkti á fundi í morgun að stofnuð verði velferðarvakt í samvinnu ríkis, sveitar­félaga, aðila vinnu­markaðarins og fleiri aðila til að fylgjast með félagslegum og fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins á einstaklinga og fjölskyldur.

Áhrif efnahagsþrenginga á stöðu kynjanna

Ríkis­stjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að settur verði á fót vinnuhópur til að meta áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna. Hópurinn verður skipaður af Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, félags- og tryggingamála­ráðherra.

Kaupþing tekur yfir rekstur Heklu

Kaupþing hefur tekið yfir rekstur bílaumboðsins Heklu, sem m.a. er með umboð fyrir Volkswagen, Skoda, Audi og Mitsubishi. Fyrri eigendur halda Mercedes Benz umboðinu Öskju og Kia umboðinu Árfelli-Kia.

Viðskipta­ráðherra áréttar óbreytta afstöðu Íslands

Gylfi Magnússon viðskipta­ráðherra hefur birt yfirlýsingu til að árétta óbreytta afstöðu ríkis­stjórnar Íslands gagnvart innistæðum útibúa íslenskra banka á EES-svæðinu. Yfirlýsingin kemur í kjölfar viðtals Financial Times Deutschland við forseta Íslands.

Fámennt á samkomu Harðar og Bubba

Fámennur hópur mætti í morgun fyrir utan Seðlabanka Íslands og krafðist þess að Davíð Oddsson segði af sér störfum. Hljómsveitin EGO spilaði nokkur lög fyrir hópinn. Að sögn fundarmanns sem AMX ræddi við var um fámennasta fund Harðar til þessa að ræða.

Útlendingar áhugalitlir um skulda­bréfaútboð

Erlendir aðilar hafa ekki verið eins umsvifamiklir kaupendur í útboðum Seðlabankans á ríkis­bréfum og -víxlum og ætla mætti, en innlendir aðilar á borð við banka og verðbréfa­sjóði eru þeim mun áhugasamari kaupendur þessa dagana, segir Greining Glitnis.

Forsetinn segir þýska blaðamanninn ekki hafa rétt eftir sér

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti segir að þýski blaðamaðurinn sem tók við hann viðtal hafi ekki rétt eftir honum varðandi skuldbindingar Íslendinga vegna Egde-reikninga Kaupþings í Þýskalandi. Þýska útgáfa Financial Times hefur það eftir forsetanum að Íslendingar muni ekki bera tap þýskra sparifjár­eigenda.

Hvert stefnir íslenska krónan?

Raungengi krónunnar er nú um 30% undir langtímameðaltali og kaupmáttur krónunnar þannig mun minni en áður. Á hinn bóginn má segja að gengi krónunnar sé nokkuð sterkt nú miðað við hversu alvarleg núverandi kreppa er og hvernig gengi hennar væri líklegast ef hún væri í frjálsu floti, segir Greining Glitnis.

Eignaumsýslu­félag taka yfir fyrirtæki af bönkunum

Ríkis­stjórnin hefur ákveðið að stofna sérstakt eignaumsýslu­félag til að taka yfir fyrirtæki sem í raun eru komin í þrot. Með þessu er verið að létta af efnahagsreikningi bankanna en félögin eru 15-20 talsins og segir forsætis­ráðherra að þau hafi sam­félagslegt gildi.

Gjaldeyris­forði Seðlabankans minnkar lítillega

Gjaldeyris­forði Seðlabankans minnkaði um ríflega 65 milljarða króna í janúar, en styrking krónu skýrir stærstan hluta þeirra hreyfingar,segir Greining Glitnis.

Nýtt flug­félag býður sérstök kvennaklósett

Nýtt flug­félag, V Australia, dóttur­félag Virgin Blue, hefur flug 27. febrúar næstkomandi og býður upp á nýjung, kvennaklósett um borð í vélum sínum.

Orð forsetans ganga þvert á yfirlýsingar skila­nefndar

Orð Ólafs Ragnars Grímssonar forseta um að Íslendingar muni ekki greiða tap þýska sparifjár­eigenda vegna Edge-reikninga Kaupþings, ganga þvert á fyrirliggjandi upplýsingar frá skila­nefnd gamla Kaupþings.

Nýir fulltrúar í stjórn LÍN

Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra hefur skipað nýja fulltrúa menntamála­ráðherra og fjármála­ráðherra í stjórn Lána­sjóðs íslenskra námsmanna.

Bjarni Ármannsson ekki á bakvið tilboð í Senu

Bjarni Ármannsson, fyrrverandi for­stjóri Glitnis banka, er ekki meðal þeirra sem standa að tilboði í Senu. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að fjögur tilboð hefðu borist í fyrirtækið, sem er í sölumeðferð, og var nafn Bjarna nefnt í því sambandi.

Aukakjördæmaþing framsóknar­manna

Aukakjördæmaþing framsóknar­manna í öllum kjördæmum landsins verða haldin næstkomandi laugardag, 14. febrúar. Þar mun hvert kjördæmi fyrir sig taka ákvörðun um hvernig staðið verði að vali á framboðslista framsóknar­manna vegna kosninga til Alþingis í vor.

Olíuskip brennur út af Dúbaí

Eldur kom upp í olíuskipi út af ströndum Dúbaí í morgun, líklega eftir árekstur við gámaskip. Skipið var á leið frá Írak til Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Ekki er nánar vitað um tjón vegna brunans.

Ríkis­stjórnin vill 100% endur­greiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað

Samkvæmt frumvarpi ríkis­stjórnar­innar sem nú hefur verið lagt fram á þinginu, verður allur virðisaukaskattur endurgreiddur af vinnu á byggingarstað við viðhald eða nýbyggingu íbúðahúsnæðis.

Borgum ekki þýskum sparifjár­eigendum segir Ólafur Ragnar

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að Þjóðverjar geti ekki ætlast til þess að Íslendingar endurgreiði þýskum sparifjár­eigendum innistæður á Edge-reikningum Kaupþings í Þýskalandi.

Víðtæk sátt um niðurskurð í ríkisrekstri nauðsynleg

Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir að taka verði af skarið og leita leiðra til að spara í ríkisrekstri og ná um það víðtækri sátt. Alþingi á að selja á laggirnar sparnaðar­nefnd sem hefur það að markmiði að undirbúa sparnað í ríkisrekstrinum á fjárlögum 2010.

Deilur seðlabanka og ríkis­stjórnar skaða Ísland

Financial Times segir að deilur milli seðlabanka­stjóra og forsætis­ráðherra kunni að draga enn frekar úr trúverðugleika Íslands á aðþjóðavettvangi. Þá heldur blaðið því fram að hugmyndir ríkis­stjórnar um að endursemja við Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn geti skaðað landið enn frekar.

Svíar ánægðastir með BMW og Toyota

Könnun meðal þrjú þúsund Svía sem hafa keypt sér nýjan bíl undanfarin þrjú ár sýnir að þeir sem keyptu sér BMW og Toyota eru ánægðastir með bílana sína.

UBS bankinn tapaði 19,7 milljörðum franka 2008

UBS, svissneski bankinn, tapaði 19,7 milljörðum svissneskra franka á síðasta ári eða um 1.900 milljörðum króna. Tapið er meira en reiknað hafði verið með. Á fjórða ársfjórðungi nam tapið 8,1 milljarði franka.

Um 270 þúsund manns hafa misst vinnuna í fjármálageiranum

Bankar víða um heim halda áfram að segja upp fólki, nú síðast svissneski stórbankinn UBS. Með þeim uppsögnum hafa um 270 þúsund manns misst vinnuna í fjármálaheimi víða um lönd frá því að bandaríski undirmálslána­markaðurinn hrundi.

Skuldabréfa­markaðir taka við sér og traust fyrirtæki nýta sér aðstæður

Skuldabréfa­markaðurinn í Bandaríkjunum er að taka við sér þegar kemur að útgáfu skulda­bréfa traustra fyrirtækja. Cisco Systems kláraði fjögurra milljarða dollara skulda­bréfaútboð í gær, en á síðustu vikum hafa nokkur af stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna lokið við velheppnuð útboð.

Jón Ólafsson vill Skífuna aftur

Jón Ólafsson hefur gert tilboð í Senu en innan veggja fyrirtækisins er meðal annars Skífan, sem hann stofnaði á sínum tíma. Jón stendur á bak við eitt af fjórum tilboðum sem lögð hafa verið fram í Senu sem er í sölumeðferð hjá Straumi-Burðarási.

Lífeyrisréttindi skerðast um 5-10%

Lífeyrisréttindi skerðast að jafnaði um 5-10% á þessu ári vegna bankahrunsins, en mismunandi er eftir sjóðum hvort skerðing mun eiga sér stað. Lífeyris­sjóðir á almennum vinnu­markaði þurfa að grípa til skerðinga á meðan Lífeyris­sjóður opinberra starfsmanna og sjóðir sveitar­félaga komast hjá skerðingu.

Vegir víða auðir

Vegir eru víða auðir á Suðurlandi. Hringvegurinn er t.a.m. auður austur að Hvolsvelli en hálka eða hálkublettir þar fyrir austan. Á Vesturlandi er mikið autt í Hvalfirði og Borgarfirði Dölum. Þá er hált á Vestfjörðum.

Fuglahvísl

Fjölskyldustríð við lög­reglu?

Smugan, netmiðill v/g, sem er í nöp við, að lög­regla verndi Alþingi og tryggi því starfsfrið birti 9. febrúar fréttaskýringu undir fyrirsögninni: Umdeild lög­regla.

Boðið í Senu og skroppið á Bessastaði

Fulltrúar William Morris Agency voru staddir hér á landi en fyrirtækið hefur lagt inn tilboð í Senu í samvinnu við Jón Ólafsson. Innan Senu er Skífan, gamla fyrirtækið hans Jóns. Eins og flestum er kunnugt er ágætur vinskapur á milli Jóns og Ólafs Ragnars Grímssonar forseta.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX