amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:04
 

Mánudagurinn 9. febrúar 2009

«
8. febrúar

9. febrúar 2009
»
10. febrúar
Fréttir

Að minnsta kosti átta sitjandi þingmenn ætla að hætta

Að minnsta kosti átta þingmenn ætla að láta af þingmennsku og nokkrir eiga eftir að gera opinbert fyrirætlan um framboð. Flestir koma úr röðum Sjálfstæðis­flokksins en þar hafa fimm sitjandi þingmenn lýst því yfir að þeir ætli ekki að leita eftir endurkjöri.

Obama ýtir við þinginu vegna neyðarpakkans

Barack Obama Bandaríkja­forseti ýtir mjög á Bandaríkjaþing að samþykkja 900 milljarða dollara neyðaraðstoð án nokkurrar tafar.

Guðfinna Bjarna­dóttir hættir þingmennsku

Guðfinna S. Bjarna­dóttir, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, hyggst ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu á Alþingi. Þetta kemur fram á fréttavef RÚV. Guðfinna er þriðji þingmaður Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík sem sækist ekki eftir endurkjöri.

Atvinnuleysi eykst í OECD löndunum

Atvinnuleysi eykst í OECD-ríkjunum, Efnahags- og framfara­stofnuninni, að því er nýjar tölur sýna. Í desember var atvinnuleysi í 30 aðildarríkjum stofnunarinnar 6,8% sem er 1,1% meira en var í sama mánuði árið 2007.

Mannslát í Kapelluhrauni - dánarorsök óljós

Bráðabirgðaniðurstaða krufningar hefur ekki varpað ljósi á dánarorsök konu á fertugsaldri, sem fannst látin í Kapelluhrauni, sunnan Hafnarfjarðar, á fimmtudag. Áfram er unnið að rannsókn málsins, sem er viðamikil.

Hreinar skuldir ríkis­sjóðs 27% af landsframleiðslu í árslok

Sterk staða ríkis­sjóðs sem byggð var upp á umliðnum árum með niður­greiðslu skulda og aukningu peningalegra eigna auðveldar þjóðinni að takast á við áfall vegna hruns gömlu viðskiptabankanna, segir í grein á síðu Samtaka atvinnulífsins.

Rannsóknarkvóti til loðnuskipa

Steingrímur J. Sigfússon sjávar­útvegs- og landbúnaðar­ráðherra hefur ákveðið að heimila tak­markaðar loðnuveiðar íslenskra skipa í rannsóknaskyni.

Áhyggjur norrænna utanríkis­ráðherra af Sri Lanka og Gaza

Norrænu utanríkis­ráðherrarnir lýstu í dag yfir áhyggjum sínum vegna ástandsins á Sri Lanka þar sem um 250.000 óbreyttir borgarar hafa lokast inni á átakasvæðum. Þá sögðu utanríkis­ráðherrarnir að bráð nauðsyn væri á að auka aðstoð við Palestínumenn á Gaza.

Jón Magnússon utan þing­flokka

Jón Magnússon, þing­flokksformaður Frjálslynda flokksins, tilkynnti við upphaf þingfundar í dag, að hann hefði sagt sig úr Frjálslynda flokkinum. Hann mun því starfa utan þing­flokka fram að þingkosningum.

Forsætis­ráðherra gefur eftir í frumvarpi um Seðlabankann

Jóhanna Sigurðar­dóttir, forsætis­ráðherra dró til baka tillögu sína um að vísa Seðlabanka­frumvarpi ríkis­stjórnar­innar til efnahags- og skatta­nefndar til meðferðar. Tillaga var gerð um að frumvarpinu yrði vísað til viðskipta­nefndar og er ljóst að ráðherra taldi sig ekki hafa þingmeirihluta fyrir tillögu sinni.

Pútín neitar því að vera Abba-aðdáandi

Vladimir Pútín, forsætis­ráðherra Rússlands, ber til baka að hann hafi staðið að skemmtun Abba-eftirlíkingar og hrópað bravó eftir flutning lagsins Mamma Mia. Slíkt þykir skaða karlmennskuímynd forsetans og KGB-njósnarans fyrrverandi, sem auk þess er með svarta beltið í júdó.

Óljúft að biðjast lausnar enda gefið í skyn að ófaglega sé staðið að verki

Eiríkur Guðnason, seðlabanka­stjóri hafnaði beiðni forsætis­ráðherra að biðjast lausar frá störfum. Í svar­bréfi sínu til forsætis­ráðherra segir Eiríkur að ráðherrann hafi gefið í skyn að ekki hafi verið faglega staðið að verki í Seðlabankanum. Honum er því óljúft að biðjast lausnar.

Nánara samstarf Norðurlandanna í öryggismálum

Össur Skarphéðinsson utanríkis­ráðherra tók í dag, fyrir hönd norrænna starfsbræðra sinna, við skýrslu Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkis- og varnarmála­ráðherra Noregs, um norrænt samstarf í utanríkis- og öryggismálum.

Sigurður Tómas verður lögfræðilegur ráðgjafi sérstaks saksóknara

Sigurður Tómas Magnússon verður lögfræðilegur ráðgjafi Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara sem ætlað er að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum og kjölfar bankahrunsins.

Hefur fengið rúmar 38 milljónir frá skattgreiðendum

Athugun á úthlutun rithöfundalauna úr opinberum sjóðum leiðir í ljós að Hallgrímur Helgason hefur einn fárra fengið styrki ár hvert frá árinu 1993 að einu ári undanskildu. Samanlögð upphæð styrkjanna nemur rúmum 38 milljónum.

Þrjátíu vandarhögg fyrir reykingar í flugvél

Súdani sem reykti um borð í vél Saudi Arabian Airlines var dæmdur fyrir afbrot sitt. Hann mátti þola 30 vandarhögg. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem maður er húðstrýktur fyrir reykingar á flugleiðinni frá Qurayyat til Jeddah í Sádi-Arabíu.

Konur í útrásarhug

Útflutningsráð Íslands og Impra á Nýsköpunar­miðstöð Íslands bjóða á ný upp á verkefni sem ætlað er að styðja við fyrirtæki Brautargengiskvenna sem hyggja á útrás.

Segir starfsemi FME ekki hafa skaðast

Viðskipta­ráðuneytið segir í tilkynningu að dagleg starfsemi Fjármála­eftirlitsins hafi ekki orðið fyrir skaða vegna starfsloka for­stjóra þess. Tilkynningin er send vegna ummæla formanns banka­stjórnar Seðlabanka Íslands um stjórn Fjármála­eftirlitsins.

Stjórn Obama gæti þvingað bílarisana í gjaldþrot

Vera kann að ríkis­stjórn Baracks Obama Bandaríkjaforseta neyði bílarisana tvo, General Motors og Chrysler, í gjaldþrot. Til slíks gætu stjórnvöld gripið til þess að tryggja forgang að endur­greiðslu 17,4 milljarða dollara láns.

Ásmundur tryggir best samfellu í stjórnun nýja Landsbankans

Bankaráð nýja Landsbankans segir að tímabundin ráðning Ásmundar Stefánssonar í stöðu banka­stjóra, tryggi best samfellu í stjórnun bankans. Ásmundur gegnir stöðu banka­stjóra tímabundið uns ráðið verður nýr banka­stjóri.

Erla Ósk sækist eftir 5. sæti í prófkjöri sjálfstæðis­manna

Erla Ósk Ásgeirs­dóttir, varaþingmaður hefur ákveðið að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík. Hún sækist eftir 5. sæti. Hún situr í stjórn Sambands ungra sjálfstæðis­manna og var formaður Heimdallar.

Gamli Glitnir gæti greitt 20-40% upp í kröfur

Óraunhæft er að selja eignir Gamla Glitnis fyrr en eftir tvö ár, þegar markaðir hafa skánað. Óvissa er í eignamati en með fyrirvara um hana gætu fengist 20-40% upp í kröfur.

Lítil velta á íbúða­markaði

Mikið hefur dregið úr veltu á húsnæðis­markaði undanfarið. Alls voru gerðir 117 kaupsamningar um íbúðahúsnæði á höfuðborgar­svæðinu í janúarmánuði. Umsvifin á íbúða­markaði hefur samkvæmt þessum tölum dregist saman um 65% á milli ára, segir Greining Glitnis.

Fyrirtæki sem vart gátu mannað stöður velja nú úr

Kreppan bætir stöðu margra vinnuveitenda sem áttu í erfiðleikum með að manna stöður meðan þensla ríkti. Í Danmörku eru biðraðir eftir hreingerningastörfum, afgreiðslustörfum hjá McDonalds og akstri leigubíla og strætisvagna.

Sex nýir starfsmenn hjá Saga Capital Fjárfestingarbanka

Saga Capital hefur að undanförnu ráðið sex nýja starfsmenn á hin ýmsu svið bankans: Borghildur Sif Marinós­dóttir, Guðrún Högna­dóttir, Írena Elínbjört Sædísar­dóttir, Katrín Ýr Péturs­dóttir, Óli Þór Jónsson og Róbert Styrmir Helgason.

Dóttur­félag Eimskips í Hollandi gjaldþrota

Dóttur­félag Eimskip í Hollandi verður tekið til gjaldþrotaskipta eftir að sala á fyrirtækinu gekk ekki eftir. Fjárhagsleg áhrif á Eimskip eru óveruleg samkvæmt tilkynningu þar sem dóttur­félagið var að fullu afskrifað.

Íslendingar eru hinir nýju Pólverjar

Atvinnulausir Íslendingar flykkjast til Noregs í von um vinnu, segir á norski vefmiðillinn E24 og vitnar í grein í dagblaðinu Aftenposten undir fyrirsögninni: „Íslendingar eru hinir nýju Pólverjar“.

Ryanair hyggst hjóla í SAS á heimavelli

Michael O'Leary, for­stjóri írska lágfargjaldaflug­félagsins Ryanair, hefur tilkynnt um þá fyrirætlun félagsins að keppa við norræna flug­félagið SAS á heimavelli, þ.e. Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn. Félagið segist geta bætt við 10 milljónum farþega árlega, fái það umbeðið verð og þjónustu.

Nissan fækkar starfsmönnum um 20 þúsund

Nissan bílaverksmiðjurnar munu fækka starfsmönnum um 20 þúsund næstu 12 mánuði eða um 8,5% af heildarfjölda. Fækkunin nær til allra landa en fyrirtækið hefur greint frá því að reiknað sé með að rekstrartap á þessu reikningsári nemi 2,9 milljörðum dollara.

Góður hagnaður Barclays þrátt fyrir kreppu

Forráðamenn breska stórbankans Barclays geta glaðst vegna afkomu hans á árinu 2008. Þrátt fyrir fjármálakreppu nam hagnaður bankans 4,38 milljörðum punda, eða sem svarar 735 milljörðum íslenskra króna

Vonbrigði Jóhönnu

Í tilefni af bréfi Davíðs Oddssonar, formanns banka­stjórnar Seðlabankans, vill forsætis­ráðherra lýsa miklum vonbrigðum með þá afstöðu sem banka­stjórinn hefur ákveðið að taka í þessu máli, segir í yfirlýsingu Jóhönnu Sigurðardóttur eftir að ljóst varð að Davíð yrði ekki við kröfu hennar um afsögn.

Fundur um bótarétt og eignarnám vegna framkvæmda

Bænda­samtök Íslands hafa boðað til kynningarfundar í framhaldi af ályktun Búnaðarþings 2008 um bótarétt vegna framkvæmda í almannaþágu og framkvæmd eignar­náms. Fundurinn verður haldinn í Bændahöllinni í Reykjavík, salnum Princeton á 2. hæð, mánudaginn 9. febrúar nk. kl. 13:30.

Fuglahvísl

Vinstri grænir skildir útundan?

Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra hefur skipað sérstakan ráðgjafahóp vegna undirbúnings frumvarpa til breytingar á stjórnar­skránni. Í hópnum eiga sæti Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands, Bryndís Hlöðvers­dóttir og Gísli Tryggvason.

Davíð leiðréttir Jóhönnu

Smáfuglunum stóð ekki á sama, þegar þeir lásu í bréfi Davíðs Oddssonar til Jóhönnu Sigurðardóttur, að hún hefði ekki sagt satt og rétt frá bréfinu, sem henni barst frá Ingimundi Friðrikssyni, þegar sagði af sér sem seðlabanka­stjóri.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX