| « 7. febrúar |
■ 8. febrúar 2009 |
» 9. febrúar |
Björn sammála Davíð að bréf Jóhönnu sé einsdæmi
Björn Bjarnason alþingismaður tekur undir með Davíð Oddssyni, formanni bankastjórnar Seðlabanka Íslands, að bréf Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, „með lítt dulbúnum hótunum“ til bankastjóra Seðlabankans í síðustu viku sé einsdæmi.
Stjórnarskrárbreytingar undirbúnar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sett á fót ráðgjafarhóp til að vinna tillögur um breytingar á stjórnarskránni. Björg Thorarensen, forseti lagadeildar HÍ, mun leiða ráðgjafarhópinn, sem undirbúa mun frumvarp til stjórnarskipunarlaga.
Þórlindur óskar eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Þórlindur Kjartansson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann óskar eftir stuðningi í 4. sæti í prófkjörinu.
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri mun ekki verða við ósk forsætisráðherra um að láta af störfum. Það er því ljóst að hvorki Davíð né Eiríkur Guðnason verða við beiðni Jóhönnu um afsögn úr starfi seðlabankastjóra. Ingimundur Friðriksson hefur fallist á beiðni forsætisráðherra.
Rúinn trausti og næstum óstarfhæfur segir viðskiptaráðherra um seðlabankann
Í jómfrúrræðu sinni á Alþingi í umræðum um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands sagði Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, meðal annars: „Öll saga eftirstríðsáranna sem er sá tími sem við höfum haft okkar eigin sjálfstæða gjaldmiðil í þeim skilningi að hann var ekki bundinn föstu gengi gagnvart dönsku krónunni var svona. Þetta er ein samfelld hrakfallasaga.“
„Hans björgunarleiðangur er björgunarleiðangur fjármálafurstanna“
Morgunblaðið birtir sunnudaginn 8. febrúar úttekt Agnesar Bragadóttur á aðild Lúðvíks Bergvinssonar, formanns þingflokks Samfylkingarinnar, að fasteignafélaginu Miðkletti. Af þessu tilefni ákváðu smáfuglarnir að gúgla til að glöggva sig á ferli Lúðvíks og líta nokkra mánuði aftur tímann.